Morgunblaðið - 03.10.1998, Side 64

Morgunblaðið - 03.10.1998, Side 64
64 LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ J KIRKJUSTARF í DAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Agabrot og brottrekstur úr skóla ÉG LAS með athygli grein á heilli opnu um þetta efni í Mbl. 29. september sl. Þar segist Þorsteinn Sæberg formaður Skólastjórafélags Islands og skólastjóri Ar- bæjarskóla í Reykjavík „ekki vera sáttur við úr- skurð menntamálaráðu- neytisins“, þ.e. að taka ráð- in af skólastjóra í grunn- skóla, sem vikið hafði barni úr skóla tímabundið íyrir agabrot. Furðulegt. Er þetta virkilega svona, að skólastjóra sé ekki treyst til að meta hvenær beita skal þessu neyðarúrræði, þegar reglur skólans eni visvit- andi brotnar? Að vera eða vera ekki skólastjóri - það er málið. Hvað skyldi skip- stjórinn í brúnni segja við því, er taka skal skjóta ákvörðun, ef hann þyrfti að þinga um það við ýmsa í allt að 4 vikur, áður en til að- gerða kemur? Hvað skyldu dómarar í íþróttum, hand- bolta og fótbolta t.d., hafa um það að segja ef þeir þyrftu að bera það undir marga áður en þeir daga upp gula eða rauða spjald- ið? Nei, háttvirt ráðunejúi, reynið ekki að taka þann myndugleika af skólstjór- um að víkja barni tíma- bundið úr skóla fyrir aga- brot. Böm þurfa að læra hlýðni. „Kenn þeim unga þann veg sem hann á að ganga, því þegar hann eld- ist mun hann eigi vikja þar frá,“ segir í sígildri bók. Þai- segir einnig: Drottinn agar þann sem hann elskar. Vandræða- og síbrotaung- lingamh', sem íylla mið- borgina á kvöldin um helg- ar, eu íyrst og fremst af- rakstur agaleysis í uppvext- inum. Þeir sem kynnst hafa erlendum skólum furða sig margir á hinu lausbeislaða ungviði hér. Við höfum ekki herskyldu en ættum að taka upp þegnskyldu, þar sem hinir ungu fengjust við verðug verkefni eins og skógrækt og heftingu gróð- ureyðingai- undir jákvæðri og myndugri stjóm. Hugs- um um það. Helga R. Ingibjargard., Espigerði 2. Hækkun á göngu- deildargjaldi ÉG vil mótmæla hækkun sem hefur orðið á göngu- deildargjaldi á Landspítal- anum. Gjald fyrir komu nú er 580 kr. og ef blóðprufa er tekin með kostar heim- sóknin nimlega 3.000 kr. Mér var sagt af starfsfólki göngudeildar að hækkunin væri til komin vegna launa- hækkunar lækna. Finnst mér þetta alveg hrikalegt. Sjúklingur. Alzheimer og álver ÉG las frétt í Morgun- blaðinu sl. miðvikudag um stóriðjuskólann sem Rann- veig Rist stendur fyrir. Langar mig að spyrja í til- efni þess hvort nokkuð eigi að kenna í þessum skóla um alzheimer, en ég heyrði í fréttum í sjónvarpinu ný- lega að það væra þrisvar sinnum fleiri alzheimer- sjúklingar meðal starfs- fólks álvera en annarra. Guðrún Jónsdóttir. Sóun á 1x2 miðum ÉG var niðri á Hlemmi og þar fann ég stóran bunka af 1x2 miðum. Vil ég láta vita hvað farið er illa með þessa miða því þetta er mikil sóun ef þessu er hent svona í bunkum. Kona. Góð þjónusta VALGERÐUR hafði sam- band við Velvakanda og vildi hún koma á framfæri þakklæti sínu fyrir frá- bæra þjónustu hjá Fata- hreinsuninni Geysi, Dal- vegi, Kópavogi. Valgerður. Slæmur opnunartími hjá Kaupfélagi Þingeyinga VELVAKANDA barst eft- irfarandi: „Kæri Velvakandi. Ég get ekki látið hjá líða að kvarta yfir opnunartíma hjá Kaupfélagi Þingeyinga. Það vill endilega gera við- skiptavinum sínum þann óskunda að opna ekki fyrr en kl. 10 á morgnana. Þetta kemur sér illa iyrir marga og verður aðeins til þess að fjöldi manns kýs að versla annars staðar. Nú skora ég á skrifstofubullurnar þar að breyta þessu ef þeii- hafa þá einhverja heil- brigða hugsun. Pétur Steingrímsson, Laxanesi. Tapað/fundið Svört lopapeysa týndist á Snæ- fellsnesi SVÖRT kvenlopapeysa týndist laugai'daginn 19. september á bifreiðastæð- inu við Djúpalónssand á Snæfellsnesi. Skilvís finn- andi hafi samband í síma 581 2502 á kvöldin. Græn taska týndist GRÆN taska með línu- skautum og blárri peysu týndist í leið 14 sl. mánu- dagskvöld. Þetta er mikið mál íyrir drenginn sem á töskuna, því þetta voru lánsskautar. Finnandi vin- samlega hringið í síma 5674159 eða vs. 570 7570, Guðbjörg. Fundarlaun. Dýrahald Hvít Iæða týndist í Kópavogi HVIT 4ra mánaða læða týndist sl. sunnudag frá Melgerði í Kópavogi. Þeir sem hafa orðið hennar var- ir hafi samband í síma 899 9363. SKAK IJmxjon Margcir Pétursxon Staðan kom upp á Kettler mótinu í Ceska Trebova í Tékklandi í sept- ember. Lubomir Kavalek (2.520), Bandaríkjunum, hafði hvítt og átti leik, en Zbynek Hraeek (2.615), Tékklandi, var með svart. 20. exf6! - Rxf6 (Auðvitað ekki 20. - Hxel? 21. f7 mát) 21. Dd3 - h6 22. Re6 - Be7 23. Dg6 - Dxg2 24. Dxg2 - Bxg2 25. Hgl - Kf7 26. f5 og svartur gafst upp, þvi hann tapar manni. A mótinu voru tefldar 25 mínútna skákir. Banda- ríkjamennimir Kavalek og Seirawan kepptu við þá Hracek og Smejkal og sigr- uðu hinir fyrmefhdu með yf- irburðum, 6-2. Þótt Kavalek hafi lítið sem ekkert teflt í 20 ár fékk hann %'h vinning úr fjórum skákum. HVITUR leikur og vinnur HOGNI HREKKVISI Víkverji skrifar... Safnaðarstarf Miðbæjarstarf o g miðbæjar- messa UNDANFARIN tvö ár hefur KFUM og K, sem er leikmanna- hreyfing innan Þjóðkirkjunnar, stað- ið að miðbæjarstarfi meðal unglinga í Reykjavík. Miðstöð starfseminnar er í Austurstræti 20. Um helgar ein- kennist næturlíf miðbæjarins því miður af vímuefnaneyslu, ráfi og tómi. Það er engum manni hollt að vera í slíku umhverfi, allra síst ómót- uðum unglingum. Miðbæjarstarf KFUM og K vill leggja sín lóð á vogarskálamar í þeirri viðleitni að bæta bæjarbraginn og efla jákvæða unglingamenningu. Það er hugsjón okkar að í miðbæ Reykjavíkur finnist velviijað, fullorð- ið og myndugt fólk sem sé tilbúið að bjóða unglingum upp á umhyggju, samtal og vináttu. Grundvöllurinn og drifkrafturinn að þessu starfi er Jesús Kristur og erindi hans við heiminn. A Loftstofunni er leitast við að nota aðferð hans við unglingana. Sú aðferð byggist einmitt á um- hyggju og vináttu sem miðar að því að leiða fólk til vonar og trúar. Miðbæjarstarf KFUM og K er grasrótarstarf ogþar eru nánast allir í sjálfboðavinnu. A fostudagskvöldum er opið athvarf í Loftstofunni í Aust> urstræti 20. Þar er unglingum boðið til samtals og þeim veitt leiðandi ráð frá fullorðnu og velviljuðu fólki. Við vildum gjarnan fá fleira ábyrgt fólk til að taka þátt í þessu starfi. Vekjum við athygli á því að sunnu- dagskvöldið 4. október verður mið- bæjarmessa í Dómkirkjunni kl. 21. Þar mun starfsfólk í Miðbæjarstarf- inu þjóna ásamt sr. Jakobi Hjálm- arssyni dómkirkjupresti og sr. Jónu Hrönn Bolladóttur miðbæjarpresti KFUM og K. Þessi messa verður með léttri sveiflu og helgri alvöru í senn. Strax að lokinni athöfninni verður kynning á starfinu uppi á kórlofti Dómkirkjunnar. Hvetjum við allt kristið fólk sem leggja vill þessu málefni lið með fyrirbæn eða beinni þátttöku að koma til messunnar á sunnudagskvöldið. Jóna Hrönn Bolladóttir, miðbæjarprestur. Safnaðarfélag Dómkirkjunnar með opna fundi MEÐ vetri hefst starf Safnaðarfé- lags Dómkirkjunnar en félagið held- ur opna fundi með fyrirlesara að öllu jöfnu fyrsta sunnudaginn í hverjum mánuði. Ekki er hægt að segja annað en starfið byrji vel í vetur því sunnu- daginn 4. október ætlar herra Karl Sigurbjömsson, biskup Islands, að tala um ferð sína til Afríku sl. vetur. Fundir Safnaðarfélagsins eru strax eftir árdegismessuna og eru í Safnaðarheimilinu á homi Vonar- strætis og Lækjargötu og byrja með léttum málsverði á vægu verði. Fundirnir eru opnir öllum velunn- urum Dómkirkjunnar og er hér til- valið tækifæri til að rifja upp gömul kynni við kirkjuna. Hjónastarf og haustlitaferð eldri borgara SAFNAÐARSTARF Neskfrkju er að taka á sig haustlitina eins og náttúran og flest komið í fullan gang. Núna um helgina fer hjónastarf kfrkjunnar af stað svo og félagsstarf aldraðra auk þess sem bamastarfið er kl. 11 á sunnudagsmorgun en messa kl. 14. Sunnudagskvöldið 4. október verð- ur Benedikt Jóhannsson, sálfræðing- ur hjá fjölskylduþjónustu kirkjunnar, með erindið um efnið „gott hjónaband - nokkrir lyklar“. Hann ræðir þar um ýmislegt sem einkennir farsælt hjónaband og hvemig hægt er að vinna að því að efla samskiptin í hjónabandi og sambúð. Benedikt hef- ur áður verið með erindi um svipað efni í Neskirkju og var mjög góður rómur gerður að því. Fundurinn hefst kl. 20.30 í safnaðarheimilinu í kjallara kirkjunnar og er öllum opinn. Að auki mun Benedikt kynna nám- skeið um tjáskipti fyrir hjón og fólk í sambúð sem hann mun annast fyrir hönd Neskirlqu þar sem farið verður í nokkur grundvallaratriði í tjáskipt- um, fjallað um virka hlustun og lausn ágreinings. Námskeiðið verður sunnudagskvöldin 8., 15. og 22. nóv- ember kl. 20 í safnaðarheimili Nes- kirkju og kosta 5.000 kr. fyrir hjón. Skráning fer fram í Neskirkju þriðju- dag til föstudags kl. 10-12 í síma 511 1560. Þá hefst félagsstarf fyrir eldri borg- ara í dag, laugardaginn, 3. október, með haustlitaferð um Heiðmörk en einnig verður farið í Hafnarfjörð og drukkið kaffi í Hafnarborg. Félags- starfið verður hálfsmánaðarlega í vet- ur á laugardögum kl. 15 á móti félags- starfi Félags eldri borgara í Þorraseli, sem einnig er á laugardögum. Nánari upplýsingar veitir sr. Hall- dór Reynisson, s. 511 1562, GSM 898 0551, og Benedikt Jóhannsson, s. 557 9139. Siðfræði erfðavísinda I VETUR verða fræðslumorgnar í Hallgrímskirkju kl. 10 árdegis hvern sunnudag í október og nóvember og í febrúar og mars, eins og verið hefur í mörg ár. Fyrsti fyrirlesturinn í vet- ur verður nk. sunnudag, 4. október. Efni fyrirlestursins er: Siðfræði erfðavísinda og mun Jón Kalmans- son, heimspekingur, ræða efnið. Um fátt hefur eins mikið verið rætt og þetta efni síðustu misseri og verður fróðlegt að heyra heimspekinginn skoða málefnið út frá siðfræðinni. Erindin á fræðslumorgnum eru um hálf klukkustund, þá gefst kostur á fyrirspurnum og umræðum meðan tími leyfir áður en messa og barna- starf hefst kl. 11. Grensáskirkja KIRKJUKÓR og prestur í Grensás- kirkju í Reykjavík hafa ákveðið að heimsækja kirkju á landsbyggðinni á morgun, sunnudaginn 4. október. Fyrir valinu að þessu sinni vai'ð Hvammstangakirkja í Vestur-Húna- vatnssýslu. Messað verður kl. 14 og er prestur sr. Ólafur Jóhannsson. Tónleikar verða sama dag í Hvammstangakirkju kl. 17. Organisti og kórstjóri er Ami Arin- bjamarson. Allir eru hjartanlega velkomnir og aðgangur ókeypis. Poppmessa í Hjallakirkju POPPMESSA verður í Hjallakfrkju sunnudaginn 4. október, á almenn- um messutíma, kl. 11. Þetta er fyrsta poppmessa vetrarins en alls verða 6 poppmessur á þessum vetri. Slíkar guðsþjónustur hafa verið í Hjallakirkju síðastliðin tvö ár og vakið mikla athygli safnaðarins og víða. Markmið þeima er að ná til sem flestra með fjölbreytni í tónlist- arvali en tónlistin er einmitt það sem gerir guðsþjónustur þessar frá: brugðnar hefðbundnu helgihaldi. í guðsþjónustunni ílytur hópur fólks létta og skemmtilega tónlist en sá hópur var stofnaður sérstaklega í kringum poppmessur í Hjallakirkju. Fólk er hvatt til að koma og taka þátt í lifandi helgihaldi. Fella- og Hólakirkja. Opið hús fyrir unglinga kl. 21. Hjálpræðisherinn. Laugardagsskóli fyrir krakka kl. 13-14 á Hjálpræðis- hernum, Kirkjustræti 2. KEFAS, Dalvegi 24, Kópavogi. Al- menn samkoma kl. 14. Allir hjartan- lega velkomnir. KFUM og KFUK v/Holtagarða. Samkoma verður í aðalstöðvum KFUM og KFUK við Holtaveg sunnudaginn 4. október kl. 17. Ritn- ingalestur og bæn flytur Jón Tómas Guðmundsson, kjarnorkuverkfræð- ingur. Hjördís Kristinsdóttir segir frá leikjanámskeiðum félaganna sem haldin voru í sumar. Ræðumaður verður sr. Sigurður Pálsson, fv. for- maður KFUM í Reykjavík og núver- andi sóknarprestur í Hallgrims- kirkju. Samkoman er öllum opin og fólk hvatt til að fjölmenna. SUM FYRIRTÆKI ei-u farin að rita nöfn sín eftir einhverjum stafsetningarreglum, sem Víkverji kannast ekki við. Þannig vill síma- fyiirtækið Tal láta kalla sig TAL, þótt ekki sé Víkverja kunnugt um að um skammstöfun sé að ræða, sem myndi réttlæta þennan rithátt. Þá var í Morgunblaðinu á fimmtu- dag sagt frá nýju fyrirtæki norðan heiða, sem heitir Tölvumyndir en einhverra hluta vegna vilja forráða- menn þess troða stórum staf inn í mitt orð og kalla fyrirtæki sitt TölvuMyndir. xxx AÐ ER kannski sök sér að í merki viðkomandi fyrirtækis leiki hönnuðir sér með hástafi og iágstafi. En þegar fyrirtæki senda frá sér fréttatilkynningar og orð- sendingar finnst Víkverja að þau eigi að stafsetja nöfn sín sam- kvæmt gildandi stafsetningarregl- um, eða a.m.k. einhverjum staf- setningarreglum, sem höfða til rökhugsunarinnar. Og allra sízt ættu aðrir að éta upp villurnar eft- ir þessum fyrirtækjum og fara að tilmælum þeirra um að stafsetja nöfn þeirra vitlaust. XXX NÝ GERÐ Opel Astra-bifreiða var auglýst í Morgunblaðinu í vikunni. í auglýsingunni eru taldir upp kostir þessa nýja bíls, en tvö atriði í þeirri upptalningu skilur Víkverji alls ekki, lái honum hver sem vill. Þetta eru „pedal release system“ og „100% galvinserun". Eflaust gerir þetta hvort tveggja Opel Astra að betri bíl, en bílar eru nú einu sinni ætiaðir venju- legu fólki og Víkverji hefði ætlað að auglýsingar um þá væru það líka. Gott væri að bflaumboðið út- skýrði við hvað er átt, helzt á ís- lenzku. xxx VÍKVERJI hefm' haft mjög gam- an af þáttunum Sögur úr þorpinu, sem sýndir hafa verið í Rfldssjónvarp- inu undanfarin tvö miðvikudagskvöld. Hann skilui' hins vegar ekki hvers vegna þeir eru í dagskrárkynningum sjónvarpsins sagðir sænskfr - að vísu er töluð sænska í þáttunum, en Vík- verji heyrir ekki betur en að það sé einkar falleg útgáfa af Finnlands- sænsku og sýnist að sögusviðið sé þorp í hinum sænskumælandi hluta Finnlands. Hvað um það, Víkverji hef- ur gaman af að hlusta á Finnlands- sænskuna og víða er einstaklega fal- legt á vesturströnd Finnlands, þar sem þættirnir eru teknir upp. Sögur úr þorpinu eru einn af mörgum prýði- legum norrænum þáttum, sem Ríkis- sjónvarpið hefur sýnt að undanfómu og eru ánægjulegt mótvægi við amer- íska þætti og bíómyndir, sem fylla dagskrá flestra sjónvarpsstöðva að mestu leyti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.