Morgunblaðið - 20.10.1998, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998 49
+ Einar Sigurjóns-
son, fæddist 7.
janúar 1920 í Vest-
mannaeyjum. Hann
lést í Sjúkrahúsi
Vestmannaeyja 14.
október síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
lijónm Sigurjón
Olafsson, f. 17.1.
1894 á Núpi, V-Eyja-
Qallahreppi, og kona
hans, Guðlaug Ein-
arsdóttir, f. 27.9.
1892 á Raufarfelli,
A-Eyjafjallahreppi.
Eftirlifandi eigin-
kona Einars er Hrefna Sigurðar-
dóttir, f. 20. 7. 1916 á Siglufirði.
Þau gengu í hjónaband 18. des-
ember 1943. Þau eignuðust tvo
drengi: Óskar, f. 7.2. 1945,
kvæntur Kötlu Magnúsdóttur, og
Óskírður, f. 13.5. 1955, d. 15.5
sama ár.
Einar vai' vélstjóramenntaður,
Einar Sigurjónsson, fyrrverandi
forstjóri Isfélags Vestmannaeyja
hf., var einn af þeim framsýnu
mönnum sem markað hafa djúp
spor í atvinnulífí í Vestmannaeyj-
um. Við andlát Einars Sigurjóns-
sonar hverfur af sjónarsviðinu sá
síðasti af fulltrúum þeirrar kynslóð-
ar sem hélt um stjórnvölinn í frysti-
húsunum í Eyjum á fyi-rihluta sjö-
unda áratugar þessarar aldar. Þess-
ir menn áttu það allir sameiginlegt
að hafa komist áfram í lífinu með
mikilli vinnu og eljusemi og verið í
fararbroddi í uppbyggingu fyrir-
tækjanna.
Ég átti því láni að fagna að kynn-
ast Einari Sigurjónssyni allnáið eft-
ir að ég hóf störf hjá sameiginlegum
fyrirtækjum frystihúsanna fjögurra
í Eyjum fyrir liðlega tveim áratug-
um. í starfi mínu þurfti ég æði oft
að leita ráða hjá Einari. Víðtækri
starfsreynslu eins og hans til sjós
og lands og mikilli þekkingu á hvers
konar vélbúnaði var óvíða fyrir að
fara í jafn ríkum mæli. Eins og
flestir ungir menn í Eyjum á þeim
tíma vann Einar við störf sem
tengdust útgerð og fiskvinnslu.
Langri skólagöngu var ekki fyrir að
fara, en hann tók vélstjórapróf sem
átti eftir að nýtast honum mjög vel
á lífsleiðinni. Eftir nokkuiTa ára
sjómennsku hóf hann útgerð v/b
Sigurfara VE ásamt Óskari heitn-
um Ólafssyni, skipstjóra frá Garð-
stöðum í Eyjum. Jafnframt komu
þeir upp eigin saltfiskverkun og
ráku hana samhliða útgerðinni í all-
mörg ár. Samstarf þeirra gekk vel
og var vel haldið um reksturinn til
sjós og lands.
Þegar rekstur ísfélags Vest-
mannaeyja hf. var endurskipulagð-
ur árið 1956 og teknir inn nýir hlut-
hafar 1 útgerð, var leitað til Einars
og hann beðinn að veita fyrirtækinu
forystu. Það var ekki létt verk, því
ísfélagið hafði um árabil átt í mikl-
um rekstrarerfiðleikum. Það tókst
að snúa dæminu við og nokkrum ár-
um síðar var ísfélagið komið í hóp
öflugustu fyrirtækja í sjávarútvegi
hér á landi. Þar lögðu margir hönd
á plóginn, ekki síst starfsfólkið og
þeir hluthafar sem komu inn í
reksturinn á sama tíma og Einar. I
eldgosinu á Heimaey árið 1973
þurfti meðal annars að flytja alla
starfsemi fyrirtækja frá Eyjum. ís-
félagsmenn voru ekki lengi að-
gerðalausir eftir að komið var upp á
land. Fljótlega festu þeir kaup á
frystihúsinu á Kirkjusandi í
Reykjavík og ráku það þar til flutt
var heim á ný ári síðar. Þessar að-
gerðir miðuðu meðal annars að því
að þjóna sem best viðskiptabátum
og starfsfólki fyrirtækisins. Það
hefur þurft áræði og kjark til þess
að ráðast í þessa fjárfestingu á
þessum miklu örlagatímum í sögu
Eyjanna. Á sama hátt var ekki beð-
ið með að flytja starfsemina ný til
Eyja og strax og mögulegt var að
loknu eldgosinu.
Þegar Einar tók að nálgast sjö-
nam einnig við
íþróttaskólann í
Haukadal 1939 og
tók minna fiski-
mannapróf við Stýri-
mannaskólann í
Reykjavík 1943.
Hann var vélstjóri til
sjós hjá öðrum í
byrjun starfsferils
síns eða til 1945 en
réðist þá í bátskaup
með félögum sínum
og stunduðu þeir út-
gerð og fiskverkun
til 1956 en þá hóf
Einar störf lijá ísfé-
lagi Vestmannaeyja og varð
framkvæmdasljóri frá 1957 til
1987. Einar sat í stjórnum nokk-
urra fyrirtælga tengdra sjávar-
útvegi, lengst þó í stjórn Sölu-
miðstöðvar Hraðfrystihúsanna.
títför Einars fer fram frá Landa-
kirkju í Vestmannaeyjum í dag
og hefst athöfnin klukkan 14.
tugt lét hann að störfum fyrir ísfé-
lagið, en tók þá að sér tímabundið
starf fyrir Lifrarsamlag Vest-
mannaeyja. Hann var þá stjórnar-
formaður samlagsins og þekkti
mjög vel til rekstursins. Þá var Ein-
ar um langt árabil í stjórn og um
tíma stjórnarformaður í Stakki hf.,
en félagið rak fiskþurrkunarhús í
Eyjum um langt árabil. Einnig átti
hann sæti í stjóm SÍF um tíma og í
stjórn SH um margra ára skeið.
Eftir að Einar lét af störfum fyrir
tæpum áratug varð samband okkar
óreglulegi’a. Þegar ég starfs míns
vegna þurfti að leita upplýsinga um
ákveðna þætti í þróun ýmissa
greina fiskvinnslu og útgerðarsögu í
Eyjum leitaði ég oft til hans. Kom
ég þar ekki að tómum kofunum.
Sérstaklega minnist ég heimsóknar
til hans og Hrefnu, eiginkonu hans,
fyrir liðlega fjórum árum. Þar sát-
um við drjúgan tíma og fórum yfir
það sem á dagana hafði drifið hjá
honum og þeim ágætu hjónum.
Fyrir liðlega mánuði heimsótti ég
Einar á Sjúkrahús Vestmannaeyja.
Hann var þá farinn að heilsu og
gerði sér grein hvert stefndi en var
þrátt fyrir það sáttur við lífið. Ég er
mjög þakklátur fyrir að hafa átt
þess kost að kynnast Einari Sigur-
jónssyni. Að leiðarlokum sendi ég
fjölskyldu og ættingum Einars inni-
legar samúðarkveðjur og bið þeim
blessunar guðs.
Arnar Sigurmundsson.
Látinn er í Vestmannaeyjum Ein-
ar Sigurjónsson framkvæmdastjóri.
Með nokkrum orðum vil ég minn-
ast Einars, en leiðir okkar lágu
fyi'st saman um eða uppúr 1950. Þá
annaðist hann um verklegan rekst-
ur Stakks hf. við fiskþurrkun, sam-
hliða störfum við eigin útgerð og
fiskverkun sem hann rak í félagi við
Oskar Olafsson skipstjóra á ms.
Sigurfara VE. En þeir ásamt öðrum
útgerðarmönnum keyptu og yfir-
tóku rekstur ísfélags Vestmanna-
eyja árið 1956. Eftir að Einar tók
við rekstri ísfélagsins tókst með
okkur gott samstarf þar sem við
skiptumst á skoðunum og miðluðum
á milli okkar reynslu og þekkingu,
jafnframt því sem góður vinskapur
myndaðist á milli okkar.
Samhliða störfum sínum valdist
Einai' til stjórnunarstarfa í hinum
ýmsu fyrirtækjum og félögum sem
tengdust sjávarútvegi, bæði í Vest-
mannaeyjum og einnig hjá stóru
sölusamtökunum í Reykjavík. Hann
sat í stjórn SH til fjölda ára svo og
um árabil í stjórn Sölustofnunar
lagmetis og SIF.
í Eyjum sat hann í stjórn Sam-
frosts, Samtogs, Stakks, Lifrarsam-
lags Vestmannaeyja og Vinnuveit-
endafélags Vestmannaeyja, og var
um árabil stjórnarformaður þessara
fyrirtækja. En aðalstarfið var að
sjálfsögðu í fyrirtækinu hans, ísfé-
laginu, þar sem hann ávallt bar hag
þess og afkomu fyrir brjósti.
Einar ávann sér velvild og virð-
ingu starfsfólks síns og samstarfs-
manna jafnt innan fyrirtækisins
sem utan. Einar var mjög handlag-
inn og hafði gaman af að fást við og
fjalla um allt er að vélbúnaði laut,
hann var bæði hugsjóna- og hug-
vitsmaður og mörgum hugmyndum
sínum kom hann til framkvæmda í
fyrirtæki sínu. Eftir að Einar hætti
störfum tók hann sér fyrir hendur
m.a. að gera líkön af fiskibátum, þar
sem best mátti sjá handlagni hans,
því þeir bátar sem hann gerði eru
listasmíð.
Með söknuði kveð ég góðan vin
og samferðamann, en mestur er þó
söknuður Hrefnu, eiginkonu hans
og sonar, tengdadóttur og fjöl-
skyldna hans, svo og Óla, bróður
Einars.
Við Helga vottum ykkur öllum
dýpstu samúð okkar.
Stefán Runólfsson.
í dag verður borinn til moldar frá
Landakirkju í Vestmannaeyjum
Einar Sigurjónsson, fyrrverandi
forstjóri ísfélags Vestmannaeyja hf.
Með honum er horfmn af sjónar-
sviðinu merkur fulltrúi þeirrar kyn-
slóðar sem gerði frystiiðnaðinn á Is-
landi að stórveldi og skapaði grund-
völl þess að hægt er að lifa menn-
ingarlífi á íslandi.
Líf Einars Sigurjónssonar var
svipað og annarra ungra manna í
Vestmannaeyjum á fyiTi hluta þess-
arar aldar. Eftir að skólagöngu lauk
tók lífsbaráttan við. Lífsbaráttan í
Vestmannaeyjum hefur ávallt verið
tengd sjónum, að draga björg í bú
úr fangi Ægis. Um tima rak hann
útgerð 1 félagi við Óskar Ólafsson
skipstjóra frá Garðstöðum og þar
var Einar vélstjóri. Mér er sagt að
það hafi verið farsælt samstarf og
horfði ég á vináttu þeirra á meðan
báðir lifðu.
Seint á árinu 1956 urðu þáttaskil í
lífi Einars. ísfélag Vestmannaeyja
hf. hafði átt við mikla rekstrarerfið-
leika að etja. Útgerðarmenn 10 báta
í Vestmannaeyjum tóku höndum
saman um endurreisn þessa hálfrar
aldar gamla frystihúss með því að
kaupa þar hlutafé og leggja upp afla
af bátum sínum. Ný stjórn var kjör-
in og forstjóri var ráðinn Einar Sig-
urjónsson. Þá eins og oft síðar lentu
erfiðleikar fyrirtækja í Vestmanna-
eyjum á borðum Útvegsbankans í
Vestmannaeyjum. Líklegt er að úti-
bústjóri Útvegsbankans í Vest-
mannaeyjum, Baldur Ólafsson, hafi
átt einhvem þátt í þeirri lausn að
útgerðarmennirnir sameinuðust um
endurreisn ísfélagsins. Eitt er þó
víst að Baldur sagði við útgerðar-
mennina að best væri að Einar Sig-
urjónsson yrði forstjóri. Og svo
varð. Einar gengdi því starfi á far-
sælan hátt í 30 ár. Á þeim árum
urðu verulegar breytingar í vinnslu
og sjósókn. I starfi sínu horfði Ein-
ar framávið. Oft ræddum við Einar
starfsemi ísfélagsins og var það
mjög fræðandi fyrir mig. Hann var
ekki að sýta það sem miður fór,
hann vildi læra af erfiðleikum og
nýta það sem aðrir höfðu gert vel.
Einar var merkilegur stjórnandi,
hann fylgdist vel með sínum rekstri,
tók ákvarðanir og fylgdi þeim eftir.
Þar sem hann taldi sig ekki hafa vit
á ráðfærði hann sig við aðra og var
ófeiminn við það. Þetta gerði Einar
að góðum stjórnanda. Isfélagið var
góður vinnustaður, margir störfuðu
þar lengi og aðrir höfðu viðdvöl á
meðan á námi stóð og komust þeir
til nokkurs þroska þar. Ég átti gott
sumar í ísfélaginu árið 1969 og það
voru okkar fyrstu kynni.
Áratug síðar flutti ég búferlum til
Vestmannaeyja. Alltaf fannst mér
Einar stoltur af því að útibústjóri
Útvegsbankans hafði unnið hjá hon-
um. Með okkur tókst vinátta, sem
hélst til loka. Við vorum ekki alltaf á
sama máli og minnti Einar mig oft á
það og glotti við en ég tók til vama.
Forstjórinn varð stundum að vera
harður í horn að taka en undir bjó
ljúfur og góður maður. Svo var líka
heima fyrir. Þar bjó frú Hrefna
honum fallegt heimili og veitti hon-
um af manngæsku sinni og hjarta-
hlýju. Einar fylgdist með högum
mínum og dætra minna. Hann sagði
mér stoltur af Ástu „litlu“ sonar-
dóttur sinni en hún hafði litið til
með dætmm mínum. Ég kveð Ein-
ar Sigurjónsson með virðingu og
þökk fyrir samfylgdina, farðu vel,
vinur. Ég flyt frú Hrefnu konu hans
samúðarkveðjur minar sem og Ósk-
ari syni hans og fjölskyldu.
Guð geymi Einar Sigurjónsson.
Vilhjálmur Bjarnason.
Einar Sigurjónsson forstjóri lést
hinn 14. október síðastliðinn, þá
langt kominn með 78. aldursárið.
Sem lítil stelpa dvaldi ég flest
sumur hjá þeim Hrefnu og Einari.
Þessar ferðir til Eyja era í hávegum
hafðar og kemur það til af höfðings-
skap og samspili þeirra hjóna. Þær
eru í minningunni sem ævintýri sem
ekki er hægt að lesa í bók heldur
verður að upplifa af eigin reynslu.
Hann hafði til að bera léttleika og
hlátur sem lífgaði upp á fólk. Hann
var í einstökum tengslum við Eyj-
arnar, bæði liðna tíð og daglegt líf,
en jafnframt fróðleiksfús og vildi
vita það sem gerðist fyrir utan hans
heimabyggð. Einar hafði sérstakan
hæfileika að heilla lítinn stelpu-
hnokka með líflegum sögum um
Eyjarnar.
Að kvöldi dags var gjarnan’farið í
bfltúr. Einar var stórútgerðarmað-
ur og fiskurinn, útgerðin og hafið
var hans líf og yndi. Ferðinni var
því gjarnan heitið niður á bryggju
þar sem Einar ræddi málin við sjó-
mennina sem vora í höfn. Síðan var
tekinn smákrókur og fallbyssan (nú
undir hrauni) skoðuð. Þá fylgdu
auðvitað óteljandi sögm- af ferðum
Tyrkja og Eyjabúa sem nauðugir
fylgdu þeim. Þar voru einnig sagðar
sögur af landnámsmönnunum,
Ingólfi og Hjörleifi, og eltingaleik
Ingólfs upp Heimaklett eftir þræl-
umog niðurlögum þeirra.
Á leiðinni inn í Dal (Herjólfsdal)
var litið eftir peyjum að spranga í
klettunum. Þegar þangað var kom-
ið var horft á kletta á sjó og landi.
Þar skörtuðu Hani og Hæna og
lengra í burtu Þrídrangar og Eini-
drangur. Nær landi var leitað að
„Fíl í bjargi". Allir þessir staðir
gáfu tilefni til mikilla vangaveltna
og þreyttist Einai' þar aldrei að
koma með nýjar sögur og stað-
reyndir sem hægt var að velta fyrir
sér. Förinni var síðan haldið í átt
að Stórhöfða, gjarnan spáð svolítið
í veðrið og hvort þar væri til nóg
þang í söl. Ef kyrrt var í veðri var
jafnvel keyrt rólega upp brattan
Stórhöfðann, reynt á minnið og
rifjuð upp nöfnin á eyjunum suður
af Heimaey. Þá var líka fræðst um
fugla og fuglafang, nýjar eyjar
(Surtsey) og klifur og kofa á
óbyggðum eyjum. Að lokum var
haldið heim að hvfla lúin bein eftir
viðburðaríkan dag.
Með árunum fækkaði ferðunum
til Eyja en þó hélst alltaf samband-
ið við Hrefnu og Einar. Þau áttu þá
til að hringja til útlanda þar sem ég
hef verið við nám til að fylgjast
með gangi mála og til að segja frá
börnum og barnabörnum. Þrátt
fyrir alvarleg veikindi í sumar bar
Einar sig vel og það kom jafnvel
glampi í augun þegar minnst var á
fiskinn.
Við samhryggjumst nánustu fjöl-
skyldu Einars. Það voru forréttindi
að hafa kynnst slíkum manni sem
Einar var. Megi hann hvíla í friði.
Hrefna og fjölskylda.
Lokað
Tryggingastofnun ríkisins verður lokuð í dag, þriðjudag 20. októ-
ber, frá kl. 14.00 vegna jarðarfarar ÁSTU B. ÞORSTEINSDÓTTUR,
fyrrverandi alþingismanns.
Einnig verður lokað á miðvikudag 21. október vegna jarðarfarar
frú GUÐRÚNAR KATRlNAR ÞORBERGSDÓTTUR til kl. 13.00.
Tryggingastofnun ríkisins.
Lokað
Frá forsætisráðuneytinu
Stjómarráð íslands verður lokað fyrir hádegi og til kl. 13.00 mið-
vikudaginn 21. október 1998 vegna útfarar forsetafrúarinnar,
FRÚ GUÐRÚNAR KATRÍNAR ÞORBERGSDÓTTUR.
í forsætisráðuneytinu,
19. október 1998.
Lokað
Vegna útfarar ÁSTU B. ÞORSTEINSDÓTTUR, alþingismanns og
fyrrverandi formanns Landssamtakanna Þroskahjálpar, verður
skrifstofa félagsins lokuð í dag, þriðjudaginn 20. október, frá kl.
14.00.
Styrktarfélag vangefinna.
Lokað
Vegna útfarar ÁSTU B. ÞORSTEINSDÓTTUR, alþingismanns og
fyrrverandi formanns Landssamtakanna Þroskahjálpar, verður
skrifstofa samtakanna lokuð i dag, þriðjudaginn 20. október, en
tekið er á móti minningargjöfum allan daginn í síma 588 9390.
Landssamtökin Þroskahjálp.
Lokað
Vegna útfarar GUÐRÚNAR KATRÍNAR ÞORBERGSDÓTTUR,
forsetafrúar, verða skrifstofur embættisins lokaðar fyrir hádegi
miðvikudaginn 21. október nk. og til kl. 13.00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík.
Lokað
Félagsmálaráðuneytið verður lokað frá kl. 14.00 í dag vegna
útfarar ÁSTU B. ÞORSTEINSDÓTTUR, alþingismanns.
Félagsmálaráðuneytið.
EINAR
SIGURJÓNSSON