Morgunblaðið - 20.10.1998, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
PRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998 47
í virðingu fyrir réttindum. Foreldr-
ar áttu ekki lengur að þurfa að
knékrjúpa til að fá lögbundna þjón-
ustu og fatlaðir skyldu í auknum
mæli fá að ráða lífí sínu sjálfir. En
hugsjónir duga skammt. Til þess að
koma á umbótum þarf víðtæka
þekkingu á málefninu og refilstigum
kerfisins, áræði og kjark tii að fylgja
málum eftir. Rík af þeirri lífsreynslu
hjartans sem dóttirin Ásdís Jenna
hafði gefið henni lagði Asta af stað
og nam áfram í glímunni við verk-
efni líðandi stundar. Þekking henn-
ar varð einstök svo og glöggskyggn-
in og færnin við að sjá meginatriði
hvers máls, auk þess sem hún bjó
yfir hæfileika til að haga orðum sín-
um þannig að þau hrifu. Framganga
hennar vakti undrun og aðdáun okk-
ar sem nutum þeirra forréttinda að
vinna með henni.
Asta gerði sér ljóst að fatlaðir
þurfa sterka einstaklinga sér við
hlið og var tilbúin að gefa þeim af
styrk sínum, þó hún annars gæti
verið viðkvæm og auðsærð. Dyggi-
lega studd af eiginmanni og fjöl-
skyldu sparaði hún aldrei kraftana,
ekkert var í raun ómögulegt, engin
hindrun þannig að henni yrði ekki
rutt úr vegi. Hún var stjaman okkar
á mannfundum í málefninu, heima
og heiman, glæsilegur fulltrúi hvort
heldur sem var í Norðurlandasam-
starfi eða við stjórnvölinn á alþjóð-
legri ráðstefnu í Reykjavík. I kring-
um hana gerðust ævintýri sem ann-
ars voru óhugsandi. Að taka þátt í
þeim ævintýrum var ljúf skylda,
bjartsýnin og dugurinn efldi okkur
til dáða.
Ekkert var smátt í kringum Astu.
Hún var höfðingi heim að sækja, ör-
lát jafnt á veraldargæði og vináttu.
Vinátta okkar var afrakstur af starf-
inu að málefnum fatlaðra, nokkurs
konar kærkomin aukageta. Djúp
vinátta og einlæg - og bæri á hana
skugga hafði hvorug okkar viðþol
fyrr en búið var að ná sáttum. Fyrir
þá gjöf verð ég eilíflega þakklát.
Asta mun lifa í hugum og hjörtum
þeirra fjölmörgu sem nú gráta hana.
Okkur sem unnum málefnum fatl-
aðra verður minningin um hana leið-
arstjama til nýrra sigra í hennar
anda.
Elskulegum eiginmanni Astu og
bekkjarbróður okkar úr Mennta-
skólanum á Akureyri færum við
Hörður innilegar samúðarkveðjur.
Guð blessi og styrki bömin þeirra,
Asdísi Jennu, Þorstein og Arnar,
móðurina Ásdísi, tengdamóðurina
Jennu og aðra ástvini. Það er erfitt
að horfa fram á veginn án Ástu.
Svanfríður Larsen.
Því miður urðu kynni okkar Ástu
ekki löng. Þrátt fyrir það gerði ég
mér fljótt grein fyrir að þar fór
harðdugleg baráttukona sem lét sér
ekki allt fyrir brjósti brenna. Þar til
ég fluttist til útlanda vegna starfa
minna bjuggum við Þorsteinn um
tíma á heimili þeirra Ástu og Ást-
ráðs og ég minnist þess með þakk-
læti þegar þau buðu mig velkomna á
heimilið með blómum og hlýjum
orðum. Atvikin höguðu því þannig
að ég var handan hafs þegar og eftir
að Ásta fékk úrskurðinn um sjúk-
dóminn sem nú hefur lagt hana að
velli langt um aldur fram. Ég fylgd-
ist þó því sem næst daglega með
baráttu hennar og hvemig hún hélt
striki sínu ótrauð. Aðdáunarvert er
hvemig hún fársjúk mætti til þing-
setningar og upphafs þings. Það
sannfærði mig enn betur um þrek
hennar, þrautseigju og dugnað. Nú
þegar Ásta er gengin hafa margir
misst mikils. Fatlaðir og þeir sem
minna mega sín sjá nú á bak ötulum
talsmanni en á vettvangi þeirra lét
Ásta til sín taka um árabil svo að
eftir verður munað. En ekki síst á
þó fjölskyldan um sárt að binda.
Ásta hefur nú verið leyst undan
þraut og pínu. Hún hefur verið leidd
að lendum þar sem hún má hvíldar
njóta og kraftar hennar fá sín notið.
Minningin um góða konu lifir.
Björg Sæmundsdóttir.
• F/e/ri minningargreinar um Ástu
Bryndísi Þorsteinsdóttur bíða
birtingar og munu birtast ( blaðinu
næstu daga.
+
Ástkær eiginmaður minn,
GYLFI HEIÐAR ÞORSTEINSSON,
Hvannavöllum 8,
Akureyri,
lést á hjúkrunarheimilinu Seli, Akureyri, laugardaginn 17. október.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hulda Karls.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
BJÖRGVIN GUÐLAUGSSON,
dvalarheimilinu Kirkjuhvoli,
Hvolsvelli,
lést laugardaginn 17. október.
Hulda Björgvinsdóttir, Sigvaldi Hrafnberg,
Guðlaug Lára Björgvinsdóttir, Bragi Brynjólfsson,
Margrét Björgvinsdóttir, Sigurjón Stefánsson,
Sigrún Björgvinsdóttir, Loftur Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
INDÍANA STURLUDÓTTIR
frá Valhöll
í Vestmannaeyjum,
sem andaðist á dvalarheimilinu Flraunbúðum
fimmtudaginn 15. október síðastliðinn, verður
jarðsungin frá Landakirkju í Vestmannaeyjum
laugardaginn 24. október kl. 14.00.
Friðþjófur Másson, Kjartan Másson
og aðstandendur.
+
Hjartkær bróðir okkar,
EIRÍKUR HALLDÓR EIRÍKSSON
málari,
Gnoðarvogi 52,
sem lést mánudaginn 12. október, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn
21. október kl. 13.30.
Jón Eiríksson og systur.
+
JÓHANNESJÓHANNESSON
listmálari,
Háteigsvegi 42,
Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum mánudaginn
12. október, verður jarðsunginn frá Grens-
áskirkju miðvikudaginn 21. október kl. 15.00.
Sigrún Guðnadóttir,
Kjartan Jóhannesson,
Sigurður Jóhannesson,
Egili Jóhannesson,
Halla Jóhannesdóttir,
Ingimar Sigurðsson,
María Guðmundsdóttir,
Sóley Reynisdóttir,
Elín María Guðjónsdóttir,
Andri Lárusson.
Lokað
Vegna útfarar forsetafrúarinnar, frú GUÐRÚNAR KATRÍNAR
ÞORBERGSDÓTTUR, á morgun, miðvikudaginn 21. október,
verða skrifstofur eftirtaldra stofnana sjávarútvegsráðuneytisins
lokaðar til kl. 13.00:
Hafrannsóknastofnun,
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins,
Fiskistofa,
Skrifstofa rannsóknastofnana atvinnuveganna.
Lokað
Vegna útfarar frú GUÐRÚNAR KATRÍNAR ÞORBERGSDÓTTUR
verða stofnanir sem undir fjármálaráðuneytið heyra, lokaðar til
kl. 13.00 á miðvikudag, ef þess er kostur.
Fjármálaráðuneytið.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
AÐALSTEINN EGGERTSSON
stórkaupmaður,
Bauganesi 14,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 22. október kl. 13.30.
Jónína S. Snorradóttir,
Snorri Aðalsteinsson, Martha Sverrisdóttir,
Eggert Aðalsteinsson, Guðrún E. Bjarnadóttir,
Gunnar Aðaisteinsson, Guðbjörg Guðmundsdóttir
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu samúð og hlýhug við andlát og útför
föður okkar,
JENS GUÐMUNDSSONAR
fyrrv. skólastjóra, Reykhólum.
Ebeneser Jensson,
Eiríkur Jensson,
Helgi Jensson
og fjölskyldur.
+
Hjartans þakkir til allra þeirra, sem veittu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
sonar okkar og bróður,
STEFÁNS LÚÐVÍKSSONAR.
Denise Lucile Rix, Halldór Erlendsson,
Lúðvík Jóhann Ásgeirsson, Guðrún Berndsen
og systkini.
+
Þökkum innilega öllum þeim sem auðsýndu
okkur samúð og styrk við andlát og útför,
ÍRISAR EGGERTSDÓTTUR,
Heiðarholti 12,
Keflavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sjúkra-
húss Suðurnesja og Landspítalans.
Sigurður J. Guðmundsson,
Einar Már Sigurðsson,
Eggert B. Sigurðsson,
Eygló Björg Óladóttir, Kristinn Þorsteinsson,
bróðir, tengdaforeldrar
og aðrir aðstandendur.
+
Þökkum innilega veitta samúð og hlýhug við
andlát og útför,
ÖNNU KRISTÍNAR HALLDÓRSDÓTTUR
THOMSEN,
frá Siglufirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 3-A á
Hrafnistu í Reykjavík.
*
Ingvar Björgvin Jónsson,
Hallmar Thomsen,
Elna Thomsen, Leifur Sveinbjörnsson,
Tómas Enok Thomsen, Sesselja Halldórsdóttir,
Magnea Thomsen, Guðmundur Jón Sveinsson,
Svala Sigríður Thomsen, Hreiðar Þórir Skarphéðinsson,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
Lokað
Svæöisskrifstofa málefna fatlaöra í Reykjavík verður lokuð frá kl.
14.00 þriðjudaginn 20. október vegna útfarar ÁSTU B. ÞOR-
STEINSDÓTTUR alþingismanns.
Miðvikudaginn 21. október er lokað til kl. 13.00 vegna útfarar
FRÚ GUÐRÚNAR KATRÍNAR ÞORBERGSDÓTTUR forseta-
frúar.
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra í Reykjavík.
4