Morgunblaðið - 03.10.1998, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1998 59
Yfírlýsing um samstarf
SIGNAR á Brúnni, menntamálaráð- vísinda- og menningarmál Færeyja
hen-a Færeyja, og Bjöm Bjamason, og íslands á fundi í Þórshöfn, höfuð-
menntamálaráðherra, rituðu undir borg Færeyja, fyrir nokkm og var
samstarfsyfirlýsingu um mennta-, myndin tekin við það tækifæri.
Slitgiglar- og
slökunarnámskeið
GIGTARFÉLAG íslands heldur tvö
námskeið um slitgigt. Fyrra nám-
skeiðið, sem er fullbókað, er í næstu
viku en seinna námskeiðið er þriðju-
daginn 20. október og fimmtudaginn
22. október nk.
Helgi Jónsson gigtarlæknir fjallar
um slitgigt og nýjungar í meðferð
sjúkdómsins og Halldór Jónsson,
bæklunarlæknir fjallar um liðskipta-
aðgerðir í mjöðm, hné og hrygg.
Erna J. Arnþórsdóttir sjúkraþjálfari
og Unnur Alfreðsdóttir iðjuþjálfi
fjalla um gildi þjálfunar, líkamsbeit-
ingu og liðvemd, setstöður og hvíld-
arstöður. Þær munu einnig sýna ým-
is hjálpartæki og spelkur.
Slökunarnámskeið byi’jar mánu-
dagskvöldið 16. nóvember. Ragn-
heiður Yr Grétarsdóttir sjúkraþjálf-
ari fjallar um orsakir streitu og hvað
sé til ráða. Áhersla verður lögð á að
finna muninn á spennu og slökun og
fer Ragnheiður Yr í gegnum mis-
munandi slökunaraðferðir. Nám-
skeiðið verður þrjú mánudagskvöld;
16., 23. og 30. nóvember nk. kl.
20-22.
Skráning og nánari upplýsingar er
hægt að fá á skrifstofu Gigtarfélags
íslands. Vegna takmarkaðs fjölda á
hverju námskeiði verður að skrá sig
á skrifstofu Gigtarfélags íslands, Ár-
múla 5.
afsláttur
A IÞROTTASKOM
8 OG FATNAÐI
íöppurinn/úwíívíát
SEQLAQSRSIN XQIIt
Skelfan 6 ■ Reykjavfk • Sfml 533 4450
FRÉTTIR
Hausthátíð í
Breiðholts-
skóla í dag
HAUSTHÁTÍÐ verður haldin í
Breiðholtsskóla í dag, laugardaginn
3. október, og hefst hún kl. 13. Þema
hátíðarinnar er umhverfið, þ.e.a.s. að
halda því snyrtilegu, og öryggi barn-
anna.
Meðal þess sem verður um að vera
er að Georg frá íslandsbanka mætir
kl 13 og verður til kl. 13.30, lögregl-
an mætir með allar sínar umferðar-
reglur, slökkviliðið verður með sýn-
ingu á slökkvi- og sjúkrabíl, Skátafé-
lagið Eina stjómar leikjum og verð-
ur með leiktæki lítil og stór en sem
dæmi af stærri gerðinni eru trönur,
andlitsmálun þar sem eldri nemend-
ur skólans mála yngri börnin, mikil
áhersla er lögð á að leikskólabörn
hverfisins og foreldrar þeirra séu
boðnir velkomnir á hátíðina, fyrir
eldri krakkana verður „lasertek"
tæki og pylsur og gos verður selt til
styrktar foreldrafélaginu og til að
standa undir kostnaði af hátíðinni.
Frambjóðendur
til prófkjörs í
Reykjanesi sitja
fyrir svörum
FRAMBJÓÐENDUR til prófkjörs
Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesi
ætla að sitja fyrir svörum á mál-
efnaþingi Sambands ungra sjálf-
stæðismanna nú um helgina. Þar
gefst þingmönnum og öðrum
áhugasömum tækifæri til að leggja
fram fyrirspurnir til frambjóðenda
en þessi dagskrárliður er öllum op-
inn.
Þetta er fyrsti vettvangurinn þar
sem frambjóðendur í Reykjanesi
eigast við. Prófkjörið verður haldið
14. nóvember nk. en framboðsfrest-
ur rennur út 11. október. Allir fram-
bjóðendur sem fyrir nk. sunnudag
hafa opinberlega gefið kost á sér í
prófkjörinu eiga kost á að sitja fyrir
svörum á málefnaþinginu.
Málefnaþingið verður haldið í
Garðaskóla í Garðabæ. Dagskrárlið-
urinn með frambjóðendum hefst kl.
15.30 á sunnudag og umræðustjóri
verður Sigurður Kári Kristjánsson,
stjómarmaður í SUS.
Hermannavígsla
á Hjálpræðis-
hernum
HERMANNAVÍGSLA verður á
Hjálpræðishernum í Reykjavík
sunnudaginn 4. október kl. 20.
Þrjár konur verða vígðar, Sigríður
Þórunn Emilsdóttir, Siri Didriksen
og Vilhelmína Gunnfríð Ægisdóttir.
Kafteinn Miriarn Óskarsdóttir mun
sjá um vígsluna. Majór Daníel
Óskarsson verður ræðumaður
kvöldsins og flokksleiðtogarnh
Rannvá Olsen og Sigurður Ingi-
marsson frá Færeyjum munu einnig
syngja og vitna. Þær sem vígjast
munu taka til máls og samkoman er
opin öllum.
Sovésk hasar-
mynd sýnd í MÍR
DÆMIGERÐ hasarmynd eins og
Sovétmenn sendu oft frá sér á sjö-
unda og áttunda áratugnum um at-
burði er áttu að hafa gerst í síðari
heimsstyrjöldinni verður sýnd í bíó-
sal MÍR, Vatnsstíg 10, sunnudaginn
4. október kl. 15.
Myndin heitir Einn möguleiki af
þúsund þar sem sagt er frá fífl-
djarfri hernaðaráætlun Sovétmanna
á Krímskaga við Svartahaf og ótrú-
lega framkvæmd hennar. Myndin
er talsett á ensku. Aðgangur er
ókeypis og öllum heimill.
ÍSLENSKU kristniboðamir hafa
jafnan lagt áherslu á starf meðal
barna. Myndin er frá Afríku.
Karlar selja
kaffí
KRISTNIBOÐSFÉLAG karla í
Reykjavík er eitt elsta kristniboðs-
félag á landinu. Það hefur alla tíð
stutt starf Sambands íslenskra
kristniboðsfélaga, fyrst í Kína og
nú síðustu áratugi í Austur-Afrfku.
„Einn helsti liðurinn í starfí
karlafélagsins er að safna fé til
kristniboðsins. Um þessar mundir
eru sjö manns að verki á vegum
sambandsins í Eþíópíu og Kenýu
og þrír vinna hér heima að boðun
og kynningu. Gert er ráð fyrir að
kristniboðið þurfi um 23 milljónir
króna á þessu ári til að sinna þeim
verkefnum sem það hefur tekið að
sér.
Það er árlegur viðburður f starfi
Kristniboðsfélags karla að efna til
kaffisölu og verður hún að þessu
sinni sunnudaginn 4. október í
Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut
58-60, 3. hæð. Húsið verður opnað
kl. 14.30 og stendur kaffisalan til
kl. 18. Allur ágóði rennur til
kristniboðsstarfsins," segir í
fréttatilkynningu.
Föstudagskvöldið 9. október mun hin eina sanna
Úrvals-fólks stemmning ráða ríkjum í Súlnasal Hótel Sögu.
Þú mátt ekki missa af...
Tvíréttaður veislumatseðill
Rósalind og Svanlaug kitla hláturtaugarnar
Gerðubergskórinn, stjórnandi Kári Friðriksson
Vinabandið frá Gerðubergi
Gospelsystur
Lukkupottur - vonandi dettur þú í hann
Happdrætti - glæsilegirferðavinningar
Skemmtilegasta fólkið í bænum - þar er Úrvals-fólki rétt lýst
Dansað i’ram á nótt
Taktu frá föstudagskvöldið 9. október
og skemmtum okkur saman!
Ógleymanlegt kvöld á úrvals verði aðeins 2.200 kr.
Aðgöngumiðasala og pantanir
hjá Rebekku og Valdísi á skrifstofu
Úrvals-Útsýnar í Lágmúla 4
og í síma 569 9300.
Úrvals-fólk er félagsskapur opinn öllum
60 ára og eldri sem hafa ánægju
af ferðalögum og skemmtunum
Shi
WUBBKUHUM
Húsið opnar kl. 18.00
Skemmtunin hefst kl. 18.30
^ÚRVAL-ÚTSÝN
'^\m Lágmúla 4: sími 569 9300, grœnt númer: 800 6300,
Hafnarfirði: sími 565 2366, Keflavtk: sími 421 1353,
Selfossi: sími 482 1666, Akureyri: sími 462 5000
- og bjá umboðsmöntium um land allt.
*