Morgunblaðið - 20.10.1998, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 20.10.1998, Qupperneq 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Karen fékk fyrsta Frissa fríska pennaveskið Prófkjör við val á lista Framsóknarflokksins á Norðurlandi eystra Valgerður og Jakob vilja fyrsta sætið KAREN Pétursdóttir, 9 ára nem- andi í Siðuskóla á Akureyri varð fyrst til að safna öllum miðunum átta á veggspjaldið í skólanum með Frissa fríska, leik sem Safa- gerð KEA byrjaði með í haust. Veggspjaldið liggur frammi á sölu- stöðum Frissa fríska og miðamir sem setja á inn á það eru áfastir safafernunum. Allir sem skila veggspjaldinu til safagerðarinnar fá Frissa fríska pennaveski og var Karen svo heppin að verða fyrst til að fá pennaveski afhent. Penna- veskin eru í tveimur litum, strák- arnir fá græn veski en stelpurnar bleik. Karen var að vonum ánægð með nýja pennavesið sitt og sést hér sýna það systur sinni, Eyleifu Ósk. VALGERÐUR Sverrisdóttir, alþingismaður og formaður þing- flokks Framsóknarflokksins, og Jakob Björnsson, fyrrverandi bæjarstjóri á Akureyri, sækjast bæði eftir fyrsta sætinu á fram- boðslista Framsóknarílokksins í Norðurlandskjördæmi eystra fyrir alþingiskosningamar næsta vor. Á kjördæmisþingi flokksins í Norðurlandslandskjördæmi eystra um helgina, var samþykkt að viðhafa bindandi prófkjör við val í fjögur efstu sæti listans fyrir alþingiskosningarnar í vor. Þá hafa Elsa B. Friðfmnsdóttir, lektor við Háskólann á Akureyri, og Daníel Ámason, framkvæmdastjóri Akoplasts á Akureyri, ákveðið að taka þátt í prófkjörinu og hafa þau bæði sett stefnuna á 2. sæti listans. Guðmundur Bjarnason, um- hverfis- og landbúnaðarráðherra, hættir á þingi á næsta ári en hann hefur verið ráðinn framkvæmda- stjóri Ibúðalánasjóðs. Þá hefur Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjórnarformaður KEA og Lands- virkjunar og varaþingmaður flokksins í kjördæminu, ákveðið að gefa ekki kost á sér á lista flokks- ins. Jóhannes Geir sagði í samtali við Morgunblaðið að hann hefði ákveðið fyrir um fjómm ámm að fara ekki fram, enda hefði hann í nógu að snúast á öðrum vígstöðv- um. Þórarinn E. Sveinsson, nýkjör- inn formaður stjórnar Kjördæmis- sambands framsóknarmanna á Norðurlandi eystra, sagði að fram- boðsfrestur vegna prófkjörsins væri til 15. nóvember nk., próf- kjörið færi fram um miðjan janúar og að stefnt væri að því að fram- boðslistinn yrði tilbúinn fyrir 15. febrúar nk. Rétt til þátttöku hafa flokksbundnir framsóknarmenn 16 ára og eldri eða þeir sem skrifa undir stuðningsjdrrlýsingu við flokkinn. Morgunblaðið/Kristján Matvæladagur MNÍ 1998 — Matur og umhverfi — Laugardaginn 24. október stendur Matvæla- og næringarfræðinga- félag fsalnds fyrir árlegum matvæladegi á Fosshótel KEA, Akureyri, kl. 9.30-15.00. Dagurinn er að þessu sinni helgaður umhverfismálum í matvælaiðnaði undir yfirskriftinni: Matur og umhverfi. Mikilvægi umhverfismála er sífellt að aukast, ekki síður í matvælaiðnaði en öðr- um greinum atvinnulífsins. Brýna nauðsyn ber til, að matvælafram- leiðsla öll sé í sem bestri sátt við umhverfið og náttúruna. Umræða um umhverfismál í greininni er því sérlega tímabær. Fjöreggið - viðurkenning fyrir gott framtak á matvælasviði, er árlega afhent á matvæladeginum og svo verður einnig gert nú. Dagskrá; 09.30: Skráning og morgunkaffli. 10.00: Setning: Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akurcyri. 10.10: Mataræði á nýrri öld. Bjöm Guðbrandur Jónsson, umvherfissérfræðingur, Verkfræðistofnunni Línuhönnun hf. 10.30: Umhverflsstjórnun í matvælaiðnaði - hvernig skal hefjast handa? Helga J. Bjamadóttir, umhverfisverkfræðingur, Iðntæknistofnun íslands. 10.50: Umhverfismál hjá Mjólkursamlagi KEA. Ólafur Jónsson, dýralæknir, MS KEA. 11,00: Lífrænar aðferðir í matvæiaframleiðslu - hollari og umhverfisvænni kostur. Gunnar Ágúst Gunnarsson, framkvæmdastjóri Vottunarstofunnar Túns ehf. 11.30: Hádegishlé og afhending Fjöreggsins. 13.00: Umbúðir og umhverfi; líftímagreining vöru. Gunilla Jönsson, prófessor, Tækniháskólanum í Lundi. 13.40: Leifar matvæla og umbúðir - meðferð tveggja helstu tegunda heimilissorps. Lúðvík Gústafsson, jarðfræðingur, Hollustuvernd ríkisins. 14.00: Umhverfisstaðlar og matvælavinnsla. Magnús Magnússon, framkvæmdastjóri, VSÓ ráðgjöf-Akureyri ehf. 14.20: Umhverfisvottun hjá Fiskiðjusamlagi Húsavíkur. Steindór Sigurgeirsson, sjávarútvegsfræðingur, F.H. 14.40: Umræður. 15.00: Ráðstefnuslit. Fundarstjóri: Guðbrandur Sigurðsson, framkvœmdastjóri ÚA. Þátttökugjald: 3.000 kr. (innifalin ráðslefnugögn, léttur hádegisverður, kaffi og mcðlæti). 2.000 kr. fyrir nema. Þátttökutilkynning: í síma Háskólans á Akureyri, 463 0900. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í síðasta lagi 22. október. HL-stöðin á Bjargi á Akureyri Morgunblaðið/Kristján Verkstjórar gefa líkamsræktartæki ENDURHÆFINGARSTÖÐ hjarta- og lungnasjúklinga á Bjargi á Ak- ureyri (HL-stöðin) hefur fengið að gjöf tvö líkamsræktartæki frá Verkstjórafélagi Akureyrar og nágrennis. Kaupin eru fjármögnuð með styrk úr sjúkrasjóði Verk- stjórasambands íslands, í tilefni 60 ára afmælis sambandsins. Um er að ræða róðravél, til að framkvæma styrkjandi æfingar fyrir efra bak, aftanverðar axlir og upphandleggi. Einnig þrýstivél, til að framkvæma styrkjandi æf- ingar fyrir brjóstvöðva, framan- verðar axlir og upphandleggi. Alls eru um 90 manns í þjálfun tvisvar í viku í HL-stöðinni á Bjargi og sagði Kristín Sigfúsdótt- ir, formaður framkvæmdastjórnar að þessi tæki kæmu sér mjög vel fyrir stöðina. HL-stöðin hefur ver- ið starfrækt frá því £ janúar 1991 og sagði Kristín að starfsemin hefði aukist jafnt og þétt frá þeim tíma, enda þessi þjónusta ómissandi þáttur í endurhæfingu fólks eftir aðgerðir. Fulltrúar Verkstjórafélags Ak- ureyrar og nágrennis afhentu líkamsræktartækin og á myndinni eru tveir þeirra; Eggert Jónsson situr á þrýstivélinni en Magnús Þorsteinsson stendur hjá. Við hlið hans standa Eydís Valgarðsdóttir sjúkraþjálfari og Kristfn Sigfús- dóttir, formaður framkvæmda- stjórnar HL-stöðvarinnar. Morgunblaðið/Kristján Stakfellið fékk trollið í skrúfuna TOGARINN Skutull ÍS frá ísafirði kom með togarinn Stakfell ÞH frá Þórshöfn í togi til Akureyrar seinni partinn á föstudag en Stakfellið fékk trollið í skrúfuna á fimmtu- dagsmorgun, þar sem skipið var á veiðum austur í Langaneskanti. Að sögn Kjartans Valdimarssonar skipstjóra á Stakfellinu gekk ferðin til Akureyrar vel en hún tók um 25 klukkustundir. Kjartan sagði að Stakfellið hefði verið að veiðum í 3-4 daga þegar óhappið varð en veiðin hefði verið dræm. Ekki var um neinar skemmdir að ræða en kafari var fenginn til að losa úr skrúfunni, auk þess sem gert var við trollið. Stak- fellið hélt til veiða á ný seinni part- inn á laugardag. Á myndinni er Skutull að koma með Stakfellið að bryggju á Akureyri. Leikmannaskóli þjóðkirkjunnar Námskeið fyrir karla um karl- mennsku NÁMSKEIÐ fyrir karla um það að vera karlmaður við upp- haf 21. aldarinnar verður haldið í Safnaðarheimili Akureyrar- kirkju þriðjudagskvöldin 20. og 27. október næstkomandi. Markmið námskeiðsins er að vekja þátttakendur til umhugs- unar um karlmennsku sína, hvetja þá til að vinna markvisst með hana og styrkja þá við að nýta sér trúna í þágu karl- mennskunnar. Á námskeiðinu verður reynt að hjálpa körlum til að tala um tilfinningar sínar og stöðu sína sem karlmenn, feður og eiginmenn. Ennfremur er stefnt að því að karlar finni styrkleika sinn, fjallað verður um vanda karlsins í daglega líf- inu, tjáskipti og síðast en skki síst er tilgangurinn sá að karl- arnir njóti þess að vera saman og leika sér. Námskeiðið er á vegum Leik- mannaskóla þjóðkirkjunnar og verður boðið upp á það bæði í Reykjvík og á Akureyri. Leiðbeinendur eru Kristján Már Magnússon sálfræðingur og sr. Svavar A. Jónsson. Ráðgert er að körlum á nám- skeiðinu gefist kostur á að taka þátt í frekara starfi fyrir karla og hafa nú þegar fæðst margar spennandi hugmyndir um slíkt. Þjóðkirkjan hefur á undanförn- um árum gengist fyrir vinsæl- um námskeiðum fyrir konur en nú er röðin komin að körlunum enda ekki síður þörf á að þeir ræði hlutverk sitt og stöðu en konur. Innritun á námskeiðið fer fram í Akureyrarkirkju þar sem einnig fást nánari upplýs- ingar. Nýbygging Háskólans Menntamála- ráðherra tek- ur fyrstu skóflustungu BJÖRN Bjarnason mennta- málaráðherra mun taka fyrstu skóflustungu að nýbyggingu Háskólans á Akureyri á Sól- borg næstkomandi föstudag. Þá munu stjórnendur háskólans og hönnuðir kynna líkan og teikn- ingar af nýju háskólabygging- unum. I kjölfarið hefjast fram- kvæmdir við jarðvinnu undii' fyrstu nýbyggingar skólans sem eru um 2.000 fermetrar og munu hýsa kennslustofur, skrifstofur, aðstöðu fyrir verk- lega hjúkrun og iðjuþjálfun og tengjast eldri húsum skólans með tengigangi. Jarðvinnu skal lokið fyrir 1. desember nk. Fyrirtækið GV Gröfur átti lægsta tilboð í jarðvinnuna en það hljóðaði upp á tæpar 3,2 milljónir króna sem eru 67% af kostnaðaráætlun en hún var rúmar 4,7 milljónir króna. AKSJÓN 20. október, þiiðjudagur 12.00ÞSkjáfréttir 18.15ÞKortér Fréttaþáttur í sam- vinnu við Dag. Endursýndur kl. 18.45,19.15 19.45, 20.15 20.45. 21 .OOÞBæjarmál Fundur í bæjar- stjórn Akureyrar frá því fyrr um daginn sýndur í heild.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.