Morgunblaðið - 20.10.1998, Síða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
HEIMSOKN UM BORÐ I OLIUPALLINN
STATFJORD C I NORÐURSJONUM
Allt í einu reis Statfjord Charlie upp úr sjónum
eins og ferfættur risi, gulur, rauöur og grár,
vinnustaóur og annaó heimili 600 manna. Þannig kom einn af borpöllunum í Noröur-
sjónum blaðamanni fyrir sjónir er hann heimsótti olíuvinnslusvæöiö nýlega.
Með þyrlu í vii
þoku og björg
una i
argalla
FARÞEGAR ganga um boro i þyríuna
á leið frá Statfjord C. A hverju ari
eru um 45 þúsund farþegar fluttir til
og frá paliinum á þennan hatt.
8EÐIÐ eftir að kallað verói út i
þyrtuna. sumir á leid heim úr
virtluinni. aðrir að lokinni fróð-
legrí heimsokn. Lengst til
vinstri er Geir Magnússon, for-
stjori Oliufélagsins hf, ESSO.
og þriðji frá vínstri er Einar
Benediktsson. forstjóri Oliu-
versiunar íslands hf.. OUS.
___ UGSTOÐIN heitir Fles-
^^^land og er í Bergen. Áfanga-
staðirnir eru Troll, Gullfaks,
Statfjord og fleiri olíupallar.
Þyrlurnar bíða í röðum, einkum
Sikorsky og Puma. Það hafði orðið
seinkun á fluginu í gær vegna veð-
urs, en í dag er reiknað með að allt
gangi samkvæmt áætlun. Vonandi.
Ein þyrlan er á leið út á
Statfjord C, sem er einn afkasta-
mesti olíupallurinn í Norðursjón-
um. Farþegar eru 14 manns úr
áhöfn borpallsins, forstjórar Essó
og Olís á Islandi, tveir fulltrúar
söludeildar Statoil í Noregi og
blaðamaður Morgunblaðsins. I
marga mánuði hafði þessi ferð ver-
ið í undirbúningi, með tilheyrandi
símtölum og póstsendingum. Loks-
ins var allt komið á hreint - eða
hvað?
Læknisvottorð,
eftirlit, öryggi
I afgreiðslu flugstöðvarinnar eru
biðraðir eins og í öðrum flugstöð-
um. Að því kemur að gestirnir á
leið til Statfjord komast að af-
greiðsluborðinu. Enn þarf að ganga
frá pappírum, sem áður höfðu þó
verið fylltir út heima og sendir á
milli landa. Blaðamaður dregur upp
virðulegt læknisvottorð, sem stað-
festir þokkalega heilsu.
Ekki hafði gengið þrautalaust að
fá slíkan pappír því vegna seinkun-
ar á flugi frá Islandi komst skrifari
ekki í skoðun hjá læknum Statoil í
Stavanger í tæka tíð. Fyrirtækið
gerir það að skilyrði að allir sem
fara út á borpallana hafi farið í slíka
skoðun á vegum fyrirtækisins. Því
varð að beita kunningsskap og
kúnstum til að komast í læknis-
skoðun. Blaðamaður er góður með
sig þegar hann réttir stúlkunni í af-
greiðslunni í Bergen vottorð um
heilsufar undirritað af yfírlækni
bráðaskurðdeildar sjúkrahússins í
Stavanger.
Afgreiðslustúlkan er greinilega
ekki eins ánægð og við taka símtöl
við einhverja hærra setta. Að lok-
um fá farþegar brottfararspjöld.
„Hieypum Islendingunum í gegn,“
er sagt. Skriffinnsku er lokið.
Öryggið er margfalt þarna í
flugstöðinni. Handfarangur er ná-
kvæmlega yfirfarinn, lyf eru illa
séð, engin rafmagnstæki takk. Úr
afgreiðslunni inn í brottfararsal-
inn.
Næst á dagskrá er að fá sérstaka
björgunarflotgalla fyrir hvem og
einn. Enginn fer um borð í þyrluna
nema hann klæðist slíku öi-yggis-
tæki. Tugir björgunargalla hanga
uppi í stóru fatahengi og þar fá allir
eitthvað við sitt hæfi.
Tilkynnt er um seinkun vegna
þess að farþegar gærdagsins ganga
fyrir. Kaffibolli.
Ferðafélagarnir safnast loks í
sætisraðir á afmörkuðu svæði. Nú
hefst öryggisfræðslan íyrir alvöru.
Fyrst er fjallað ítarlega á mynd-
bandi um þyrluna og flugið út á
pallinn. Öllum rennilásum á björg-
unargallanum skal rennt upp, það
er eins gott að hafa þetta á hreinu.
Næst er kynning á öryggisatriðum
á borpallinum. Hvað erum við eig-
inlega að fara út í?
Nokkur vindur,
hætta á þoku
Okkur er ekkert að vanbúnaði og
tilkynnt er um brottför. Farþegar
sýna spjöldin sín eins og í almennu
flugi. Gengið í röð að þyrlunni. Eft-
ir smástund er keyrt af stað og ek-
in sama leið og venjulegar flugvél-
ar fara að brautarenda. Flugstjór-
inn býður góðan daginn. Velkomin
um borð í þetta flug til Statfjord
Charlie. Vinsamlegast spennið
beltin.
Aukinn hávaði og titringur. Blöð-
in á toppi þyrlunnar snúast hraðar
og hraðar. Hún lyftist hærra og
hærra og stefnan er tekin í átt að
sjónum. Það er fallegt veður til
landsins eftir regn næturinnar. Úti
fyrir eru skýjabakkar, trúlega þoka
eða rigning þegar utar dregur.
Skóga og berar klappir ber íyrir
augu, sumarhúsin alveg í flæðar-
málinu. Vegir, brýr og bflar, skip
og bátar. Firðir, eyjar og sker.
Ótrúleg fegurð.
Við erum komin út yfír Norður-
sjóinn. Hávaði og titringur í þyrl-
unni. Norsk dægurtónlist lætur
þægilega í eyrum í heymæ’tækjun-
um. -Góðan dag, segir rödd í hátal-
arkerfínu. -Þetta er flugmaðurinn
sem talar. Við reiknum með að
flugferðin út til Statfjord C taki um
klukkustund. Úti er 13 stiga hiti,
nokkur vindur er af suðaustri. Það
er hætta á þoku við borpallinn, við
sjáum hvað setur. Hafið samband
við okkur ef það er eitthvað sem við
getum gert. Takk fyrir, segir rödd-
in.
Blaðamanni dettur ekki í hug að
hreyfa sig í sæti sínu. Beltin verða
sko ekki losuð meðan á flugferðinni
stendur. Ekki heldur hreyft við
rennilásunum á björgunargallan-
um. Jafnvel ekki þó hitinn sé að