Morgunblaðið - 22.10.1998, Side 4

Morgunblaðið - 22.10.1998, Side 4
4 FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Árni Sæberg ATKVÆÐI talin eftir kosningu í kirkjuráð á kirkjuþingi í gær. Jón Heigason les nöfn og sr. Sigurjón Einarsson (fremst á myndinni), Gunnlaugur Finnsson og Hjalti Zophóníasson fylgjast með. Þrítugasta kirkjuþingi lauk í Háteigskirkju í gær Fimmtán starfs- reglur samþykktar Þrír nýir fulltrúar í kirkjuráði NÝTT kirkjuráð var kosið í gær á lokafundi kirkjuþings en í því sitja ásamt biskupi tveir leikmenn og tveir prestar. Það skipa nú leik- mennimir Guðmundur K. Magnús- son prófessor og Hallgrímur Magn- ússon læknir, séra Dalla Þórðar- dóttir og séra Hreinn Hjartarson. Fyrir í kirkjuráði voru Helgi K. Hjálmsson, Gunnlaugur Finnsson, séra Sigurjón Einarsson og séra Hreinn Hjartarson. Gunnlaugur og séra Sigurjón gáfu ekki kost á sér til endurkjörs. Varamenn í kirkju- ráð voru kjömir séra Halldór Gunn- arsson, séra Jakob Agúst Hjálmars- son, Jóhann Bjömsson og Helgi K. Hjálmsson, sem hlaut jafnmörg at- kvæði og Magnús Stefánsson en Helgi varð ofan á í hlutkesti. Kirkjuráð fer með framkvæmd sameiginlegra mála kirkjunnar, undirbýr fundi kirkjuþings og fylgir eftir samþykktum þess. Þá var eitt af lokaverkefnum kirkjuþings að þessu sinni að kjósa þriggja manna jafnréttisnefnd kirkjunnar sem er ný. Aðalmenn vora kjörin þau Amfríður Guð- mundsdóttir, Drífa Hjartardóttir og sr. Halldór Reynisson. Nafnið Norður- Hérað staðfest Jökuldal. Morgunblaðið. SAMEINAÐ sveitarfélag Jök- uldals-, Hlíðar- og Tungu- hrepps hefur fengið nafnið Norður-Hérað og hefur það verið staðfest af Félagsmála- ráðuneytinu. íbúar sveitarfé- lagsins völdu þetta nafn sam- hliða sveitarstjómarkosning- unum í vor í almennri skoðana- könnun er þá fór fram. Sveitarstjómin samþykkti síðan að leita eftir umsögn Ör- nefnanefndar um þetta nafn og samþykkti nefndin það fyrir sitt leyti. Nú hefur borist stað- festing Félagsmálaráðuneytis- ins á nafninu Norður-Hérað og endanlega ljóst hvaða nafn þetta nýja sveitarfélag hefur hlotið. FIMMTÁN nýjar starfsreglur voru settar á þrítugasta kirkjuþingi sem lauk í gær en þær koma í stað ým- issa laga sem falla úr gildi um næstu áramót í framhaldi af setn- ingu laga um stöðu, stjóm og starfs- hætti kirkjunnar sem tekið hafa gildi. Þá afgreiddi kirkjuþing 12 ályktanir um fjölmörg málefni. Jón Helgason, forseti kirkju- þings, sagði umfangsmestu málin hafa verið setningu reglna um kjör til kirkjuþings og þingsköp, um val á prestum og um skiptingu sókna, prestakalla og prófastsdæma. Einnig hefði verið fjallað um viða- mikil mál eins og meðferð kynferð- isbrota, jafnréttisáætlun og vímu- efnavamastefnu. Þakkaði hann ÁÆTLAÐ er að sérspár veður- þjónustu Veðurstofu fslands verði nálega tvöfalt fleiri í ár samanbor- ið við síðasta ár eða 6.800 talsins en þær vora 3.744 1 fyrra. Gert er ráð fyrir að sérspám Veðurstof- unnar fjölgi enn á næsta ári og verði 8.000 alls. Þetta kemur fram í verkefnavís- um fjármálaráðuneytisins en í því riti er að finna ýmsar árangurs- mælingar á starfsemi ríkisins. Markmið þeirra er að tengja sam- an kostnað vegna helstu verkefna ríkisaðila við þá þjónustu og afurð- ir sem látin er notendum og sam- félaginu í té. Magnús Jónsson veðurstofu- stjóri segist gera ráð fyrir að vægi almennu veðurspárinnar verði í framtíðinni minna en verið hefur en sérspámar muni verða vaxandi þáttur í þjónustu Veðurstofunnar. 48 millj. kr. sértekjur í riti fjármálaráðuneytisins þingfulltrúum og starfsmönnum samstarfið. Biskup íslands, Karl Sigurbjömsson, sagði við þingslit í gær að tímamótaþingi væri nú lok- ið. Kvaðst hann í upphafi hafa haft efasemdir um að takast mætti að ljúka afgreiðslu svo margra mála og þakkaði hann þingfulltrúum mál- efnalega umræðu og vönduð vinnu- brögð. Þá sagði hann hafa horfið frá sér efasemdir um að taka embætti forseta kirkjuþings úr höndum biskups og lauk lofsorði á fundar- stjóm Jóns Helgasonar. Hann þakkaði Gunnlaugi Finnssyni, sem setið hefur lengur en nokkur annar í kirkjuráði og á kirkjuþingi, íyrir störf hans. Biskup sagði kirkjuþing einnig kemur fram að áætlaður rekstrar- kostnaður þjónustusvið Veðurstof- unnar í ár er um 87 millj. kr. en á móti koma hins vegar 48 millj. kr. sértekjur sem aflað er vegna þess- arar þjónustu. Almennar verður- spár þjónustusviðs Veðurstofunn- ar era 13.870 á ári. Sérstakri vökt- un og sérspám vegna snjóflóða o.fl. atriða fer einnig stöðugt fjölgandi. Fjöldi þeirra var 80 í fyrra en áætlað er að þær verði 200 í ár og 250 talsins á næsta ári. „Við höfum smám saman reynt að laga þjónustu okkar að því að uppfylla sérstakar þarfir. Sérspár era til dæmis gerðar fyrir einstaka staði og inni í þessum tölum eru mjög margar sérspár, sem við ger- um fyrir staði sem geta búið við snjóflóðahættu," segir Magnús Jónsson. Hann segir að eftirspurn eftir sérspám hjá Veðurstofunni fari ört vaxandi og Veðurstofan hafi ekki getað annað öllum þeim markaði. hafa verið tímamótaþing hvað varðar vinnubrögð og sagði meðal annars í lokaávarpi sínu: „Þjóðkirkjan er að feta leið sína áfram til sjálfstæðis. Það er svo oft talað um aðskilnað ríkis og kirkju og við höfum gengið í gegnum aðskilnað ríkis og kirkju á ótal mörgum sviðum og hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér í þeim efnum en við viljum treysta þjóð- kirkjuna og samband kirkju og þjóð- ar í þessu landi. Að hún feti sína leið áfram sem sjálfstæð kirkja sem sæk- ir fram, sem er í sókn á meðal þjóð- arinnar." Sagði hann kirkjuþing hafa reynst vandanum vaxið með vand- aðri umfjöllun, opinni og heiðarlegri samræðu og traustri niðurstöðu í málum kirkjunnar. SEXTÁN ára piltur, sem umfangs- mikil leit var gerð að á Barða- strönd, skilaði sér heim kl. 11 í gærmorgun en leit hafði þá staðið að honum frá því kvöldið áður. Að sögn lögreglunnar á Patreks- firði fór pilturinn að heiman frá sér kl. 16 í fyrradag og hófst leit að Norðurál Full afköst nálægt áramótum GANGSETNING álbræðslu Norð- uráls hf. á Grundartagna gengur samkvæmt áætlun, að sögn Kenn- eths Petersons, framkvæmdastjóra og eiganda Columbia Ventures Corporation, móðurfélags Norður- áls. Um helmingur kera verksmiðj- unnar er nú þegar kominn í gang og segist Peterson gera ráð fyrir að verksmiðjan verði komin í fullan rekstur í lok þessa árs eða í byrjun næsta árs. Þróun á heimsmarkaði engin áhrif á áætlanir Norðuráls Heimsmarkaðsverð á áli hefur lækkað umtalsvert á undanförnum mánuðum og hefur ekki verið lægra í mörg ár. Kenneth Peterson segir að þróun álverðs á heimsmarkaði hafi engin áhrif haft á starfsemi verksmiðjunnar. Hann segir ánægjulegt að verðið hafi verið að þokast lítið eitt upp á við upp á síðkastið. „Við höldum gangsetningu verk- smiðjunnar áfram eins og gert hef- ur verið ráð fyrir og ættum að vera komin í fullan rekstur í lok þessa árs eða í byrjun þess næsta,“ segir Peterson. Landsvirkjun hefur frestað áður boðaðri skerðingu á afgangsorku til stóriðju frá 20. október til 1. nóv- ember. Aðspurður kvað Peterson sér ekki vera kunnugt um þessa ákvörðun en hann sagði hana engu breyta varðandi rekstraráætlanir Norðuráls. -------------- Bílvelta í Fagradal BÍLVELTA varð í Fagradal í Suð- ur-Múlasýslu um klukkan 16.30 í gær. Einn maður var í bílnum, hann var í bílbelti og slapp nánast ómeiddur. Bíllinn er töluvert skemmdur, að sögn lögreglunnar á Seyðisfirði. Mikill krapi og bleyta var á vegin- um þegar slysið varð. honum síðar um daginn og tóku þátt í henni björgunarsveitarmenn með leitarhunda. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð til aðstoðar í gærmorgun og var hún nýkomin á leitarsvæðið þegar pilturinn skilaði sér sjálfur heim. Sérþjónusta Veðurstofunnar fer ört vaxandi Sérspám fjölgar úr 3.744 í 8.000 á tveimur árum Upplýsinga- og kynningarmál Landssfmans Nýr forstöðu- maður ráðinn ÓLAFUR Þ. Stephen- sen hefur verið ráðinn forstöðumaður upplýs- inga- og kynningarmála Landssímans. Ólafur er fæddur árið 1968. Hann lauk BA-prófi í stjóm- málafræði frá Háskóla íslands árið 1992 og MSc-prófi í alþjóðasam- skiptum frá London School of Economics and Political Science árið 1994. Hann hefur verið blaðamaður á Morgun- blaðinu frá árinu 1987. Eiginkona Ólafs er Halldóra Traustadóttir, markaðsstjóri Glitnis hf., og eiga þau eina dóttur, Elínu Sjöfn. og eiga þau Ólafur Stephensen Hrefna Ingólfsdóttir hefur verið ráðin for- stöðumaður notenda- þjónustu Landssímans. Hrefna hefur verið blaða- og upplýsingafull- trúi Landssímans og áð- ur Pósts og síma sl. átta ár. Undir notendaþjón- ustu heyrir þjónustuver, reikningagerð og núm- eraúthlutun. Hrefna, sem er fædd 1965, lauk BA-prófi í stjórnmálafræði og fjöl- miðlafræði frá HI árið 1990. Hún er gift Gísla Þór Gíslasyni, rekstrar- stjóra Blindrafélagsins, eina dóttur. Skilaði sér sjálfur heim

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.