Morgunblaðið - 20.10.1998, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998 53
Rauði krossinn
Námskeið á vegum
Reykjavíkurdeildar
REYKJAVÍKURDEILD Rauða
kross Islands gengst fyrir nám-
skeiði fyrir aimenning í október og
nóvember. Einnig verður haldið
barnfóstrunámskeið fyrir nemendur
fædda 1984-86.
Námskeið um slys á börnum, for-
varnir og skyndihjálp verður haldið
21. og 22. otkóber kl. 20-23. Nám-
skeiðið er öllum opið.
Námskeið í sálrænni skyndihjálp
verður haldið 28. október og 3. nóv-
ember kl. 19-23. Námskeiðið er ætl-
að almenningi, 15 ára og eldri. Nám-
skeiðið er byggt upp á fyrirlestrum,
umræðum og hópvinnu.
Barnfóstrunámskeið
Vegna mikillar eftirspurnar mun
deildin einnig gangast fyrir barn-
fóstrunámskeiði fyrir nemendur
fædda 1984-1986, en þessi námskeið
hafa hingað til einungis verið haldin
á vorin. Námskeiðið verður haldið
2., 4., 9. og 11. nóvember kl. 18-21.
Leiðbeinendur eru leikskólakennari
og hjúkrunarfræðingur.
Reykjavíkurdeildin heldur einnig
námskeið í almennri skyndihjálp
fyrir 15 ára og eldri. Að námskeið-
inu loknu fá nemendur skírteini sem
hægt er að fá metið í ýmsum skól-
um. Næsta námskeið hefst 22. októ-
ber.
Námskeiðið verður haldið í
Fákafeni 11. Þeir sem hafa áhuga á
að sækja námskeiðin geta skráð sig
hjá Reykjavíkurdeild Rauða kross
íslands.
Klúbbur matreiðslumanna
kynntur í Kringlunni
Á EFRI hæð Kringlunnar verður
kynning þriðjudaginn 20. október kl.
15-18 á Klúbbi matreiðslumeistara.
Þar verða til sýnis réttir sem ís-
lensku landsliðskokkarnir munu
mæta með í heimsmeistarakeppnina
Expo Gast í matreiðslu í Lúxemborg
6.-13. nóvember nk. Þetta er í fyrsta
sinn sem slík sýning er sett upp á
íslandi, að þvi er segir í fréttatil-
kynningu.
U ndirbúningur landsliðsmannanna
hefst í Matreiðsluskólanum okkar,
Bæjarhrauni 16, kl. 3 aðfaranótt 20.
október. Haldinn verður matarbazar
þar sem félagai' úr Klúbbi mat-
reiðslumeistara koma með ýmsa rétti
og selja til styi-ktar félaginu.
FRÉTTIR
Myndir frá
Grænlandi
ALPAKLÚBBURINN og íslensk-
grænlenska félagið Kalak efna til
myndasýningar í Háskólabíói í
kvöld, þriðjudag, kl. 20.30.
Á sýningunni segja fjórir hópar
frá leiðöngrum sínum til Grænlands
í máli og myndum en allir voru þeir
farnir á þessu ári.
Þorsteinn Hannesson sýnir frá
gönguskíðaferð um Diskó-flóa,
Nuussuaq-skagann og Uummannaq-
fjörð, Jökull Bergmann sýnir frá
klifurferð á fjallið Ulamertorsuaq
við Ketilsfjörð, Anna María Geirs-
dóttir sýnir frá gönguskíðaferð yfir
Grænlandsjökul og Ari Benedikts-
son og Pjetur St. Arason sýna frá
kajakferð um Scoresby-sund.
Ráðstefna um
úðavítamín
RÁDSTEFNA á vegum Karemor
Int. verður haldin í kvöld, þriðju-
dag, kl. 19.30 á Hótel Loftleiðum og
framhaldið á morgun, miðvikudag,
kl. 18.
í fréttatilkynningu segir m.a.:
„Þar sem allnokkuð hefur verið
fjallað um munnúða í fréttum að
undanförnu, skal það tekið fram að
Karemor Int. hefur einkaleyfi á
framleiðslu vítamína og bætiefna í
úðaformi. Allar þær tegundir sem
seldar eru á íslandi undir merkjum
Karemor hafa verið samþykktar af
Lyfjaeftirliti ríkisins."
Dagbók
Háskóla
Islands
RÖNG dagbók birtist sl. sunnudag í
blaðinu. Um leið og beðist er velvirð-
ingar á mistökunum birtist sú rétta,
fyrir þriðjudag og miðvikudag:
Dagbók Háskóla Islands dagana
20.-24.október. Allt áhugafólk er vel-
komið á fyrirlestra í boði Háskóla ís-
lands. Dagbókin er uppfærð reglu-
lega á heimasíðu Háskólans:
http://www.hi.is
Þriðjudagur 20. október:
Gunnar Karlsson flytur erindi sitt:
,jUsaga og félagssaga", á hádegis-
verðarfundi Sagnft-æðingafélagsins.
Fundurinn hefst kl. 12.05 í fundarsal
á 2. hæð í Þjóðarbókhlöðu.
Miðvikudagur 21. október:
Helgi Tómasson, viðskipta- og
hagfræðideild HI, mun flytja erindi
á málstofu Viðskipta- og hagfræði-
deildar. Erindið nefnist: „Priee Valu-
ation of Stocks under Inft-equent
Trading", og hefst kl. 16.15 á kaffi-
stofu 3. hæð í Odda.
Námskeið á vegum Endurmennt-
unarstofnunar HI:
19. og 20. okt. kl. 13-17. Hlutbund-
in netforritun - Grunnur. Kennai'i:
Heimir Þór Sverrison, verkfræðing-
ui' hjá Teymi hf.
19.-21. okt. kl. 8.30-16. Verkefna-
stjórnun (Project Management) sem
stjórnunaraðferð í venjulegum verk-
efnum fyrirtækja. Kennari: Tryggvi
Sigurbjarnarson, ráðgjafai-verk-
fræðingur.
19. og 21. okt. kl. 13-16. Samskipti
við og framkoma í fjölmiðlum. Kenn-
ari: Olöf Rún Skúladóttir, fréttamað-
ur.
Mán. 19. okt.-7. des. kl. 20.15-22
(8x). Gullöldin í grískri heimspeki.
Kennari: Þorsteinn Gylfason, pró-
fessor.
Mán. 19. okt.-16. nóv. kl. 17.30-
19.30 (5x). Excel97 fyrir fjármála-
fólk. Kennari: Guðmundur Ólafsson,
hagfræðingur og lektor HI.
20. okt. kl 9-16. Forvarnir gegn
átröskun. Umsjón: Helga Hannes-
dóttir, barna- og unglingageðlæknir.
Kennari: Prófessor Jan Rosenvinge.
Fer fram á ensku.
20., 21., 23. og 26. okt. kl. 9-12.
Vefsmíðar 2. Þróaðra HTML og
myndvinnsla. Kennari: Gunnar
Grímsson vefmeistari hjá this.is og
IO - InterOrgan gunnarthis.is -
http://this.is - http://this.is/io
20. okt. kl. 16-19.30. Skattskyldar
tekjur og frádráttarliðir einstaklinga
og rekstraraðila. Kennari: Ingvar J.
Rögnvaldsson, lögfræðingur hjá
Skattstjóranum í Reykjavík.
Þri. 20. okt.-24. nóv. kl. 20.15-22 og
lau. 7. nóv. kl. 13-17 (7x). Alls 16 klst.
Hlutur Ira og Skota í uppruna og
menningu Islendinga. Kennarar:
Helgi Þorláksson, sagnfræðingm',
Hermann Pálsson, fv. prófessor, Ad-
olf Friðriksson, fornleifafræðingur,
Orri Vésteinsson, fornleifafræðing-
ur, Alfreð Ái'nason, erfðafræðingur,
og Gísli Sigurðsson, íslenskufræð-
ingur. Umsjón: Gísli Sigurðsson, sér-
fræðingur á Stofnun Árna Magnús-
sonar.
20. okt. kl. 15-19. Mat á verðmæti
fyrirtækja og rekstrareininga.
Kennari: Davíð Björnsson forstöðu-
maður á fyrirtækja- og stofnanasviði
Landsbanka Islands hf.
20. okt. kl 9-16. Agi og hegðunar-
mótun leikskólabarna. Kennari: Þór-
katla Aðalsteinsdóttir, sálfræðingur.
Rjúpan og loftnetið
Málþing
um unglinga
í vanda
MÁLÞING um unglinga í vanda
verður haldið laugardaginn 24.
október kl. 9-16.30 í Biblíuskólan-
um við Holtaveg.
Á málþinginu verður skyggnst
inn í veruleika unglinga á höfuð-
borgarsvæðinu og leitað leiða til að
koma til móts við þá.
Málþingið er ætlað starfsmönn-
um og sjálfboðaliðum kirkjunnar og
kristilegra félaga og öðrum sem
áhuga hafa á þessu efni.
I pallborðsumræðunum verður
rætt um efnið: Imynd og fyrir-
myndir. Að koma til móts við ung-
linga. Kirkjan og unglingurinn.
Verð kr. 2.000, kaffi og matur
innifalið.
Hádeg*isfyrir-
lestur sagn-
fræðinga
GUNNAR Karlsson, prófessor í
sagnfræði, heldur fyrirlestur í boði
Sagnfræðingafélags íslands sem
hann nefnir „Alsaga og einsaga".
Fundirnir verða haldnir í Þjóðar-
bókhlöðunni á 2. hæð í hádeginu, kl.
12.05-13, og er hluti af fyrirlestrar-
öð Sagnfræðingafélagsins sem
nefnd hefur verið: Hvað er félags-
saga? Fyrirlestur Gunnars er sá tí-
undi í röðinni og eru allir áhuga-
menn um sagnfræði velkomnir á
fundinn.
Fyrirlestrar þeir sem fluttir
verða á hádegisfundum félagsins í
vetur eru haldnir í samvinnu við
Rannsóknarstofu í kvennafræðum.
Fundarmenn geta fengið sér mat-
arbita í veitingasölu Þjóðarbókhlöð-
unnar og neytt hans meðan á fund-
inum stendur.
Málstofa
á Bifröst
ÞORGEIR Örlygsson, prófessor
við Háskóla Islands, flytur fyrir-
lestur á málstofu Samvinnuháskól-
ans miðvikudaginn 21. október kl.
15.30, í hátíðarsal Samvinnuháskól-
ans á Bifröst. Fyrirlesturinn fjallar
um hlutverk Tölvunefndar á næstu
öld.
AÐALMYNDIN með grein Morg-
unblaðsins um veiðiálag á rjúpna-
stofninum á blaðsíðu 10 síðastliðinn
sunnudag kom illa út úr tækni-
vinnslu og verður því birt hér að
nýju. I myndartexta á sunnudaginn
var þess getið að loftnet senditækis
sæist skaga undan fiðri á baki rjúp-
unnar, en eigi að síður var þar ekk-
ert loftnet að sjá. Eiga menn nú að
geta séð loftnetið sem um ræðir og
varð til þess að myndin valdist til
birtingar með þessu tiltekna efni. Er
beðist velvirðingar á mistökunum.
LEIÐRETT
Fríkirkjan Vegurinn, ekki
Fríkirkjan í Reykjavík
FYRIR mistök var sagt í laugar-
dagsblaði að boðað væri til fundar í
Fríkirkjunni í Reykjavík í kvöld,
þriðjudagskvöld. Hið rétta er að
fundurinn er í Fiíkirkjunni Vegin-
um. Kl. 21 er boðað til safnaðarfund-
ar í kirkjunni með Michael Cotten
og öldungum. Beðizt er velvirðingar
á mistökunum.
Nafn féll niður
I umfjöllun um fitusnauðar mjólk-
urafurðir á bls. 31 sl. laugardag, féll
niður nafn Birgis Guðmundssonar
framkvæmdastjói'a Mjólkurbús
Flóamanna. Beðist er velvirðingar á
mistökunum.
Þingsályktunartillaga
ekki afgreidd
I greinaflokknum Landið og ork-
an sunnudaginn 11. október sl. var
ranghermt að þingsályktunartillaga
um framtíðarskipan raforkumála
hefði verið samþykkt á síðasta lög-
gjafarþingi. Tillagan hefur ekki hlot-
ið afgreiðslu þingsins, og verður tek-
in aftur upp á þessu þingi. Morgun-
blaðið biðst velvirðingar á þessu.
Úr dagbók lögreglunnar í Reykjavík
Tíðindalítil helgi
HELGIN gekk vel hjá lögreglu.
Hefðbundið annríki var að kvöld-
og næturlagi en gekk að mestu tíð-
indalítið fyrir sig. Ökumenn voru
ekki allir tilbúnir að glíma við
fyrstu hálkuna og voru 44 árekstr-
ar tilkynntir lögreglu. Þá vora 50
ökumenn kærðir vegna hraðakst-
urs og 11 vegna ölvunar við akstur.
Málefni barna og unglinga
Haldið var uppi eftirliti með því
að börn og ungmenni væru ekki úti
við eftir lögbundinn útivistartíma.
Farið var um flest hverfi borgar-
innar og nokkrum börnum ekið
heim, á lögreglustöð eða í athvarf
þangað sem þau voru sótt af for-
ráðamönnum. Fram kom að for-
eldrar taka mikinn þátt í því að
fylgja þessum reglum eftir og var
áberandi að í nokkrum hverfum
voru mjög margir foreldrar á
„röltinu". Slík þátttaka foreldra er
til fyrirmyndar og er lögreglu
mjög mikilvæg aðstoð við eftir-
fylgni útivistarreglna.
Börnum var vísað frá Tjörninni
þar sem þau voru að leik, en ísinn
þar er alls ekki nægjanlega traust-
ur til að hægt sé að fara út á hann.
Umferðarmálefnin
í næstu viku verður sérstakt
átak lögregluliða á Suðvesturlandi
1 umferðarmálum. Að þessu sinni
verður lögð áhersla á akstur við
gatnamót, notkun stefnuljósa,
ljósabúnað ökutækja, gangandi
vegfarendur og notkun endur-
skinsmerkja.
Umferðarmálin eru nær alltaf
fyrirferðarmest þegar dagbók lög-
reglunnar er skoðuð eftir helgar
og erujiar yfirleitt fjölbreytt verk-
efni. Á laugardag var áberandi
hversu margir árekstrar urðu þeg-
ar borgarbúai' fengu sýnishorn af
vetrarveðri. Á föstudagsmorgun
16.-18. október
var lögreglu tilkynnt að bifreið
hefði verið stolið þar sem hún stóð
ólæst með lyklum í á Seltjarnar-
nesi. Borgarar fundu bifreiðina
skömmu síðar þar skammt frá og
hafði þá ölvaður maður komið sér
þægilega fyrir í aftursæti hennar.
Borgararnir vísuðu manninum á
brott en hann var síðan handtek-
inn skömmu síðar af lögreglu og
fluttur á lögreglustöð. Maðurinn
sem var talsvert ölvaður veitti
mikla mótspyrnu við handtökuna,
kenndi til í hendi og var því fluttur
á slysadeild. Við leit á honum á
lögreglustöð fundust á honum ætl-
uð fíkniefni.
Af þessu tilefni eru ítrekuð
skilaboð frá lögreglu um að borg-
arar skilji ökutæki sín ekki eftir í
gangi með verðmætum í.
Þá var ekið á gangandi vegfar-
anda á Flókagötu við Snorrabraut
að morgni föstudags. Ekki urðu al-
varleg meiðsli.
Ökumaður bifhjóls datt í hjóli
sínu á Lækjargötu á sunnudags-
kvöld. Ökumaðurinn var fluttur á
slysadeild.
Líkamsmeiðingar
Ráðist var að manni í Tryggva-
götu að morgni laugardags og jion-
um veittir áverkar í andliti. Árás-
armaður var handtekinn og fluttur
í fangahús.
Tvær konur á fertugsaldri tók-
ust á í Tryggvagötu að morgni
sunnudags. Karlmaður bættist síð-
an í hópinn og veitti annarri þeirra
áverka með vasahnífi. Hann var
handtekinn og fluttur á lögreglu-
stöð en konan flutt á slysadeild til
aðhlynningar.
Ymis verkefni
Á laugardag stöðvuðu lögreglu-
menn einstakling sem var að ferja
hluti í keiTU aftan í bifreið. í
kerrunni voru ýmis rafmagnstæki
sem eru ætlað þýfi. Ökumaðurinn,
bifreiðin og kerran voru flutt á lög-
reglustöð. Við leit fundust meðal
annars ætluð fíkniefni.
Á sunnudag barst lögreglu til-
kynning um að menn væru með
skotvopn í Öskjuhlíð. Lögreglu-
menn fóru á staðinn og kom í ljós
að þarna voru menntaskólanemar
að kvikmynda. Þeir höfðu skot-
vopn sem reyndist forngripur en
samt nothæft vopn. Engin leyfi
voru fyrii'liggjandi og vopnið hafði
einnig verið tekið án heimildar frá
eiganda. Piltarnir voru fluttir á
lögreglustöð og hald lagt á skot-
vopnið.