Morgunblaðið - 03.10.1998, Page 49

Morgunblaðið - 03.10.1998, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ áfangastaður starfsmanna íslands- flugs hvort sem þeir flugu sjálfir eða fóru með í áætlun og nánast undantekningarlaust fór einhver starfsmaður með á Gjögur og ávallt var slegist um sætið ef fraktari þurfti að fara með til að hjálpa Dolla við að afhlaða vélina. Manni leið alltaf betur eftir heimsókn til Dolla því hann tók á móti öllum með bros á vör, heitt á könnunni og ávallt eitthvað gómsætt með því. Síðast hittum við öll Dolla í óvissuferðinni sem var farin í júlí í blíðskaparveðri til Vestmannaeyja. Þar lék Dolli við hvem sinn fingur og skemmti sér vel þó svo að það hafi verið allnokkur vinna við að telja hann á að koma með okkur en stúlkurnar í afgreiðslunni geta ver- ið ansi sannfærandi þegar þær vilja og með stöðugum fortölum gátu þær talið hann á að koma í þessa ferð svo og margar aðrar uppákom- ur sem hann sótti hjá okkur á liðn- um árum. Við sem kynntumst Dolla mun- um alltaf hugsa til hans með hlýhug og virðingu vitandi það að hann gerði líf okkar aðeins betra og ham- ingjuríkara. Adolf, við kveðjum þig nú hinstu kveðju með söknuð í hjarta og þökkum fyrir allar góðu stundirnar sem þú gafst okkur. Fyrir hönd starfsmanna í af- greiðslu íslandsflugs í Reykjavík. Björgvin, Sigrún, María og Kjartan. Laugardagurinn 26. september síðastliðinn var dagurinn sem átti að verða hátíðisdagur í lífi Adolfs Thorarensen, vinar míns sem mig langar að minnast í fáum orðum. I fyrsta sinni ætlaði hann að halda upp á afmæli sitt, en daginn eftir hefði hann orðið fimmtugur. Þetta var dagurinn sem hann ætlaði að halda sveitungum sínum, vinum og frændfólki veislu í tilefni af þessum tímamótum. En margt fer öðruvísi en ætlað er og í staðinn fyrir að þetta yrði dagur gleði og ánægju þá ríkir nú sorg í sinni, því hann lést að morgni þessa dags eftir stutt en erfið veikindi. Eftir situr sveit í sár- um og vinir hans og systir syrgja nú þennan trausta og góða dreng. Adolf fæddist og ólst upp á Gjögri í Arneshreppi og þar var hans starfsvettvangur alla tíð. Hann stundaði sjóinn og var með búskap en hans verður samt lengst minnst fyrir störf sín við flugvöllinn á Gjögri, en þar sá hann um flug- afgreiðslu og umsjón með flugvell- inum. Og það er ekki lítið afrek sem hann hefur unnið þar. Með dugnaði sínum, atorku og brennandi áhuga á öllu sem tengist flugi hefur hon- um tekist að gera litlu brautina sem var á Gjögri að mjög góðum flug- velli. Og þó að allar framkvæmdir við flugvöllinn á undanfömum ár- um og áratugum séu auðvitað ekki verk hans eins þá hefur hann verið driffjöðrin í öllu því sem þar hefur verið gert og eiga Arneshreppsbú- ar því honum mikið að þakka í þeim efnum. Síðan flug hófst á Gjögur hefur flugleiðin þangað verið lífæð sveitarinnar og síðustu ár eina sam- gönguleið okkar á vetrum. Það var því ekki lítils virði að hafa jafn traustan mann eins og Adolf þar við stjórnvölinn. Allir gátu treyst hon- um, bæði flugmenn og farþegar. Ekki síst þegar fljúga þurfti sjúkraflug við misjafnar aðstæður eins og margoft hefur komið fyrir bæði að nóttu sem degi. Að geta treyst því að flugbrautin væri í góðu lagi og öruggur og ákveðinn maður til að leiðbeina flugvélum inn til lendingar. Eftir slíkum dæm- um man ég og við hér í Amesi og oft hugsaði maður þegar flugvélin var komin í loftið , já, það er gott að hafa hann Adolf hérna“. Um ái-abil hefur hann átt sæti í hreppsnefnd Ameshrepps og löngum verið þar sá sem fólk virtist treysta best fyrir málefnum hreppsins. Adolf hefur alla tíð verið líkamlega fatlaður og fyrir mörgum árum lenti hann í slysi sem jók heldur á hreyfihöml- un hans. Þessi fötlun setti honum ýmsar skorður og hann átti reynd- ar erfitt með alla líkamlega vinnu. Meðal annars kom þetta í veg fyrir að hann gæti tekið einkaflugmanns- prófið eins og hugur hans stóð til. Adolf var sannarlega ekki skaplaus maður og ég held að það hafi hjálp- að honum að komast í gegn um erf- iðleikana sem fylgdu fötluninni. Nú er orðið dauflegt að koma á Gjögur. Fyrir ekki svo mörgum ámm bjó þar töluvert af fólki sem hefur smám saman fiutt á brott eða horf- ið yfir móðuna miklu og í nokkur ár hefur Adolf verið eini íbúinn þar yf- h- vetrarmánuðina. Þó einveran hafi verið honum ei’fið þá bætti það úr skák að hann var mjög vinamargur og var oft í símasambandi við vini sína og kunningja. Hann hafði ný- lega byggt sér íbúðarhús og það voru mikil viðbrigði frá litla húsinu sem hann bjó í ásamt systur sinni og föður. En þó að gamla húsið hafi verið bæði lítið og þröngt þá var eins og það gæti endalaust tekið við fólki því gestrisni þessarar fjöl- skyldu var einstök. Já, þangað var gott að koma og í litla eldhúsinu hennar Jóhönnu voru málin rædd. Pólitík, dægurmál og jafnvel heims- málin voru krufin þar til mergjar. Adolf var ákaflega hreinskiptinn í viðræðum og það gat hvesst illilega ef honum mislíkaði en hann var líka fljótur að sættast við fólk og var þá ekki síður góður félagi á eftir. Hann var sérstaklega barngóður eins og öll börn í nágrenni við hann fengu að kynnast. Stelpurnar mín- ar minnast hans nú með hlýjum hug og tala um hve hlýlegur hann var í samskiptum við þær þó sér- staklega Rakel sem var góð vin- kona hans og fékk alla tíð kort frá honum á jólunum. En nú er hann horfinn af sjónarsviðinu þessi góði drengur langt fyrir aldur fram. Og við getum ekki annað en reynt að sætta okkur við þá döpru staðreynd og þakkað honum samveruna. Við minnumst hans sem góðs vinar og félaga. Jóhönnu og öllu frændfólki hans sendi ég og fjölskylda mín inniiegar samúðarkveðjur. Valgeir Benediktsson. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna er sefur hér hinn síðsta blund. (V. Briem.) Adolf er að verða fimmtugur! Hvað eigum við að gera fyrir hann? Þetta var umræðuefni starfsmanna Islandsflugs fyrir aðeins tveimur vikum. Skyndilega bregður skýi fyrir sólu, í sömu viku kemur símtal að vestan með váleg tíðindi. Hálfdán er að koma með Adolf í sjúkraflugi. Fréttin kom eins og þruma úr heið- skíru lofti - þessi hrausti maður fannst meðvitundarlaus á heimili sínu. Síðar kom í ljós að ástæða þess var heilablóðfall sem síðar varð banamein hans síðastliðinn laugardag, daginn fyrir afinælið. Sjaldan finnur maður eins til van- máttar og á stundum sem þessum. Aleitnar spumingar leita á hugann. Hvers vegna Adolf, svona mitt í blóma lífsins? Hann sem bjó yfir þvílíkum andlegum og líkamlegum styrk að eftir var tekið? Svörin fá- um við aldrei en verðum að trúa því að göfugur tilgangur liggi þar að baki. Mikil gæfa er fyrir hvert fyrir- tæki að hafa slíkan útvörð sem Ad- olf var. Hann sinnti starfi sínu af slíkum áhuga og eldmóði að lengi verður í minnum haft. Samvisku- semi var algjör og áreiðanleiki eins og best þekkist. Adolf var meðalmaður á hæð, þrekvaxinn og hraustur að sjá. Hann var glaðlegur og léttur í lund þó einnig gæti hann æst sig. Hann var hæverskur og stálminnugur. Einu sinni sem oftar flaug vél Is- landsflugs á Gjögur og er flugstjór- inn, sem þá hafði nýlega hafið störf hjá félaginu, steig út úr vélinni sagði Adolf: „Nei, blessaður þú varst hér í apríl 1987, var það ekki?“ Og viti menn það stóðst! MINNINGAR Þetta var ekkert einsdæmi, slíkt var minni hans. Adolf var hlýr maður. Dolli á Gjögri, eins og hann var kallaður í daglegu tali hér á Islandsflugi, var einn af uppáhaldsumboðsmönnum félagsins, að öðnun ólöstuðum. 011- um þótti eftirsóknarvert að komast til Dolla, hvort heldur voru flug- menn, hlaðmenn eða aðrir starfs- menn félagsins. Andrúmsloftið á Gjögri var ólíkt öllu öðru - þar ríkti friður og ró sem þekkist ekki í fjöl- býli en margan borgarbúann þyi’st- ir í. Menn sóttu þangað andlega næringu. Dolli var höfðingi heim að sækja, hjá honum var ætíð heitt á könnunni og meðlæti á borð borið. Veðurspár þurfti hann engar, hann las sjálfur í skýin og sjóinn með góðum árangri, enda náttúrubarn mikið og mótaður af nánasta um- hverfi sínu. Hann var mikill rétt- lætissinni og fyndist honum á ein- hvern hallað gat hann rokið upp eins og snarpur vindur, ausið úr sér skömmum en lægt svo skyndilega og minnti hann þá einna helst á lygnan sæ. Adolf var einn af fóstu stoðum fé- lagsins. Það var alltaf hægt að treysta á hann og skarð hans verð- ur seint fyllt. Þessu ásamt einstök- um dugnaði kynntust starfsmenn félagsins sérstaklega þegar Adolf vann hjá félaginu í Reykjavík fyrir jólin nú síðustu ár. Það var orðinn siður að hann mætti í jólapakka- flóðið hjá okkur eins og einn af bræðrunum þrettán sem börnin elska. Já, skrýtið verður að undir- búa jólin í ár án Adolfs. Adolf unni heimabyggð sinni og barðist fyrir lágmarksréttindum hennar af raunsæi. Eitt af því sem var mikið áhugamál hjá honum voru eðlilega samgöngumál. Hann lagði alltaf mikið að okkur að áætl- unarflugi til Gjögurs yrði sinnt á Dornier, þannig væru öll aðföng best tryggð. Við starfsfólk Islandsflugs mun- um sakna þín. Þú minnir okkur vel á hvaða kostum góður Islendingur og góður samstarfsmaður þarf að vera gæddur. Far vel, kæri vinur. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk Jfyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Starfsfólk Islandsflugs. Kveðjur frá Djúpavík. Stundum geta fyrstu kynni manns af fólki verið svo látlaus og blátt áfram að mann órar ekki fyrir því að þama hafi maður hitt einn af örlagavöldum lífs síns. Þannig urðu fyrstu kynni mín af Adolfi Thorarensen. Það kom þó fljótlega í Ijós að þarna fór maður sem hægt var að treysta og að hann var fram- úrskarandi greiðvikinn og barngóð- ur. Þegar við 5 manna fjölskylda fluttum að sunnan árið 1986 og settumst að í Arneshreppi, hafa sjálfsagt margir hugsað sem svo að við myndum ekki endast mjög lengi í slíkri einangrun sem það var, að búa í Djúpavík. En vegna vináttu Adolfs og fjölskyldu hans á Gjögri var búseta okkar í Djúpavík mögu- leg. Alveg frá fyrstu stundu vorum við umvafin vináttu þeirra og greið- vikni. Það var ekkert mál að hafa börn- in okkar yfir helgi ef þau komust ekki heim vegna veðurs. Það var ekkert mál að þvo af þeim fótin, sækja þau í skólann í vondu veðri, taka á móti okkur niðri á bryggju, spila við krakkana til að hafa ofan af fyrir þeim o.s.frv. Það var heldur ekkert mál að skutla þeim heim, ýmist sjó- eða landleiðina ef því var að skipta. Hjá Adolf og Jóhönnu fengu þau yngri örlitla nasasjón af lífinu til sveita, fóru með að gefa í fjárhús- inu og fengu að kynnast dýrunum og umgangast þau. Þetta var ótrú- lega mikils virði fyrir borgarbörn sem ekki höfðu átt kost á slíku fram að þessu. T.d. fannst þeim svo mik- LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1998 49 ið til um hundinn á heimilinu, hann Val gamla, að þau kölluðu hann ljónið. Héðinn og Kidda eignuðust síðan bæði lömb sem Adolf gaf þeim og eftir það „unnu“ þau fyrir vetrar- fóðri þeirra með því að hjálpa til við heyskapinn. Eins og ég gat um hér í upphafi lít ég á Adolf sem einn af örlaga- völdunum í lífi mínu og fjölskyld- unnar. Vegna elsku sinnar í garð barnanna okkar hefur Adolf haft mikil áhrif á uppeldi þeirra og lífs- sýn. Sérstaklega kært hefur verið á milli hans og Héðins, t.d. hefur Héðinn smitast svo hressilega af flugáhuga Adolfs að hann dreymir um að verða flugmaður síðar meir. Við Adolf vorum búin að ræða framtíð Héðins og vorum að bolla- leggja um hvemig best væri fyrir hann að standa að því að komast í flugnám. Það er mjög sérstök tilfinning að upplifa það að einhverjum öðram þykir jafnvænt um börnin manns og manni sjálfum. Þetta fann ég alltaf þegar ég talaði við Adolf um krakkana og hann sagði alltaf: „Hann Héðinn minn.“ Við erum öll harmi lostin yfír því hve skyndilega Adolf var tekinn frá okkur. Þessa síðustu daga frá láti hans hefur haustblíðan leikið við okkur, en þegar ég horfí út Reykj- arfjörðinn í áttina að Gjögri finnst mér vanta eitthvað inn í landslagið. Mér finnst það líka hálfgert svindl að geta glaðst yfir svona góðu veðri, vitandi það að Adolf er ekki á Gjögri til að njóta þess með okkur. Eg þakka honum af alhug sam- fylgdina þessi 12 ár og alla hans elskusemi við börnin mín í gegnum árin. Eg veit að nú gengur hann al- heill á Guðs vegum. Elsku Jóhanna mín, Pétur og aðrir aðstandendur, ég votta ykkur samúð mína og fjölskyldu minnar. Eva Sigurbjömsdóttir. Ég trúi því að líf okkar mann- anna hér á jörð sé ekki tilviljunum háð. Ég trúi því t.d. ekki að flutn- ingur minn og fjölskyldu minnar hingað til Djúpavíkur hafi verið til- viljun ein. Enn frekar styrkist ég í þessari trú þegar ég nú sest niður til að minnast þess manns sem hvað mestan þátt átti í því, óbeint, að okkur hjónunum og börnunum okk- ar tókst að ná fótfestu hér og bein- línis lifa af fyrstu árin. Adolf Thorarensen var sú mann- gerð sem ekki þekkti orðið vanda- mál, það var hreinlega ekki til í hans hugarheimi. Ég minnist þess þegar ég talaði fyrst við hann í síma snemma vors 1984. Ég kynnti mig og tjáði honum að nú væri ég og mágur minn, Arni, að hugsa um að fljúga á Gjögur en vandamálið væri að við vissum ekki hvernig við kæmumst áfram inn á Djúpavík. Það er ekkert vandamál, sagði þessi hressi náungi í símanum; ég bið hann Óla frænda minn að skutla ykkur inneftir. Á þeirri stundu gerði ég mér engan veginn grein fyrir því hversu erilsamt það var sem hann kallaði ekkert mál, því bátur Óla stóð þá uppi á kanti og áti eftir að gangsetja hann og koma honum á sjóinn eftir vetrardvöl í nausti. Þegar við svo lentum á Gjögri var bátur Óla í gangi við bryggju og tilbúinn að leggja í hann með þessa nýju landnema úr Reykjavík. Þetta var í fyrsta en ekki síðasta skipti sem Adolf stóð' fyrir því að leysa vanda okkar og greiða götu okkar. Nei, lífið og framvinda þess er ekki tilviljun ein, ég fullyrði að sjaldan á lífsleiðinni hafi ég orðið annarrar eins gæfu aðnjótandi og þeirrar að fá tækifæri til að kynn- ast Adolf og fjölskyldu hans. Þeirra hús stóð okkur alltaf opið. Ég væri hræsnari ef ég héldi því fram að í samskiptum okkar Adolfs hefði alltaf líkt rjómablíða. Nei, til þess vorum við of líkir í skapi, vin- irnir, báðir fljótir upp, en munurinn <' lá í því að Adolf var oftast fljótari niður en upp á meðan ég er lang- rækinn með afbrigðum. Oftast kastaðist í kekki með okkur vegna ágreinings í innansveitarpólitík, en Adolf hefur alla okkar tíð hér setið í hreppsnefnd. Á síðustu misserum hefur þó skilningur minn aukist á því hversu erfiðri aðstöðu Adolf hefur verið í í sveitarstjórn og þeg- ar okkur tókst síðast að ræða þau mál í rólegheitum þá útskýrði hann fvrir mér hvernig málum er háttað. Þá skýringu tók ég góða og gilda og hún færði mér heim sanninn um hversu slyngur stjómmálamaður Adolf var. Hann var í eðli sínu hóg- m vær maður, gerði alltaf meiri kröf- ur til sjálfs sín en annarra og eigin- hagsmunapot var eitur í hans bein- um. Ég hef það fyrir satt að hvergi á landinu hafi lítilli flughöfn sem á Gjögri verið stjórnað af jafnmikilli natni og hér. Adolf var vakinn og sofinn í þessu starfi. Miðað við þann árangur sem hann náði í starfi flugvallarumsjónarmanns, er það óskiljanlegt hversu lítil ábyrgð hon- um var falin innan hreppsnefndar. Ekki vantaði stuðninginn frá hreppsbúum þar sem Adolf stóð uppi sem sigurvegari kosningar eft- ir kosningar og velferð sveitarinnar var hans meginmarkmið. Ég veit að Adolf vænti mikils af ungviði þessarar sveitar og ungvið- ið treysti honum. Til marks um það má benda á það mikla persónufylgi sem hann hafði í öllum sveitar- stjómarkosningum. Flestir ung- lingar sveitarinnar, sem nú eru í framhaldsskólum vítt og breitt um landið, hafa líka ákveðið að koma heim og fylgja honum síðasta spöl- inn. Elsku Jóhanna mín, Pétur, Garð- ar og Lóló, Ingi, Alexander, Pálína og aðrir vandamenn og nánir vinir, að ógleymdum börnunum mínum Héðni og Kiddu; höfum það hugfast þegar við nú kveðjum þennan góða mann hinstu kveðju, að það er mikil gæfa fólgin í því að hafa notið ná- vistar við hann og hvað líf okkar allra væri miklu snauðara ef svo hefði ekki verið. Guð blessi minningu Adolfs Thorarensen og veiti okkur eftirlif- endum styrk til að vinna bug á sorginni. Ásbjörn Þorgilsson. • Fíeiri minningargrcinar um Ad- olf Thorarensen bfða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Þökkum innilega auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ELISABETHAR (BETTÝ) JÓHANNSSON, fsafirði. Sérstakar þakkir viljum við senda starfsfólki Sjúkrahúss (safjarðar. Lovísa Einarsdóttir, Ingimar Jónsson, Elísabet Einarsdóttir, Hörður Högnason, Einar Einarsson, Herdís Þorkelsdóttir, Margrét Einarsdóttir, Sverrir Magnússon, Konráð Einarsson, Anna Jónsdóttir, Kristinn Einarsson, Ragna Dóra Rúnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. áL

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.