Morgunblaðið - 20.10.1998, Page 45

Morgunblaðið - 20.10.1998, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTOBER 1998 45 margt óunnið, varð að beygja sig undir það ofurafl sem hún mætti. Þeir eru margir sem missa mikið við fráfall Ástu frænku minnar. Hún lét sig varða mál þeirra sem minnst mega sín. Við frændfólkið áttum góðan vin í henni. Henni sem okkur þótti svo undur vænt um. Yfir hörpunni hlýt ég að vaka, uns vitjar mín sá, er við skal taka, ungmennið fagra og ennisbjarta, sem hvílir í leiðslu við landsins hjarta og ljóð þess nemur. Hann kemur. Hann kemur. Pá rís ég úr sæti, læt söðla hestinn, sátturviðdauðann, blessa feðranna fomu tungu og faðma gestinn, bendi honum á bekkinn auðan og byrðina þungu. Hann skal lífið og hörpuna erfa. Mitt er að hverfa. (Davíð Stef.) Eg votta eiginmanni hennar, börnum, móður, tengdamóður, systkinum og okkur öllum sem þótti svo vænt um hana, innilega samúð. Guð blessi minningu Ástu Bryndís- ar Þorsteinsdóttur. Margrét Eyjólfsdóttir. Það kólnaði skyndilega í veðri á dánardegi Ástu B. Þorsteinsdóttur. Það var eins og sumar viki fyt'ir vetri þegar ekki naut lengur við þeirrar hlýju og orku sem jafnan stafaði af Astu og hún gaf svo örlát- lega af. Og nú fínnst mér blása naprari vindar en áður um götuna okkar. Fjölskyldan mín átti því láni að fagna, í ágústbyrjun 1994, að flytj- ast í nágrenni við þau Ástu og Ást- ráð á Seltjarnamesi. Nokkur hús skildu að í sömu götu. Við þekktum dálítið til þeirra áður og þegar við settumst að í nágrenni við þau á Hofgörðum kynntu þau okkur fyrir sínum einstaka vinahóp og buðu okkur velkomin með útbreiddum faðmi. Otti okkar við norðanvinda á Nesinu varð fljótt að engu fyrir sannfæringarkrafti Ástu, sem sagði að hvergi væri betra að búa, en þetta væri náttúrulega ekki staður fyrir þá sem kynnu ekki að meta ferskt loft. Á fjórum árum höfum við átt margar góðar stundir saman og kynnst mannkostum Ástu, glæsi- leik, hlýju og gestrisni. Þar fór kona sem ótrauð vann í annarra þágu og tók sjálfviljug á sig byrðar sam- ferðafólks. Hún var glæsileg kona, hvort heldur hún gekk prúðbúin til veislu eða fór stígvélaklædd um garðinn sinn að hlúa að blómum og trjáplöntum. En fyrst og síðast var Ásta falleg af verkum sínum og hjartalagi. Hún gaf ki-afta sína í þágu fatlaðra og annarra sem eiga undir högg að sækja og barðist fyrir bættum kjörum þeirra og rétti. Þeim verður vandfundinn annar eins baráttumaður. Með Ástu B. Þorsteinsdóttur er fallinn kvenskörungur. Ég þakka fyrir að hafa fengið að kynnast henni og verð henni ævinlega þakk- lát fyrir þá vinsemd sem hún sýndi mér og mínum. Við vottum Ástráði, bömum þeirra þremur og vanda- mönnum öllum innilegustu samúð. Kristín Ingólfsdóttir. Ásta með krabbamein. Orðin límd í undirmeðvitund mína. Þessi hrausta unga kona. Hörkudugleg, klár, umfram allt besta sál sem ég hef kynnst. Minningarnar streyma fram í huga mér. Ég minnist sérstaklega þess tíma sem við áttum heima sam- an í Árósum. Þar naut ég þeirrar gæfu að kynnast henni og hennar fjölskyldu. Ásta var ósérhlífin með alveg ein- staka persónutöfra, hún mátti aldrei vera að því að hugsa um sjálfan sig heldur alltaf um aðra. Deyr fé, deyja frændr, deyr sjalfr it sama; En orðstírr deyr aldregi, hveim er sér góðan getr. (Hávamál.) Sindri Einarsson. Nálægð þín vakti bjartar sveiflur andrúmslofthetju með fagrahvel undir brámána sem skoraði sjálfa þjáninguna á hólm. (Jóhannes úr Kötlum.) Steinninn í brekkunni minni er mikill uppáhaldssteinn. Ég veit að í honum býr álfkona og hún er vin- kona mín. Á vorkvöldum jafnt sem sumamóttum nýt ég þess að sitja á steininum, teyga í mig heilnæmt fjallaloftið og láta hugann reika. Um leið fylgist ég með því hvemig gróð- urinn vex og dafnar. Brekkan er um margt sérstæð, reyndar finnst mér hún bæði margslungin og ótrúleg. Gróðurinn neðst er fremur lágvax- inn og ungur. Hann krefst þess að vel sé að honum hlúð. Með áburðar- gjöf, þolinmæði, umhyggju og natni teygja litlu angarnh’ sig upp úr moldinni fullir trúnaðartrausts. í brekkunni miðri er bjarkarlundur. Þegar ég fór að fylgjast með björk- unum átján fyrir þrjátíu og fjóram áram, vora þær ungar og börkurinn á þeim viðkvæmur. Ég vissi að þær höfðu komið hver úr sinni áttinni, fullar eftii’væntingar að takast á við sitt nýja hlutskipti. Ofar í brekkunni tekur við gisnari gróður, malarflák- ar á milli og klappir efst. Jarðvegur- inn er þarna bæði íýr og lítill en með skilningi, hlýju og hjálp getur gróðurinn staðið langt fram á haust. Brekkan mín, litskrúðuga, sem ávallt hefur logað á haustin, hefiir grátið undanfarið. Grátið vegna þess að ein af björkunum hennar, Ásta, er dáin. Fyrir nokki-um áram stóðu þær líka svona hnípnar og grétu af því að Linda var dáin. Ég sit á steininum mínum og lítið er um svör við þeim spurningum sem leita á. Svör við því hversvegna Ástu var ætlað að hverfa svo fljótt í ljósið. Ásta hafði alla tíð ríka rétt- lætiskennd. Réttur einstaklingsins, hvar sem hann stóð í brekkunni, skyldi virtur. Hvort þú varst snauð- ur, fatlaður eða sjúkur. Allir áttu sinn rétt. Trú sannfæringu sinni barðist hún fyrir hugsjónum sínum, full eldmóðs og funa. Við hinar stóð- um hjá, dáðumst að viljastyrk henn- ar, áræðni og krafti. Hjúkrun: starf hugar, hjarta og handar, var það starf sem við völdum okkur. Eðlis- kostir Ástu komu þar vel í ljós. Hvort heldur var að hjúki-a veiku bami, starfa á skurðstofu eða stýra stóra sjúkrahúsi, allt leysti hún af hendi með sömu heilindum og dugn- aði. Baráttumálum Þroskahjálpar stýrði hún einnig styrkri hendi. Brautryðjandi nefnist sá er á undan gengur og ryður braut, slíkur var Asta, eldhuginn sem aldrei gafst upp. Við sögðum hana hafa þing- mannsblóð í æðum, enda dreif hún sig í pólitík. Alþingi íslendinga fékk því miður allt of stutt að njóta starfskrafta hennar, sama má segja um Alþýðuflokkinn, en þar gegndi Ásta varaformennsku. Eldhuginn Ásta reis þó hæst síð- ustu sjö mánuði á tímum þar sem hver holskeflan af annan-i reið yfir fjölskylduna. Reiðarslagið er mikið fyrir hvern þann sem fer „hinum megin“ við heilsulínuna, það þekkja þeir best er hafa reynt. Flestir kom- t Elskulegur faðir okkar, fósturfaðir, tengda- faðir, afi og langafi, ÓSKAR J. SIGURÐSSON frá Búlandi, Vestmannaeyjum, Hrafnistu, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum mándaginn 19. okt. Jarðarförin auglýst síðar. Björg S. Óskarsdóttir, Peter Kvaran, Guðmundur Ó. Óskarsson, Ágústa Sigurðardóttir, Magnús Matthíasson, Guðlaug Þ. Guðmundsdóttir, Ragnheiður Matthíasdóttir, Guðmundur Brandsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Hjartkær faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi, HÖGNIPÉTURSSON frá Ósi, Bolungarvík, lést á Sjúkrahúsi (safjarðar að morgni mánu- dagsins 19. október. Guðmunda Ó. Högnadóttir, Jón M. Egilsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinar- hug við andlát og útför móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, ÞÓRDÍSAR BENEDIKTSDÓTTUR frá Smáhömrum. Björn H. Karlsson, Elínborg Karlsdóttir, Guðbrandur Björnsson, Karl Þór Björnsson, Eiríkur Helgason, Þórdis Helgadóttir, Karl Matthías Helgason, Steinunn Helgadóttir, og barnabarnabörn. Matthildur Guðbrandsdóttir, Helgi Eiríksson, Helga Halldórsdóttir, Unnur María Rafnsdóttir, Friðrik S. Kristinsson, íris Björg Eggertsdóttir, Sæþór H. Þorbergsson ast þó innan tíðar „réttum megin“, aðrir ekki. Hjá þeim er bai’átta upp á líf og dauða hafin. Enginn heyr slíka baráttu einn. Ásta átti eigin- mann, böm, tengdaböm, móður og tengdamóðui’, ásamt vinkonum og vinum er stóðu sem klettar henni við hlið en baráttan var engu síður hennar. Virðing fyi-ir mannhelgi og ótrúlegur viljastyrkur einkenndu allar hennar gjörðir meðan á hildar- leiknum stóð. Við, sem stóðum álengdar, hrifumst með. Þegar ég sá Ástu fyrst, fyrir þrjátíu og fjóram áram, fylgdi henni mikil reisn, hún var foringi og sem slík tókst hún á við veikindi sín. Með sömu reisn kvaddi hún síðan þetta líf. Deyr fé, deyja frændur, en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Ur Hávamálum.) Á sama hátt mun orðstír Ástu lifa. Um nótt er gott að trúa á ljósið. í sorgarmyrkrinu sem nú umlykur okkur er þakklæti efst í huga. Þakk- læti fýrir að hafa átt vináttu Ástu og samfylgd. Skarð er fyrir skildi í hjúkran á Islandi. Við hollsysturnar sendum Ástráði og fjölskyldunni allri okkar dýpstu samúðarkveðjur. Guð blessi minningu Ástu Bryn- dísar Þorsteinsdóttur. Sigþrúður Ingimundardóttir. >*. Myrkur haustmorgunn þeytti kraparegni á gluggann, þegar ég lauk upp blaðinu á þriðjudaginn og las þar andlátsfregn vinar míns og samstarfsmanns til margra ára, Ástu B. Þorsteinsdóttur alþingis- manns og fyrrverandi fonnanns Landssamtakanna Þroskahjálpar. Hughrif þessa augnabliks gátu nátt- úraöflin ekki áréttað skýrar. Áreið- anlega er ég ekki sá eini sem fundið hefur tilfinningu reiði, sorgar og vanmættis gagntaka sig við þessa fregn. Eflaust á það ekki síst við um \ . þá sem minnst mega sín og hafa takmarkaða getu að bera hönd fyrir höfuð, þegar réttur þeirra er fyrir borð borinn, að þeim fmnist sem gustur hrímkalds hausts fari um þá við andlát Ástu. Kynni okkar hófust haustið 1985, er hún tók sæti í stjóm Þroska- hjálpar. Hún vann sér fljótt athygli og virðingu fyrir mikla þekkingu, grandvallaðar skoðanir og skelegg- an málflutning og þegar kjósa átti nýjan formann 1987 naut hún ein- huga stuðnings til þess starfs og SJÁ NÆSTU SÍÐU t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÁSDÍS HAFLIÐADÓTTIR, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur laugardaginn 17. október sl. Nína K. Gunnarsdóttir, Linda B. Gunnarsdóttir, Lilja Magnúsdóttir, Hafliði Gísii Bjarnason, Ægir Þór Bjarnason, Bergrós Björk Bjarnadóttir, Ásdís Hafliðadóttir. Bjarni Þorgrímsson, Brynja B. Garðarsdóttir, Gunnar Áki Hjálmarsson, Elías Arnar Hjálmarsson, Haukur Hafliði Hjálmarsson, t Systir okkar og frænka, NANNA GUÐMUNDSDÓTTIR frá Hruna, Ólafsvík, Austurbergi 38, Reykjavík, andaðist á heimili sínu laugardaginn 17. október sl. María H. Guðmundsdóttir, Guðrún A. Guðmundsdóttir, Guðmundur Guðmundsson og systkinabörn. t Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, HÓLMFRÍÐUR LÁRA ÞORSTEINSDÓTTIR, Skeljagranda 8, Reykjavík, lést á Landspítalanum aðfaranótt föstudags- ins 16. október sl. Sigríður Magnea Björgvinsdóttir, Sigurvaldi Rafn Hafsteinsson, Björgvin Þór Björgvinsson, Helga Eiríksdóttir, Sævar Örn Björgvinsson, Sigurey Agatha Ólafsdóttir, Georg Bjarnason og barnabörn. « Menntamálaráðu- neytið — Auglýsing í samræmi við ákvörðun ríkisstjórnarinnar hefur menntamálaráðu- neytið beint því til stofnana á stjórnsýslusviði þess að þær hafi lokað til kl. 13.00 eftir því sem tök eru á, miðvikudaginn 21. októ- ber, vegna útfarar GUÐRÚNAR KATRÍNAR ÞORBERGSDÓTTUR, sem gerð verður frá Hallgrímskirkju kl. 11.00 þann dag. Þá er mælst til þess að kennsla verði felld niður til kl. 13.00. Menntamálaráðuneytið, 19. október 1998.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.