Morgunblaðið - 20.10.1998, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998 31
Flóttamaðurinn Leslie Nielsen
Evrópu um fjögurra ára skeið og
gefur nærmyndir af menningu
þeirra og sögnum.
Hinn vel þekkti og verðlaunaði
barnabókahöfundur Jill Platon
Walsh verður á mælendaskrá, en
undanfarið hefur hún fengið at-
hygli fyrir að ljúka skáldsögu
Dorothy Sayers: „Thrones Dom-
inations". Wals fæst raunar einnig
við að skrifa krimma, sem þykja
„hlýleg púsluspil“ samkvæmt dag-
skrárblaði bókastefnunnar, en sá
fyrsti, „The Windham Case“, kem-
ur út í sænskri þýðingu nú í haust.
andra Brawn er hér kynnt
sem persónugervingur band-
aríska draumsins og Mary
Higgins Clark sem stórmeistar-
ynja spennusögunnar, en frá
nágrannalandinu Noregi mætir hin
kunna Anne Holt til leiks, með
bókina „I lejonets gap“ á sænska
haustmarkaðnum.
Þá mun Neil Jordan væntanleg-
ur frá Irlandi, öllu heimsfrægari í
kvikmyndaheiminum, með Óskar í
farangrinum fyrir besta handrit
1993 (The Crying Game). Hann hóf
rithöfundaferil sinn með smá-
sagnasafninu „Night in Tunisia“
1976. Síðan kom skáldsagan „The
Past“ 1980, „Dream of a Beast“
1983 og „Sunrise with Sea Monst-
er“ 1994, sem nú er komin út hjá
bókaforlaginu Brombergs undir
titlinum „Tidvatten". Neil Jordan
mun koma fram í samtali við
Stephen FaiTan-Lee á laugardag-
inn og ræða um starf sitt sem rit-
höfundur og kvikmyndagerðar-
maður.
A mælendaskrá ljóðskálda eru
„grand old man“ frásagnarljóðsins
(the narrative poetry), Louis Simp-
son, fæddur á Jamaíku 1923, og
hinn þýski Uwe Timm, sem kom
fram sem pólitískt ljóðskáld 1971,
að okkar norrænu ljóðskáldum óg-
leymdum, þar á meðal Tua Fors-
stöm, sem hlaut Norrænu bók-
menntaverðlaunin fyrir ljóðasafnið
„Efter att ha tillbringat en natt
bland hástar".
í hinu svonefnda Herbergi fyrir
ljóð eða „Rum för poesi“ munu
Ijóðskáld lesa úr verkum sínum frá
morgni til kvölds í fjóra daga, eitt
tekur við þá annað þagnar.
Islenskir höfundar sem taka þátt
í pallborðsumræðum eru Arni
Bergmann, Matthías Johannessen,
Ólafur Gunnarsson og Hallgi’ímur
Helgason. Ólafur og Hallgrímur
munu koma fram fímmtudaginn 22.
október á vegum Máls og menning-
ar og Forlagsins. I dagskrárblaði
stefnunnar eni þeir kynntir sem
tveir þeirra nútímahöfunda Islands
sem njóta hvað mestrar athygli og
þeir eigi það sameiginlegt að hafa
notað höfuðborgina sem sögusvið
skáldsagna, til að spegla goðsagnir
velferðar- og neytendasamfélags-
ins.
Tröllakirkja Ólafs, um arki-
tektinn Sigurbjöm, hefur
eins og kunnugt er verið til-
nefnd til ýmissa verðlauna, en
enski titillinn er Troll’s Cathedral.
Hallgrímur, sem á þrjár skáldsög-
ur að baki, er kynntur sem lista-
maður, gagnrýnandi með meiru og
sagður einskonar „enfant terrible"
í íslenska menningarlífínu. Rit-
stjóranum Sven Hallonsten er falið
að leiða samtalið um listsköpum,
borgina og skriftina.
Arni Bergmann og Matthías Jo-
hannessen koma fram laugardag-
inn 24. október á vegum Máls og
menningar og Hörpuútgáfunnar.
Pallborðsumræðurnar nefnast „Is-
land i dikt och verklighet" og
stjórnandi er Lars-Áke Engblom
fyrrverandi forstjóri Norræna
hússins í Reykjavík. I kynningar-
texta er sagt að þeir hafi frá ólík-
um sjónarhólum gefið tóninn í hinu
hugmyndafræðilega og menningar-
lega samtali seinustu áratugi, og
greint er frá ritstjóraferli hvors um
sig. Báðir voru tilnefndir till
Norrænu bókmenntaverðlaunanna
1998, Matthías fyrir ljóðasafnið
„Vötn þín og vængur" og Ami fyrir
sögulegu skáldsöguna „Þorvaldur
víðförli".
KVIKMYIVDIR
Itfóhöl 1 in og
Bfóburgin
Kærður saklaus „Wrongfully
Accused" ★★
Leikstjóri, framleiðandi og handrits-
höfundur: Pat Proft. Aðalhlutverk:
Leslie Nielsen, Kelly LeBrock,
Michael York og Richard Crenna.
PAT Proft var lengi samstarfs-
maður Jim Abrahams og David
Zuckers sem hvað lengst hafa náð í
gerð skopstælingamynda og hefur
lært sitt fag við gerð fjölda slíkra á
undanfórnum tveimur áratugum.
Hann stendur einn á bak við skop-
stælinguna Kærður saklaus eða
„Wrongfully Accused“, sem er ágæt-
lega heppnuð framan af en dalar
nokkuð efth’ hlé. Hún er talsvert
betri en síðasta skopstæling, Mafía
Jane Austen, sem maður hélt að
boðaði endalok þessara mynda.
Proft hefur sýnt að enn er eitthvað
líf eftir.
Kannski er skilyrði að gamanleik-
arinn Leslie Nielsen fari með aðal-
hlutverkið svo myndir af þessu tagi
heppnist en hans var sárt saknað í
Mafíunni. I Kærður saklauS leikur
hann heimsfrægan fiðluleikara sem
lendir í bragðvondu hvað eftir annað
allt eftir því hvaða myndir Proft kýs
að skopstæla. Af mörgu er að taka en
eins og heitið bendir til er rauði þráð-
urinn mynd Harrison Ford, Flótta-
maðurinn. Nielsen gerir það sem
hann gerir best; leikur aðalhetjuna
jafn frábærlega utangátta og hún er
hjólbeinótt í öllum þeim ai’agrúa
þekktra atriða sem Proft grínast
með. Nielsen hefur fyrir löngu komið
sér upp svipbrigðum sem eiga ein-
staklega vel við þegar heimurinn
virðist vera að hrynja í kringum
hann (iðulega af hans völdum) og
bera vitni um algera og rótgróna
heimsku.
Með önnur hlutverk fara Kelly
LeBrock og Michael York og Ric-
hard Crenna, sem stælii’ ákafann í
Tommy Lee Jones í Flóttamannin-
um og gefur undurfurðulegar skip-
anir í allar áttir labbandi hringi í
kringum sjálfan sig. Proft leitar að
sumu leyti allt aftur til dýrðardaga
„Airplane“ myndanna eftir skopi og
tekst oft mjög skemmtilega upp í
fyrri helmingi myndarinnar. Sér-
staklega eru orðaleikirnir kunnug-
legir. Hann gerir grín að ótalmörg-
um myndum allt frá „Mission:
Impossible" til „Titanic" og fær
mann til að hlæja eina ferðina enn að
vitleysunni. Eftir því sem líður á
myndina tapar hann dampi og
bröndurunum fækkar og það dregur
úr kraftinum.
Eitt af því sem gleymist þegar
kreditlistinn birtist og áhorfendur
streyma út, er að margm- góður
brandarinn leynist á listanum og
ættu áhugasamir að sitja sem fastast
þar til hann hefur runnið yfir tjaldið.
Arnaldur Indriðason
tmSSSgMM
FordTransit 10-15 manna
Verð ffá 2.538.000 kr.
Transit
fólksflutningabíll a
Greið leið inn, nóg pláss, góð sæti, öryggisbelti fyrir alla
og sérhver hlutur á réttum stað. Þetta eru þeir kostir sem gera Ford
að rétta bílnum þegar farmurinn er fólk.
Útkoman er þægindi og öryggi, jafnt fyrir ökumann sem farþega.
Allir kostir við fjármögnun eru fyrir hendi, þ.á.m. rekstrarleiga.
Nýttu þér þjónustu sölumanna okkar við að finna rétta bílinn
og útbúa hann eftir þínu höfði.
Brimborg-Þórshamar
Tryggvabraut 5, Akureyri
sími 462 2700
Bílcy
Búðareyri 33, Reyðarfirði
sími 474 1453
Bctri bílasalan Bílasala Kcflavíkur
Hrísmýri 2a, Selfossi Haftiargötu 90, Keflavík
sími 482 3100 sími 421 4444
Tvisturinn
Faxastlg 36, Vcstmannaeyjum
sími 481 3141
Ford Econoline Club Wagon 12-15 manna
Verð frá 2.998.000 kr.
BRIMBORG
FAXAFENI 8 • SÍMI 515 7010