Morgunblaðið - 20.10.1998, Side 60

Morgunblaðið - 20.10.1998, Side 60
-* 60 ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Hrafn Gunnlaugsson Sunnudagur í sveitinni Sagan komin aft- ur í kvikmyndir EVRÓPSKA kvikmyndaakademían og Soros-stofnunin í New York bauð Hrafni Gunnlaugssyni, kvik- myndagerðarmanni og leikstjóra, á málstofu um kvikmyndir um síðustu helgi í Austurríki undir yfirskrift- inni „Sunnudagur í sveitinni“. Fyrst á heimili Zanussi Fyrst var efnt til málstofu af þessu tagi árið 1995. Þá var gest- gjafinn pólski leikstjórinn Krzysztof Zanussi sem býr í grennd við Var- sjá. Ari síðar fór málstofan fram á heimili ítalska leikstjórans Er: manno Olmi í Bassano del Grappa. í fyrra var svo hist á heimili Henn- ings Carlsens í Kaupmannahöfn og var málstofan haldin í Evrópska kvikmyndaskólanum í Ebeltoft. A þessu ári fór málstofan fram á heimili framleiðandans Michaels von Wolkensteins í Gmunden við Traunsee í Austurríki. Þangað mættu tíu ungir kvikmyndagerðar- menn frá jafn mörgum löndum sem áttu það sameiginlegt að hafa gert eina til tvær kvikmyndir. Fjörugar umræður En hvaða menn voru þetta? „Þremur meðlimum kvikmynda- akademíunnar er boðið í hvert skipti og eru það leikstjóri, fram- leiðandi og dreifíngaraðili," segir Hrafn Gunnlaugsson. „Þarna voru einnig ungir leikstjórar frá Frakk- landi, Belgíu, Þýskalandi, Búlgaríu, Georgíu, Króatíu, Englandi, Grikk- landi, Mongólíu og Hvíta-Rúss- landi.“ UNGLEG Á AUGABRAGÐI Morgunblaðið/Jón Svavarsson Hrafn Gunnlaugsson Og hvað var rætt í málstofunni? „Þessir ungu leikstjórar eru fyrst og fremst að hitta einhverja eldri í faginu og spyrja þá spjörunum úr,“ segir Hrafn. „Ég sýndi kafla úr þeim myndum sem ég hef gert og þeir sýndu mér úr sínum myndum. Svo skiptust menn á skoðunum og það sköpuðust fjörugar umræður. - Þetta var mjög skemmtilegt." Boðið á dularfulla staði Lærðirðu eitthvað áþessu? „Ég var nú í kennarahlutverk- inu,“ svarar Hrafn. „En það er rétt að maður lærir alltaf á að hlusta á ungt fólk. Þetta er eins og tennis. Maður gefur boltann og fær hann aftur. Að sama skapi fékk ég ýmsar skemmtilegar hugmyndir. En það sem stóð upp úr voru heimboð til Sofíu í Búlgaríu og Morgunblaðið/Ásdís FRÁ tökum á Myrkrahöfðingjanum, Tbílísí í Georgíu. Þetta eru h'klega einu forréttindin sem fylgja kvik- myndaleikstjórn. Ef vel gengur er manni boðið á dularfulla staði. Ynd- islegast var að vera boðið á kvik- myndahátíð í Alexandríu í Grikk- landi með Hin helgu vé á sínum tíma. Þar þótti myndin jafnvel enn djarfari en japanska myndin Veldi tilfinninganna þótti hér á landi. En ég hlakka til að fara til Tbfíísí." Hvert stefna ungir kvikmynda- gerðarmenn í Evrópu? „Það sem mér fannst mjög skemmtilegt er að sagan virðist vera að koma aftur í kvikmyndina, - að segja sögu. Þetta hefur verið hálfgert vídeóflipp undanfarin ár og maður var alveg hættur að botna í sögunni. Allt var lagt upp úr því að hafa myndina hátimbraða og heimspekilega. Mér fínnst virðingin fyrir því að geta sagt sögu svo allir skilji vera farin að dúkka upp aftur. Upp úr 1968 voru aðallega gerðar pólitískar myndir þar sem allir vildu frelsa heiminn. Upp úr 1980 kom einhver bylgja þar sem kvikmyndir áttu helst ekki að líkjast kvikmynd- um. En nú er sagan komin í hring. Þess vegna hafði þetta unga fólk áhuga á myndum á borð við Hrafn- inn flýgur, Óðal feðranna og Hin helgu vé. Allt eru þetta tiltölulega skýrar sögur.“ Myrkrahöfðingi eftir áramót Hvernig gengur vinna við Myrkrahöfðingjann ? „Ég er núna að vinna að því að klippa myndina.“ Og hvenær verður myndin frum- sýnd? „Einhvern tíma upp úr áramótum. Maður má ekki flýta sér of mikið. Það getur rýrt gæði myndarinnar." Þú klippir þá myndina sjálfur? „Já, ég hef alltaf klippt mínar myndir sjálfur." „Er það?“ segir blaðamaður hugsi, en fær ekki að klára hugsanir sínar. „Svo á ég eftir að semja tónlist- ina,“ segii- Hrafn. „Nú, semurðu hana líka?“ spyr blaðamaður og fær ekki leynt undr- un sinni. „Já, ég hef hingað til búið til drög að tónlistinni og fengið tónskáld til að vinna úr þeim. En tæknin er orðin þannig að maður getur allt eins klárað þetta sjálfur,“ segir Hrafn. Að því búnu kveður hann enda nóg af verkefnum framundan og Tbílísí handan sjóndeildar- hringsins. MYNDBÖND / A vegum úti Á flótta (Black Cat Run) S |i e n n u iii v n il ★★ Framleiðandi: Bobby Shriver. Leik- stjóri: D.J. Caruso. Handritshöfund- ur: Frank Darabont. Kvikmyndataka: Bing Sokolsky. Aðalhlutverk: Patrick Muldoon, Amelia Heinle og Jake Bus- ey. (90 mín.) Skífan, október 1998. Bönnuð innan 16 ára. Á FLÓTTA er dæmigerð mynd sinnar tegundar og nægir að líta á hulstrið til að sjá um hvað er að ræða, þ.e. stíl- færða spennu- mynd með tar- antínsku ofbeldi og blúsuðum gít- arleik í bakgrunni. Sagan hefst í smábæ í Arizona, þar sem lágstétt- arpilturinn Johnny Del Grimsson verður fyrir aðkasti lög- regluyfíiwalda fyrir að eiga í sam- bandi við dóttur lögreglustjórans í óþökk hans. Þegar flóttafangar myrða lögreglustjórann og taka stúlkuna sem gísl fellur Johnny undir grun. Hefst þá eltingaleikur á vegum úti, þar sem Johnny eltir ræningjana og lögreglan Johnny. Margt er ágætlega gert í mynd- inni, en hér er ekkert nýtt á ferðinni. Stíll, atburðarás og per- sónusköpun (einn glæponinn er t.d. geðtruflaður kynferðisglæpamað- ur) era gamlar tuggur. Þótt hand- ritið sé víða heimskulegt næst fram góður hasar og ætti að þjóna kröf- um blóðþyrstra spennufíkla ágæt- lega. Heiða Jóhannsdóttir $uaoi-N CHANCl: Anti-WRINKLE Under-Eye Smoother wfi 00' Insionliy romovos CuWn*“-a'»atWiWd»s look yeas Yo,m Fæst í flestum apótekum Myndsaumur Sérmerktar HÚFUR OG HANDKLÆÐI Afslátturtil 15. nóvember. myndalista. Fáið sendan Hellisgata 17 220 Hafnarfjörður Sími 565 0122 www.if.is/myndsaumur BÍÓIN í BORGINNI Sæbjörn Valdimarsson/ Arnaldur Indriðason Hildur Loftsdóttir BÍÓBORGIN A Perfect Murder kkk Peningar og framhjáhald trylla ástarþríhyrninginn. Ur því verður fín spennumynd sem sífellt vindur uppá sig og kemur skemmtilega á óvart. The Horse Whisperer ★★★!4 Falleg og vel gerð mynd á allan hátt, sem lýsir kostum innri friðar í sam- hljómi við náttúruna og skepnur. Töfrasverðið ★★ Warner-teiknimynd sem nær hvorki gæðum né ævintýrablæ Disney- mynda. Hope Floats ★★14 Þekkilegt fjölskyldudrama og átaka- mikið á stundum. Gena Rowlands stelur senunni. SAMBÍÓIN, ÁLFABAKKA Primary Colors ★★★Í4 Nichols og May eiga stórkostlegan dag, kvikmyndagerð þeirra eftir metsölubók um kosningabaráttu Clintons (leynt og ljóst), er fyndin, dramatísk og skynsamleg innsýn í ósvifna valdabaráttu og mannlega bresti á æðstu stöðum. Magnaður leikhópur túlkar litríkar persónur. Ein besta mynd ársins. Kærður saklaus ★★ Sæmilegasta skemmtun, gerir grin að bíómyndum dagsins. Það þarf giæinilega Leslie Nielsen í þessar myndir. Daprast flugið eftir hlé. A Perfect Murder kkk Peningar og framhjáhald trylla ástarþrihyrninginn. Ur því verður fín spennumynd sem sífellt rúllar uppá sig og kemur skemmtilega á óvart. Dagfinnur dýalæknir ★★14 Skemmtilega klúr og hressileg út- gáfa af barnaævintýrum Loftings öðlast nýtt líf í túlkun Eddir Murp- hys og frábærri tölvuvinnu og tal- setningu. Töfrasverðið kk Warner-teiknimynd sem nær ekki gæðum né ævintýrablæ Disney- mynda. Mafía! k'A Oft brosleg en sjaldan hlægileg skopstæling á Mafíumyndum (eink- um Guðfóðurnum og Casino), eftir Jim Abrahams, höfund Airplane og Naked Gun, sem nær ekki flugi að þessu sinni. The Mask ofZorro ★★1/2 Húmorískt og dramatískt ævintýri um þróttmiklar hetjur sem er mest í mun að bjarga alþýðunni frá yfirboð- urunum vondu. Banderas og Zeta- Jones eru glæsilegai- aðalpersónur. Godzilla ★★!/■ Ágætt þrjúbíó fyrfr alla aldurshópa. Skrímslið sjálft vel úr garði gert en sagan heldur þunnildisleg. Lethal Weapon 4 ★★1/2 Gaman, gaman, hjá Gibson og Glover og áhorfendur skemmta sér með. HÁSKÓLABÍÓ Primary Colors ★★★1/2 Nichols og May eiga stórkostlegan dag, kvikmyndagerð þeiira eftir metsölubók um kosningabaráttu Clintons (leynt og ljóst), er fyndin, dramatísk og skynsamleg innsýn í ósvífna valdabaráttu og mannlega bresti á æðstu stöðum. Magnaður leikhópur túlkar litríkar persónur. Ein besta mynd ársins. Smáir hermenn -k-k'/z Allt fer á annan endann þegar stríðs- leikföng fara á stjá. Hugvitsamlega gerð og skemmtileg lítil stríðsmynd. Dansinn kk'/i Nett og notaleg kvikmyndagerð smásögu eftir Heinesen um af- drifaríka bráðkaupsveislu í Færeyj- um á öndverðri öldinni. Skilur við mann sáttan. Björgun óbreytts Ryans kkkk Hrikaleg andstríðsmynd með tráverðugustu hernaðarátökum kvikmyndasögunnar. Mannlegi þátt- urinn að sama skapi jafn áhrifaríkur. Ein langbesta mynd Spielbergs. Talandi páfagaukurinn Paulie kk Skemmtilega samsettur leikhópur með Tony Shaloub í fararbroddi bjai'gar miklu í einkennilegri mynd um dramatískt lífshlaup páfagauks. Gallinn sá að myndin er hvorki fyrir börn né fullorðna. Sporlaust ★★★ Skemmtileg mynd þar sem sam- félagslega hliðin er áhugaverðari en glæpasagan. KRINGLUBÍÓ Kærður saklaus kk Sæmilegasta skemmtun, gerir grín að bíómyndum dagsins. Það þarf greinilega Leslie Nielsen í þessar myndir. Daprast flugið eftir hlé. A Perfect Murder ★★★ Peningar og framhjáhald trylla ástarþríhyrninginn. Úr því verður fín spennumynd sem sífellt vindur uppá sig og kemur skemmtilega á óvart. The Horse Whisperer kkk'Æ Falleg og vel gerð mynd á allan hátt, sem lýsfr kostum innri friðar í sam- hljómi við náttúruna og skepnur. Töfrasverðið ★★ Warner-teiknimynd sem nær hvorki gæðum né ævintýrablæ Disney- mynda. LAUGARÁSBÍÓ Species llkk Skrímsli úr geimnum vill leggja und- ir sig jörðina með þvi að dreifa sæði sínu sem víðast. Mynd í anda Alien sem höfðar til frumhvata mann- skepnunnar. The Mask ofZorro kk'A Húmorískt og dramatískt ævintýri um þróttmiklar hetjur sem er mest í mun að bjarga alþýðunni frá yfirboð- urunum vondu. Banderas og Zeta- Jones eru glæsilegar aðalpersónur. Sliding Doors kk'h Frískleg og oft frumleg og vel skrifuð rómantísk gamanmynd um þann gamla sannleika: Lífíð er eitt stórt ef. REGNBOGINN Kærður saklaus kk Sæmilegasta skemmtun, gerir grín að bíómyndum dagsins. Það þarf greinilegas Leslie Nielsen í þessar myndir. Daprast flugið eftfr hlé. Dagfinnur dýalæknir kk'A Skemmtilega klúr og hressileg út- gáfa af barnaævintýrum Loftings öðlast nýtt líf í túlkun Eddir Murp- hys og frábærri tölvuvinnu og tal- setningu. Phantom kk Bíóútgáfa sögu eftir Dean Koontz fer ágætlega af stað en hrakar eftfr því sem á líður. Peter O’Toole óvæntui’ gestur. The X Files kk'A Ágæt afþreyingannynd en dregur of mikinn dám af sjónvarpsþáttunum. Vantar sjálfstætt líf. Blómálfarnir k Fallega gerð mynd um fallega „sanna“ sögu en virkar vart fyrir börn. STJÖRNUBÍÓ Hinn eini sanni Howard Spitz kk Kelsey Grammer á góða spretti sem mannleysa sem skrönglast inná rétta bylgjulengd með hjálp lítillar telpu. Grínið dettui’ of oft niður í hæga- gang sem skrifast á leikstjórnina. The Mask ofZorro kk'?2 Húmorískt og dramatískt ævintýri um þróttmiklar hetjur sem er mest í mun að bjarga alþýðunni frá yfirboð- urunum vondu. Banderas og Zeta- Jones eru glæsilegar aðalpersónur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.