Morgunblaðið - 20.10.1998, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998 27
STATFJORD C
1984
STATFJORD A STATFJORD B
1977 1981
Aukin nýting með tengipöilum
HÁTT í helmingur daglegrar framleiðslu Statfjord C kemur frá tveimur
tengipöllum á hafsbotni. Statfjord-Austur er á 170 metra dýpi, um 7 kílómetra
frá olíupallinum, og Statfjord-Norður er á 260 metra dýpi, 17 kílómetra frá
honum. Þrjár holur eru tengdar við hvorn tengipall. Tengipallarnir eru síðan
tengdir olíupallinum með tveimur níu tommu framleiðslurörum, stjórnkapli og
12 tommu lögn til vatnsdælingar í olíulindina. Mikið er í húfi að ná sem allra
bestri nýtingu á olíulindunum og á Statfjord-svæðinu er nýtingin komin upp í
65%, en Statoil stefnir að því að ná 70% nýtingu út úr Statfjord-svæðinu.
Alls er svæðið um 100 ferkílómetrar að stærð.
STATFJORD-Austur
íifSaBii
2.300 m dýpi
STATFJORD
V ^
Heimild: Statoil
verða óbærilegur í þessum þykka
og þétta búningi.
Þarna er lítil skúta með seglin
uppi og skömmu síðar nótabátur á
siglingu. Annars varla skip að sjá á
haffletinum. Það er farið að hvítna í
báru, enda erum við komin langt út
yfir Norðursjóinn á þessum
skrýtna fugli sem öslar áfram á
ótrúlega þægilegan hátt. Verst með
hitann í gallanum - og svitann.
Sumir sofa alla leiðina, greinilega
vanir slíkum ferðum. Þeir eru jú
bara á leiðinni í vinnuna.
Svipað og
Hallgrímsturn
Við fljúgum inn í skýjaþykkni.
Varla lendir maðurinn í þessu
veðri. Flugtíminn nálgast klukku-
stund, aftur heyrist rödd flug-
mannsins í kerfinu. -Við nálgumst
nú Statfjord C og reiknum með að
lenda á þyrlupallinum eftir fímm
mínútur. Festið beltin.
Allt í einu rís ferfættur risi upp
úr hafínu, rauður, gulur, grár. Þyrl-
an hækkar sig lítillega, inn yfir
pallinn og við erum lent. Dyrnar
opnast, spaðarnir snúast áfram, há-
vaði og titringur, rok og regnúði.
Farþegar ganga skipulega frá
borði og niður á næstu hæð fyrir
neðan. Ur göllunum, loksins. Þetta
var merkilegt flug. Manni leið eins
og hinum strákunum á leið í vinnuna.
Það var ekki fyrr en síðar að
blaðamaður áttaði sig á því að
þyrlupallurinn sem slútti að hluta
út yfir sjálfan borpallinn var í 74
metra hæð yfir sjónum. Svipað og
turn Hallgrímskirkju. Það var eins
gott að það lá ekki fyrir í upphafi
ferðar.
Lindirnar á ríkasta olíu-
svæðinu endast lengur
STATFJORD C er einn af
fjölmörgum norskum,
enskum og dönskum olíu-
pöllum sem reistir hafa
verið í Norðursjónum á rúmum ald-
arfjórðungi. Pallurinn er í raun
kominn til ára sinna miðað við
hversu hröð þróunin hefur verið í
olíuiðnaðinum, en stendur enn fyrir
sínu, er einn sá afkastamesti og
framleiðir um 45 þúsund rúmmetra
af olíu á dag eða sem nemur um 300
þúsund tunnum daglega. Það tæki
Statfjord C innan við 100 klukku-
tíma að fylla ráðhúsið í Osló af olíu,
svo dæmi sé tekið úr upplýsingariti
Staoil.
Kjell Sander Nordstrand og Jó-
hann Ámundason, sem báðir eru
meðal yfirmanna um borð, eru leið-
sögumenn gestanna. Það er byrjað
að svipast um 1 hótelinu því sannast
sagna er íveniálman eins og mjmd-
arlegt 10 hæða hótel úti í miðjum
Norðursjónum. Rúm eru í tveggja
manna herbergjum fyrir 345
manns. Yfirleitt eru um 200 manns
um borð. Til samanburðar má nefna
að 215 herbergi eru á Hótel Sögu og
gistirúm fyrir um 330 manns.
Heilsugæsla er allan sólarhring-
inn á olíupallinum, mötuneyti með
fjölbreyttum mat, líkamsrækt, sjón-
varpsherbergi, dagstofa þar sem
Tankar, lagnir
og leiðslur hvert
sem litið er.
Drunur í borum
og dælum.
Starfsmenn í
vinnugöllum,
sem horfa með
spurnarsvip á
aðkomumennina
sem komnir eru
til að skoða og
fræðast um olíu-
pallinn Statfjord
C. Ágúst Ingi
Jónsson var
einn gestanna
fimm um borð í
þessu risa-
mannvirki.
leyft er að reykja, og fundarher-
bergi er einnig að fínna í þessari
byggingu. Þar er líka tölvuvætt
stjórnrými þar sem nákvæmlega er
fylgst með allri vinnu um borð.
Ástæðulaust að
storka forlögunum
Stjómstöðin er kafli út af fyrir sig,
sannkallað hjarta þessa vinnustaðar,
neðst í byggingunni. Strangar reglur
gilda um flæði upplýsinga í stjórn-
stöð. Hvort sem unnið er um borð í
sjálfum pallinum eða langt undh'
sjávarbotninum þarf að skrá manna-
ferðir nákvæmlega, hvar er unnið,
við hvað og með hvaða tækjum.
Þegar unnið er við logsuðu, svo
dæmi sé tekið, er það fært nákvæm-
lega inn í stjórntölvm' og vel er
fylgst með allri framvindu meðan á
þessari hættulegu vinnu stendur.
Eldur um borð í olíupalli er hugsun
sem enginn vill hugsa til enda og
mikil varkárni viðhöfð. Gestunum
er bent á að myndavélar með leift-
urljósum séu bannaðar, þó ekki séu
miklar líkur á gasleka sé ástæðu-
laust að storka forlögunum.
Lindir á 3 þúsund metra dýpi
Þegar út úr íveruálmunni er kom-
ið blasir bortuminn við þar sem
hann gnæfir í 125 metra hæð yfir ►