Morgunblaðið - 20.10.1998, Side 42

Morgunblaðið - 20.10.1998, Side 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÁSTA BRYNDÍS ÞORSTEINSDÓTTŒ fjölskyldu. Alltaf fór maður ríkari af hennar fundi. Það sem henni tókst að afreka í lífmu er meira en mörg- um tekst á langri ævi. Stundum lifði Asta lífínu svo hratt að það var eins og hún skynjaði að tíminn væri naumur og mörgu þyrfti að koma í verk. Höfðingslund Astu var einstök. I Hofgörðum voru haldnar margar glæsiveislur og ekkert til sparað. Stundum varð maður orðlaus og hugsaði: „Ætlar hún aldrei að spara neitt til efri áranna?" en Guði sé lof . , fyrir að það gerði hún ekki. Heimili þeirra ber vott um næma tilfínningu fyrir fegurð og fáguðum smekk. Svona var manneskjan sjálf, gegnumheil og vönduð, yst sem innst. Þar voru engin gerviefni, takk fyrir! Fyrir rúmum áratug stofnuðum við, sjö vinkonur sem allar unnu við hjúkrun, fjölskyldufélag. Eins og svo margt annað var það Astu að þakka að félagið varð til. Félagið hefur styrkst og dafnað. Við höfum öll fundið það hve vináttan er dýr- mæt ekki síst þegar sorgin knýr dyra. Söknuðurinn er óendanlega sár að missa hana svona langt um aldur fram. Þegar Ásta ákvað að leggja Al- þýðuflokknum lið, en jafnaðar- mannastefnan var henni hjartfólgin alla tíð, er mér til efs að fólk allt þar á bæ hafí áttað sig á hvílíkt hnoss þeir voru að hreppa. Því miður vannst henni allt of skammur tími tii að sanna sig á því sviði. Síðastliðið sumar, þegar sólin skein sem skærast, vorum við sem best iylgdumst með baráttu hennar við illvígan sjúkdóm farin að trúa því að kraftaverk væri að gerast, svo mikill var lífsviljinn og ábyrgðin fyrir því mikla starfi sem hún var að byrja að takst á við. Henni tókst á undraverðan hátt að mæta helsjúk við setningu Alþingis nú í haust. Það lýsir vel manngerð hennar því í huga hennar var það að gefast upp ekki til. Islenska þjóðin hefur misst mikið við fráfall Astu. Vinir hennar syrgja sárt bestu vinkonu sína. Það eru fáir sem eignast svo náinn og góðan vin sem tók svo ríkan þátt í lífi og velferð okkar og aldrei brást. Ásta fékk þá ósk uppfyllta að fá að deyja heima í faðmi sinnar elsku- legu fjölskyldu. Aðdáunarvert var að horfa upp á þann dugnað og styrk, sem móðir hennar, Ásdís, sýndi við hlið dóttur sinnar á þess- um þungbæra tíma. Guð gefí Ástráði, börnum þeirra, móður hennar og ástvinum öllum styrk til að takast á við þessa miklu sorg. Kristín Árnadóttir, Einar Sindrason. Þegar Ásta B. Þorsteinsdóttir tók þriðja sæti á framboðslista Alþýðu- flokksins í Reykjavík við alþingis- kosningarnar vorið 1995 var hún löngu orðin landsþekkt kona. Hún var þekkt og mikils metin innan stéttar sinnar sem mjög hæfur hjúkrunarfræðingur með skurð- stofuhjúkrun sem sérgrein. Hún var þekkt sem einn af allra dugmestu og atorkusömustu hjúkrunarstjómend- um við Landspítalann, stærsta sjúkrahús landsins. Framar öðru var hún þó Iandskunn sem stjómar- maður og síðan formaður Lands- samtakanna Þroskahjálpar og einn ötulasti baráttumaður fyrir heill og hamingju fatlaðs fólks, sem þetta land hefur átt. Sjálf hafði hún ásamt með fjölskyldu sinni gengið í gegn- um þá eldraun að þurfa að berjast við erfíða fotlun dótturinnar Ásdísar Jennu. Sú barátta, að brjótast inn fyrir múra alvarlegrar líkamlegrar fótlunar til þess að finna þar frjóan og greindan huga og leiða hann síð- an út um þessa sömu múra til móts við ljósið og lífið, er slíkt þrekvirki fyrir alla þá, sem hlut eiga að máli, að því verður ekki með orðum lýst. Þá skortir ekki styrkinn, þolgæðið og einbeitnina, sem slíka baráttu geta háð til sigurs. Það baráttuþrek i sýndi Ásta B. Þorsteinsdóttir til hinstu stundar. Kjarkurinn bognaði ekki uns sjálf hún brast í bylnum stóra seinast. Það var því enginn liðléttingur sem skipaði sér í raðir frambjóð- enda Alþýðuflokksins vorið 1995. Flokkurinn átti þá í miklum erfíð- leikum og sætti sterkum andbyr. Liðveisla Ástu B. Þorsteinsdóttur hefði undir öllum kringumstæðum verið flokknum mikils virði. Við þessar aðstæður var liðsinni hennar okkur ómetanlegt. Náið samstarf okkar Ástu hófst svo haustið 1996 þegar ég var kjör- inn formaður Alþýðuflokksins og hún varaformaður. Ekki hafði sam- vinna okkar lengi staðið þegar mér var ljóst hvílíkt gull af manni þessi manneskja var. Þekking hennar á heilbrigðismálum, málefnum fatl- aðra og þroskaheftra og innileg samúð hennar með þeim, sem minna máttu sín, komu mér ekki á óvart. Eigi heldur dugnaður hennar og skörungsskapur. Miklu sjaldgæfara er að eignast samstarfsmann þar sem heilindin og trygglyndið eru slík, að þar fellur aldrei fölskvi á. Slíkur samstarfsmaður var Ásta. í hörpu hennar hljómaði aldrei falsk- ur strengur. Hún var vissulega vin- ur vina sinna og studdi þá, en óhreinlyndi átti hún aldrei til og hana tók það sárt teldi hún sig verða vara við slíkt í fari annarra. Um sl. áramót urðu tímamót í lífi Ástu B. Þorsteinsdóttur. Þá tók hún sæti á Alþingi eftir að Jón Baldvin Hannibalsson hafði horfíð til ann- arra starfa. Ásta bjó sig þá undir nýjan kapítula í lífí sínu, hugðist hverfa frá fyrri starfsvettvangi og helga sig stjórnmálum. Hún gekk til móts við nýjan vinnustað af mikilli tilhlökkun og hugðist þar beita sér fyrir heill og velferð þess fólks, sem minnst má sín í samfélaginu, með aðferðum löggjafans. Þar vildi hún stokka upp spilin og gefa upp á nýtt. Nýta mikla reynslu sína og þekk- ingu til að finna varanleg úrræði eins og þau, sem aðeins lagasetn- ingavaldið getur veitt. Aðeins fáum vikum síðar gripu grimm örlögin fram fyrir hendurnar á henni. Án þess að hún kenndi sér nokkurs annars meins en þróttleys- is, sem var óvenjulegt hjá þessari annars svo þrekmiklu konu, leitaði hún læknishjálpar og greindist þá með sjúkdóm þann, sem aðeins rösku hálfu ári síðar varð henni að aldurtila. Ég gleymi því ekki þegar hún sagði mér frá sjúkdómsgrein- ingunni. Það var hvorki brotin né buguð manneskja, sem frá því greindi, heldur kona, sem var stað- ráðin í því að berjast. Þessi hugur, þessi þrotlausi kjarkur, einkenndu allan hennar sjúkdómsferil. Þegar meðferð skilaði ekki tilætluðum ár- angri snerust hugsanir hennar ekki um það, sem liðið var, heldur um næstu lotu. Lotumar hennar Ástu urðu margar. Stundum skein vonin skært. Svo rökkvaði aftur. Smátt og smátt dró af henni. Þó vildi hún ávallt sinna skyldustörfum sínum. Fyrir flokkinn. Á Alþingi. Ekki gef- ast upp. Farin að heilsu sat hún þingsetningarfund Alþingis og síð- asta fund sinn í þingflokki jafnaðar- manna. Hjá þessari gerðarlegu og glæsilegu dugnaðarkonu var nú að- eins óbilaður kjarkurinn. Síðast kom hún til fundar á Al- þingi þriðjudaginn 13. þ.m. Hún sat í stólnum sínum í þingsalnum nokkra stund og var síðan flutt heim á sjúkrabeðinn aftur. „Nú get ég ekki meira,“ sagði hún þá við fólkið sitt. Nokkrum dögum síðar var Ásta B. Þorsteinsdóttir liðið lík. Fjölskylda Ástu, vinir hennar og vandamenn vonuðu alltaf, að hún myndi hafa sigur í baráttu sinni við illvígan sjúkdóm. Sjálf háði hún bar- áttu sína þannig, að hún átti skilið að sigra, og fjölskylda hennar, vinir hennar og flokkurinn hennar gerðu allt sem unnt var að gera til þess að styðja hana í baráttunni. Én það dugði ekki til. Hennar stríð reyndist vera dauðastríðið, sem enginn getur unnið. Áfram lifa minningarnar um mæta og góða manneskju, sem skil- aði góðu starfí og veitti mörgum gleði, hamingju og skjól. Alþýðu- flokkurinn - Jafnaðarmannaflokkur Islands kveður nú varaformanninn sinn og þingmann með söknuði. Sjálfur kveð ég minn nánasta sam- starfsmann, traustan og heilan sam- herja. Allt Mþýðuflokksfólk sendir fjölskyldu Ástu B. Þorsteinsdóttur einlægar samúðarkveðjur. Öll höf- um við mikið misst, en líka svo margs góðs að minnast. Sighvatur Björgvinsson, form. Alþýðuflokksins - Jafnaðarmannaflokks íslands. Mér er þungt um hjarta er ég sest niður og skrifa kveðjuorð um Ástu B. Þorsteinsdóttur. Hún er enn svo sterk og vakandi í vitund minni, mér finnst að síminn hljóti að hringja á hverri stundu, hún spyrji mig frétta, spjalli um hvernig hún ætli að taka á þeim máium sem hún bar svo mjög fyrir brjósti. Ég veit að ég á eftir að sakna hennar og vin- áttu hennar lengi. Ásta var ákaflega sterkur persónuleiki sem tókst á við verkefnin sem henni voru falin af áræði og festu. Hún naut ástríkis fjölskyldu sinnar og fjölskylduna bar oft á góma í samræðum við hana. Stærsta hlutverkið sem hún tókst á við var fótlun einkadóttur- innar, Ásdísar Jennu. Það vanda- sama móðurhlutverk hefur eflaust mótað hana sem persónu og lífs- skoðunina sem birtist í öllu sem hún fékkst við. Við Ásta kynntumst í pólitísku starfí um réttindamál fatlaðra og ég hreifst strax af baráttugleði hennar og eldmóði. Hún hafði sterka rétt- lætiskennd og afdráttarlausar skoð- anir á hvernig þjóðfélag hún vildi vera með í að skapa, hún vildi bæta hag þeirra sem áttu undir högg að sækja. Eftir að samstarf okkar hófst í Alþýðuflokknum þróuðust góð kynni okkar yfir í vináttu sem varð mér dýrmæt. Það var gaman að vinna með Ástu. Hún hafði ákveðna framtíðarsýn, var vökul og hug- myndarík, en fyrst og fremst var hún góður félagi og vinur. Fatlaðir, aldraðir og sjúkir voru hópar sem hún bar fyrir brjósti. Þessum hóp- um helgaði hún lífsstarf sitt, sem hjúkrunarfræðingur, í stjórn Þroskahjálpar í áratug og þann stutta tíma sem hún sat á Alþingi íslendinga. Ásta var mikil félagsmálamann- eskja og tók að sér mörg vandasöm verkefni á þeim vettvangi. Ég minn- ist sérstaklega undirbúnings að ráð- stefnu Sameinuðu þjóðanna um mál- efni fatlaðra sem haldin var hér á landi í árslok 1997, ekki síst að frumkvæði hennar. Þetta var al- þjóðleg ráðstefna um grundvallar- reglur Sameinuðu þjóðanna í mál- efnum fatlaðra og Bent Lindquist, umboðsmaður fatlaðra hjá Samein- uðu þjóðunum, kom hingað til að kynna reglurnar. Það var alltaf að- dáunarvert hvernig hún gekk til verka og hvernig henni tókst að hrífa fólk með sér. Orðin „ég get ekki“ eða „þetta er ekki hægt“ voru ekki til í orðaforða Ástu. Þegar hún kom fyrst inn á þing sem varamaður fann maður glöggt styrkinn af félagsmálareynslu henn- ar, enda gekk hún til starfa sinna á Alþingi með sömu röggsemi og ein- kenndi önnur félagsmálastörf henn- ar. Ég hlakkaði til að fá hana í þing- flokkinn þegar ljóst varð að Jón Baldvin hyrfi af þingi. Við sáum báðar fram á skemmtilegan og áhugaverðan tíma saman í þinginu, í flokksstarfinu og í kosningabaráttu á vetri komandi. En hún hafði að- eins setið örfáar vikur á Aiþingi þegar hún fékk vægðarlausan úr- skurð um illvígan sjúkdóm. Ásta tókst á við þennan sjúkdóm af reisn og æðruleysi. Við sem fylgdumst með dáðumst að þeim sálarstyrk sem hún sýndi í þeirri baráttu. Eftir síðasta uppskurðinn var hún veikari en áður og þurfti hjólastól til að komast ferða sinna. Hún mætti samt í þingsetninguna og hún mætti til þings í vikunni áður en hún lést. Hún gerði okkur félögum sínum auðvelt að umgangast veikindin. Hún fékk okkur til að trúa að hún myndi sigra í þessu einvígi. Eftir hverja þolraun mætti hún til starfa keik og bjartsýn. Þannig var það líka nú í lokin, hún brosti sínu fal- lega bjarta brosi og sagðist verða komin á fætur í vikulokin en við vit- um núna að hún vissi betur. Hún lagði sig alla fram í þágu hugsjónar og var góður liðsmaður. Hún naut mikils trausts í Alþýðu- flokknum og tók þar að sér ýmis trúnaðarstörf. Hún skipaði þriðja sætið á lista flokksins í Reykjavík í síðustu kosningum, var kosin vara- formaður flokksins fyrir tveimur ár- um og endurkjörin fyrir þremur vikum. Hún tók nokkur skipti sæti sem varamaður á Alþingi áður en hún tók við þingsæti og ávann sér sess í þingflokki jafnaðarmanna. Þingflokkur jafnaðarmanna hefur misst góðan félaga og öflugan tals- mann við fráfall hennar. Góð vinkona er kölluð bui-t langt um aldur fram. En hún hefur víða skilið eftir sig spor og hennar verð- ur lengi minnst fyrir mannkosti. Við sem eftir stöndum þökkum Ástu góða samfylgd. Það var mannbæt- andi að kynnast henni og vinátta hennar var mér mikils virði. Ég færi Ásdísi móður hennar, Ástráði, Arnari, Þorsteini, Ásdísi Jennu og öðrum í fjölskyldunni mína dýpstu samúð. Rannveig Guðniundsddttir. Haustið kom snögglega í ár og allt of fljótt. Það kólnaði og dimmdi yfir í síðustu viku og blójnin fölnuðu skjótt á einni hélunótt. Ásta B. Þor- steinsdóttir, alþingismaður og fyrr- verandi formaður Landssamtak- anna Þroskahjálpar, lést, aðeins 52 ára að aldri. Fráfall Ástu kom eins og reiðarslag yfu- alla þá sem þekktu til hennar en hún hafði barist hetjulegri baráttu við erfiðan sjúkdóm um nokkurt skeið. Ásta var hjúkrunarfræðingur að mennt og starfaði á því sviði en samhliða því tók hún virkan þátt í félagsmálum og vann ötullega að málefnum fatl- aðra. Ásta var kjörin í stjórn Þroska- hjálpar árið 1983 og var formaður samtakanna frá 1987 til 1995. Hún gegndi enn fremur mörgum öðrum trúnaðarstörfum fyrir samtökin bæði á innlendum og erlendum vett- vangi. Hún átti m.a. sæti í nefndum sem endurskoðuðu lög um málefni fatlaðra 1992 og 1996, var í skóla- stjórn Þroskaþjálfaskóla Islands, í stjórn Nordiska Námnden fór Handikappfrágor og Norrænna samtaka foreldra fatlaðra auk margs annars. Ásta var gædd óvenju ríkum for- ystuhæfileikum og næmi á mann- lega þáttinn í lífi hvers og eins og var því skjótt leitað til hennar um forystu í Landssamtökunum Þroskahjálp. Hún sinnti for- mennskunni af lífi og sál og var eld- huginn í baráttu fyrir rétti og hags- munum fatlaðra á íslandi. Hún átti sér framtíðarsýn fyrir fatlað fólk á Islandi þar sem grundvallaratriðið var jöfn mannréttindi allra í samfé- lagi án aðskilnaðar. Hún vann hik- laust og af réttsýni og einlægni að umbótum fyrir fatlaða og kynnti málin oft á nýjan hátt og frá nýju sjónarhorni og vann þeim fylgi á þann hátt. Ásta sigldi ekki alltaf lygnan sjó í baráttumálum sínum heldur lét verkin tala og þá sannað- ist að sýn hennar á málefnin var rétt og árangur náðist. Þekking hennar á samfélagsmál- um var mjög mikil og það er ekki of- sagt að hún var einstakur sérfræð- ingur um allt sem varðaði málefni fatlaðra og var jafnan fús að miðla af þeim brunni. Hún hafði búið er- lendis um árabil og fluttí með sér dýrmæta reynslu og þekkingu sem hún kunni að nýta og kynnti fyrir öðrum til að vinna málefnum fatl- aðra brautargengi. Landssamtökin Þroskahjálp efld- ust og styrktust mjög undir hennar stjórn og átti hún veigamikinn þátt í mótun stefnu samtakanna enda var hún óþreytandi við að kynna nýjar hugmyndir og vinna þeim fylgi. Samtökin standa í mikilli þakkarskuld við Ástu fyrir fórnfúst starf hennar og þau munu halda áfram að njóta afraksturs þess um ókomna tíð þar sem hún lagði und- irstöður að svo mörgu sem byggja má á. Hún ávann sér traust og virð- ingu samstarfsfólks síns og því kom ekki á óvart að henni var treyst til setu á Alþingi íslendinga. Það er ekkert launungarmál að fatlað fólk á Islandi hafði miklar væntingar til hennar á nýjum starfsvettvangi sem var mikilvægari en allt annað sem hún hafði starfað að áður. Þörf- in á að kynna málstað fatlaðra er af- ar brýn og við vissum að hún mundi standa undir væntingum okkar og halda áfram baráttunni enda verk- efnin ótæmandi. En haustið í lífi Ástu kom alltof fljótt og því fékk mannlegur máttur ekki breytt. Missir aðstandenda Ástu er mikill og þeir sem minnst mega sín á Is- landi hafa misst einn sinn besta og öflugasta málsvara. Fyiár hönd stjórnar Landssamtakanna Þroska- hjálpar votta ég fjölskyldu hennar og öði’um aðstandendum dýpstu samúð. Guðmundur Ragnarsson, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar. Kveðja frá Öryrkjabandalagi Islands Með söknuð í sinni er sönn og hugdjörf baráttukona kvödd. Hún Ásta var sannarlega ein þeirra sem átti eld í hjarta, hún tendraði líka sama bjarta baráttueldinn í annarra hjörtum. Hún átti þor og þrek til þess að fylgja háleitri hugsjón eftir, hiklaus og óvílin háði hún baráttuna fyrir bættum kjörum fatlaðra, fremst í forystu með það æðsta mark og mið að tryggja jafnrétti í reynd á öllum samfélagssviðum. Það gneistaði af gleði baráttunnar þegar Ásta flutti sitt meitlaða mál og mátti sú eða sá undarlegur vera sem ekki hreifst með. Henni þótti tæpast nokkur áfangi nógu góður, að lokamiði einu yrði að stefna og hún átti hreinskilni og hugrekki til að segja ævinlega það sem henni í brjósti bjó. Sem formaður Þroska- hjálpar markaði hún meginlínur og það sem meira var fylgdi fast eftir hverju einu svo langt sem frekast var unnt. Um leið var hún hlý og einlæg og átti létt með að slá á leik- andi strengi góðvildar og glettni, þó aldrei væri af alvöru málstaðarins slegið. Við munum Ástu bezt frá sameiginlegum vettvangi barátt- unnar, þar sem hún lagði sig alla fram eins og annars staðar og það munaði heldur betur um liðsemd hennar í orðum sem athöfnum. í formannstíð hennar var sameigin- lega að mörgu mætu verki unnið og oft dáðumst við að því hversu óþreytandi Ásta var í öllum sínum gjörðum, hún kunni einfaldlega ekki að liggja á liði sínu, hún gaf ríkulega af sér og dró hvergi af sér. Það gu- staði oft af henni og um hana en hún átti til að bera þann persónuleika, festu og einlægni sem allir virtu og mátu. Sagan mun sýna og sanna hversu beitt barátta hennar og framsýn forysta markaði í raun djúp spor og varanleg í framfarasögu fatlaðra, þroskaheftra þó fyrst og fremst. Á kveðjustund er klökkum huga þakkað fyrir einkar kær kynni, fyrir fórnfúsa liðveizlu, fyrir að halda merkinu svo hátt á lofti hversu sem vindar blésu, fyrir að vera sönn manneskja mikilla af- bragðseiginleika allra helzt. Kjark- ur hennar og kraftur í hinztu hrin- unni er öllum aðdáunarefni. Öryrkjabandalag íslands færir innilegar þakkir fyrir farsæla sam- fylgd áranna sem og allar góðar ánægjustundir með henni Ástu. Héðan eru sendar einlægar samúð- arkveðjur til eiginmanns, barna og annarra ástvina sem hafa svo mikið misst. í valinn er fallin svo alltof fljótt foi-ystukona að upplagi sem eðli, sem aldrei brást neinu því sem henni var fyrir trúað. Uppskera hennar var ærin og ávaxtanna mun lengi notið. Birta vongleði og and- ans auðlejgð voru einkenni hennar alla tíð. Astu Bryndísar Þorsteins- dóttur minnumst við af miklum hlý- hug og heitri þökk fyrir það sem hún var. F.h. Öryrkjabandalags íslands, Helgi Seljan.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.