Morgunblaðið - 20.10.1998, Page 54

Morgunblaðið - 20.10.1998, Page 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Grettir Ljóska i þetta ersd $tur>dum hetc/ <ega& <] au/nastL brancfirs I þes$i Qnujtarþ{£u/s q etí) ty Qrö sem e&Aet ) »!■ ^ h/eqio a3hveq'a y—^ t nokkrusfaru, heurtJ i H&qið exð h uerfu sem er'! Ferdinand Smáfólk WE HAVETOEAT FA5T BEFORE THE HYEMA5 COME TO TRT TO TAKE AWAY THE KILL.. INCIPENTALLT, IF YOU'RE WORRIEP ABOUT HYENA5,THEREAREN'T ANY AROUND HERE.. _ ir PIP HOV LOOK INTHETREE57 H-b Af hverju eru hundar svona fljótir að éta? Við verðum að vera fljótir að éta áður en hýenurnar koma og reyna að taka bráðina frá okkur... Meðal annarra orða, ef þú hefur áhyggjur af hýenum, þá eru engar hér um slóðir. Gáðir þú upp í trén? BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 SIGRIJN Pétursdóttir og Aðalheiður Siguijónsdóttir í hlutverkum sínum. Líf á fjölunum Frá Sigrúnu Pétursdóttur: f.h. Leikfélagsins Snúður og Snælda. EG VAR að enda við að lesa grein- ina „Aldraðir æringjar11, sem Orri Páll Ormarsson skrifar um leikritið Maður í mislitum sokkum eftir Arn- mund Backman. Þar segir systir höfundar „það yndislega tilfínningu að fylgjast með Manni í mislitum sokkum lifna við á fjölunum (letur- br. mín). En um leið tregablandin, þar sem Arnmundur lifði ekki til að sjá drauminn rætast.“ Nú vill svo til að leikfélagið Snúður og Snælda naut þeirra einstöku forréttinda að fá þetta verk í hendurnar í fyrra- haust eftir að það hafði legið óhreyft í Þjóðleikhúsinu um langan tíma. Við urðum að sjálfsögðu hrifín og hamingjusöm með þetta skemmtilega verk og ekki síður þakklát að fá að verða fyrst til að vinna að því í samstarfí við höfund- inn. Við frumsýndum svo Mann í mislitum sokkum 1. febrúar sl. og sýndum það 29 sinnum við góða að- sókn. Samlestur var heima hjá höf- undi og hann kom til okkar á æfing- ar og á sýningar, fullur áhuga og gleði yfir að sjá þessar skemmtilegu persónur lifna við á fjölunum. Við- kynning, samstarf og öll samskipti við Arnmund var okkur öllum sér- stök ánægja. Þegar sýningum lauk tilkynnti hann okkur í Leikfélaginu Snúð og Snældu, að hann væri svo ánægður með samstarfið við okkur að hann væri byrjaður á öðru leik- riti sem hann ætlaði okkar leikhópi og það héti „Nú væri fínt að jarða mömmu“. Snúður og Snælda sendir leikur- um Þjóðleikhússins bestu kveðjur og óskar þeim til hamingju með sýninguna og óskar þeim sömuleiðis góðs gengis og langra lífdaga í Mislitu sokkunum, en rétt skal vera rétt. F.h. Leikfélagsins Snúðs og Snældu, SIGRÚN PÉTURSDÓTTIR. Á heljarslóð Frá Þorsteini Guðjónssyni: PÁLL Pétursson, félagsmálaráð- herra, sagðist á Alþingi 12. okt. ekki hafa séð fyrir þá holskeflu eitur- lyfjaaukningar, sem varð meðal reykvískra unglinga í sumar er leið. Hann hélt jafnvel að enginn, endur- tek enginn, hefði séð þetta fyrir. Hann talaði reyndar ekki um þetta fyrr en hann var spurður gagngert í þingsal. Við þessu er í fyrsta lagi það að segja, að þeir sem skipuleggja eit- urlyfjasöluna hljóta að hafa séð þetta fyrir. Þeir menn vita það, sem allir hljóta að vita, að þegar kemur að því að taka í taumana, er þjóðfé- lag okkar gersamlega máttlaust. Viðleitnin til að stinga inn „sölu- mönnum" eftir á, dregur skammt. í grein sem ég fékk birta í „Bréf- um“ 13. júní sl. minntist ég á skýrslu sænska lögreglumannsins um ótrúlega mikla neyslu meðal unglinga í ekki stærri borg en Reykjavík, og síðan bætti ég við: „Hversvegna það veldur ekki mestu uppnámi, að þessi vitneskja hefur skapast, heldur hitt, að frá henni skuli vera sagt, er með því kynleg- asta af mörgu kynlegu, sem við hef- ur borið ..." Málið var þaggað niður. Málið um skýrslu sænska lögreglumannsins var gersamlega þaggað niður. En ef einhver færi að rannsaka - og segja frá - hverjir það voru sem þögguðu niður, og hversvegna, þá mætti bú- ast við að örlaði á einhverju, sem enn meiri ástæða þætti til að þagga niður. Hverskonar vesalingar eru Is- lendingar orðnir? Þeir láta kvelja lífíð úr unglingunum við nefíð á sér, aðeins til þess að geta þjónað þeirri hræsnisreglu, að málin séu við- kvæm og ekki megi tala um þau. Rekið slóð eiturlyfjagróðans - millj- arðar! - í gegnum fjármálakerfín og vitið hvað þið finnið. ÞORSTEINN GUÐJÓNSSON, Rauðalæk 14, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fyigir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.