Morgunblaðið - 20.10.1998, Síða 2

Morgunblaðið - 20.10.1998, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Mastrið í Kollafirði fellt Félagsmálastofnun og fleiri stofnanir hyggjast taka á málum meðlagsskuldara Geta margir liverjir ekki tekið að sér löglega vinnu VERIÐ er að taka niður raflínuna frá Reykjavík til Akraness og liður í framkvæmdinni er að fella mastur í Kollafírði. Það er fyrirtækið RST- net sem annast verkið og var mastrið fellt sl. iaugardag. Settar voru tunnur og kútar inn í sjálft mastrið, fætur sagaðir í sund- ur og jarðýta dró línuna í landi þar til mastrið féll í sjóinn. Þar flaut það og var dregið til lands. Mastrið verður selt í brotajám. Kristjón Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri RST-nets, segir að línan til Akraness hafi verið reist fyrir um ijörutíu ámm. RST-net hefur rifið um 20% af línunni til Akraness. I staðinn er rafmagn flutt yfir Hvalfjörð um sæstreng, sem sér Kjósinni fyrir raforku, og jarðstreng til Akraness. Það verða því engin stór rafmöstur á Ieiðinni frá Reykjavík til Akraness þegar verkinu lýkur. FORVARNASVIÐ Félagsmála- stofnunar Reykjavíkurborgar í samvinnu við fleiri stofnanir vinnur nú að undirbúningi þess að taka á stöðu þeirra karlmanna sem safnað hafa upp meðlagsskuldum eða skattaskuldum og eiga í erfiðleikum með að komast út á löglegan vinnu- markað af þeim sökum. Að sögn Rúnars Halldórssonar, forstöðumanns forvamasviðsins, hafa margir þessara manna leitað til Félagsmálastofnunar en auk þeirra er ætlunin að ná til þeirra manna sem ekki hafa leitað sér ráð- legginga hjá stofnuninni. Rúnai’ sagði í samtali við Morg- unblaðið að samvinna væri höfð við skattayfirvöld, Jafnréttisráð og Ráðgjafarstöð um fjármál heimil- ana um að koma á laggimar hópa- starfi sem byggðist að verulegu leyti á fræðslu til þessara manna með það að markmiði að þeir gætu komið reiðu á sín mál þannig að þeir gætu orðið virkari í þjóðfélaginu. Komnir í þá stöðu að geta ekki tekið að sér löglega vinnu „Til hliðar við þetta ætlum við jafnframt að beita okkur fyrir því að þessi opinberu þjónustukerfi skoði vel og hugsanlega breyti ein- hverju í vinnuaðferðum sínum og reglum við afgreiðslu mála manna sem em í þessari stöðu og hjálpi þeim að ná aftur tökum á lífinu ef svo má að orði komast,“ sagði Rún- ar. Hann sagði að tveir starfsmenn forvamasviðs Félagsmálastofnunar kæmu til með að leiða þetta starf sem á að hefjast í næstu viku, en haldnir verða hópfundir í sjö skipti þar sem annars vegar fer fram fræðsla og hins vegar verður farið í gegnum stöðu manna og reynt að vinna upp úr þeim upplýsingum sem þar koma fram leiðir til að gera stöðu þeirra bærilegri. „Við höfum fengið ýmsar ábend- ingar um að það er á vissan hátt út- skúfun úr samfélaginu þegar menn eru komnir í þessa stöðu að það er verulega farið að kreppa að þeim. Þeir sem komnir eru ofan í þessa gryfju eiga mjög erfitt með að rífa sig upp og þá eru menn komnir í þann vítahring að geta ekki tekið að sér löglega vinnu því þá fer megnið af laununum í opinber gjöld. Við erum með ákveðinn markhóp innan Félagsmálastofn- unar sem við höfum boðið þátttöku í þessu starfi okkar, en við ætlum líka að kynna þetta út á við þannig að einstaklingar sem hugsanlega eru einir í þessari stöðu úti í kerf- inu eigi möguleika á þátttöku og geta þeir haft samband við for- varnasvið Félagsmálastofnunar," sagði Rúnar. Morgunblaðið/Dagur MASTRIÐ í Kollafirði var fellt siðastliðinn laugardag. Borgarstjóri um samkomulag sveitarfélaga við Hitaveitu Suðurnesja Samþykki beggja þarf til að segja upp samningum BORGARSTJÓRI segir ekki óeðli- legt að Hafnarfjarðarbær, Garðabær og Bessastaðahreppur hugsi sér til hreyfings ef búast megi við aukinni samkeppni í orkumálum en sveit- arfélögin hafa samið við Hitaveitu Suðumesja um samvinnu í orku- og veitumálum. Borgarstjóri bendir á að sennilega hefði ekki verið farið út í virkjun Nesjavalla ef Hitaveita Reykjavíkur hefði ekki skuldbundið sig til að sjá sveitarfélögunum fyrir heitu vatni. Þá sé í gildi samningur milli borgarinnar og Hafnarfjarðar um jarðhitaréttindi í eignarlandi Hafnarfjarðar í Krýsuvík. Þessum samningum verði ekki sagt upp nema með samþykki beggja aðila. „Það er athyglisvert og ef til vill ekki skrýtið að sveitarfélögin hugsi sér til hreyfings ef almennt má búast við aukinni samkeppni í orkumál- um,“ sagði Ingibjörg Sólrún. „Það breytir því ekki að í gildi eru samn- ingar milli Reykjavíkurborgar og Hafnarfjarðarbæjar um jarðhitarétt- indi í eignarlandi Hafnarfjarðarbæj- ar í Krýsuvík, þar sem Hitaveita Reykjavíkur hefur rétt til að nýta heita vatnið til húshitunar. Þeim samningi verður ekki sagt upp nema með samþykki beggja aðila.“ Sagði hún að samningurinn um Krýsuvík byggðist á því að hafa nóg af heitu vatni til þeirra sem á þyiTtu að halda auk þess sem mikilvægt væri að hafa möguleika á heitu vatni bæði að norðan og sunnan eða á Nesjavöllum og í Krýsuvík með tilliti til náttúru- hamfara. Ekki þörf fyrir Nesjavelli Borgarstjóri sagði að Hitaveita Reykjavíkur seldi sveitarfélögunum nú um 8 millj. tonna af heitu vatni eða um helming af framleiðslu Nesjavallavirkjunar. „Ef til vill hefði ekki verið nauðsynlegt að fara út í virkjun Nesjavalla ef ekki væri til þess að sinna því fólki sem þarna býr,“ sagði Ingibjörg Sólrún. „Samn- ingnum verður ekki sagt upp nema samþykki beggja aðila komi til, þar sem Hitaveita Reykjavíkur skuld- batt sig til þess að sjá íbúunum á þessum svæðum fyrir heitu vatni, virkja og leggja dreifikerfi." Ingibjörg Sólrún sagði að fyrir kosningar, í lok síðasta árs, hefði verið gert ráð fyrir arðgreiðslum til sveitarfélaganna frá Hitaveitu Reykjavíkur. „Við höfum útaf fyrir sig viðurkennt að það gæti verið réttmætt að þeir eigi rétt á þeim en menn voru ekki sammála um hvern- ig ætti að reikna dæmið,“ sagði hún. „Það fékkst engin niðurstaða og má segja að botninn hafi dottið úr því.“ Kartöflu- bóndi grunaður um stórfelld skattsvik EMBÆTTI ríkislögreglustjóra hef- ur nú til rannsóknar mál kartöflu- bónda sem grunaður er um yfir 16 milljóna króna skattsvik. Embætti skattrannsóknarstjóra vísaði málinu til ríkislögreglustjóra í fyn-a. Að sögn Skúla Eggerts Þórðarsonar skattrannsóknarstj óra fóru hin meintu svik fram á tímabil- inu 1992-1995. Um sextíu manns, að stórum hluta unglingar og böm, gengu í hús og seldu kartöflur fyrir bóndann. Meirihluti þeirra var yfir- heyrður í rannsókn skattrannsókn- arstjóra. Meginhluti starfseminnar var ekki gefinn upp til skattayfirvalda og því fór fram endurákvörðun á tekjuskatti, virðisaukaskatti, útsvari og staðgreiðslu bóndans um síðustu áramót. Skúli segir að hluti sölumannanna geti einnig vænst þess að sæta endurákvörðun. Hann segir að fleiri mál sem varða svipaða sölustarfsemi hafi verið til rannsóknar hjá embættinu. --------------- Banaslys við Húsavík ÖKUMAÐUR fóðurflutningabif- reiðar beið bana er bifreið hans fór útaf veginum sunnan við Kaldbaks- leiti rétt sunnan Húsavíkur kl. 9 í gærmorgun. Mildl hálka var á veg- inum þegar slysið varð og lenti öku- maðurinn undir bifreiðinni og var látinn þegar að var komið. Hann var einn í bifreiðinni. Ekki er unnt að greina frá nafni hins látna. Sérblöð í dag HEFURÞU SPURNINGAR. VAKOANUI FJÁRf ESTINGAR octÍFDYRISMÁL? RAOUiM AK OÁXAX SVAKA ÁVERDBRÉFADÖGUM n-i\ oinmin I LnWíUM IU>NAIMJtftAKAANS I WUMaX'NVI KIUHCil tlNNt S-U. VÍMI Sbl >TAI0 lAUVTUMM IAtSCAMCI 120, VÍMI Sutð 6400 oo i mAaujii MOTIl fSfU. MjntlMAMtMMAUr 1 tfMfVMMJ) VERIÐVELKOMIN! BÚNADARBANKINN í dag fylgir Morgun- blaðinu auglýsinga- blað um verðbréfa- daga Búnaðarbank- ans f Kringlunni, f ausfurbæ og Háa- leiti dagana 21. - 23. okt. og er blaðinu dreift f þessi hverfi ; Árni Gautur norskur meist- : ari í knattspyrnu / B1, B4 : Eiður Smári Guðjohnsen : skorinn upp í Englandi / B1 * • Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.