Morgunblaðið - 20.10.1998, Side 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Chilestjórn mótmælir handtöku Pinochets en mannréttindasamtök fagna
Framsal getur tafist í
mánuði og jafnvel ár
Reuters
FÉLAGI í kommúnistaflokki Chile gengur framhjá lögreglumanni í Santiago og heldur á fána með mynd af
Salvador Allende, fyrrverandi forseta, sem Augusto Pinochet steypti árið 1973.
FERILL AUGUSTOS PINOCHETS
BRESKA lögreglan handtók Augusto Pinochet, 82 ára fyrrverandi
einræðisherra Chile, á einkasjúkrahúsi í London á laugardag.
Pinochet var handtekinn ettir aö spænskir dómarar óskuðu eftir því að hann yrði fram-
seldur vegna ásakana um að hann heföi látið myrða spænska borgara þegar hann
var við völd á árunum 1973 til 1990.
Augusto Pinochet
Fæddur: 25. nóv. 1915 í Valparaiso
• 1932 Gengur í herskóla og vinnur
sig upp innan hersins
• 1943 Kvænist Luciu Hiriart.
Þau eignuðust fimm börn
•23. ágúst, 1973 Salvador Allende
forseti skipar hann yfirmann hersins
•U.september, 1973 Steypir Allende,
sem lést við dularfullar kringumstæður í
blóðugu valdaráni. Pinochet fór fyrir
herforingjastjórn sem var við völd í 17 ár.
Pólitísk stjómarandstaða var bönnuð
• 1980 Ný stjórnarskrá sem kveður á um
almenna sakaruppgjöf fyrir pólitíska glæpi
sem framdir voru frá 1973 til 1978.
Fyrrverandi forsetum, sem gegndu embættinu
a.m.k. sex ár, tryggt sæti í öldungadeild
þingsins til lifstíðar
• 1986 Vinstrisinnaðir skæruliðar reyna að
ráða hann af dögum
• 1989 Breytir stjórnarskránni eftir þjóðarat-
kvæðagreiðslu, þar sem honum var hafnað
sem leiðtoga landsins, en hann heldur stöðu
sinni sem yfirmaður hersins
• Mars 1990 Lætur af embætti og borgaraleg
stjórn tekur við eftir kosningar
• 1998 Á yfir höfði sér ákæru fyrir {jóðarmorð,
mannrán og ólöglega greftrun lika". Dómstóll á
Spáni rannsakar þátt hans í hvarfi spænskra
borgara í Chile
• 17. október Handtekinn á einkasjúkrahúsi í
London þar sem hann var að jafna sig eftir
smávægilega skurðaðgerð á baki
London, Santiago. Reuters.
ÞAÐ kom öllum á óvart er Augusto
Pinochet hershöfðingi og fyrrver-
andi einræðisherra í ChOe var hand-
tekinn í London sl. laugardag. Var
það gert að beiðni spænskra dóm-
ara, sem saka hann um morð og mis-
þyrmingar á 94 nafngreindum
mönnum af ýmsu þjóðerni. Ýmis
mannréttindasamtök hafa fagnað
handtökunni en stjórnvöld í Chile
hafa hins vegai’ mótmælt henni
harðlega. Sjálf er chUíska þjóðin
klofin í afstöðunni tO hennar.
Talsmaður bresku lögreglunnar
sagði um helgina, að Pinochet hefði
verið handtekinn að beiðni
spænskra dómara, sem saka hann
um morð á mörgum spænskum
borgurum er hann var við vöid í
Chile á árunum 1973 til 1990. Var
Pinochet að jafna sig eftir smávægi-
lega skurðgerð á baki á einkasjúkra-
húsi í London en ekki er vitað hvort
hann er þar ennþá. Nokkur hópur
chilískra útlaga safnaðist hins vegar
strax saman á laugardag fyrir utan
sjúkrahúsið til að fagna tíðindunum.
„Grimmur einræðisherra“
Peter Mandelson, viðskiptaráð-
herra Bretlands, sagði á sunnudag,
að Pinochet væri „grimmur einræð-
isherra“ og nyti engrar friðhelgi í
Bretlandi. Sagði hann það komið
undir Jack Straw, innanríkisráð-
hen*a Bretlands, hvort hann yrði við
framsalskröfu frá Spáni en Spánar-
stjórn hefur 40 daga frest til að
leggja hana fram.
Chilestjóm hefur formlega mót-
mælt handtöku Pinochets og forseti
landsins, Eduardo Frei, sagði í
Oporto í Portúgal, að handtakan
færi í bága við friðhelgi sendimanna.
Breska stjómin mótmælir því og
segir, að ekki sé nóg, að viðkomandi
hafi skilríki sem sendimaður, frið-
helgin eigi því aðeins við, að hann
hafi beinlínis verið í erindagjörðum
ríkisstjórnar sinnar.
Chih'ska þjóðin klofin
Handtaka Pinochets, sem nú er 82
ára gamall, hefur vakið upp mikil
viðbrögð í Chile og skiptast lands-
menn nú sem áður í tvo flokka. Á
laugardag efndu nokkur hundrað
stuðningsmanna hans til mótmæla
fyrir utan breska sendiráðið í Santi-
ago og hægriflokkamir í landinu
hafa lýst yfir hneykslun sinni með
ákvörðun bresku stjórnarinnar. Við
annan tón kveður hins vegar hjá
chilískum kommúnistum og því
fólki, sem missti ástvini sína í
hreinsunum Pinochetstjómarinnar.
Pinochet var við völd í Chile í 17
ár eftir að hafa steypt stjóm
Salvadors Allendes í blóðugri bylt-
ingu en Allende lést af skotsáram.
Stjórnaði hann landinu með harðri
hendi og er sakaður um að bera
ábyrgð á dauða 3.000 til 4.000
manna.
„Ég get ekki lýst því með orðum
hve ánægð ég er með, að það, sem
ekki gat gerst í Chile, skuli nú hafa
gerst annars staðar,“ hafði banda-
ríska dagblaðið The Washington
Post eftir Hortensiu Bussi de Al-
lende, ekkju Salvardors Allendes.
Pinochet hefúr komið a.m.k.
tvisvar til Bretlands eftir að hann lét
af völdum í Chile, 1991 og 1995, en
þá var hann enn yfirmaður chilíska
hersins. Verkamannaflokkurinn,
sem þá var í stjómarandstöðu, mót-
mælti þeim heimsóknum og minnti
ríkisstjóm íhaldsflokksins á, að
ekkert annað Evrópuríki vildi nokk-
uð með Pinochet hafa. Einræðis-
herrann fyrrverandi mun m.a. hafa
sótt Margaret Thatcher, fyrram for-
sætisráðherra íhaldsflokksins, heim
nokkram sinnum og drakkið með
henni te.
Pinoehet og lögfræðingar hans
segjast munu berjast gegn framsali
til Spánar með kjafti og klóm en
málareksturinn, sem því fylgir, get-
ur tekið allt frá nokkram mánuðum
upp í nokkur ár. Geta lögfræðing-
arnir áfrýjað málinu á öllum dóms-
stigum en að lokum er það innanrík-
isráðherrann, sem tekur af skarið
um framsalið.
Spánarstjórn í kb'pu
Jose Maria Aznar, forsætisráð-
hema Spánar, og ríkisstjórn hans
hafa áður lýst yfír, að þau séu and-
víg rannsókn dómaranna á Pinochet
en jafnframt tekið fram, að dómur-
unum verði ekki sagt fyrir verkum.
Ríkisstjórnin verður hins vegar að
leggja blessun sína yfir framsals-
kröfuna og haft er eftir ónefndum,
spænskum embættismönnum, að
þetta sé hið mesta vandræðamál
fyrir stjórnina. Samþykki hún kröf-
una muni það hafa sín áhrif á sam-
skiptin við Chilestjórn og neiti hún
að samþykkja hana, muni það verða
fordæmt á alþjóðavettvangi.
Uppreisn bæld niður í Georgíu
Kutaisi. Reuters.
STJÓRNARHER Georgíu tókst í gær að bæla
niður uppreisn um 200 hermanna sem stálu
skriðdrekum og brynvörðum bifreiðum og
reyndu að ná Kutaisi, næststærstu borg landsins,
á sitt vald.
Skriðdrekar og stórskotalið vörðu borgina og
fójk, sem flúði af svæðinu, sagði að til átaka hefði
komið í bænum Khomi sem er um 20 km frá
borgarmörkum Kutaisi. Uppreisnarmennimir
samþykktu sfðar um daginn að snúa aftur til
búða sinna og slepptu nokkram embættismönn-
umsem þeir höfðu tekið í gíslingu.
Áður hafði Edúard Shevardnadze forseti sagt í
sjónvarpsávarpi að hann kynni að lýsa yfir neyð-
arástandi vegna uppreisnarinnar. „Ég hef ekki
rétt til að láta ringulreið og stjórnleysi viðgang-
ast,“ sagði hann.
Undir stjóm stuðningsmanns
Gamsakhurdias
Uppreisnin hófst í herstöð nálægt bænum
Senaki og uppreisnarmennirnir náðu þar tíu
skriðdrekum og tveimur brynvörðum bifreiðum.
Embættismenn sögðu að uppreisnarmennimir
hefðu verið undir stjóm Ekakis Eliavas, sem
stjómaði uppreisn þjóðernissinnaðra stuðnings-
manna Zviads Gamsakhurdias, fyrrverandi leið-
toga Georgíu, á áranum 1992-93. Gamsakhurdia
lést við dularfullar kringumstæður í uppreisn-
inni.
Eliava var veitt sakaruppgjöf eftir fyrri upp-
reisnina og hefur gegnt herþjónustu í Senaki.
Shevardnadze sagði að uppreisnin væri liður í
tilraunum til að koma í veg fyrir áform um að
leggja olíuleiðslu frá Aserbaídsjan í gegnum Ge-
orgíu. Mikil ólga hefur verið í sovétlýðveldinu
fyrrverandi frá því það fékk sjálfstæði 1991 en
forsetanum hefur tekist að koma á friði í mestum
hluta landsins. Andstæðingar hans hafa þó
nokkram sinnum reynt að ráða hann af dögum og
stuðningsmenn Gamsakhurdias hafa ekki getað
sætt sig við Shevardnadze sem leiðtoga landsins.
Tugir far-
ast í lest-
arslysi
AÐ MINNSTA kosti 45 manns
fórast og 100 særðust í lestar-
slysi í bænum Kafr El-Douar í
norðurhluta Egyptalands á
sunnudag. Lestin fór út af
sporinu og rann á miklum
hraða inn á markaðstorg í bæn-
um. Yfirvöld sögðu að verið
væri að rannsaka orsök slyss-
ins og vildu ekki staðfesta frétt-
fr um að bilun í hemlabúnaði
hafi valdið því.
Gengi rúbl-
unnar fellur
BORÍS Jeltsín, forseti Rúss-
lands, aflýsti fyrirhuguðum
fundum sínum í Kreml í gær
vegna veikinda. Talsmaður
hans sagði að líðan forsetans
væri „bærileg" en hann væri
enn með nokkur einkenni
berkjubólgu. Haft var eftir
læknum forsetans að hann ætti
að geta gegnt embættinu út
kjörtímabilið.
Gengi rúblunnar féll um rúm
5% og skýrt var frá því að verg
þjóðarframleiðsla Rússa hefði
verið 9,9% minni í september
en í sama mánuði árið áður.
CARL Bildt með eiginkonu
sinni, Anna Maria Corazza.
Bildt
kvongast
CARL Bildt, leiðtogi sænska
Hægri flokksins, kvæntist
ítalska lögfræðingnum Anna
Maria Corazza í ítalska sendi-
ráðinu í Sarajevo á sunnudag.
Þau kynntust í Bosníu þegar
Bildt starfaði þar sem alþjóð-
legur sáttasemjari á áranum
1995-97.
Fornminjum
stolið
YFIRVÖLD í franska þorpinu
Moureze íhuga málshöfðun á
hendur yfirvöldum annars
þorps, Villeneuvette, vegna
stuldar á fornminjum frá ný-
steinöld nokkram klukkustund-
um eftir að þær fundust í helli
nálægt þorpunum um helgina.
Yfirvöld í Villeneuvette létu hjá
líða að senda verði að hellinum
eftir að þeim var tilkynnt um
fundinn en síðar kom í ljós að
hellirinn heyrir undir Moureze.
Samið um við-
ræður í Kína
TÍMAMÓTAFERÐ taívanskr-
ar sendinefndar til Kína lauk í
gær með samkomulagi um að
hefja á ný formlegar samninga-
viðræður, sem Kínverjar slitu
1995. Fréttaskýrendur spáðu
því að viðræðurnar myndu
ganga hægt og erfiðlega.