Morgunblaðið - 20.10.1998, Side 68
Atvinnutryggingar
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Héldu á
tindinn
"* í nótt
ÍSLENSKU fjallgöngumennii'nir úr
björgunarsveitinni Fiskakletti í Hafn-
arfirði lögðu til atlögu við tind Ama
Dablam í nótt og hafa náð takmarki
sínu í morgun ef áætlun þeirra hefur
staðist.
Síðdegis í gær var erfiðasti hluti
leiðarinnar að baki. Frá þriðju og
jafnframt síðustu búðum héldu fjall-
göngumennirnir af stað á tindinn kl.
12 á miðnætti í nótt og áttu þá ófama
leið, sem tekur 4-6 klukkustundir, á
tind Ama Dablam. Með í forinni er
Nick Kekos leiðangursstjóri, sem vai-
aðstoðarleiðangursstjóri í Everest-
leiðangrinum í fyrra, og Ang Babu
sem var shirdar, æðsti maðurinn í
hópi sherpa, í sama leiðangri.
„Þegar á toppinn er komið er leiðin
aðeins hálfnuð því leiðin niður þykir
oft 61450311 en uppleiðin. Það er vegna
þess að menn nota oft allt sitt þrek til
að komast á toppinn. Þegar þangað
er komið verður spennufall og þreyt-
an biýst út en allir eru strákarnir í
góðu formi þannig að þetta ætti ekki
að koma að sök,“ segir í nýjasta
skeyti úr grunnbúðum.
----------------
V erslunarmanna-
félag Arnessýslu
Dró sér fe
með ólög-
mætum hætti
FJÁRMAL Verslunarmannafélags
Amessýslu eru nú til sérstakrar
skoðunar þar sem komið hefur í ljós
og verið staðfest að formaður félags-
ins hefur tekið sér fé úr sjóðum
félagsins með ólögmætum hætti.
Hefur formaðurinn látið af störfum
vegna þessa máls.
Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, for-
maður Landssambands íslenskra
verslunarmanna, staðfesti þetta í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Málið er til meðferðar á vettvangi
verslunarmannafélagsins og hefur
verið ákveðið að boða til aðalfundar í
félaginu. Verður fundurinn væntan-
lega haldinn um miðja næstu viku.
Morgunblaðið/Kristj án
Naglarnir settir
undir nyrðra
TÖLUVERT snjóaði á Akureyri um
helgina og urðu fjölmörg umferð-
aróhöpp af þeim sökum, enda
margir bfleigendur enn á sumar-
dekkjunum.
Á sunnudag skráði lögi-eglan níu
árekstra og þegar komið var vel
fram á gærdaginn hafði lögreglan
skráð fjögur umferðaróhöpp til
viðbótar. Ekki urðu nein slys á fólki
í þessum óhöppum en töluvert
eignatjón. Það snjóaði bæði aðfara-
nótt sunnudags og aðfaranótt
mánudags og þegar bæjarbúar
héldu út í gærdaginn var um 10-15
cm jafnfallinn snjór í bænum. Á
dekkjaverkstæðum bæjarins var
mikið um að vera og þar biðu
margir bfleigendur eftir því að geta
skipt yfir á vetrardekkin.
Verktakar í tækjaleit fyrir RTJV
Gestirnir villtu
á sér heimildir
KONA, sem tók nýlega með sér
sjónvarpstæki til landsins frá
Italíu, fékk fyrir skemmstu
heimsókn til sín í Breiðholtið um
kvöld. Gestimir kváðust vera
starfsmenn Félagsvísindastofnun-
ar Háskóla Islands. Þeir báðu kon-
una að taka þátt í skoðanakönnun
og varð hún við því.
„Starfsmenn Félagsvísinda-
stofnunar" spurðu konuna hverrar
gerðar sjónvarpstæki hennar væri
og hver væri eigandi þess. Hún
svaraði spurningunum skilmerki-
lega í þeirri trú að verið væri að
vinna að gerð könnunar af ein-
hverju tagi. Þegar mennirnir
höfðu skráð svör hennar niður á
blað sneru þeir því við og kom þá í
ljós að það var merkt innheimtu-
deild Ríkisútvarpsins. Þeir báðu
konuna að lesa blaðið yfir og skrifa
undir. Réttur tilgangur mannanna
var því að leita að óskráðum sjón-
varpstækjum en ekki að gera
skoðanakönnun.
Pétur Matthíasson, yfirmaður í
innheimtudeild Sjónvarpsins, segir
að þetta séu vinnubrögð sem stofn-
unin hafi barist gegn. Stofnunin
ráði verktaka til þess að sinna leit
að óskráðum tækjum á íslenskum
heimilum.
Pétur sagði að viðbrögð inn-
heimtudeildarinnar yrðu þau að
ítreka enn á ný að þetta mætti
ekki gerast. „Við erum reyndar að
skoða tækjaleitarmálin í heild
sinni og erum með í undirbúningi
að setja harðari reglur, sem þeir
sem sinna þessu starfi verða að
fylgja. En þetta hefur verið
vandamál og við höfum reynt að
bregðast við því. Þetta eru alls
ekki vinnubrögð sem við líðum,“
sagði Pétur.
Formaður launanefndar sveitarfélaga segir óánægju vegna hækkana kennara
TL
Erfitt að sjá hvort samningar
við starfsmannafélög halda
FORMAÐUR launanefndar sveitarfélaga segir
launahækkanir sem einstök sveitarfélög hafa
veitt kennurum í kjölfar hópuppsagna valda
mikilli óánægju hjá starfsmönnum sveitarfélaga
sem eru í starfsmannafélögum og verkalýðs-
félögum.
Telur hann erfitt að segja til um hve lengi
samningar við starfsmannafélögin muni halda
og veltir því fyrir sér hvort sveitarfélögin eigi að
hætta því að koma fram sem einn aðili við kjara-
samninga við grunnskólakennara.
Launanefnd sveitarfélaga hélt kynningarfund
fyrir sveitarstjórnarmenn á Suðurlandi um
helgina og fyrirhugaðir eru sams konar fundir á
öðrum svæðum á næstunni. Karl Björnsson,
bæjarstjóri Árborgar, formaður launanefndar-
innar, segir að tilgangur fundanna sé að kynna
starfsemi nefndarinnar en þó aðallega að heyra
sjónarmið sveitarstjórnarmanna í þeim sveit-
arfélögum og samtökum sem veitt hafa nefnd-
inni umboð til kjarasamningagerðar.
I erindi sínu á fundinum fór Karl yfir stöðu
mála og rifjaði upp að í síðustu kjarasamningum
hefði verið samið við starfsmannafélög um 16%
launahækkun á sama tíma og kjarasamningar
leikskólakennara skiluðu þeim 27% hækkun og
samningar við grunnskólakennara leiddu til 36%
launahækkunar. Þó væru kennarar enn í kjara-
samningaviðræðum og sumir hefðu fengið viðbót.
Hann sagði að þetta ylli mikilli óánægju hjá þeim
starfsmönnum sveitarfélaganna sem eru í starfs-
mannafélögum og almennum verkalýðsfélögum.
„í ljósi þessa er erfitt um það að segja hve lengi
samningur við starfsmannafélögin muni halda og
hversu raunhæf þessi samvinna sveitarfélaganna
um starfsmatið er. Einnig er ljóst að veik eru
orðin þau bönd sem halda saman Samfloti tutt-
ugu bæjarstarfsmannafélaga og launanefndin
hefur samið við eins og um einn aðila væri að
ræða.“
Hann sagði að sveitarfélögin yrðu að gera sér
grein fyrir næstu verkefnum og viðbrögðum af
hálfu nefndarinnar. „Við hljótum að spyrja okkur
um það hvort sveitarfélögin eigi eða yfirleitt geti
verið í miðlægu samstarfi um gerð kjarasamn-
inga við kennarafélögin eða ekki. Menn segja
einnig að sú undarlega staða sem menn eru nú í
gagnvart kennurum hefði ekki getað komið upp
ef verkefnið væri enn í forsjá ríkisins. Menn
spyrja hvort það geti virkilega reynst svo að
sveitarfélögin ráði ekki við að taka yfir frá ríki
svo umfangsmikil og viðkvæm verkefni sem
launamál gi'unnskólans eru,“ sagði Karl. Hann
sagði einnig nauðsynlegt að ræða hvort halda
ætti áfram með starfsmatið, hvort Samflotið svo-
kallaða væri á enda og hvort allar kjarasamn-
ingaviðræður væru aftur á leiðinni heim í hérað.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Pítsur send-
ar upp á fjall
SJÁLFBOÐALIÐAR, sem unnu
við uppsetningu á mastri nýrrar
skíðalyftu á Seljalandsdal við
ísafjörð á sunnudag, fengu
óvæntan glaðning þegar pítsur
og kók bárust upp með kláfferj-
unni sem notuð var við verkið.
Mastrið sem unnið var við er í
um 600 m hæð og var steypa
flutt upp með kláfferju í sflói,
alls um 700 m leið. Mennirnir
urðu að vonum fegnir þegar eitt-
hvað annað en eintóm steypa
barst upp með ferjunni og
gæddu sér á pítsunum.
Það var Steinþór Friðriksson,
veitingamaður á Pizza 67 á
Isafirði, sem sendi veitingarnar
þegar hann frétti af svöngum
sjálfboðaliðum í steypuvinnu í
sex stiga frosti og trekki uppi í
efstu fjallufsum. Steypuvinnan
tók um ellefu klukkustundir og
gekk vel miðað við aðstæður.