Morgunblaðið - 22.10.1998, Side 34
34 FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1998
MORGUN BLAÐIÐ
LISTIR
Martin Isepp
heldur
„meistara-
námskeið“
PÍANÓLEIKARINN og stjómand-
inn Martin Isepp, heldur „Meistara-
námskeið“ (master class) á vegum
Söngskólans í
Reykjavík, fyi-ir
söngvara og píanó-
leikara dagana
24.-29. október kl.
11-18 daglega.
Námskeiðið fer
fram í Tónleikasal
Söngskólans
SMARA, Veghúsa-
stíg 7.
Virkir þátttakendur era nemendur
á efri stigum og í framhaldsdeild
skólans ásamt píanóleikurum en
námskeiðið er einnig opið til áheym-
arþátttöku og fer skráning fram á
skrifstofu Söngskólans.
Tónleikar í
Egilsstaðakirkju
TÓNLEIKAR verða í Egilsstaða-
kirkju á morgun, föstudag, kl. 20.
Efnisskrá er flutt af kennurum og
nemendum skólans, blönduð söng og
hljóðfæraleik.
Tónlistarskólinn á Egilsstöðum
stendur fyrir þessum tónleikum sem
verða einu sinni í mánuði í vetur.
Gunnar Ingi-
bergur sýnir í
Lóuhreiðri
í LÓUHREIÐRI stendur yfir sýn-
ing Gunnars Ingibergs Guðjónsson-
ar á vatnslitamyndum.
í fréttatilkynningu segh’ að Gunn-
ar sé aðallega þekktur fyrir olíumál-
verk sin. Hann hefur haldið fjöl-
margar sýningar hér á landi.
Sýningin, sem er sölusýning,
stendm' til 15. nóvember.
Nýjar bækur
• TÖÐUGJÖLD er ljóðabók eftii■
Sverri Pálsson, fyrrverandi skóla-
stjóra á Akureyri. Ljóðin eru flest
frumsamin, þó eru fáein þýdd úr er-
lendum málum. Þetta er önnur
ljóðabók höfundar.
Hin fyrri, Slægjur,
kom út árið 1994
og er uppseld, seg-
ir í fréttatilkynn-
ingu. Eftir Sverri
liggja að auki
nokkrar lausmáls-
bækm’, einkum um
söguleg efni, svo og
þýðingar.
Höfundur gefur
bókina út sjálfur og er hún til sölu
hjá honum. Bókin er 120 bls. í
Royal-broti og vönduðu bandi. Verð:
1.900 kr.
Sverrir
Pálsson
Martin Isepp
jáaaÍÉÉy
Y jrj ■ wf':
ISjaw /
raHm 1 * / ÆBhs J i Éfi
FINNSKI kammerkórinn Dominante frumflytur nýtt kórverk eftir Misti Þorkelsdóttur á tónleikum í kvöld.
Frumflytja íslenskt
kórverk í kvöld
HÉR á landi er nú staddur fínn-
nski Kammerkórinn Dominan-
te. Kórinn hefur þegar komið
fram þrisvar undanfarna daga,
við guðsþjónustu í Langholts-
kirkju, á tónleikum í Skálholti
og á þriðjudaginn tróðu kórfé-
lagar óvænt upp í SundJauginni
í Laugardal. Lokatónleikar
kórsins verða í Langholtskirkju
í kvöld og verður þar m.a.
frumflutt nýtt íslenskt kórverk,
Iuibilate, eftir Misti Þorkels-
dóttur sem hún samdi sérstak-
lega fyrir kórinn í tilefni Is-
landsfararinnar. A efnisskránni
í kvöld eru einnig tvær móttett-
ur eftir J.S. Bach og kórverk
eftir Jean Sibelius, Toivo Kuula
(d.1918) og samtímatónskáldið
Einojuhani Rautavaarra.
Stjórnandi kórsins, Seppo
Murto, segir um verk Mistar að
það sé samið við biblíutexta á
latinu, og kórinn hafi iagt á það
áherslu að fá samið fyrir sig
verk eftir íslenskt tónskáld til
að frumflytja hér á landi.
„Þetta er afskaplega hljómfag-
urt verk, hefðbundið með trúar-
legum blæ, og þrátt fyrir naum-
an tíma til æfinga þá hefur það
gripið okkur sterkum tökum,“
segir Seppo Murto. Um tilurð
samstarfs við tónskáldið segist
hann að þeim hafi verið bent á
Misti og þegar verkið barst
þeim í hendur hafi þau svo
sannarlega ekki orðið fyrir von-
brigðum. „Það er sérstök
ánægja að flytja nýtt verk eftir
svo ungt tónskáld og geta með
þeim hætti lagt íslenskri tónlist
lið.“
Dominante kórinn er bland-
aður kammerkór, skipaður
rúmlega 60 nemendum við
Tækniskólann í Helsinki og er
vel þekktur í Finnlandi og víð-
ar. Kórinn hefur m.a. starfað
með Finnsku óperunni, Finnsku
útvarpshljómsveitinni, Fflharm-
óníusveit Helsinki og Lahti sin-
fónmnni. Stjórnandinn Seppo
Murto er organisti við Dóm-
kirkjuna í Helsinki og kennir
orgelleik við Sibeliusarakadem-
íuna.
Snjólaug
Guðmundsdóttir
Listvefnað-
arsýning í
Borgarnesi
Borgarnesi. Morgunblaðið.
SNJÓLAUG Guðmundsdóttir
opnar sýningu á vefnaði og flóka í
Safnahúsi Borgarfjarðar í Borgar-
nesi á morgun, laugardag.
Snjólaug er fædd árið 1945, hún
lauk vefnaðarkennaraprófi frá
Myndlista- og handíðaskóla Is-
lands árið 1965 og kenndi síðan
vefnað við Hússtjórnarskólann að
Varmalandi í 9 ár. Síðastliðin 12 ár
hefur Snjólaug unnið við vefnað og
handverk. Hún hefur komið sér
upp vinnustofu að Brúarlandi á
Morgunblaðið/Theodór
VERKIÐ „Sólarlag við hafið“
eftir Snjólaugu Guðmunds-
dóttur.
Mýrum þar sem hún býr. Snjólaug
hefur haldið sýningu á skartgrip-
um úr skeljum og munum úr flóka
og tekið þátt í nokkrum hand-
verkssýningum.
Þetta er fyrsta vefnaðarsýning
Snjólaugar og verður sýningin op-
in alla virka daga frá kl. 13-18 til
laugardagsins 28. nóvember nk.
Við opnun sýningarinnar syngur
Dagný Sigurðardóttir við undir-
leik Steinunnar Amadóttur.
Skínandi norðurljós
TONLIST
I rt n ó
KAMMERTÓNLEIKAR
Musica antiqua flutti tónlist eftir
Dario Castello, Salomone Rossi, Matt-
hew Locke, Georg Friedrich Hándel,
Johan Ilelmich Roman og Georg
Philipp Telemann. Þriðjudagskvöld
kl. 20.30.
HLJÓÐLÁT sindi'a norðurljósin,
og hljótt er um hina árlegu Norður-
ljósahátíð sem nú er haldin í fjórða
sinn. Það var svalt og dimmt í sal
Iðnó á Norðurljósatónleikum Musiea
antiqua á þriðjudagskvöldið, og í
dimmbláu sviðsbakinu geisluðu þrjár
hvítar ijósrákir rétt eins og til að
undirstrika tilefnið. Á efnisskrá voru
verk eftir þekkt og óþekkt tónskáld
frá sextándu, sautjándu og átjándu
öld, og sérstakur gestur hópsins var
Ann Wallström frá Svíþjóð, sem oft
hefur komið hingað til lands til að
spila á sumartónleikum í Skálholti.
Aðrir félagar Musica antiqua sem
léku á þessum tónleikum voru blokk-
flautuleikarinn Camilla Söderberg,
Snorri Snorrason lútuleikari, Guð-
rún Óskarsdóttir semballeikari og
Sigurður Halldórsson sellóleikai'i.
Nafn Darios Castellos er ekki
tamt í munni á tuttugustu öld. Þetta
ítalska tónskáld starfaði í Markúsar-
kirkjunni í Feneyjum einhvern tíma
um 1600 og samdi „nútímaverk" í
stile moderno. Sónata hans sem hér
var leikin var snoturt samtal sópran-
flautu og fíðlu. Flautan leiddi, fiðlan
var endurómur af henni, og fylgi-
röddin, semball og teorbolúta, fylgdi
þétt eftii'. Þetta var þokkafull músík
og ákaflega fallega spiluð.
Sónata Rossis er frá svipuðum
tíma og verk Castellos. Hér var það
fiðlan sem leiddi leikinn en ten-
órflautan íylgdi. Þau Snorri og Guð-
rún vora fallega samstillt í fylgiradd-
arhlutverkinu og þær Ann Wall-
ström og Camilla léku létt og leik-
andi og algerlega afslappað og
áreynslulaust. Seinni þáttur verksins
var líflegur dans og feiknavel spilað-
ur.
Svíta eftir Locke, frá miðri sautj-
ándu öld, hljómaði næst. Verkið ber
tileinkunina „For Several Friends" -
til nokkurra vina - og bendir það til
þess að það hafi verið samið til
heimabrúks. Frábær leikur Camillu
Söderberg á altflautuna lyfti verkinu
sannarlega upp úr allri meðal-
mennsku heimilisiðnaðarins. Camilla
býr yfir ótrúlega blæbrigðaríku lit-
rófi í tón og styrk, og kann fullkom-
lega að nýta það til að laða fram
músíkina í tónlistinni. I svítu Lockes
örlar líka á breytingum á hinu hefð-
bundna hlutverki fylgiraddarinnar -
sérstaklega í Allemande-þættinum,
þar sem semballinn gerist óvænt
þátttakandi í melódískri framvindu
verksins í keðju við flautuna.
Eftir hlé var komið fram á átjándu
öldina í músíkvali - og stóru nöfnin
leystu þau minni af hólmi. Sónata í c-
moll eftir Georg Friedrich Hándel,
fyiár blokkflautu, fiðlu og fylgirödd,
er firna skemmtilegt verk, og hefst á
kunnuglegu stefi sem Hándel notaði
í fleiri verkum sínum. Varla getur
nokkur láð honum það - stefið er fal-
legt. Leikur Musica antiqua var
mjög góður í sónötu Hándels - jafn
og fallegur og jafn stresslaus og þýð-
ur og fyrr. Sigurður Halldórsson átti
virkilega góðan leik í allegroþættin-
um, þar sem fylgiröddin fær vera-
lega að láta til sín taka.
Ann Wallström lék Assaggio a
violino solo, einleiksverk eftir landa
sinn Johan Helmich Roman, sem í
dag er metinn sem eitt mesta tón-
skáld Svía fyrr og síðar. Músíkalskur
leikur hennar var hrífandi; laus og
léttur bogi og fallegur tónn sköpuðu
fínan flutning; lokaþátturinn, suttur
dans í þjóðlagastíl, var sérstaklega
eftirminnilegur.
Lokaverkið á efnisskránni var
Sónata eftir Telemann; elegant tón-
smíð sem var flutt með sama glans
og annað á þessum tónleikum. Skilin
milli hlutverka hljóðfæranna eru hér
að leysast upp, og fylgiröddin orðin
mun virkari þátttakandi í framvindu
tónlistarinnar. Andstæður milli íhug-
ulla þátta númer eitt og þrjú og
hraðra þátta númer tvö og fjögur
voru ítrekaðar með einstaklega
lýrískum og syngjandi leik i eitt og
þrjú gegn mjög bröttum og hröðum
leik í hinum þáttunum. Leikur
Musica antiqua var frábær, en á eng-
an er hallað þótt Camilla Söderberg
verði nefnd aftur sem sannkölluð
stjarna á Norðurljósafestingunni.
Bergþóra Jónsdóttir