Morgunblaðið - 20.10.1998, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998 61
Stutt
Jón Viðar
a nyjum
vettvangi
► “ÉG GEF fyrir tækni,“ segir
Margrét Vilhjálmsdóttir.
„Eg gef fyrir þráð,“ segir
Hrefna Jónsdóttir.
„Og fyrir hvað gefur þú, Jón
Viðar?“ spyr
Hjálniar
Hjálmarsson,
stjórnandi leik-
hússportsins.
„Skemmtun,"
svarar Jón Viðar
Jónsson, formaður
dómnefndar, og
stekkur ekki bros
á vör.
Þannig hófst
Leikhússport í
Iðnó um síðustu helgi. Hjálmar
gefst ekki upp og spyr Jón Viðar:
„Hvernig líst þér á kvöldið?"
„Bærilega."
Eftir því sem líður á kvöldið
lyftist þó brúnin á Jóni Viðari og
gefur hann sigurliðinu Spuna 2000
fullt hús stiga fyrir skemmtana-
gildi í einu atriðinu.
Þá var hópurinn að svara áskor-
uninni „besta stórslysaatriðið" og
ákvað að leika atriðið í stíl nútíma-
balletts. Áhorfandi úr salnum valdi
titilinn frumlega „Titanic“. Ingrid
Jónsdóttir átti stórleik sem stefni
skipsins og Sveinn Geirsson sem
risavaxinn ísjaki. Aðrir í sigur-
liðinu voru Stefán Jónsson liðs-
stjóri og Vala Þórsdóttir.
Skúli Gautason fékk áminningu
dómara fyrir ósiðlegt orðbragð og
var utan leiksviðs í tvær mínútur
með ruslakörfu á höfðinu. Næsta
leikhússport verður mánu-
dagskvöldið 28. október og verður
tdkynnt innan skamms hver verð-
ur gestadómari, en hingað til hafa
þeir m.a. verið Sigurður Sigur-
jónsson og Gx'sli Rúnar Jónsson
ásamt Jóni Viðari.
Það er komið hlé og Jón Viðar
er spurður hvermg honum lítist á
seinni hálfleik. „Það getur ekki
versnað ...“
Slurpinn
fær rós í
hnappagatið
►Á MÁLÞINGI norrænu heimild-
ar- og stuttmyndahátíðarinnar
Nordisk Panorama lét kvikmynda-
gerðarmaðurinn Mai-k Cousins,
sem stjórnar kvikmyndaþættinum
Moviedrome á BBC og var áður
framkvæmdastjóri Kvikmynda-
hátíðarinnar í Edinborg, fögur orð
falla um íslensku stuttmyndina
Slux-pinn & Co.
Cousins byrjaði á því að telja upp
nokkrar stuttmyndir og þegar kom
að Slurpanum sagðist hann þegar
hafa dáðst að myndinni. „Alveg frá
upphafi ... geislaði þessi íslenska
mynd af sjálfstrausti." Hann sagði
að hún væri einna best stílfærð á
hátíðinni.
„Myndin er ein óklippt taka eins
og stuttmyndir bandaríska framúr-
stefnuleikstjórans Michaels Snow.
A móti kemur að hún er samofin til-
finningu Freds Astaire og Cyds
Charisse. Slurpinn & Co. er nánast
einstök. Maður grípur andann á
lofti í þessari einu töku, eins og
alltaf í löngum tökum. Þetta er
fyrsta verk „cinephiliu", löngunai--
innar eftir kvikmyndum, sem ég hef
séð. Og hún gerir nokkuð sem er
fátítt; maður verður jafn meðvitað-
ur um það sem fi-am fer bakvið
myndavélina og fyrir framan.“
FOLK í FRÉTTUM
SUSAN Miska og Gréta Ólafs-
dóttir gerðu heimildarmynd um
Brandon Teena.
Saga Brandon
Teena í
kvikmynd
HILLARY Swank, sem lék í mynd-
unum „The Next Karate Kid“ og
„Buffy the Vampire Slayer“, hefur
tekið að sér aðalhlutverkið í mynd-
inni „Take It Like a Man“. Drew
Barrymore er einn af fi-amleiðend-
um myndarinnai-. Tökur hefjast í
október og fjallar myndin um konu
frá Nebraska sem lifði lífi sínu sem
karlmaður og átti kærustur. Hún
mætti miklum fordómum og var að
lokum myi-t. Heimildamyndin Saga
Brandon Teena, sem fjallar um sömu
konu, er sýnd í kvikmyndahúsum
vestanhafs um þessai- mundir. Leik-
stjórar hennar eru þær Gréta Ólafs-
dóttir og Susan Miska. Hún var valin
besta heimildamyndin á Kvikmynda-
hátíðinni í Berlín í vetur.
Coppola tapar 4,5
milljarða skaðabótum
ÞAÐ ER skammt stórra högga á
milli hjá bandaríska kvikmynda-
leikstjóranurn Francis Ford
Coppola.
Honum vorix dæmdir 6 milljarð-
ar króna í skaðabætur í júlí
siðastliðnum frá kvikmyndaver-
inu Wanier Brothers á þeim for-
sendum að kvikmyndaverið hefði
hindrað hann í að gera leikna
kvikmynd um spýtukarlinn Gosa.
Var það dæmt til að greiða 1,5
milljarða króna skaðabætur fyrir
að uppfylla ekki samninginn og
4,5 milljarða króna fyrir að meina
öðrum samstarf við Coppola á
þeim forsendum að hann væri
samningsbundinn þeim.
Nú í vikunni breytti hæstiréttur
í Los Angeles dómnum í 20 millj-
óna dollara skaðabætur vegna
þess að engin merki hefðu verið
um að framkoma kvikmyndavers-
ins, þegar það hindraði samstarf
Coppola við önnur fyrirtæki,
hefði verið glæpsamleg.
Báðir aðilar ætla að áfrýja og
segist Coppola gei'a ráð fyrir að
það taki tvö ár að fá endanlegan
úrskurð í málinu.
Mikið af
nýjum vörum
Apaskinnsjakkarnir
komnir aftur
eterna
—EXCEUENT—
femi
GARÐURINN
-klædirþigvel
Otrúlegur heimur vísmdanna
I hverju tölublaði Lifandi vísinda getur þú lesið fjöldann allan af skemmtilegum og
spennandi greinum úr heimi vísindanna. Greinarnar eru skrifaðar af fagmönnum
og myndskreyttar með myndum teknum af bestu ljósmyndurum heimsins. Eins
fylgja oft teikningar sem skýra jafnvel flóknustu hluti á einfaldan hátt.
Þrjú tölublöð Lifandi vísinda og gullfallegt úr,
færð þú á ótrúlegu verði aðeins kr. 1.795.-
I
Hringið núna í síma 881 2061 - 881 206