Morgunblaðið - 22.10.1998, Side 39

Morgunblaðið - 22.10.1998, Side 39
38 FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1998 39 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. F JARFESTIN GAR LÍFEYRISSJÓÐA ÞAÐ ER einstaklega ánægjulegt, hve íslenzka lífeyr- issjóðakerfið hefur eflzt undanfarin ár. Eignir þess námu alls 353 milljörðum króna í lok ársins 1997 (307 milljörðum í árslok 1996) og höfðu vaxið á árinu um 12,8% að raungildi miðað við hækkun neyzluverðsvísi- tölu. Raunávöxtun þessara eigna lífeyrissjóðanna var 8,1% á árinu en 7,9% að frádregnum rekstrarkostnaði. Afkoman hefur því verið ágæt á síðasta ári, sem gefur eigendum þeirra von um bættan lífeyri í framtíðinni. Alls voru starfandi 57 lífeyrissjóðir á síðasta ári, þar af ellefu séreignasjóðir. Þeim hefur fækkað um 22 frá ársbyrjun 1992 vegna sameiningar í hagræðingarskyni. Raunávöxtun lífeyrissjóðanna hefur verið góð síðustu árin og numið nálægt 7%, sem er tvöfalt meira en oftast er miðað við í útreikningum á skuldbindingum þeirra. Þetta hefur þýtt, að margir lífeyrissjóðir hafa getað hækkað greiðslur til sjóðfélaga og horfur eru á, að svo geti orðið áfram næstu árin haldist raunávöxtun á eign- um há. Það er reyndar bráðnauðsynlegt, því lífeyrir er yfirleitt mjög lágur og dugar oft ekki til framfærslu. Fjárfestingarstefna lífeyrissjóða getur ráðið úrslitum um afkomu sjóðfélaganna. Mikla varúð þarf því að sýna í áhættusömum fjárfestingum og alls ekki má tefla af- komu lífeyrisþeganna í tvísýnu. Það takmarkar hins vegar möguleika á hæstu ávöxtun, sem fylgir áhættu- mestu fjárfestingunum. Síðustu árin hefur sú breyting orðið í fjárfestingarstefnu lífeyrissjóðanna, að þeir hafa í vaxandi mæli keypt verðbréf og hlutabréf í innlendum fyrirtækjum. Það hefur gefizt vel til þessa almennt séð. Með auknu frelsi í gjaldeyrisviðskiptum hafa margir líf- eyrissjóðir einnig fest fé í erlendum verðbréfum og hlutabréfum. Um síðustu áramót nam erlend verðbréfa- eign lífeyrissjóðanna 25,6 milljörðum króna og hafði þrefaldast á árinu. Sjálfsagt er fyrir lífeyrissjóðina að kaupa erlend verðbréf til að dreifa áhættu sinni og leita góðrar ávöxtunar. Ætíð verður þó að hafa í huga, að sveiflur eru miklar á alþjóðlegum verðbréfamörkuðum og hræringarnar þar að undanförnu í kjölfar efnahags- þrenginga í Asíu, Rússlandi og víðar eru sönnun þessa. Verðsveifiur á alþjóðlegum mörkuðum geta því haft í för með sér mikið tap ekki síður en mikinn ávinning. Því má ekki gleyma. VÍSIR AÐ SAMKEPPNI f ORKUMÁLUM NOKKUR teikn eru nú á lofti um að samkeppni geti farið vaxandi í framleiðslu raforku og nýtingu jarð- hita hér á landi. Hitaveita Suðurnesja hefur áhuga á að ráðast í raforkuframleiðslu. Nágrannasveitarfélög Reykjavíkur hafa lýst yfir áhuga á samstarfi við Suður- nesjamenn um bæði hitaveitu og nýtingu jarðvarma til raforkuframleiðslu. Þannig geta bæði Landsvirkjun, sem framleiðir nú 93% allrar raforku á landinu, og Hitaveita Reykjavíkur, sem séð hefur nágrannabyggð- unum fyrir heitu vatni, misst spón úr aski sínum ef þessi áform ganga eftir. Þá hefur Hitaveita Reykjavíkur nú hafið fram- kvæmdir við raforkuver á Nesjavöllum. Einnig má nefna áhuga Norðlendinga á að reisa 150 megawatta virkjun við Þeistareyki. í samtali við Morgunblaðið fyrr í mánuðinum sagði bæjarstjórinn á Akureyri að bæði Hitaveita Suðurnesja og Hitaveita Reykjavíkur hefðu nú áform um raforkuframleiðslu og ástæðulaust væri að Akureyringar sætu eftir. Þessi dæmi sýna að miklar breytingar eru framundan í orkumálum. Enn er hins vegar eftir að móta stefnu af hálfu stjórnvalda um það með hvaða hætti þær breyt- ingar skuli eiga sér stað. Meðal annars þarf að taka af- stöðu til þess hvernig deila eigi út aðgangi að orkulind- um og hvort greiða beri fyrir nýtingarrétt. Mestu skipt- ir þó að kostir frjálsrar samkeppni nýtist til þess að bæta þjónustu og lækka orkuverð hjá a.m.k. stórum hluta landsmanna. HÁSKÓLINN Á AKUREYRI Morgunblaðið/Magnús Reynir HÁSKÓLINN á Akureyri mun hafa yfir að ráða um 8.000 fermetra húsnæði á háskólasvæðinu við Sólborg þegar framkvæmdum við allar nýbygging- ar verður lokið og er miðað við að nemendur verði um 750 talsins. Framkvæmdir að hefjast við fyrstu nýbyggingarnar Skref verður stigið 1 starfí Háskólans á Akur- eyri er framkvæmdir hefjast við fyrstu ný- byggingar skólans. Þor- steinn Gunnarsson há- skólarektor segir að þetta séu merk tímamót í sögu Háskólans á Akureyri því þetta eru fyrstu byggingarnar sem hannaðar eru sérstak- ---------------------7- lega fyrir háskólann. I samantekt Margrétar Þóru Þórsdóttur kemur fram að í nýja húsinu á að vera kennsluhús- næði á alls um tvö þúsund fermetrum. HÁSKÓLATORG, rannsóknarhús til vinstri, aðalinngangur og hátíðarsalur fyrir miðju. BJÖRN Bjarnason mennta- málaráðherra tekur fyrstu skóflustunguna að nýbygg- ingum Háskólans á Akur- eyri á morgun, föstudag, og á eftir kynna stjórnendur og hönnuðir líkan og teikningar af nýju háskólabygg- ingunum. Framkvæmdir við jarð- vinnu hefjast svo í kjölfarið og á þeim að ljúka 1. desember næstkomandi. „Þetta eru merk tímamót í sögu Háskólans á Akureyri því þetta eru fyrstu byggingarnar sem hannaðar eiu sérstaklega fyrir háskólann, en með þessu hafa stjórnvöld sýnt að Háskólann á Akureyri á að byggja myndarlega upp í nútímalegu húsnæði sem hæfír metnaðarfullu háskólastarfi,“ sagði Þor- steinn Gunnarsson há- skólarektor. Gat hann þess að undir- búningur vegna byggingafram- kvæmda við háskólann væri mjög vandaður, en hann hófst með arki- tektasamkeppni á árinu 1996 og frá þeim tíma hefur forsögn og hönnun staðið yfir. Tillaga Glámu-Kíms arkitekta í samvinnu við Ólaf Tr. Mathiesen arkitekt var valin til úrfærslu að lok- inni samkeppni og er hún grundvöll- ur allra framkvæmda háskólans. Fullbyggð miðar tillagan að því að öll starfsemi háskólans verði að Sólborg í íúmlega 8.000 fennetra húsnæði og gert ráð fyrir 750 nemendum. Kennsluhúsnæði á Sólborg forgangsverkefni Fyrsti áfangi hönnunar var endur- bygging og innrétting húsnæðis Bókasafns Háskólans á Akureyri að Sólborg og fóru framkvæmdir fram fyrri hluta síðasta árs. í byrjun þessa árs heimilaði menntamálaráð- herra hönnun á öðrum áfanga, en í meginatriðum er þar um að ræða kennsluhúsnæði auk vinnuaðstöðu fyrir kennara og skrifstofur. Kennsluhúsnæðið er þrjár álmur með átta al- mennum kennslustofum, sérhæfðu kennsluhúsnæði í hjúkrun og iðju- þjálfun auk hópherbergja. Álmurnar leggjast .allar að gangi sem tengir saman allt húsnæði háskólans. Á ganginum eru setustofur og opin rými til viðveru og sýningarhalds. Þorsteinn sagði að hönnun þessa áfanga yrði lokið um næstu áramót og hægt yrði að bjóða verkefnið út í janúar á næsta ári. Kostnaður við áfangann er áætlaður um 250 millj- ónir króna, en í frumvarpi til fjár- laga næsta árs eru 60 milljónir króna ætlaðar til verksins. Leggur Þorsteinn áherslu á að þessum áfanga verði lokið á næstu 2-3 árum. Ástæðan fyrir því að byrjað er á kennsluálmum er sú að sögn rektors að mikilvægt er að nemendur fá góða aðstöðu til kennslu og náms og teng- ist þannig bókasafni og þeirri mið- lægu þjónustu sem er á Sólborg. Nú fer kennsla fram á fjórum stöðum víðs vegar um bæinn. „Það er for- gangsverkefni að taka eins mikið af kennsluhúsnæði hér á Sól- borg í notkun og fjárhag- ur leyfir," sagði Þorsteinn en gera má ráð fyrir að sú starfsemi sem nú fer fram í Þingvallastræti flytjist fyi-st þangað, þ.e. heilbrigðis- og kennaradeildir. Rannsóknarhús, skrifstofur og fyrirlestrasalir Næstu áföngum er skipt í þrennt, byggingu rannsóknarhúss, skrifstof- ur og þjónusturými og fyrirlestrasali. Rannsóknarhúsið verður þriggja hæða hús, um 2.000 fermetrar að stærð og myndar austurhlið háskóla- torgs. Þar verða rannsóknar- og kennslurými auk kennslustofa og þykir háskólamönnum nauðsynlegt að það rísi sem fyrst enda slík bygg- ing undirstaða fyinr öflugt rannsókn- ar- og þróunarstarf Háskólans á Akureyri. Þegar kennslu- og rann- sóknarstofur verða tilbúnar flyst öll kennsla á háskólasvæðið við Sólborg og þarf þá að endurnýja aðstöðu fyrir starfsfólk, en loks má nefna að bygg- ing fyrirlestra- og samkomusalar þykir mikilvæg fyrir heildaruppbygg- ingu háskólasvæðisins. Ráðgert er að tveir fyrirlestrasalir verði við háskól- ann, annar 250 fermetrar að stærð og hinn 210 fer- metrar og verður hægt að opna á milli þeirra og mynda þannig einn stóran hátíðar- og ráðstefnusal sem rúmar um 500 manns í sæti. Staðsetning Háskólans á Akur- eyri, í miðju Akureyrarbæjar, býður að sögn rektors upp á skemmtilegt samspil bygginga og þeirrar starf- semi sem þar fer fram. Utivistar- svæði umhverfis Sólborg býður upp á fjölmarga möguleika og telur Þor- steirm að háskólasvæðið verði þegar fram í sækir áberandi einkenni bæj- arins. Starfsemin á 8.000 fermetrum Kostnaður áætlaður 250 millj. V axtalögin gera ekki ráð fyrir „vísitölugólfí“ MEGA lánveitendur verð- tryggðra lána tryggja sig með einhverjum hætti gagnvart lækkun vísitölu. Þessar spurning vaknar eftir að fram kom að til væru skuldabréf á mark- aði með skilmálum um „vísitölugólf‘, þ.e.a.s. að vísitala sem miðað væri við yrði aldrei lægri en grunnvísitala, þ.e. vísitalan þegar bréfið var gefið út. Er þar um að ræða skuldabréf sparisjóðanna þótt auðvitað kunni fleiri slík bréf að fytárfinnast. í skuldabréfum bankanna er hins veg- ar ekki slíkt gólf og því vafalaust að verðtryggingin miðast alfarið við hreyfingar vísitölunnar hvort sem þær eru upp eða niður. Eftir því sem næst verður komist er fyrirmyndin að slíkum skilmálum sem í bréfum sparisjóðanna í spariskírteinum ríkissjóðs sem byrjað var að gefa út á sjöunda ára- tugnum. Þá er reyndar aðstaðan sú að almenningur er í sporum lán- veitandans og nýt- ur góðs af skyldi vísitala lækka nið- ur fyrir grunnvísi- tölu. Málið horfír öðruvísi við þegar um skuldabréfa- form útlánsstofn- ana er að ræða, því þá er almenn- ingur í hlutverki skuldarans og spurningar vakna um sanngirni og eðlilega viðskipta- hætti. Skilmálar um „vísitölugólf ‘ í lánasamn- ingum geta vart talist ósanngjarnir í skilningi laga. Hins vegar er að mati Páls Þórhallssonar vafamál hvort vaxta- lögin heimili slík frávik frá almennum reglum um tilhögun verðtryggingar. Þessar spurningar eru þó ekki mjög raun- hæfar því þrátt fyrir minnkandi verðbólgu er erfitt að ímynda sér aðstæður þar sem reyndi að marki á vísitölugólf af þessu tagi. Vísitala neysluverðs frá 1994 (Hét áður framfærsluvísitala) maí 1988=100 19 9 4 19 9 5 19 9 6 19 9 7 1998 okt. Vart raunhæf spurning Þessar spurningar eru auðvitað ekki mjög raunhæfar því þótt vísitala eigi það til að lækka á stuttu tímabili þá er tilhneigingin til lengri tíma alltaf sú að hún hækki (sjá meðfylgj- andi línurit). Vísitölugólf þýðir ekk- ert annað en að vísitalan sem höfuð- stóll miðist við fari ekki niður úr því sem var þegar bréf var gefið út, fari sem sagt ekki niður úr grunnvísitölu. Hafi vísitalan hækkað síðan getur hún auðvitað lækkað, skuldurum til hagsbóta alveg niður að gólfínu. Grunnvísitala eldri bréfa er auðvitað langt fyrir neðan það sem vísitalan er í núna og því útilokað að á þetta reyni. Eins er það skilyrði verð- ti'yggingar að lán sé til nokkurra ára (fimm ára frá og með 1. janúar 1998) og það er auðvitað afar ósennilegt að vísitala muni lækka þegar svo langt tímabil er skoðað. En varðandi bréf sem verið er að gefa út um þessar mundir geta samt fræðilega séð risið álitamál. Hugsum okkur verðtryggt skuldabréf til fímm ára gefið út um mitt ár 1998. Vanskil verða á fyrsta gjalddaga og lánveit- andi gjaldfellir alla skuldina sam- kvæmt heimild í bréfinu. Frá útgáfu- degi fram að gjaldfellingu hefur við- miðunai’vísitalan lækkað. Þá vaknar sú spurning hvernig reikna eigi út hina gjaldfelldu skuld. Getur þá skipt máli hvort tekið er tillit til lækkunar viðmiðunarvísitölunnar, ------------- því ef það er ekki gert, ef Nýtt fyrlr ís- gólf er á vísitölunni, verð- lendingum að ur fjárhæðin hærri en ella verðlag ,ækki sem skuldannn þarf að gi’eiða. Eins og fram hefur komið hjá tals- manni sparisjóðanna er skilmála um vísitölugólf ekki beitt af þeirra hálfu þótt hann sé til staðar í lánsskjalinu. Það tengist væntanlega því að allar útlánsstofnanir notast við þjónustu Reiknistofu bankanna þegar staða útlána þeirra er reiknuð út. I forriti Reiknistofu bankanna er ekki neitt gólf á vísitölunni og það væri heil- mikil fyrirhöfn að fara að setja síkt gólf inn fyrir hvert og eitt bréf sem reiknað væri út. En burtséð frá raunhæfri þýðingu spurningarinnar, fá slík ákvæði stað- ist? Fengi það staðist að lántakandi bæri hallann af því þegar vísitalan hækkar en nyti þess ekki þegar vísi- talan lækkar, nema niður að vissu marki? Svarið sem hin heilbrigða skynsemi býður er það að vissulega standist slík ákvæði. Hér á landi sé samningsfrelsi, sá gerningur sem býr að baki skuldabréfi sé ekkert annað en samningur, sem mönnum sé frjálst að útfæra að vild. Skrifi lántakandi undir skuldabréf með fyri'greindum skilmálum þá sé hann bundinn við það eins og hvern hann löggerning. Ófrávíkjanleg ákvæði vaxtalaga Málið er samt ekki alveg svona einfalt. Samkvæmt lögum er ekki heimilt að verðtryggja fjárhagslegar skuldbindingar að vild. Skilyi'ði verð- tryggingar koma fram í V. kafla vaxtalaga nr. 25/1987. Þessum kafla var bætt inn í vaxtalögin með lögum nr. 13/1995. Forsagan var sú að í tengslum við gerð nýrra kjarasamn- inga á almennum vinnumarkaði gaf ríkisstjórnin yfirlýsingu hinn 21. febrúar 1995 um að verðtrygging fjárskuldbindinga yrði framvegis miðuð við vísitölu framfærslukostn- aðar en ekki lánskjaravísitölu. Þá yrði unnið úr því að draga úr verð- --------- tryggingu í áfóngum. í kjölfarið voru sett lög nr. 12/1995 um neysluverðs- vísitölu og lög nr. 13/1995 _________ sem áður er getið. í 21. gi'. þeirra segir að vísitala neysluverðs sem sem Hagstofa ís- lands reiknar og birtir tilteknum mánuði gildi vegna verðtryggingar sparifjár og lánsfjár næsta mánuð á eftir. Þetta þýðir auðvitað að höfuðstóll verðtryggðrar skuldar lækkar ef vísitalan lækkar, að minnsta kosti á meðan ekki er skýrlega kveðið á um annað. En ef skýrlega er kveðið á um gólf vísitölunnar, er slíkt bindandi? Það fer eftir því hvort viðkomandi ákvæði vaxtalaganna eru frjávíkjan- leg eða ekki, hvort megi sem sagt semja um önnur verðtryggingarkjör eður ei. I 3 gr. vaxtalaga nr. 25/1987 kemur fram að ákvæði II. og III. kafla laganna um ákvörðun vaxta séu frávíkjanleg. Af því virðist mega draga þá ályktun að aðrir kaflar lag- anna, þ.á.m. 5. kaflinn um verðtrygg- ingu, séu ófrávíkjanlegir þannig að ekki megi semja sig undan þeim. Þetta bendir til þess að ákvæði um vísitölugólf standist ekki vegna þess að menn hafa einfaldlega ekki heim- ild til að semja um hvernig þeir hagi verðti'yggingu. Ef menn kjósa að verðti'yggja og binda lánsfjárhæð við vísitölu þá verði þeir að fylgja vísitöl- unni hvort sem hún lækkar eða hækkar. Sérstaklega á þetta við um banka og sparisjóði, sbr. það sem segir í athugasemdum með frum- varpi því sem varð að lögum nr. 13/1995. Þar segir að með frumvarp- inu sé ekki verið að skerða mögu- leika innlánsstofnana til að stofna til verðtryggingarsamninga að svo miklu leyti sem það sé heimilt á grundvelli meginreglunnar um samningafrelsi. „Það er hins vegar ljóst að þegar þessir aðilar gera verðti-yggða samninga verða þeir að vera í samræmi við þau skilyrði sem fram koma í frumvarpi þessu,“ segir þar. Sanngirni Það má líka velta því ___________ fyrir sér í þessu sambandi hvert sé eðli verðtrygg- ingar. Verðtrygging af hálfu lánveitanda hlýtur að fela það í sér fyrst og fremst að verið sé að tryggja tiltekna raunávöxtun. Með vísitölubindingu auk vaxtaákvæðis næst það mark- mið, sama þótt vísitalan hrapi, að því gefnu að vísitalan endurspegli raun- verulegt verðmæti viðkomandi fjár- hæðar sem verðti’yggð er. Vísitölu- gólf, ef á það reynir nokkurn tímann, leiðir því til aukaávöxtunar fyrir lán- veitandann, sem á lítið skylt við verð- tryggingu. Skilmála um vísitölugólf ekki beitt Það hafa ekki síður vaknað spurn- ingar um hvort ákvæði þessi teldust ósanngjörn þannig að víkja mætti þeim til hliðar á gi'undvelli 36. gr. laga um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga nr. 7/1936 (samn- ingalaganna). Þar er að finna heim- ildir til að víkja til hliðar samnings- skilmálum sem samdir eru einhliða af öðrum aðilanum, stríði þeir gegn góðum viðskiptaháttum og raski til muna jafnvægi milli réttinda og skyldna samningsaðila, viðskiptavini í óhag en gagnaðila, sem hefur at- vinnu af samningsgerð sem þessari, í hag. Til þess að meta þetta yi’ði vænt- anlega að skoða hvaða kostir stóðu lántakandanum til boða þegar um lánið var samið í upphafi. Væntan- lega er það svo að annaðhvort geta menn tekið óverð- tryggð lán með til- tölulega háum vöxtum eða verð- tryggð lán með lægri vöxtum. Þegar verðbólga er lítil og vísitölur hækka lítið, þ.e. við þær aðstæður þegar reynt gæti á vísitölugólf, er væntanlegra hag- stæðara að hafa tekið verðtryggð lán. Lántakendur standa því betur að vígi heldur en ef þeir hefðu tekið óverðtryggð lán jafnvel þótt vísi- tölugólfið væri virkt. Á hitt er einnig að líta að algeng eru í langtímaskuldbindingum ákvæði um breytilega vexti, þ.e.a.s. lánveitandi hefur einhliða heimild til að hækka vextina frá því sem kveðið er á um í lánsskjalinu. Þetta eru auðvitað mun „ósanngjarnari" ákvæði heldur en ákvæði um vísi- tölugólf. Samt teljast slík ákvæði væntanlega heimil samkvæmt 36. gr. samningalaganna. Skýringin er sú að 36. gr a-d sem þetta varðar er byggð á tilskipun Evrópubandalags- ins um ósanngjarna skilmála í neyt- endasamningum (93/13/EB). Þeirri tilskipun fylgir listi yfir dæmigerða skilmála sem teljast ósanngjarnir. Sérstaklega eru þar undanskildir skilmálar í lánasamningum um ein- hliða rétt lánveitanda til að breyta vöxtum að því tilskildu reyndar að skuldari geti þá sagt samningi strax upp. Væntanlega ber að skilja þetta svo að lántaki hafi þá rétt til að greiða skuld strax upp og leita láns- fjár annars staðar á hagstæðari kjörum. Fyrst slík ákvæði eru heimil þá er vandséð að ákvæði um vísitölugólf séu það ekki. Þau geta að vísu hugs- anlega við einhverjar aðstæður sem enn hafa ekki komið upp hér á landf* fært lánveitendum aukaávöxtun mið- að við það sem menn ætluðu í upp- hafi, en því gætu lánveitendur hvort eð er náð með því að hækka breyti- lega vexti. Niðurstaðan er því sú að skilmálar um gólf vísitölubindingar séu líklega ekki ósann- gjarnir í skilningi 36. gr. samningalaganna. Hins vegar verður að draga í efa að þeir standist ákvæði vaxtalaga um verðtryggingu lánsfjár og eiga þeir því vart rétt á sér. Þó má ekki gleyma því að þetta álitamál er frekar óraunhæft. Bæði þurfa að koma upp nokkuð sérstakar aðstæður til þess að á slíka skilmála gæti reynt. Auk þess hefur komið fram hjá talsmanni sparisjóðanna, en svona ákvæði eru til dæmis í skulda- bréfum þeirra, að skihnálunum sé _ alls ekki beitt. *

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.