Morgunblaðið - 20.10.1998, Síða 21

Morgunblaðið - 20.10.1998, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ UR VERINU PRIÐ JUDAGUR 20. OKTÓBER 1998 21 NEYTENDUR Þorskur, 7 ára og eldri, 1970-80 (kynþroska hluti stofnsins) Spáin rættist ekki. ygg'^r, Með óbreyttrisókn........, stækkaði------s. / 600 — \ stofninn-----------—/ — 500------------------------t-------- 400---------V----------r-d---------- 300--------------------------------- 200 "Sjíá- H nn - -Sí dn sðm — — \_______ 1UU í s ký^slu 19751 V 0-1--1....!■ ■■! ■ ■ i" 1— 1970 '72 74 76 78 '80 Tengsl afla við ísland og hitafars (Línurnar eru útjafnaðar) áætlaður eftir ísafari fyrir 1823 (Páll Bergþórsson), en síðan eftir mælingum i 1 1 1 i 1 1 1 i 1 1 1 i 1 1 ' I 1600 1700 1800 1900 2000 Spáin rættist ekki. — _Með óbreyttásókn. stækkaði s. : Sf )á rfr? nac \-£ A N ís kýi slu 19 75 inn af mælingu er það hvað kemur upp úr haflnu og þegar brottkastið kemur ekki inn í mælingakerfi Haf- rannsóknarstofnunar þá mælir það stofninn auðvitað skakkan; 50 þús- und tonna brottkast mælir stofninn skakkan um 200 þúsund tonn sem hann er stærri en tölur Hafrann- sóknarstofnunar segja til um. Því væri hægt að auka veiðina um þessi 50 þúsund tonn og minnka spennuna. Brottkastið er fyrst og fremst af tveimur ástæðum, annars vegar vegna þess að menn eru að skipta á ódýrari físki og dýrari, það er að segja að henda smáum fyrir stóran og henda dauðum netafíski íyrir lif- andi, og hins vegar er brottkast vegna þess að menn hafa ekki veiði- heimildir; verða að fleygja þorski til að komast að öðrum tegundum. I staðinn fyrir að herða eftirlitið ætti því að slaka á spennunni en þetta hafa þeir aldrei skilið á Skúlagötu 4. Þorskurinn er þungamiðja í þess- ari veiði og leiguverðið á honum er svo hátt að það gefur í rauninni til kynna að stofninn sé miklu stærri en talið er, vegna þess hve auðvelt er að veiða hann. Sjómenn eru búnir að æpa það framan í þjóðina í mörg ár að þeir eigi erfitt með að komast að öðrum tegundum fýrir þorski en ekkert er hlustað á þá. Margir skip- stjórnarmanna okkar eru náttúru- börn og sjónarmið þeirra eru stór- lega vanmetin; þau eru ekki síður vísindi en ýmislegt annað.“ Kristinn segir stefnuna í fiskveiði- stjórnun mjög einstrengingslega, „og samkvæmt þessum pólitísku vís- indum er uppbyggingin að skila ár- angri þegar heilbrigð skynsemi segir að uppsveiflu sjávarskilyrða er ein- göngu um að þakka. Sagan sýnir það svo að ef menn nýta ekki það sem náttúran gefur eru þeir að taka áhættu, og sú áhætta er mjög van- metin af Hafró.“ Kanada - Barentshaf „Forstjóri Hafrannsóknarstofnun- ar og forseti alþjóða hafrannsóknar- ráðsins, Jakob Jakobsson, sagði í við- tali við Fiskifréttir í nóvember 1989 að Kanadamenn væru með þessa 20% sóknarstefnu og hann taldi það þá vera ábyrgustu og áreiðanlegustu fískveiðistjómun í Norður-Atlants- hafi. Sóknin í stofninn þar væri helm- ingi vægari en hér, á sama tíma og hann taldi að í Barentshafinu væri allt að fara forgörðum. En í Barents- hafi var það fyrst og fremst niður- sveifla í umhverfisskilyrðum og léleg- um vaxtarhraða um að kenna; um leið og uppsveifla kom í umhverfisskilyrð- in þá óx þorskstofninn mjög hratt og veiðin margfaldaðist á stuttum tíma. En það var ekki fyrr en eftir slagsmál sjómanna við Hafrannsóknarstoíhun í Bergen að Ieyft var að auka veiði á þorski í Barentshafi; það gerðist þannig að þeir fóru, vegna mikillar gagnrýni, og bergmálsmældu þorskinn í Barentshafi, sem venju- lega er ekki gert með botnlæga stofna, og þorskstofninn mældist þá meira en helmingi stærri en hann átti að vera samkvæmt bókhaldinu. Upp- lýsingarnar láku í blaðamann á Fiskaren og það sprakk allt framan í veiðiráðgjafa í Barentshafmu. Þetta var í kringum 1990. Og þá var veiðin loksins aukin, en ég tel að það hafi gerst of seint vegna þess að þegar Is- lendingar fóru í Smuguna þá stóð sporður út úr öðrum hverjum fiski. Hann var þá þegar byrjaður á stór- kostlegu sjálfáti vegna hungurs því stofninn var orðinn það stór. Þetta er pottþétt; það hringdi í mig fullt af sjó- mönnum og allir sem fóru í Smuguna eru til vitnis um þetta. Niðursveiflan var byrjuð í Barentshafinu þegar við fórum í Smuguna þannig að það að ís- lenskir sjómenn fóru þangað kostaði ekki ofveiði eins og sagt hefur verið; hegðun þeirra var ekki óábyrg á nokkum hátt, ef eitthvað er þá hafa þeir hjálpað náttúrunni til að draga úr þeirri niðursveiflu sem var á ferð- inni. Núna er þessi niðursveifla stað- reynd, allt í einu finnst ekki fiskurinn, hann hefur líklega tvístrast í ætisleit af því að vaxtarhraði hefur verið mjög fallandi á sama tíma og Norðmenn hafa verið að nota smáfiskaskiljur í vaxandi mæli. Hvað þýðir að vera að geyma smáfisk sem hefur ekkert að borða? Eg bara spyr. Eg held að búið sé að prófa það við Kanada. Það var svo mikið af smáfiski við Kanada 1985 að menn sprengdu trollin eftir nokk- urra mínútna tog. Síðan fengu þeir rosalega góða nýhðun árin 1986 og 1987 eins og við fengum héma núna - fengu gífurlegt magn af seiðum - það var ógurlegt magn af smáfiski og allt átti að hafa heppnast vel, en þá reyndist allt vera á leið í hina áttina.“ Áhrif veðurfars Páll Bergþórsson og fleiri veður- fræðingar, m.a. Magnús Jónsson, hafa komið fram með kenningar um áhrif veðurfars á þorsk, kenningar sem em afskaplega trúverðugar að mati Kristins Péturssonar. „Páll hef- ur til dæmis bent á það að aftur til 1600 hafi afli við Islandsstrendur fylgt breytingum á veðurfari; að afli hafi aukist um 40% við hverja eina gráðu sem meðalhiti eykst í Stykkis- hólmi. Hann setur þetta fram á mjög trúverðugan hátt og ég hef mikla trú á honum sem fagmanni. Ráðgjafar á Veiðimálastofnun bentu á sams kon- ar fylgni milli laxastofna í Rússlandi og Norður-Noregi og Islandi." Kristinn tekur sérstaklega fram að hann telji alla rannsóknarstarfsemi Hafrannsóknarstofnunar yfirleitt til fyrirmyndar, „en ályktanirnar sem þeir draga af þessum rannsóknum tel ég rangar, svo og veiðiráðgjöfina. Og mér finnst spurning hvort eigi ekki einmitt að aðskilja rannsóknarstarf- semina og veiðiráðgjöf, eins og búið er að aðskilja rannsóknir og dóms- vald í sakamálum. Við erum ekki að tala um neinn smá dóm; öll gögn sýna að óhætt sé að veiða 100 þúsund tonnum meira af þorski en gert er og sú viðbót er 15 milljarða króna virði. 15 milljarðar myndu duga til að rétta viðskiptahallann og greiða niður er- lendar skuldir um sömu upphæð og minnka eftirspurn í lánsfé, þannig að þetta er að öllu leyti jákvætt. Og síð- ast en ekki síst varðandi markaðs- málin; það er mjög mikill skortur á þorskafurðum á öllum mörkuðum og verðið er orðið of hátt að mínu mati vegna skorts. Því er hætta á að neyt- endur snúi sér bara að öðrum vörum, kaupi sér kjúkling og eldislax frá Noregi og þar með missum við við- skiptavinina í stað þess að veiða og útvega þeim aðeins ódýrari fisk.“ Slæleg skil á fernum til Sorpu Morgunblaðið/Golli IBUAR á höfuðborgarsvæðinu þurfa að gera átak í skilum á fernum af hvers kyns tagi. ÍBÚAR á höfuðborgar- svæðinu þurfa að gera átak í skilum á fernum ef marka má tölur frá Sorpu. Skil á pappír eru svipuð og í fyrra. Agæt og jöfn skil eða um 86% hafa verið á umbúðum utan af gosi. Ragna Halldórsdóttir, umhverfisfræðingur og upplýsingafulltrúi hjá Sorpu, segir að safnast hafi um 140 tonn af fem- um af höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi á síðasta ári. Fyrstu 10 mánuði þessa árs hafi aðeins safn- ast saman um 40 tonn af sama svæði og kæmi stærsti hlutinn af því magni af Suðurlandi. Hvað ástæðumar varð- aði sagði Ragna að hluti skýring- arinnar gæti falist í því að átakinu hefði ekki verið fylgt nægilega vel eftir með áróðri. Skilaboðin hefðu ekki verið nægilega skýr og ekkert hefði orðið úr almennri dreifingu á sérstökum kössum frá Mjólkur- samsölunni, Gámaþjónustunni, Reykjavíkurborg og Sorpu. Ekki yrði gefist upp heldur reynt að ýta við neytendum að nýju. Allar fern- ur þarf að skola, brjóta saman og setja í plastpoka áður en fernunum er skilað í gáma Sorpu. Ragna sagði að betri skil hefðu verið á dagblöðum en fernum og væri útlit fyrir svipuð skil og í fyrra eða um 3.900 tonn. Hún vildi minna á að óhætt væri að skila svokölluðum mslapósti, þ.e. aug- lýsingum frá hinum ýmsu fyrir- tækjum og stofnunum, og tímarit- um í gámana með dagblöðunum. Smáaur hvati til skila umbúðum utan um gos miðað við seldar gosflöskur og dósir í fyrra. Nú væri útlit fyrir svipað hlutfall. Hlutfallið væri mjög gott og svipað og á hinum Norðurlöndunum. Ekki sagði Gunnar að efa að að- alhvatinn fyrir skilunum fælist í því að smáaur fengist fyrir hverja flösku. Hann tók fram að ekki væri annars staðar tekið á móti öllum umbúðum, þ.e. úr plasti, áli og gleri. Gunnar Bragason, fram- kvæmdastjóri Endurvinnslunnar, sagði að um 86% skil hefðu verið á Vönduð dagatöl og jólakort í miklu úrvali. Sérmerkt fyrir þig Nýjar víddir í hönnun og útgáfu Snorrabraul 54 (£)5ól 4300 Q5Ó1 4302 Hin árlega EJS námstefna verður haldin á Hótel Loftleiðum föstudaginn 23. október nk. Áhugaverðir fyrirlestrar frá morgni til kvölds valið um þijár línur: Forritun, nettækni eða lausnir Dagskrá: námstefna um forritun, nettækni, lausnir Enn meiri breidd f efnistökum en áður. Stjórnendur fyrirtækja, hugbúnaðarsérfræðingar, nettæknimenn og allir aðrir sem fást við upplýsingatækni eiga erindi á þingið. Uppselt var á síðasta þing, þess vegna er öruggast að skrá sig strax Tími Forritun Nettækni Lausnir 8:45 Skráning oq morqunhressintj 9:15 Setninq- Innqanqur 10:15 Nýtinq Office viðfanqa við gerð lausna Eldveqqir, bandvíddarstýrinq Vefverslun oo rekstur vefsetra fvrirtækia 11:15 Gerð vefverslunar með SiteServer Aðqanqsstýringar Verkflæði oq skialavistun með Exchanqe Server 12:00 Matur 13:15 Visual Studio 6.0 Netumsýsla Tölvustudd ákvarðanataka 14:15 SQL Server 7.0 NT Server Enterprise og Terminal Edt Hóovinnulausnir með Outlook oq Exchanqe 15:15 WorkFolder forritun VPN - Sýndareinkanet Office 2000/lnternet 16:15 Samantekt oq ráðstefnulok 16:45 Lokahóf Skráning er hjá Maríu Þorgeirsdóttur mariath@ejs.is, sími 563 3122, fax 568 8487 Þátttökugjald er 15.000,- Nánari upplýsingar eru á EJS vefnuin Grensásvegi 10 • Sími 563 3000 * Fax 568 8487

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.