Morgunblaðið - 20.10.1998, Blaðsíða 56
56 ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
Safnaðarstarf
Læknir og
prestur fjalla um
kristna íhugun í
Hafnarfjarðar-
kirkju
Æskulýðsstarf kl.
LÆKNIR og prestur munu fjalla
um kristna íhugun í Strandbergi,
safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju
nú í kvöld, þriðjudagskvöldið 20.
október, frá kl. 20.45 til kl. 21.30, en
þá hefst íhugunar- og kyrrðarstund í
Stafni, kapellu Strandbergs, sem er
öllum opin og stendur yfir til kl. 22.
Kristin íhugun leiðir til samræmis
innri lífsþátta og glæðir trúarskynj-
un og næmi fyrir nærveru Guðs. All-
ir eru velkomnir til þess að fylgjast
með og taka þátt í þessari umfjöllun
um kristna íhugun.
Áskirlqa. Opið hús fyrir alla aldurs-
hópa kl. 10-14. Léttur hádegisverð-
ur. Samverustund foreldra ungra
barna kl. 14-16. Fundur í æskulýðs-
félaginu kl. 20.
Bústaðakirkja.
20.30.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10. Orgelleikur, ritningalestur,
altarisganga, fyrirbænir. Léttur
málsverður í safnaðarheimilinu eftir
stundina.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk-
um.
Háteigskirkja. Starf fyrir 6-9 ára
böm kl. 17.
Langholtskirkja. Safnaðarfélag
Langholtskirkju heldur fund í kvöld
kl. 20. Gestur fundarins verður Hlín
Agnarsdóttir. Allir velkomnir.
Laugameskirkja. „Þriðjudagur með
Þorvaldi" kl. 21. Lofgjörð.
SeMjamameskirkja. Foreldramorg-
unn kl. 10-12
Árbæjarkirkja. Foreldramorgnar í
safnaðarheimili kl. 10-12. Æskulýðs-
fundur 10. bekkjar og eldri kl. 20-22.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjón-
usta með altarisgöngu kl. 18.30.
Bænarefnum má koma til sóknar-
prests í viðtalstímum hans.
Digraneskirkja. Starf aldraðra kl.
11.15. Leikfimi, léttur málsverður,
helgistund og fleira. Æskulýðsstarf
kl. 20.
Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir
9- 10 ára stúlkur kl. 17.30.
Hjallakirkja. Bænar- og kyrrðar-
stund kl. 18.
Grafarvogskirkja. Eldri borgarar,
opið hús kl. 13.30. Söngur, spil, spjall
og veitingar. „Kirkjukrakkar" í
Rimaskóla. Börn 7-9 ára kl. 17.30-
18.30. KFUM fyrir drengi 9-12 ára
kl. 17.30-18.30. Æskulýðsstarf fyrir
8. og 9. bekkkl. 20-22.'
Hjaliakirkja. Prédikunarklúbbur
gresta kl. 9.15 í umsjá dr. Sigurjóns
Áma Eyjólfssonar.
Kópavogskirkja. Mæðramorgunn í
safnaðarheimilinu Borgum í dag kl.
10- 12.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús
fyrir 7-9 ára böm frá kl. 17-18.30 í
safnaðarheimilinu, Linnetstíg 6.
Vídalínskirkja. Opið hús fyrir eldri
borgara í Kirkjuhvoli milli kl. 13-16
alla þriðjudaga í sumar.
Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir 8-9
ára böm kl. 17-18.30. Aftansöngur
og fyrirbænir kl. 18.30.
Ilafnarfjarðarkirkja. TTT starf fyr-
ir 10-12 ára kl. 17-18.30 í Vonarhöfn
Strandbergs. Kristin íhugun í Stafni,
Kapellu Strandbergs kl. 21.30-22.
Grindavíkurkirlga. Foreldramorg-
unn kl. 10-12.
Borgarneskirlga. Mömmumorgunn
í safnaðarheimilinu milli kl. 10 og 12.
Helgistund í kirkjunni sömu daga kl.
18.30.
Keflavíkurkirkja. Kirkjan opin kl.
14-16. Starfsfólk verður á sama tíma
í Kirkjulundi. Fermingamndirbún-
ingur kl. 14.30-15.55 í Kirkjulundi.
Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl.
16 kirkjuprakkarar. Krakkar úr
2.-4. bekk. Kl. 17 „Litlir lærisvein-
ar“. Söngæfing.
Hvítasunnukirkjan Ffladelfía.
Fyrsta samvera vetrarins á vegum
systrafélagsins kl. 20. Asta Hjálm-
arsdóttir flytur hugleiðingu. Allar
konur hjartanlega velkomnir.
Útsölumarkaður
Faxafeni 14, 2. hæð
Gluggatjöld, blúndur, borðdúkar,
handklæði, rimlagardínur, sængurverasett.
Mjög ódýrt. Verð frá kr. 100 á. metra.
brautir &
gluggatjöld
* "'N- » Faxafeni 14, 533 5333.
Meiriháttar
pelsulpur
með hettu
Mörg snið
Stuttar og síðar
pelskápur
Verð frá kr. 9.900
Opið laugard. 10-16.
\<#Htfl5ID
Mörkinni 6, sími 588 5518.
í DAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Steikhús Rauð-
ará einstakt
veitingahús
EKKI er langt síðan að í
Velvakanda var háð mikil
ritdeila um veitingahúsið
Bing Dao á Akureyri og
sýndist þar sitt hverjum.
En af því að oft gleymist
að geta þess sem gott er
þó hitt sé vandlega tíundað
vil ég benda fólki á Steik-
húsið Rauðará. Þangað
bauð ég konunni minni á
dögunum og er skemmst
frá því að segja að kvöldið
var einstakt í alla staði.
Tíu ára dóttir okkar var
með okkur og sinntu þjón-
arnir henni af einstakri al-
úð. Þeir blönduðu handa
henni óáfengan kokkteil og
færðu henni til að barninu
gæti fundist það vera með
þegar fullorðna fólkið
drakk sína fordrykki.
Maturinn var mjög góð-
ur og þjónustan einstak-
lega lipur. Þetta var í
fyrsta sinn sem við upp-
lifðum að kokkurinn kom
sjálfur fram úr eldhúsinu
til spyrja hvort allt hefði
verið eftir okkar óskum.
Fyrir svo utan það að stað-
urinn er óskaplega falleg-
ur og hlýlegur. Þar er eig-
inlega ekki hægt annað en
að finnast maður velkom-
inn. Við hjónin þökkum
starfsfólki Steikhússins
Rauðará kærlega fyrir
okkm-.
Guðmundur Bárðarson,
Bólstaðarhlíð 54.
Pij ónaveðurspá
ÁHUGAMAL era marg-
vísleg á Islandi. Eitt er þó
nokkuð fjölmennt en það
er prjónaskapur. Prjóna-
blaðið Yr á góða hagyrta
vinkonu sem sett hefur
saman prjónaveðurspá
sem gæti nýst prjónafólki
um land allt jafnfiramt því
að hafa smá skemmtana-
gildi.
Prjónaveðurspá Unnar
Halldórsdóttur fyrir næst-
komandi helgi. Byggt á
fjöldægraspá Veðurstofu
Islands.
Sólin mun hér syðra sjást,
og senda geislatóna.
En kalt er úti og kannski skárst,
að keppast við að prjóna.
Á Norðurlandi eflaust él
einhvers staðar lenda.
I lopapeysu ég lykkjur tel
og lausa hnýti enda.
Vestur á fjörðum fennir smá,
þó fjúki vart til baga.
Pijónablað ég panta þá
og prjóna flesta daga.
Austfirðingar finna frost
og fara í kuldaskóna.
Þeir eiga líka annan kost:
inni að sitja og pqóna.
Prjónablaðið Yr,
Auður Kristinsdóttir.
Tapað/fundið
Poki með borðbúnaði
týndist í Kringlunni
POKI með stálborðbúnaði
týndist á bílastæðinu við
Kringluna, efra stæðinu
fyrir 2 vikum. Skilvís finn-
andi hafi samband í síma
553 1822 eftir kl. 18.
GSM-sími týndist
GSM-sími, Ericson GA-
628, blár að framanverðu, í
svörtu leðurhulstri með
áletruninni Bessy, týndist
aðfaranótt 8. ágúst líkleg-
ast í miðbænum eða í
Kópavogi. Skilvís finnandi
hafi samband í síma
586 2025 eða 5100-305.
GSM-sími í óskilum
GSM-sími fannst við versl-
unarmiðstöð, Háaleitis-
braut 58 sl. föstudag. Upp-
lýsingar í síma 892 0127.
Adidas úlpa
týndist
TÝNST hefm- blá Adidas
úlpa í Borgarholtsskóla
miðvikudaginn 14. októ-
ber. Þeir sem upplýsingar
geta gefið vinsamlega hafi
samband í síma 567 2682
eða 587 1320. Fundarlaun.
Dýrahald
Páfagaukur týndist
í Kópavogi
LJÓSBLÁR og ljósbrúnn
páfagaukur flaug út út
gluggann að Túnbrekku 2 í
Kópavogi sl. fóstudag. Þeir
sem hafa orðið hans varir
hafi samband í síma
554 5748.
BRIDS
IJinsjón (iuðmiindiir
Páll Arnarsaii
EFTIR opnun vesturs á
einum spaða, verður suður
sagnhafi í sex hjörtum. Ut-
spil vesturs er spaðakóng-
ur:
Norður
AÁG4
V KD74
♦ ÁK84
* G10
Suður
A —
VÁG10853
♦ DG62
*K43
Hvernig er best að spila?
Eftir opnun vesturs er
sennilegt að hann eigi ÁD í
laufi, svo það er ekki líklegt
til árangurs að drepa á
spaðaás og svína svo lauf-
gosa síðar. Þess í stað ætti
suður að trompa fyrsta
slaginn og taka síðan alla
slagina sína í rauðu litun-
um:
Norður
* ÁG4
V KD74
♦ ÁK84
*G10
Vestur Austur
* KD10973
V 92
♦ 7
*ÁD85
Suður
* 8652
V 6
* 10953
* 9762
* —
V ÁG10853
♦ DG62
* K43
í þiggja spila lokastöðu á
blindur ÁG í spaða og lauf-
gosa, en heima er sagnhafi
með K43 í laufi. Vestur er
annað hvort með Dx í spaða
og laufás blankan, eða
staka spaðadrottningu og
ÁD í laufi. Og sagnhafi hag-
ar spilamennsku sinni í
samræmi við það: Sendir
vestur inn á blankan laufás
til að spila í gegnum spaða-
gaffalinn, eða fellir spaða-
drottninguna.
HÖGNI
HREKKVÍSI
Víkverji skrifar...
SL. LAUGARDAG var opnað
þýzkt menningarsetur í
Reykjavík, sem augljóslega starfar
á grunni Goethestofnunarinnar,
sem lögð var niður skv. ákvörðun
þýzkra stjórnvalda á síðasta ári.
Jafnframt er ljóst, að hið nýja
menningarsetur verður starfrækt
með umtalsverðum stuðningi
þýzkra aðila. En miðað við þær
fréttir, sem birtust hér í blaðinu
um helgina, fer tæpast á milli
mála, að mikil áherzla verður lögð
á endurreisn Goethestofnunar á
Islandi og miklar vonir bundnar
við, að hinn nýi kanslari Þýzka-
lands, Gerhard Schröder, muni
beita sér fyrir því, þar sem hann
kynntist aðstæðum hér á síðasta
ári.
Það er afar mikilvægt fyrir okk-
ur Islendinga að efla tengsl okkar
við Þýzkaland. Þjóðverjar eru lang
öflugasta ríkið í Evrópu og verða
það um ókomin ár. Þeir hafa öðr-
um Evrópuþjóðum fremur sér-
staka tilfmningu fyrir Islandi,
sögu þjóðarinnar og menningu. Að
sumu leyti má segja, að Þjóðverjar
séu með_ sínum hætti helztu aðdá-
endur íslendinga og íslenzkrar
menningar í Evrópu.
Þessi vinátta Þjóðverja í okkar
garð er mikilvæg og við eigum að
rækta þau vináttutengsl. Þess
vegna eigum við sjálfir að leggja
áherzlu á að efla menningartengsl-
in við Þýzkaland en gera ekki bara
kröfu um að Þjóðverjar sjái um
þau.
XXX
ISAMTALI, sem birtist við
Frosta Bergsson framkvæmda-
stjóra tölvufyrirtækisins Opinna
kerfa hf. í sunnudagsblaði Morgun-
blaðsins, sagði Frosti m.a.: „Þegar
við metum svona þekkingarfyrir-
tæki, raunveruleg verðmæti þess,
er ljóst, að þau eru í starfsfólkinu“
Þetta eru athyglisverð ummæli
og minna á orð, sem heimskunnur
fjölmiðlakóngur lét falla fyrir
nokkrum árum er hann sagði við
viðmælanda sinn, að helzta „eign“
fyrirtækja hans gæti gengið í
burtu hvenær, sem væri, en það
væru starfsmennirnir.
í eina tíð töluðu menn kannski á
þennan veg á tyllidögum, þegar
þeir vildu sýna starfsmönnum sín-
um kurteisi en nú á tímum er alveg
ljóst, að ummæli Frosta Bergsson-
ar lýsa veruleikanum í starfsemi
fjölmargra fyrirtækja. Velgengni
þeirra byggist á því, að þeim hefur
tekizt að ná saman samstilltum
hópi vel menntaðra og þjálfaðra
starfsmanna. En þessi „verðmæti"
geta gengið út hvenær sem er, eins
og fjölmiðlakóngurinn sagði.
XXX
ENN greinir menn á um það á
Vesturlöndum, hvort alvarleg
heimskreppa sé framundan. Einn
er þó sá maður, sem telur skyn-
samlegt að hafa vaðið fyrir neðan
sig í þeim efnum, en það er Rupert
Murdoch, sem rekur fjölmiðlafyrir-
tæki í nánast öllum heimshlutum.
A ársfundi fyrirtækis síns í síðustu
viku lýsti hann áhyggjum yfir
ástandinu og kvaðst mundu sitja á
því peningafjalli, sem hann hefur
komið upp og ekki hyggja á frekari
fjárfestingar að sinni.