Morgunblaðið - 20.10.1998, Síða 48

Morgunblaðið - 20.10.1998, Síða 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ *~h 3 Erfidrykkjur h M H h 1 1 a H PERLAN H H H Sími 562 0200 uLIIIIIIIIIIj Þegar andlát ber að höndum Útfararstofa kirkjugarðanna ehf. Sími 551 1266 Allan sólarhringinn LEGSTEINAR Guðmundur Jónsson cr ~ F. 14.11. 1807 D. 21.3.1865 r Qraníl1 HELLUHRAUN 14 220 HAFNARFJÖRÐUR SÍMI: 565 2707 FAX: 565 2629 SuðurlandsbrautlO 108 Reykjavík * Símí 553 1099 Opið öll kvöld til kl. 22 - einnig um helgar. Skrcytingar fyrir öll tilefni. ASLAUGK. MA GNÚSDÓTTIR tÁslaug K. Magnúsdóttir fæddist í Reykjavík 3. október 1941. Hún lést á Landspít- alanum aðfaranótt laugardagsins 10. október. Foreldrar hennar voru hjónin Ingibjörg L. Guð- mundsdóttir, f. 1.8. 1923, d. 16.1. 1991, og Magnús St. Daní- elsson, f. 8.4. 1919. Áslaug var elst af sex systkinum. Systkini hennar eru: 1) Jórunn Ingibjörg, f. 6.9. 1944, gift Stefáni H. Stefáns- syni. 2) Jón Sigurður, f. 20.11. 1946, kvæntur Kolbrúnu Vigg- ósdóttur. 3) Arnhildur Sesselja, f. 5.1. 1953, gift Jóni Guðbjörns- syni. 4) Ingibjörg Lovísa, f. 26.8. Margir gráta bliknuð blóm. Beygja sorgir flesta. An þess nokkur heyri hljóm, hjartans strengir bresta. Valta fleyið vaggar sér votum hafs á bárum. Einatt mæna eftir þér augun, stokkin tárum. Enginn getur meinað mér minning þína’ að geyma. Kring um höll, sem hrunin er, hugann læt ég sveima. 3lóiwa búðirv Öakðskom v/ l-ossvotjsUifkjugarð Stmi. 554 0500 ÚTFARARST OFA HAFNARFJARÐAR Stapahrauni 5, Hafnarfirði, sími 565 5892 Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Áralöng reynsla. Sverrir Einarsson, útfararstjóri Sverrir Otsen, útfararstjóri Útfararstofa íslands Suðurhlið 35 ♦ Síxni 581 3300 Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/ í rúmgóðum sýningarsölum okkar eigum við ávallt íyrirliggjandi margar gerðir legsteina og minnisvarða úr íslenskum og erlendum steintegundum. Verið velkomin til okkar eða hafið samband og fáið myndalista. SB S.HELGASON HF ISTEINSMIÐJA SKEMMUVEGI 48, 200 KOP.,SIMI:557-6677/FAX:557-8410 1954, gift Sveini B. Isebarn. 5) Sigríð- ur, f. 18.6. 1956, gift Magnúsi Karlssyni. Aslaug giftist Bergi Sólmunds- syni, þau slitu sam- vistum. Áslaug fluttist til Svíþjóðar með sam- býlismanni sinum Agnari Eide árið 1980. Slitu þau samvistum. Fóstur- sonur hennar er Agnar E. Agnars- son í sambúð ineð Carina Persson. Áslaug lærði hárgreiðslu og starfaði við þá grein til margra ára auk margra annarra starfa. títför Áslaugar fer fram frá Dómkirkjunni í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Pú, sem heyrir hrynja tár, hjartans titra strengi, græddu þetta sorgarsár, svo það blæði’ ei lengi. Guð geymi þig. Þinn (Erla.) pabbi. Elsku systir okkar. Með söknuði í hjarta langar okk- ur til að kveðja þig með þessum orðum. Hve langt sem er á milli okkar og hversu mjög sem lífið hefur breytt okkur, þá eru tengsl okkar órjúfanleg. Þú verður alltaf sérstakur hluti af lífi mínu. (P.B.) Megi guð geyma þig og varð- veita. Þín systkini. Elsku frænka. Nú er komið að kveðjustund og langar mig að minnast þín í fáum orðum. Þótt langt hafí verið á milli okkar fylgdist þú alltaf vel með hvemig gengi hjá öllum hér heima. Alltaf vildir þú allt fyrir okkur gera. Það var sérstakt upplifelsi að koma til þín í Kópavoginn og fá að gista í stóra kóngarúminu eins og við köll- uðum gestarúmið. Það var mikil eft- ii-vænting hjá mér þegar ég 12 ára fékk að fara með ömmu, afa og Deddu frænku til þín í Svíþjóð og var það ógleymanlegur tími. Einnig þegar ég fór aftur til Svíþjóðar til að vinna var ekkert sjálfsagðara en að leyfa mér að gista og var stjanað við mig á allan hátt. Áttum við ynd- islegan tíma saman sem alltaf verð- ur góður í minningunni. Þegar ég gifti mig fyrir fjórum árum var það mér dýrmætt að þú gast verið viðstödd og deilt með mér þessum stóra degi. Fyrir allar minningamar sem þú skilur eftir vil ég þakka, svo og allt sem þú gerðir fyrir mig. Eg veit að nú ert þú kom- in á betri stað þar sem amma hefur tekið vel á móti þér og þér líður vel. Eg kveð þig með ást og söknuði, þú munt ávallt eiga stað í hjarta mínu. Elsku afi, megi guð gefa þér styrk og styðja þig í þinni miklu sorg. Þín Kristín. Elsku Áslaug mín. Mig langar að kveðja þig með nokkrum orðum. Við tvær áttum alltaf smá í hvor annarri, við voram saman í langan tíma, samt svo stutt- an. Ung að aldri var ég hjá þér og alltaf með annan fótinn þar til ég var fimmtán ára gömul. Ég á margar og góðar minningar bæði frá Islandi og Svíþjóð. Það var alltaf gaman að hringja í þig og rifja upp gamlar minningar og segja þér hvað væri að gerast hjá mér. Elsku Áslaug mín, ég á eftir að sakna þín mjög mikið en ég veit að nú ert þú komin á góðan stað þar sem þér líður vel. LILJA JONSDOTTIR SÖEBECK + Lilja Jónsdóttir Söebeck fæddist á Bíldudal 7. nóvem- ber 1901. Hún lést á heimili sínu að Dal- braut 27 hinn 11. október siðastliðinn. Foreldrar hennar voru Halldóra Magnúsdóttir, f. 12.10. 1869 á Felli í Tálknafirði, d. 17.4. 1937 á Bíldudal, og Níels Jón Sigurðs- son, f. 9.6. 1859 á Hofsstöðum í Gufu- dalssveit, d. 4.3. 1921 á Bíldudal. Börn þeirra önnur en Lilja eru: Hermann, f. 12.12.1891, d. 30.9.1974; Árni, f. 17.6. 1893, d. 1917; Helga, f. 25.12. 1894, d. 2.1. 1895; Magn- ús, f. 6.2. 1900, d. 23.4. 1901; Hildur, f. 10.12. 1903, d. 16.12. 1987; Vilborg, f 24.2. 1908, d. 27.11 1997; Magga, f. 1.8 1909, d. 2.6. 1911 Hólmfríður, f. 3.2 1911; Sigurður, 20.7. 1912, d. í sept- ember 1990. Hinn 27. maí 1933 giftist Lilja Óskari P. Söebeck, f. á Hall- dórsstöðum í Reykjafirði á Ströndum. Hann lést 26. apríl 1997. Óskar lauk prent- námi 1926 í Prent- smiðju Björns Jónssonar á Akur- eyri og starfaði sfðan við prent- iðn allan sinn starfsaldur. Lilja og Óskar eignuðust ekki börn. títför Lilju fer fram frá Ás- kirkju í Reykjavík í dag, og hefst athöfnin klukkan 15. Lilja móðursystur mín er látin og skorti hana aðeins tæpan mánuð í að ná 97 ára aldri. Lilja fæddist og ólst upp á Bíldudal við Amarfjörð og átti til vestfirskra að telja í báðar ættir. Á Bíldudal var mikið athafnalíf í byrjun þessarar aldar. Uppistaðan var stórútgerð á vegum Péturs Thorsteinssonar og margháttuð önnur umsvif sem henni fylgdu. Bíldudalur var þá enginn smáræðis útgerðarstaður, því þaðan voru gerð út milli 10 og 20 þilskip. Auk útgerð- ar rak Pétur brauðgerðarhús, sem þá var nýlunda og einnig rak hann verslun jafnframt því að gefa út blaðið Amfirðing. Er Lilja var spurð um uppvaxtarárin á Bíldudal, sagði hún að fátt markvert væri um þau að segja. Þau muni hafa liðið með líkum hætti og algengt var hjá börn- um sem uxu upp í sjávarþorpum í byrjun aldarinnar. Árin liðu við leik og störf og kannski ekki ávallt gott að greina þar á milli, þegar maður var á þessum aldri, sagði Lilja. Jón faðir Lilju lést árið 1921, og hafði þá starfað lengst af sem verkstjóri hjá Pétri Thorsteinssyni. Á þessum tíma var heldur farið að halla undan fæti íyrir athafnalífmu á Bíldudal. Eftir fráfall Jóns þyngdist róður fjölskyldunnar og fóm þá sum eldri systkinin til annarra landshluta til starfa. Lilja fór á þessum tíma til Hermanns bróður síns, sem var elst- ur þeirra systkina og orðinn bóndi á Yzta-Mói i Fljótum í Skagafirði. Þangað flutti Hermann með fjöl- skyldu sína frá Málmey á Skagafirði ísa- og harðindaárið 1918. Lilja dvaldist á Yzta-Mói við ýmis hús- og sveitarstörf um eins árs skeið á búi bróður síns. Næstu árin starfaði Lilja sem vinnustúlka á heimili Óskars Lámssonar kaupmanns, sem bjó með fjölskyldu sinni á Fjólugötunni í Reykjavík. Þú barðist hetjulega fram að síð- asta degi. Ég kveð þig með sömu orðum og þú kvaddir mig ætíð með: „Þúsund kossar“. Þín frænka Jórunn Lovísa. Elsku frænka. Okkur langar að minnast þín með þessum orðum. Þegar ég leit í augu þín sá ég drauma þína og von um betra líf fljúga framhjá. Mig langaði að stöðva þá og gefa þér, en það gat ég ekki. Svo ég settist niður og horfði á þig og hugsaði um lífið. Eg beið eftir andardrættinum koma og fara. Svo opnuðust augu þín og þá sá ég að draumur þinn hafði ræst. Þú varst komin heim, heim til okkar. Ástar- og saknaðarkveðjur, guð geymi þig. Þínar frænkur Jómnn Dögg og Ingibjörg Ilildur. Elsku Áslaug frænka mín. Nú ertu farin frá okkur, en ég veit að þér líður mun betur þar sem þú ert núna. Núna ertu hjá ömmu Lóu og hún mun ávallt gæta þín, elsku Áslaug mín. Ég mun aldrei gleyma deginum, þegar þú gafst mér Todda trúð. Ég svaf alltaf með hann og tók hann alltaf með í öll ferðalög sem ég fór í og geri enn. Eg vil senda þér þetta litla vers með miklum söknuði og þúsund „knus og krám“. Upp upp mín sál og allt mitt geð. Upp mitt hjarta og rómur með. Hugur og tunga hjálpi til herrans pínu ég minnast vil. (H.P.) Þín litla frænka Svana Björk. Hinn 27. maí 1933 giftist Lilja Óskari Péturssyni Söebeck prent- ara. Var Óskar á þessum tíma ný- kominn frá Vesturheimi, en hann fór til Kanada árið 1928 og starfaði hjá Columbia Press er prentaði Lögberg. Óskai' kemur aftur heim um 1930 og starfaði fyrstu árin hjá Herbertsprenti, en mestan hluta starfsævinnar starfaði Óskar fyrir Isafoldarprentsmiðju og Morgun- blaðið. Óskar var þekktur fyrir vandvirkni og samviskusemi í öllum sínum störfum. Þau bjuggu sér fag- urt heimili hér í borginni og bjuggu lengst af á Snorrabraut 33. Þar sem móðir mín Vilborg og Lilja voru þær einu af systkininum sem fluttu hingað suður til búsetu var alla tíð mikill samgangur milli heimila for- eldra minna og þeirra Lilju og Óskars. Það er því margs að minn- ast og fjölmörg voru þau skipti þeg- ar tekið var í spil og mikið skemmt sér og hlegið. Engin voru jól eða aðrar stórhátíðir án þess að fjöl- skyldurnar kæmu saman. Ekki var þeim Lilju og Óskari barna auðið en barngóð voru þau með eindæmum sem við systkimn fengum öll að reyna. Sem dæmi um hugulsemi þeirra í garð barna má nefna að fyr- ir fáeinum árum gáfu þau andvirði íbúðar sinnar til Bamaspítala Hr- ingsins. Um miðjan síðasta áratug fluttu þau í þjónustuíbúðir fyrir aldraða á Dalbraut 27. Þar leið þeim vel og fengu þau einstaklega góða aðhlynningu hjá starfsfólkinu. Vil ég því nota þetta tækifæri fyrir hönd okkar systkina, eftirlifandi systur og annarra aðstandenda að þakka starfsfólkinu á Dalbrautinni fyrir einstakan hlýleik í allri aðstoð og umönnun. Eftir að Óskar lést eftir erfið veikindi 26. apríl á síðasta ári, hrakaði heilsu Liiju bæði and- lega og líkamlega og síðasta misser- ið var henni erfitt. Eftir að Lilja giftist sóttist hún ekki eftir starfi utan heimilisins, heldur sinnti því hlutverki sem hún kaus sér með sæmd og virðingu. Blessuð sé minning Lilju. Guðmundur Aðalsteinsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.