Morgunblaðið - 03.10.1998, Side 54

Morgunblaðið - 03.10.1998, Side 54
54 LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ + Kristín Gunn- laugsdóttir Oddsen var fædd 22. desember 1922. Hún lést á Sjúkra- húsinu á Egilsstöð- um hinn 23. sept- ember 1998. Krist- ín var fædd í Heið- arseii í Hróars- tungu, dóttir hjón- anna Gunnlaugs Gunnlaugssonar Oddsen frá Bót í sömu sveit, f. 1876, d. 1925, _ og Guð- bjargar Arnadóttir frá Uppsölum í Eiðaþinghá, f. 1882, d. 1953. Alsystkini henn- ar voru: Gunnlaugur, bóndi í Heiðarseli í Tungu; Sigurbjörg, húsfreyja í Skóghlíð í Tungu, og Sigþór, bílsljóri á Héraði. Hálfbræður Kristínar í móður- ætt voru: Sigurður Árnason, bóndi í Heiðarseli, síðar búsett- ur í Hveragerði, og Ágúst Þor- steinsson, bóndi á Kleppjárns- stöðum í Tungu. Systkini henn- ar eru öll látin. Faðir Kristínar lést er hún var tveggja ára að aldri og fór hún þá í fóstur til frænku sinnar, Þór- unnar Vilhjálmsdótt- ur Oddsen, húsfreyju í Möðrudal á Fjöll- um, f. 1872, d. 1944, og eiginmanns henn- ar Jóns A. Stefáns- sonar, bónda í Möðrudal, f. 1880 d. 1971. Uppeldissystk- ini Kristínar í Möðrudal voru: Þór- laug, sem lést ung, Jóhanna Arnfríður, húsfreyja í Möðru- dal, Vilhjálmur Gunnlaugur, bóndi í Möðrudal og síðar á Eyvindará, Stefán Vilhjálmur, listmálari í Reykjavík, og Þórhallur, bóndi í Möðrudal. Þau eru öll látin. Kristin stundaði nám f Hús- stjórnarskólanum á Hallorms- stað, en var kölluð heim, þegar fósturmóðir hennar lést og tók þá við stjórn heimilisins í Möðru- dal hjá fósturföður sínum. Kristín giftist eftirlifandi manni sínum, Olafi Þorsteini Stefánssyni, frá Arnarstöðum í Núpasveit, árið 1946. Foreldrar hans voru hjónin Oktavía Stefan- MINNINGAR ía Ólafsdóttir frá Sauðanesi á Langanesi og Stefán Tómasson frá Arnarstöðu m í Núpasveit. Kristín og Ólafur bjuggu í Möðrudal í sex ár eða til ársins 1951, er þau fluttu að Víðirhóli á Fjöllum þar sem þau bjuggu til ársins 1965. Þá fóru þau til Akureyrar þar sem þau áttu heimili í röskan aldarfjórðung. Árið 1989 fluttust þau til Egils- staða og bjó Kristín þar til ævi- loka. Börn þeirra Ólafs eru: 1) Þórunn Guðlaug, skrifstofu- maður, Egilsstöðum. 2) Gunn- laugur Oddsen, bóndi, Hallgils- stöðum á Langanesi. 3) Oktavía Halldóra, forstöðumaður, Egils- stöðum. 4) Margrét Pála, leik- skólastjóri, Reykjavík. 5) Stefán Sigurður, sjúkraþjálfari, Akur- eyri. Barnabörn Kristínar eru orðin 12 og bamabamabörnin 11 talsins. Kristín var alla tíð húsmóðir á mannmörgum og gestkvæm- um heimilum. Mörg börn nutu umönnunar hennar bæði í sum- ardvöl í sveit og í daggæslu á Akureyri, auk þess sem hún tók drjúgan þátt í uppeldi barna- barna sinna. Kristín var virk í kórstarfi og menningarstarfi á meðan heilsa hennar leyfði. Hún var stofnfélagi Geðvernd- arfélags Akureyrar og heiðurs- félagi þess frá 1992. Utför Kristínar fer fram frá Egilsstaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. KRISTIN „ GUNNLA UGSDÓTTIR ODDSEN Tif í prjónum, glaður söngur eða svæfandi raul, ilmur af nýbökuðu brauði, traust og hlýtt fang sem markaði upphaf og endi skynjunar minnar. Hendur sem umluktu mín- ar, hlýjuðu og hugguðu, svo dæma- laust mjúkar og miklar og óum- breytanlegar. Þulur og vísur, kvæð- 9- in hans Davíðs og heilræðaljóð Erlu sem fylgdu inn í svefninn. Slík var fyrsta reynsla mín af þessum heimi - sem var mér einfaldlega hún mamma sem var yfir og allt um kring. Hún sem hafði alltaf tíma fyrir alla þrátt fyrir óendanlegar annir sveitakonunnar og húsmóður- innar, hún sem bjó yfir nægum kærleika til að miðla hverjum þeim sem var samferða henni á lífsgöng- unni. Mér fannst alltaf sem stafaði innra ljósi og mildi frá þessari lág- vöxnu og hnellnu konu með háa og bjarta ennið og viðkvæmnisdrætt- ina í andliti. Hún líknaði og þjónaði, gaf og miðlaði af eðlisgæsku sinni - f»og veitti af rausn síns stóra hjarta sem hvergi mátti neitt aumt sjá né vita nokkurn greiða ógerðan. Höfð- ingsbragur var henni runninn í merg og bein, ein hinna síðustu út- varða gömlu, íslensku sveitamenn- ingarinnar þar sem greiðasemin og gestrisnin voru merki um mann- kærleika og samstöðu jafningja þar sem allir börðust við sömu náttúru- öfl sem gerðu sér aldrei mannamun og kenndu börnum fjallanna að gera það ekki heldur. Hún bar höf- uð hátt; víðsýni hennar og skilning- ur á mannlegum kjörum var helgað- ur fóstri hennar á hásléttu öræf- anna þar sem er hátt til lofts og vítt til veggja og fjallavindar geta um '„'frjálst höfuð strokið. Styrk og sjálf- bjarga á öllum sviðum - þess þarf til fjalla - meira að segja á menn- ingarsviðinu var hún fær um að mennta sig alla ævi; útvarp og bæk- ur voru óaðskiljanlegur þáttur til- verunnar og yfir pottum og pönnum þuldi hún ljóð eftirlætisskáldanna. Síðar komu aðrar stundir. Þá þagnaði prjónatifið og ijóðasöngur- inn, gráturinn tók yfir. í stað þess að hlaupa í örugga fangið til að þiggja og njóta læddumst við um húsið því að mamma var orðin veik. Eldri systkinin tóku ábyrgð á okk- ur, þessum yngri, og á öllu heimil- inu. Vonbrigðin yfir endurteknum veikindum voru sár - og sárust fyrir hana. Stóra hjartað sem af næmi skynjaði líðan og þarfir meðsystra og meðbræðra reyndist of næmt, of næmt fyrir harðan heim. En móðir mín háði glímur sínar við andleg og líkamleg veikindi með hetjulund og * æðruleysi sem ég hef þráfaldlega dáðst að og undrast. Aftur og aftur lagði hún þursinn að velli og hvarf til lífsins og okkar að nýju. En nú er ég farin að fjölyrða og það líkaði móður minni aldrei. Eg verð þó að fá að þakka íyrir allt og allt, nú að leiðarlokum. Þakka þér, elsku mamma, fyrir það sem ég eignaðist dýrmætast um dagana; þú gafst mér móðurmálið til að skilja og túlka tilveruna, þú miðlaðir mér af baráttuþreki og trú þinni á sam- félag jafningja. Þennan óbrotgjarna arf gafst þú mér - og dóttur minni sem átti ávallt öruggt skjól hjá þér og hlut þinn í uppeldi hennar fæ ég aldrei fullþakkað. Þú reyndir eftir megni að vera til staðar fyrir okkur en of oft var ég fjarlæg. Því þakka ég öllum þeim í fjölskyldu minni svo og starfsfólki sjúkrahússins á Egils- stöðum og á öðrum sjúkrastofnun- um sem greiddu götu þína og hjálp- uðu þér. Sérstaklega þakka ég auð- vitað fóður mínum, elskandi lífs- förunaut þínum í meira en hálfa öld, og að öllum ólöstuðum þakka ég Oktavíu systur minni sem varð þeirrar gæfu aðnjótandi að annast þig öðrum fremur síðustu árin. Hvíl nú í langþráðum friði. Þín elskandi dóttir, Margrét Pála Ólafsdóttir. Kæra tengdamamma. Örfá orð til að þakka þér umburð- arlyndið og kærleikann. Ég veit að þú vilt ekki neina langloku. Þegar ég bættist í fjölskyldu þína, 17 ára gamall, tókstu mér eins og öllum þeim börnum og unglingum sem á vegi þínum urðu; þér fannst sjálf- sagt að sýna mér umhyggju og ást- úð. Oft undraðist ég vilja þinn og þolinmæði til að sinna allra þörfum og ekki uppskarstu þó alltaf þakk- læti. Ég man vísurnar þínar og ljóð- in, eilíft tifið í prjónunum og brosið þitt, þegar litlir afkomendur þínir römbuðu smáum fótum í fang ömmu. Ég veit að þú varst lang- þreytt af erfiðum veikindum og vona að hvíldin sé þér sæt. Farðu vel; ég flyt þér þakkir mínar og fjöl- skyldu minnar, barna minna og barnabarna fyrir samfylgdina. Við trúum því að þú hljótir verðug laun í nýrri vist vegna gæsku þinnar. Einar Rafn Haraldsson. í dag kveð ég Kristínu Gunn- laugsdóttur tengdamóður mína. Ég kynntist Kristinu íyrir átta árum er ég tengdist fjölskyldunni sem sam- býliskona Margrétar Pálu dóttur hennar. Ég man að ég kveið því að hitta tengdaforeldrana í fyrsta skipti, sérstaklega þar sem ég vissi ekki hvaða skoðun þau höfðu á því að dóttir þeirra byggi með annarri konu, en ég komst fljótt að því að sá kvíði var ástæðulaus því Kristín og Ólafur maður hennar tóku mér strax sem einni af fjölskyldunni. Þetta lífsvitra sveitafólk sem hafði reynt margt um dagana var ekld að æsa sig yfir smámununum; svo lengi sem fólk var heilsuhraust og undi glatt við sitt var ekki út á neitt að setja. Þótt ég hafi ekki kynnst Stínu fyrr en heilsu hennar var talsvert tekið að hraka fannst mér alltaf lýsa af öllu hennar fasi einskonar höfð- ingjablær. Hún var vinmörg og gestkvæmt hjá henni mjög, sem ekki var að undra, því hún hafði ávallt eitthvað að miðla öllum og tók á móti fólki af mikilli gestrisni. Tengdamóðir mín var vel greind kona og víðlesin og hafði sérstakt dálæti á Ijóðum. Hún gat þulið heilu ljóðabálkana áheyrendum til skemmtunar og fróðleiks og spak- mæli og málshættir hrundu af vör- um hennar við ólíklegustu tækifæri sem endurspegluðu oft næmt skop- skyn hennar og hnyttni. Stína kom mér fyrir sjónir sem mikill mannvinur og börn voru hennar yndi, enda var hún sérlega lagin við krakka á sinn rólynda hátt og ósjaldan sat eitthvert kríli við stólfótinn hjá henni og dundaði sér við hnykil eða band. Ég kveð Stínu með glöðum huga þar sem ég veit að hún lauk sátt sínu æviverki, en um hjartað gildir annað, því söknuður á ekkert skylt við skynsemi og mikið vantar að Kristínu Gunnlaugsdóttur genginni. Ég þakka góðri konu samfylgdina. Lilja Svanbjörg Sigurðardóttir. Elsku amma mín, nú ertu dáin og mig langar að minnast þín með nokkrum orðum. Mér finnst það mjög sorglegt en ég veit að nú líður þér vel. Það verður skrítið að koma í heimsókn til afa og þar er engin amma. Mér fannst notalegt að sitja og prjóna með þér dálitla stund og hlusta á útvarpið í leiðinni eða spjalla saman. Mér fannst gaman að lesa íyrir þig því þú varst alltaf til- búin að hlusta á mig lesa. Alltaf þótti þér vænt um ljóðin, myndirnar og annað sem við krakkarnir bjugg- um til handa ykkur afa. Ég ætlaði að gefa þér söguna sem ég er að skrifa en var ekki búin með hana nógu fljótt. Takk fyrir garnið sem þú gafst mér til að prjóna úr því mig langar til að verða eins dugleg prjónakona og þú. Ég kveð þig nú með þessu litla ljóði. Nú ert þú farin frá mér og færð ekki lengur að vera hér. Hvfl þú nú í friði, elsku amma mín, á meðan ég lifi mun ég sakna þín. Þín nafna og langömmustelpa, Kristín Telma Halldórs- dóttir, 9 ára. Eitt svar við spurningunni um hvað mestu máli skiptir í lífinu, gæti verið það að eiga góða að. Og þá er yfirleitt átt við nánustu ættingja. En í afskekktri, strjálbýlli sveit fer ekki hjá því að nágrannarnir skipti eins miklu máli. Við sem bjuggum í sömu sveit og Stína vissum fyrir víst hvað það merkti að eiga góða granna. Ólafur Stefánsson og Kristín Gunnlaugsdóttir bjuggu á Fjöllun- um í rúman áratug. Þau fluttu að Víðirhóli á Fjöllum rétt eftir miðja öldina, úr Möðrudal þar sem Kristín var alin upp. Víðirhóll var svip- mesta bæjarstæði Hólsfjallanna en um leið það afskekktasta. Ef til vill hefur ungu hjónunum þótt fjalla- kyrrðin á nýja staðnum vera einum of mikil því þau voru bæði ákaflega félagslynd og vön annríkinu á stór- býlinu Möðrudal, sem var og er enn í þjóðbraut. En þjóðbrautin kom á eftir þeim út í heiðina. Heiðarbýhð sem stóð næst Búrfellsheiði og Haugsöræfum varð aðal samkomu- staður fólks í sveitinni. Glaðvær gestrisnin laðaði fólk að heimilinu og ungir sem aldnir sóttu í félags- skap fjölskyldunnar á Víðirhóli sem stækkaði óðum. Þegar ég var tíu ára fór ég í fyrsta skipti að heiman til að vera í farskóla á Víðirhóli. Það var átak að leggja af stað með pokann sinn og eiga að búa fjarri foreldrum sínum. En Stína tók á móti okkur krökkun- um úr sveitinni með mikilli hlýju og annaðist okkur eins og sín eigin börn. Tvílyfta timburhúsið á Víðir- hóli rúmaði auðveldlega Farskóla Fjallahrepps, kennara og nemend- ur. Þrátt fyrir annríki á stóru heim- ili hafði Stína alltaf tíma til þess að segja sögur, syngja fyrir okkur og með okkur og fara með Ijóð. Hún kunni heil lifandis býsn af gömlum og nýjum ljóðum, kersknisvísum og sálmum. Eftir að Víðirhólsfjölskyldan flutti til Akureyrar var heimili hennar áfram griðastaður. Ailur ytri búnaður var breyttur en andinn sá sami. Otrúlega margir lögðu leið sína um stofuna í Löngumýri 12. Meðal annarra Fjallamenn í kaup- staðarferð sem komu á öllum tímum sólarhringsins og á öllum árstímum. Við urðum þeirrar gæfu aðnjót- andi, nokkrir menntaskólapiltar í kringum 1970, að vera kostgangar- ar hjá Stínu í Löngumýri. Þótt Óli og Stína hefðu búið í kaupstað í nokkur ár hafði húsmóðurinni í engu fatast þegar þjóðleg matar- gerð var annarsvegar. Kostgangar- amir mis ístöðulitlir sóttu í að dvelja hjá matmóður sinni langt umfram matmálstíma enda slátur- sneið eða ástarpungar henni útbær- ir þótt orðið væri framorðið þegar strákarnir hennar komu slæptir af næturgöltri. Þegar hitnaði í kolun- um í eldhúsinu í umræðum um hræringar á vettvangi stúdentaupp- reisna söng Stína sálma eða fór með Davíð. Og hún klappaði okkur og hughreysti þegar Weltsmertsinn var að buga okkur, rétt einsog hún hafði gert við okkur krakkana í Farskólanum á Víðirhóli. Ég veit ég mæli fyrir munn okkar allra sem nutum þeirra forréttinda að eiga Kristínu Gunnlaugsdóttur að í bernsku og á unglingsárum þegar ég segi einfaldlega: Mikið var gott að eiga þig að Stína. Takk. Ævar Kjartansson. Hún gekk okkur í móðurstað. Fyrir rúmum aldarfjórðungi voru nokkrir baldnir námssveinar við Menntaskólann á Akureyri svo heppnir að lenda í mötuneyti hjá Óla og Stínu í Löngumýri. Þau voru nýkomin úr sveitinni á mölina og báru með sér heiðríkju af Fjöllum. Frá þeim degi sem við komum í gættina á húsi þeirra urðum við í hjörtum okkar heimilismenn þar. Og þau hjón hafa fylgt okkur hvar sem við höfum gengið í heimi. Við komum að austan og vestan, unglingar fjarri heimahögum, og þurftum að aga huga okkar og æfa skilningarvitin með æsingarrifrild- um um heims- og hvunndagsmál. Stundum sló í brýnu með okkur strákum, en húsráðendur kunnu þá list að stilla til friðar með húmor og mannelsku. Kristín var listelsk og ljóðræn kona, sem umlukti okkur með kærleika og umburðarlyndi. Hún fór með vísur einsog þær væru smyrsl á sálarund. Við strákar fór- um af fyrirgangi með gamanmál og sungum í hvínandi hávaðalátum, með brosandi velþóknun húsmóður- innar. Það var gleðilega þroskandi að vera með fólkinu af Fjöllum. Og einhvern veginn er það nú svo að við sem gengum menntaveginn nyrðra og áttum samleið í heimilis- mötuneytinu hjá þeim hjónum minnumst ekki síður akademíunnar í Löngumýri, heiðrílgunnar og hjartahlýjunnar. Manni þykir vænt um þetta fólk. Góð kona hefur kvatt þennan heim. Það er hlýr bjarmi yf- ir minningu hennar og það er marg- föld ástæða til að þakka fyrir sig að leiðarlokum. Oskar Guðmundsson. Hún kom á móti okkur úr eldhús- inu fram í anddyrið, þerraði hönd sína með viskustykkinu og handtakið var þétt og heitt eftir uppvaskið. Ég fann strax að hér tjóaði ekki að hreyfa mótbárum við góðgerðum þótt liðinn væri matmálstíminn og þykjast mettur. Hún sá okkur í gegn að við værum ekki búnir að borða og fyrr en varði sátum við yfir öldungis þjóðlegu kvöldverðarborði með margvíslegu góðmeti sem allt bar nafn af Hólsfjöllum. Þar með höfðum við bræður tveir bæst í hópinn.sem var í kost hjá Stínu og Óla í Löngu- mýrinni. Við vorum að jafnaði fjórir til fimm, piltar í menntaskóla, þessa tvo vetur sem ég varð aðnjótandi óþrjóUmdi umhyggju þessa góða fólks. Þaðan lá leið mín út í lönd næstu 14 árin eða svo og furðu fljótt fólnuðu minningar skólaáranna og megnið af þeim dýra lærdómi þar með og svo lærifeðumir. En sem þær hefðu fyrir andartaki komið af vörum hennar vísur Páls Ólafssonar svo hljóma þær enn í hugskotinu, ein og ein eftir atvikum líðandi stundar, rétt eins og þá: Við sögðum eitthvað fullkomlega stundlegt og kom þá vísa sem færði atvikið í betri fótin, oftast þó í glettnara lagi, enda áhyggjur okkar fremui- léttbærar og málefnin flest þannig líka og ástar- sorgir furðu strjálar og skammar. Allir vorum við í sérstöku uppá- haldi hjá Stínu þótt ég væri í mestu að mér alltaf fannst. Við nutum ást- úðar hennar hver með sínum hætti, mest áberandi í dekri í mat auðvitað en engu síður í einlægri bjartsýni hennar og trú á atgervi okkar og framgöngu á námsbrautinni og sjálfri lífsbrautinni yfirleitt. Bams- mæðram okkar, unnustum - hvað þá eiginkonum - var tekið sem prinsessum í það minnsta hvort heldur þær birtust í eigin persónu eða bara var á þær minnst og sjálf- um skildist þeim fljótt að þarna færi einstakt valmenni sem var þessi rengla í menntaskóla sem þær höfðu ruglað reytunum við meira eða minna. Slíkur var sannfæring- arki-afturinn að sumar era á þessari skoðun enn í dag eftir bráðum þrjá- tíu ára sambúð með honum. Ástúðin fer ekki að reglum í við- skiptum né að bókhaldslögum og enginn nema almættið getur endur- goldið í réttri vikt það sem hún gaf okkur. Bara andblær raunverulegs íslensks sveitalífs um aldir sem fylgdi persónu Stínu, Óli hennar, börnin og urmull gesta og gang- andi... Alls þessa nutum við vegna ástúðar hennar og án þess auðvitað að vita nema til hálfs í mesta lagi hvaða happ hafði okkur hent á þess- um vordögum lífsins. Við urðum eins og börn sem njóta góða veðurs- ins: Þau vita ekki af því beinlínis en

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.