Morgunblaðið - 22.10.1998, Side 57

Morgunblaðið - 22.10.1998, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1998 57 GUÐRUN KATRIN ÞORBERGSDÓTTIR + GUÐRUN Katrín Þor- bergsdóttir forseta- frú lést á sjúkra- húsi í Seattle í Bandaríkjunum 12. október síðastlið- inn. Hún var 64 ára gömul þegar hún lést, fæddist 14. ájgúst 1934. Utför liennar fór fram frá Hallgríms- kirkju í gær að við- stöddu fjölmenni. í forsetakosningunum 1996 kynntist þjóðin Guðrúnu Katrínu Þorbergsdóttur sem við kveðjum í dag hinstu kveðju. Framganga hennar í aðdraganda kosninganna vakti þjóðarathygli. Hún kunni vel að feta einstigið milli þess að standa við hlið frambjóðandans, manns síns, og gegna sjálfstæðu hlutverki í framboðinu. Hlutverk forsetamaka er hvergi skilgreint né skráð. Hann er ekki kjörinn en hef- ur þó miklum skyldum að gegna. Forsetafrú gæti látið sér nægja að vera glæsilegur gestgjafi á Bessa- stöðum og heillandi fulltrúi ís- lenskrar kvenþjóðar á erlendum vettvangi. Samt er ætlast til þess af nútíma konum að þær haldi fram sínum hlut og fái starf- að á eigin forsendum. Guðrún Katrín dró hvergi af sér í þessum efnum. Hún mótaði gestgjafahlutverkið af stakri smekkvísi og hlýju og fangaði augu sjónvarpsvélanna hvar sem hún kom á er- lendri grund vegna glæsileika í framkomu og klæðaburði. En hún hafði einnig fullan hug á því að láta að sér kveða á tilteknum svið- um í íslensku þjóðlífi. Hún vildi gera veg Bessastaða sem þjóðmenningarseturs sem mestan og naut þar við þekkingar sinnar og áhuga á fornleifafræði, sögu og minjum. Hún vildi einbeita sér að fræðslu og kynningu sem hvetti ungt fólk til heilbrigðs lífernis og skapandi starfs, m.a. með listsköp- un og þátttöku í listalífi af ýmsu tagi. Hún vildi einnig hlúa að hannyrð- um og handverki á Islandi en list fengi hennar í þessum greinum var viðbrugðið. Guðrún Katrín nálgað- ist þessi verkefni af þeirri varfærni sem henni var lagin og gætti þess í hvívetna að fara ekki út fyrir mörk hins viðtekna þó að hún væri í raun að ryðja nýjar brautir og færa hlut- ANNA KRISTIN HALLDÓRSDÓTTIR THOMSEN + Anna Kristín Halldórsdóttir Thomsen fæddist á Vé- mundarstöðum við Ólafsfjörð 14. maí 1908. Hún lést á Hrafn- istu í Reykjavík 8. október síð- astliðinn og fór útför hennar fram frá Áskirkju 16. október. Mig langar til að senda ömmu- systur minni kveðju og þakkir fyrir að hafa fengið að umgangast hana og kynnast. Mér er svo margt minn- isstætt viðkomandi Önnu frænku, og það sem er líka svo ánægjulegt er hversu ljóslifandi þessar minn- ingar eru. Ég man þegar Selma systir mín fékk að fara í sveit til Önnu og Tomma í Hjörsey. Þá bjuggu þau með stóran hóp barna þarna úti á þessari litlu eyju á Mýr- um, þar sem aðföng voru erfið og einangrun mikil. En það var alltaf bjart á heimilinu og þannig var það líka í Ólafsvík er fjölskyldan flutti þangað. Þá var ég 15 ára gömul og var hálfur háseti á Andvara RE 101 og við vorum á humarveiðum á Breiðafirði. Eftir langa róðra var stundum landað í Ólafsvík og mikið var gott að komast í hús og fá að þvo sér og borða við stöðugt matar- borð. Þar tók Anna frænka á móti okkur með opinn faðminn og fagn- aði pabba sem elsti sonur Magneu systur hennar. Alltaf sagði hún, ertu nú kominn í land elsku Nonni minn og með skottuna með þér. Gleði og hlýja var það sem fylgdi Önnu alla tíð. Sjaldan sást hún nema brosandi og sagði alltaf eitt- hvað hlýlegt og skondið. Svo fór ég með mömmu að heimsækja Önnu frænku á Hrafnistu. Þegar við komum inn í setustofuna sat Anna frænka þar í fallegum kjól með verðlaunahárgreiðslu, og hlustaði á útvarpið. Eftir nokkra stund kom Ingvar inn og þá færðist enn bjartara bros yfir andlitið. Hún stakk hendinni undir hans hendi og þarna sátu þau í friðsælli þögn, svo sæl með hvort annað eins og lítið kærustupar. Svona var Anna frænka, hún upplifði alltaf það fal- legasta í kringum sig. Þann 14. maí síðastliðinn var svo haldin mikil veisla þar sem hún Anna frænka bauð öllum sem koma vildu í 90 ára afmælið sitt. Þarna sat hún í sínu fínasta pússi, þekkti ekki marga en sagði eitthvað hlýtt við alla. Við pabba sagði hún eina ferðina enn, nei ertu kominn Nonni minn, og frá henni streymdi bæði gleði og glæsileiki. Þetta var veisla í anda Önnu frænku. Glæsi- legt kaffihlaðborð, harmonikku; leikari og söngtextar á borðum. í dag er ég svo glöð og stolt yfir því að hafa átt svona góða ömmusyst- ur, og glöð yfir því að hafa fengið að þekkja hana. Mig langar líka að þakka þér Anna mín fyrir að ég á stóran hóp frændsystkina sem er alltaf gaman að hitta. Þau hafa svo sannarlega erft þína útgeislun og hlýju. Ég veit að þú hoi-fir yfir hópinn þinn með bros á vör, hér eftir sem hingað til. Guð geymi þig frænka mín. Hildur Jónsdóttir. verk forsetafrúarinnar nær kröfum dagsins. Vonandi taka landsmenn vel und- ir stofnun Minningarsjóðs um for- setafrúna svo að hann megi verða til þess að koma hugðarefnum hennar á nokkurn rekspöl þó að hennar njóti ekki lengur við. Ég kynntist Guðrúnu Katrínu fyrst að ráði þegar hún tók að sér formennsku í stjórn Félags um for- setaframboð Ólafs Ragnars Gríms- sonar. Hún var fljót að setja sig inn í fiókin mál og ná yfirsýn yfir þau. Það kom greinilega fram í stjórnar- störfum hennar að hún var hagvön á sviði félagsmála og stjómmála. Við sem vorum með henni í stjórninni urðum þess einnig fljótt áskynja að henni var einkar lagið að skapa í kringum sig þægilegt andrúmsloft. Fjölskylda hennar tók virkan þátt í öllum störfum og studdi Ólaf Ragn- ar og Guðrúnu Katrínu með ráðum og dáð. Þar urðu mikil og góð kynni við fjölda fólks sem ekki gleymast. Við andlát forsetafrúarinnar erum við harmi slegin en um drengskap hennar og vináttu eigum við dýr- mætar minningar. Stjóm Félags um forsetaframboð Ólafs Ragnars Grímssonar vottar forsetanum, dætrum þeirra hjóna og fjölskyldu allri dýpstu samúð og biður þeim heilla á komandi árum. Sigurður G. Guðjónsson. Guðrún Katrín Þorbergsdóttir var lengi vinnufélagi okkar í BSRB-hús- inu en um árabil gegndi hún starfi framkvæmdastjóra Póstmannafé- lags íslands. Guðrún Katrín var góður starfsfélagi. Hvernig sem á stóð, hvemig sem vindar blésu í þjóðfélaginu eða um vinnustaðinn - og stundum er þar vindasamt - þá mátti maður alltaf vita að Guðrún Katrín reyndi að sjá bjartar hliðar á tilvemnni og hvernig mætti þoka málum til betri vegar. Hún tók jafn- an hlýlega á móti fólki, hvort sem það voru félagsmenn eða samstarfs- menn hennar sem áttu í hlut. Allir fundu að þeir voru velkomnir. Hún hafði einstaka hæfileika til þess að sjá til sólar. Þeir einstaklingar sem slíkum kostum em búnir eru mikil- vægh- vinnustað sínum og því sam- félagi sem þeir hrærast í. Hjá BSRB er okkur harmur í huga vegna fráfalls Guðrúnar Kat- rínar Þorbergsdóttur. Það er eftir- sjá að góðum vini og félaga. Við vottum Ölafi Ragnari og fjölskyldu þeirra innilega samúð á þessari erf- iðu stundu. Ogmundur Jónasson, form. BSRB. Þessar minningargreinar um Guðránu Katrínu Þorbergsdóttur forsetafrú áttu að birtast í sér- blaði um hana, sem fylgdi Morg- unblaðinu í gær. Vegna mistaka urðu þær út undan og biður Morgunblaðið höfunda þeirra af- sökunar á því. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinar- hug við andlát og útför systur okkar, mágkonu og frænku, SVANHILDAR SIGURGEIRSDÓTTUR fyrrverandi deildarstjóra. Sérstakar þakkir færum við læknum, hjúkrunar- fræðingum og öðru starfsfólki deildar 14G á Landspítalanum, starfsfólki heimahjúkrunar heilsugæslunnar í Árbæ og þeim, vinum og samstarfsmönnum Svanhildar, sem eftir vinnuiok og þrátt fyrir minnkandi þrek til samskipta, sýndu henni vináttu og virðingu í orði og verki og nú við lokin í skrifum. Sú vinátta var Svanhildi mikils virði. Pétur Sigurgeirsson, Sólveig Ásgeirsdóttir, Pálína Guðmundsdóttir, Guðlaug Sigurgeirsdóttir, Sigmundur Magnússon og systkinabörn. Lokað Lokaö veröur í dag frá kl. 12.00 vegna jarðarfarar AÐALSTEINS EGGERTSSONAR. Eggert Kristjánsson hf. + Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, HÓLMFRÍÐUR LÁRA ÞORSTEINSDÓTTIR, Skeljagranda 8, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju á morgun, föstudaginn 23. október, kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélagið. Sigríður Magnea Björgvinsdóttir, Sigurvaldi Rafn Hafsteinsson, Björgvin Þór Björgvinsson, Helga Eiríksdóttir, Sævar Örn Björgvinsson, Sigurey Agatha Ólafsdóttir, Georg Bjarnason og barnabörn. + Útför vinkonu minnar, móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu SIGRÍÐAR ÓLAFSDÓTTUR, Sogavegi 212, Reykjavík, er lést aðfaranótt 15. október, fer fram frá Bústaðakirkju á morgun, föstudaginn 23. október kl. 10.30. Theodór Ólafsson Brynja Sigurmundsdóttir, Hallgrímur Ólafsson, Gunnlaugur V. Sigurmundsson, Ólafur Sigurmundsson, Guðrún Þorsteinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir og afi, ÓSKARJÓNSSON, Brún, Laugarvatni, sem lést að morgni þriðjudagsins 13. októ- ber, verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laug- ardaginn 24. október kl. 13.30. Jarðsett verður á Laugarvatni. Eygló Þórðardóttir, Jón G. Óskarsson, Kolbrún Leifsdóttir, Þórður Óskarsson, Steinunn Helgadóttir og barnabörn. + Faðir okkar, sonur og afi, ÞORFINNUR EGILSSON lögmaður, Næfurási 14, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju föstu- daginn 23. október kl. 10.30. Jarðsett verður í Skálholtskirkjugarði. Sigþrúður Þorfinnsdóttir, Egill Þorfinnsson, Ástrún Jónsdóttir, Egill Þorfinsson, Stefán Barði Egilsson. + Elskulegur bróðir okkar, ARINBJÖRN ÞÓRARINSSON, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn 23. október kl. 13.30. Systkinin. Lokað Vegna útfarar AÐALSTEINS EGGERTSSONAR, stórkaupmanns, veröa skrifstofur okkar lokaðar í dag, fimmtudaginn 22. október, milli kl. 13.00 og 15.00. Kexverksmiðjan Frón. Vegna útfarar AÐALSTEINS EGGERTSSONAR, stórkaupmanns, verður skrifstofa okkar lokuð í dag eftir hádegi. Mata efh., Sundagörðum 10, Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.