Morgunblaðið - 20.10.1998, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998 11
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Ásdís
Fékk kisa í heimsókn
HUN Eva Lena á Bragagötunni fékk kisa í heim- þegar ljósmyndarann bar að. Það er heldur ekki víst
sókn í kerruna en kisa þótti ráðlegast að forða sér að mamma Evu hafi verið ánægð með heimsóknina.
Nýjar reglur samþykktar á kirkjuþingi um þjálfun prestsefna
Þjálfun hefst á
þriðja námsári
Álit kirkjuþings um
fjölmiðlamál
Auka að-
gang að
ljósvaka-
miðlum
ALLSHERJARNEFND
kirkjuþings lagði til í gær að
tillögu sr. Halldórs Gunnars-
sonar um stofnun sérstakrar
útvarpsrásar kirkjunnar yrði
breytt og biskupi og kirkjuráði
yrði falið að leita leiða til að
auka aðgang kirkjunnar að
ljósvakamiðlum.
Nefndarálit allsherjamefnd-
ar er svohljóðandi: „Kirkju-
þing 1998 felur biskupi og
kirkjuráði að leita leiða hvern-
ig auka megi með markvissum
hætti aðgengi kirkjunnar og
stofnana hennar að ljósvaka-
miðlum, er nái til landsmanna
allra, á þann veg að hún sem
lifandi kirkja geti betur sinnt
hlutverki sínu sem þjóðkirkja."
Þá vísaði nefndin til ábend-
inga starfshóps um upplýs-
inga- og fjölmiðlastefnu kirkj-
unnar sem lagðar hafa verið
fyrir biskup og kirkjuráð og
Morgunblaðið hefur greint frá.
Þar er m.a. gert ráð fyrir
heildarstefnumótun, að sam-
stöðu sé náð um þrjú til fjögur
aðalmálefni sem kirkjustjórnin
setji á dagskrá almennrar um-
ræðu og að gerð verði áætlun
um almannatengsl á ei’fiðleika-
tímum innan þjóðkirkjunnar.
Reykjaströnd
íbúðarhús
skemmt eftir
eldsvoða
ÍBÚÐARHÚSIÐ á bænum
Fagranesi á Reykjaströnd
skammt norðan Sauðarkróks
skemmdist mikið þegar eldur
kviknaði í risi hússins á sunnu-
dagskvöld.
Fjórir voru í húsinu þegar
kviknaði í og björguðust allir
ómeiddir. Verið var að innrétta
íbúð á efri hæð hússins og varð
verulegt tjón á innbúi og
klæðningu af völdum elds,
reyks og sóts.
Brunavarnir Skagafjarðar
komu á vettvang og réðu nið-
urlögum eldsins og gekk
slökkvistarfið fljótt og vel.
Eldurinn kviknaði fyrir slysni
þegar verið var að klæða ris
hússins. Telur lögreglan á
Sauðárkróki það mestu mildi
að ekki skyldu hafa orðið slys
á fólki.
Framkvæmda-
stjðri Háskóla-
bíós hættir
FRIÐBERT Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Háskólabíós,
mun láta af því starfi um
næstu áramót. Stefán Már
Stefánsson prófessor, formað-
ur stjómar bíósins, segir að
eftirmaður Friðberts hafi þeg-
ar verið ráðinn en vill ekki
gefa upp nafn hans strax.
Friðbert hefur verið fram-
kvæmdastjóri bíósins í tæp
tuttugu ár, eða frá 1979. Hann
segist hafa sagt upp til að
breyta til og er þegar í viðræð-
um um annað starf. Hann vill
þó ekki segja hvaða starf það
er, en segir að gengið verði frá
þeim málum um þarnæstu
mánaðamót.
Um fimm milljóna króna
hagnaður varð af rekstri Há-
skólabíós í fyrra.
NÝJAR reglur um þjálfun prests-
efna voru samþykktar á kirkju-
þingi í gær. Gera þær ráð fyrir því
að þjálfunarteymi, sem sér um
undirbúning guðfræðinema, geti
vísað guðfræðinema til fundar við
biskup komist teymið að þeind nið-
urstöðu að prestsstarf henti við-
komandi illa.
Markmið þjálfunar prestsefna er
að kirkjan fái til starfa mynduga og
fullþjálfaða einstaklinga sem hæfa
prestsstörfum á vegum kirkjunnar.
Gert er ráð fyrir að biskup skipi
þriggja manna þjálfunarteymi sem
sjái um undirbúning guðfræðinema
og kandidata fyi-ir prestsþjónustu
og að hann ákvarði starfsviðmið og
verklag þjálfunarteymis.
Meginbreytingin á nýjum regl-
KOSTNAÐUR við kirkjuþing á
næsta ári er ráðgerður 8,3 milljón-
ir króna. Kirkjuþing sem nú situr
kostar samkvæmt nýrri áætlun 6,7
milljónir króna en gert hafði verið
ráð fyrir 6,3 milljóna króna kostn-
aði. Þá kostaði kosning kirkju-
þingsfulltrúa í sumar 900 þúsund
krónur. Er því þörf á 1,3 milljóna
aukafjárveitingu til að ná endum
saman.
Stærstu kostnaðarliðir kirkju-
þings ei'u þingfararkaup og dag-
peningar en ásamt fæðispeningum
og ferðakostnaði nema þessir liðir í
ár rúmum fjórum milljónum og
ráðgert að þeir kosti um rúmar 4,5
milljónir á næsta ári. Kostnaður
milli þinga er ráðgerður ein milljón
króna. Aðrir kostnaðarliðir eru
um um þjálfun prestsefna er sú að
þjálfun hefst strax á þriðja náms-
ári í guðfræðideild. Frá því þjálfun
var tekin upp fyrir sjö árum hefur
hún fyrst hafíst eftir að námi er
lokið og verið skilyrði þess að ný-
útskrifaðir guðfræðingar geti sótt
um embætti. í upphafi þriðja
námsárs skulu guðfræðinemar,
sem áhuga hafa á kirkjulegu starfi
að loknu námi, skrá sig til þjálfun-
ar og fundar með biskupi.
Biskup ræðir málin við þá, sem
ekki eru til starfans fallnir
Þá fundar þjálfunarteymi árlega
eða oftar með skráðum þátttak-
endum. Guðfræðinemarnir skulu
sækja ái’lega námskeið sem þjálf-
unarteymi heldur og taka þátt í
m.a. prentunarkostnaður, laun
starfsfólks kirkjuþings og leiga á
aðstöðu og meðal nýrra liða eru
risna og hljóðritunarkostnaður.
Stefnt er að lokum kirkjuþings á
morgun, miðvikudag, og segir Jón
Helgason, forseti kirkjuþings, að
þá fari fram kosning til kirkjuráðs.
Fastanefndir kirkjuþings hafa síð-
ustu daga afgreitt mál sem vísað
hefur verið til nefndanna. Af alls 33
málum, sem lögðhafa verið fyrir
kirkjuþing, hafði tekist að ljúka 13
í gær. Af óloknum málum má nefna
setningu reglna um val á presti,
starfsreglur um kjör til kirkju-
þings og þingsköp, um skipan
sóknai’, prestakalla og prófasts-
dæma og um þingfararkaup, ferða-
kostnað og fleira.
starfi safnaðar með reglulegum
hætti og kynnast kirkjulífi af eigin
raun.
Komist þjálfunarteymið að
þeirri niðurstöðu að prestsstarf
henti einstaklingnum illa skal það
tilkynnt biskupi sem þá ræðir við
viðkomandi.
Að fengnum jákvæðum umsögn-
um heimilar biskup síðan guð-
fræðikandidötum að hefja kandi-
datsþjálfun. Skal hún vera tveir
mánuðir hið minnsta, hefjast með
stofnanakynningu og ljúka með
þjálfun í dreifbýlis- og þéttbýlis-
söfnuðum. Þá er einnig það nýmæh
í reglunum að biskup kallar á ný-
vígða presta til einnar eða fleiri
vinnuvikna og tryggir þeim aðgang
að handleiðslu.
Framsókn á Reykja-
nesi og Vesturlandi
Frambjóð-
endur
valdir á
kjördæm-
isþingum
FRAMSÓKNARMENN á Reykja-
nesi og Vesturlandi ætla að kjósa
efstu menn á framboðslista flokks-
ins í næstu alþingiskosningum á
aukakjördæmisþingum síðar í
haust. Sex hafa þegar lýst yfir
framboði á Reykjanesi og báðir
þingmenn Vesturiands óska eftir
endurkjöri.
I gegnum árin hefur verið al-
gengast að Framsóknarflokkurinn
hafi valið þá sem leiða lista flokks-
ins í einstökum kjördæmum á kjör-
dæmisþingum. Seturétt á þingun-
um eiga aðalmenn og varamenn.
Elín Jóhannsdóttir, formaður kjör-
dæmisráðs Framsóknarflokksins á
Reykjanesi, sagði að á kjördæmis-
þingi flokksins í Grindavík um
helgina hefði verið ákveðið að við-
hafa þessa aðferð. Ákveðið yrði á
stjómarfundi í kvöld hvenær kjör-
dæmisþingið yrði haldið. Atkvæðis-
rétt á kjördæmisþinginu hefðu um
440 fulltrúar.
Sex frambjóðendur þegar
komnir fram
Þingmenn flokksins í kjördæm-
inu, Siv Friðleifsdóttir og Hjálmar
Ái-nason, hafa lýst því yfir að þau
óski eftir stuðningi í fyrsta sætið,
en Siv léiddi listann í síðustu kosn-
ingum. Aðrir sem hafa lýst yfir
framboði em varaþingmennirnir,
Drífa Sigfúsdóttir og Unnur Stef-
ánsdóttir, Ómar Stefánsson, vara-
bæjarfulltrúi í Kópavogi og Ólafur
Magnússon, formaður Sólar í Hval-
firði.
Þorvaldur T. Jónsson, formaður
kjördæmisráðs Framsóknai’flokks-
ins á Vesturlandi, sagði að fimm
efstu menn á lista flokksins í kjör-
dæminu yrðu valdir á aukakjör-
dæmisþingi 14. nóvember næst-
komandi. Þingið yi’ði þrefalt
stærra en venjulegt þing og at-
kvæðisrétt á því hefðu um 200
manns. Frestur til að tilkynna
framboð rynni út 7. nóvember.
Ingibjörg Pálmadóttir og Magn-
ús Stefánsson, þingmenn Fram-
sóknarflokksins á Vesturlandi,
óska eftir áframhaldandi stuðningi
í efstu sæti listans. Þorvaldur
Jónsson, sem var í 3. sætinu í síð-
ustu kosningum, sagðist ekki gera
ráð fyrir að bjóða sig fram aftur.
Hitablásarar
PÓR HF
Reykjavík - Akursyrl
Reykjavík: Armúla 11 - sími 568-1500
Akureyri: Lónsbakka - sími 461-1070
Kostnaður við
kirkjuþing rúmar 8
milljónir á næsta ári