Morgunblaðið - 20.10.1998, Síða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Morgunblaðið/Porkell
Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag íslands
Kaupir 0,8%
í Sjóvá-Al-
mennum
EIGNARHALDSFÉLAGIÐ Bruna-
bótafélag íslands hefur keypt 0,8%
hlut í Sjóvá-Almennum og nemur
kaupverðið um 100 milljónum
króna. Eignarhaldsfélagið á nú hlut
í tveimur tryggingafélögum, eftir að
hafa nýlega gengið frá kaupum á
smáum hlut í Tryggingamiðstöðinni.
Að sögn Hilmars Pálssonar, for-
stjóra Eignarhaldsfélagsins, er
félagið með kaupunum fyrst og
fremst að uppfylla 3. grein laga nr.
68 frá 1994 sem kveður á um að því
beri að eiga eignarhlut í vátrygg-
ingafélagi: „Með þessari fjárfestingu
erum við að koma til móts við um-
rætt lagaákvæði, auk þess sem við
teljum þetta arðvænlegan rekstur".
Eignarhaldsfélagið kaupir bréfin
beint af fjárfestum án þess að
tryggingafélagið komi þar nærri. Sé
tekið mið af þeim 100 milljónum
sem greiddar voru fyrir 0,8% hlut,
þá má gera ráð fyrir að
markaðsvirði Sjóvár-Almennra liggi
nálægt 12 milljörðum króna.
Einar Sveinsson, framkvæmda-
stjóri Sjóvár-Almennra, sagðist í
samtali við Morgunblaðið í gær,
fagna þessari tiltrú Eignarhalds-
félagsins að vilja gerast hluthafar í
fyrirtækinu og að sínu mati væri
hér um dýrmæta stuðningsyfirlýs-
ingu við félagið að ræða sem kæmi
til með að efla og treysta reksturinn
enn frekar í framtíðinni.
Stefán Halldórsson, framkvæmdastjóri Verðbréfaþings
Skattaafsláttur getur
skekkt verðmyndun
SKATTAAFSLATTUR einstaklinga
vegna hlutabréfakaupa er dæmi um
mismunun sem getur skekkt verð-
myndun á hlutabréfamarkaði, að
sögn Stefáns Halldórssonar, fram-
kvæmdastjóra Verðbréfaþings ís-
lands.
„Sá sem nýtur skattalegra hlunn-
inda af hlutabréfakaupum er jafnvel
reiðubúinn til þess að greiða hærra
verð fyrir hlutabréf en sá sem ekki
nýtur hlunninda. Sjóðsstjóri
verðbréfa- eða lífeyrissjóðs getur
kannski ekki réttlætt sama verð og
einstaklingurinn sem tekur skatta-
hagræðið að einhverju leyti inn í
dæmið. Að því leyti er skattaafslátt-
urinn ekki kjörlausn en það er þó
mikilvægt að hann gildir um öll
hlutabréf og ekki er gert upp á milli
atvinnugreina líkt og með banni við
hlutabréfakaupum útlendinga í
sjávarútvegsfyrirtækjum. Ut frá
hagsmunum verðbréfamarkaðar
væri til lengri tíma litið æskilegt að
finna leiðir til að örva fjárfestingar
sem ekki byggjast á mismunun af
þessu tagi,“ segir Stefán.
Lögin í endurskoðun
Útlendingar mega ekki eiga bein-
an hlut í fyrirtækjum sem stunda
veiðai’ eða frumvinnslu sjávarafurða
en þeir hafa heimild til þess að eiga
upp í 25-33% hlut í íslensku félagi
sem á hlutabréf í sjávarútvegsfyrir-
tæki.
Að sögn Jóns Sveinssonar, lög-
fræðings og formanns nefndar er
vinnur að endurskoðun laga um er-
lenda fjárfestingu í innlendum at-
vinnurekstri, er meðal annars verið
að skoða þessi mál en engin niður-
staða liggur fyrir um hvort erlendum
aðilum verði gert kleift að eignast
beinan hlut í sjávarútvegsfyrirtækj-
um.
Stefán segir að æskilegast sé fyrir
Þessi auglýsing er birt í upplýsingaskyni.
Verðbréfaþing íslands hefur samþykkt
að taka til skráningar:
Óverðtryggð skuldabréf FBA
5. flokkur 1998
Krónur 1.000.000.000,00
Gjalddagi 10. apríl 2004
Fjárfestingarbanki atvinnulífsins tekur að sér viðskiptavakt
á ofangreindum flokki.
Skuldabréfaflokkurinn verður skráður 26. október 1998.
Skráningarlýsingar og önnur gögn s.s. samþykktir og síðasta
ársreikning er hægt að fá hjá FBA, Ármúla 13a, Reykjavík,
umsjónaraðila skráningarinnar.
FJÁRFESTINGARBANKI
ATVINNULÍFSINS H F
Ármúla 13a, 108 Reykjavík. Sími: 580 5000. Fax: 580 5099. Netfang: fba@fba.is
íslenskan verðbréfamarkað að engar
hömlur eða sérstök hlunnindi tengist
viðskiptum með hlutabréf.
„Sem hlunnindi má nefna skatta-
leg hlunnindi og sem hömlur má
nefna að útlendingar mega ekki
kaupa í sjávai’útvegsfyrirtækjum.
Hvort tveggja er óheppilegt og sem
langtímamarkmið er best fyiTr
markaðinn að það sé jafnræði og all-
ir fjárfestingarkostir standi jafnt að
vígi,“ segir Stefán.
Starfsmenn Verðbréfaþings Is-
lands, verðbréfafyrirtækja og banka
verða varir við að þessi mismunun
komi útlendingum spánskt fyrir
sjónir og dragi úr trúverðugleika ís-
lensks markaðar. „Víðast hvar er
verið að falla frá mismunun af þessu
tagi á verðbréfamörkuðum. Vissu-
lega má þó enn finna í lögum ann-
arra ríkja bann við því að útlending-
ar megi eiga meirihluta í fyrirtækj-
um. Þess eru dæmi að myndast hafi
tvenns konar verð á slíkum markaði,
útlendingaverð og innanlandsverð.
Það er óheppilegt og því tel ég að við
eigum að forðast mismunun á ís-
lenskum hlutabréfamarkaði," segir
Stefán Halldórsson.
MICROSOFT gegn bandarísku stjórninni
Microsoft Corporation kom fyrir rétt á mánudag til að halda uppi vörnum gegn ákæru
bandarískra stjórnvalda um að tölvurisinn hafi brotið lög gegn hringamyndunum með
það fyrir augum að ná ráðandi hlutdeild í hugbúnaðariðnaðum.
Bandarísk stjórnvöld saka Microsoft um að
hafa gripið til sérstakra og ólöglegra aðgerða
til að ýta Netscape Communications Corp. út
af markaðinum vegna þess að Netvafri þess
ógni áætlunum Microsoft.
1VELTA K 1
m Microsoft (Tölur í milljörðum dala) Netscape
5,93 1995 0,08
8,7 1996 0,34
11,35 1997 0,53
14,48
1998
(Töiur birtar í desember)
HLUTDEILD A NETVAFRAMARKAÐINUM
1996
Microsoft Explorer
r~1'
= Aðrir
Windows '98, er vöndlað með Microsoft Explorer forritinu
og fylgir nú 90% nýrra einmenningstöla.
WaG/ 4
V
Málaferlin gegn Microsoft hafín
Orð Gates dregin í efa
Washington. Reuters.
RÍKISVALDIÐ í Bandaríkjunum
hóf málaferli sín gegn Mierosoft
hugbúnaðarfyrirtækinu í gær með
því að draga í efa að Bill Gates for-
stjóri væri trúverðugur.
Lögmenn ríkisvaldsins gerðu
samanburð á eiðsvörnum vitnisburði
Gates á myndbandi í ágúst og
tölvupósti og greinargerðum frá
Gates nokkrum áram áður og bentu
á atriði sem þeir töldu sýna ósam-
kvæmni og mótsagnir.
Að því er lögfræðingarnir héldu
fram sýndi framburður Gates á
myndbandi að Microsoft hefur mis-
notað yfirburðastöðu á hugbúnaðar-
markaði á ólöglegan hátt til að ryðja
keppinautum úr vegi og ná yfiráðum
á markaði fyrir netskoðunartæki.
„Þetta er greinilega meðal þess
sem lög gegn hringamyndun hafa
átt að koma í veg fyrir,“ sagði einn
lögmanna bandaríska dómsmál-
aráðuneytisins, David Boies.
Microsoft hefur alltaf neitað því
að hafa misnotað sterka markaðs-
stöðu. Stýrikerfi fyrirtækisins, svo
sem Windows 98 og Windows NT,
eru notuð í 90 af hundraði
einkatölva.
Skagfírðingamótið 1998
verður haldið í félagsheimilinu „Drangey“,
Stakkahlíð 17, Reykjavík laugardaginn
24. október 1998 (fyrsta vetrardag)
Hátíðin hefst með borðhaldi kl. 19.30. Húsið opnað kl. 19.00.
Hagyrðingar og sönghópurinn Svanagerðisbræður skemmta. Lesið
upp úr nýjum skagfirskum skemmtiljóðum, 2. bindi.
Forsala aðgöngumiða verður í „Drangey" fimmtudaginn 22. okt. '98
kl. 16—20, sími 568 5540. Miðaverð kr. 2.500.
Ef húsrúm leyfir eftir borðhald er aðgangseyrir kr. 500.
Félagsmenn og allir Skagfirðingar eru hvattir til að mæta og taka með
sér gesti. Góða skemmtun!
Stjórn Skagjirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni.