Morgunblaðið - 22.10.1998, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 22.10.1998, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1998 33 LISTIR Jón Óskar Eftir Jóhann Hjálmarsson SKRIFAÐ í vindinn hét fyrsta ljóðabók Jóns Óskars (1953) en áður hafði komið frá honum smá- sagnasafnið Mitt andlit og þitt (1952). Höfundarferill Jóns Óskars er fjöl- breyttur þótt okkur sé tamast að líta á hann sem ljóðskáld. Hann var meðal helstu ljóðaþýðenda og þýddi líka minnis- stæðar skáldsögur og leikrit, skáldsagna- höfundur, smásagnahöfundur, ritgerða- höfundur, ævisagnahöfundur og enn má bæta við. Minningabækur Jóns Óskars um ung og upprennandi skáld og rithöfunda á stríðsárunum og eftir stríð, meðal þeirra Fundnir snillingar, Hernámsáraskáld og Kynslóð kalda stríðsins, vöktu mikla at- hygli. Léttur og leikandi stíll frásagnar- innar var áberandi en undir niðri mátti gi-eina nokkur vonbrigði og jafnvel beiskju vanmetins bókmenntamanns og skálds. Jafn fjölhæfur höfundur og Jón Óskar fékk reyndar alla tíð að kenna á því óréttlæti að verk hans náðu ekki til nógu margra þrátt fyrir mikilvægt erindi þeirra og aðgengileik. Seinast var hann ef til vill farinn að sætta sig við þetta, bjóst ekki við öðru. Það er ljóst að Jón Óskar var meðal höfuðskálda sinnar kynslóðar, þeirra sem hann sjálfur tók af öll tvímæli um að væru réttilega „atómskáld". Tveir þeirra, Hannes Sigfússon og Sigfús Daðason, eru einnig látnir og fáeinir eftir. Ljóðstíll Jóns Óskars var frá upphafí léttur og hljómrænn. Hann lærði margt af frönskum skáldum, en átti eigin tón sem alveg eins mætti kalla „þjóðlegan" ef það skipth- einhverju máli að vera að búa til skýringu eins og gagnrýnenda er sið- ur. Veröldin öll var aftur á móti yrkisefni Jóns Óskars eins og segir í ljóðinu Þú og veröldin, í mestu ljóðabók hans, Nóttinni á herðum okkar (1958): Þú gengur einn um stíginn, leggst í grasið og heyrir fótatak þúsundanna að baki trjánna, hlustar, leitar einnar raddar en nemur aðeins hjartslátt þinn og finnur að þú ert einn og veröldin er rödd þín sjálfs og ríst á fætur, lyftir höfði og skyggnist um og gengur einn um stíginn og finnur hjartað slá í brjósti þínu og heyrir fótatak þúsundanna að baki hjartslætti þínum, gengur einn um stíginn og leitar þess sem hvergi fínnst, og staldrar á götuhomi, skyggnist milli trjánna í leit að augum sem þú hélzt í svipinn að hefði brugðið fyrir milli trjánna, og veizt um leið að augu þessa heims eru augu sjálfs þín, veröldin þín rödd, og tilgangslaust að skyggnast um og hlusta í hverja átt, þú gengur einn um stíginn. Maðurinn yengur vissulega einn en í huga Jóns Oskars var það ríkt að sjá heiminn og alla menn í einu samhengi eða einingu og hvort tveggja vildi hann bæta. í síðustu ljóðabók sinni, Hvar eru strætisvagnarnir? (1995) yrkir hann í lok- in um ný ljóð og nýja drauma en þá var ekki að fínna í mannauðri, ljóslausri og strætisvagnalausri Reykjavík draumsins þar sem auðnin og tómið minnti á súrreal- 99 Maðurinn gengur vissu- lega einn en í huga Jóns ✓ Oskars var það ríkt að sjá heiminn og alla menn í einu samhengi eða ein- ingu og hvort tveggja vildi hann bæta. u íska mynd eftir Chirico. í þessari bók er að finna ljóð eins og Stúlk- an og hafið, Töfrabrögð og Ljóð um París þar sem skáldið nær að tjá sannindi lífsins í afar einföld- um ljóðum sem leyna á sér, segja raunar allt sem þarf að segja í ljóði. Smásögur Jóns Óskars, einkum hinar fyrstu eins og Maður á kvisti - kona á miðhæð, Symfonia pastorale og Ég, barnið, hundur- inn, svo að einhverjar séu nefnd- ar, eru í senn merkilegar og ný- stárlegar. Ferðasögur hans, til dæmis Páfinn situr enn í Róm (1964), eru í senn skrifaðar af góðri list og lærdómi og eru „menningarblaðamennska" af sjaldgæfu tagi. Við Jón Oskar kynntumst á sjötta áratugnum þegar við sátum í ritnefnd Birtings. Þrátt fyrir ald- ursmun og stundum smá ágrein- ing urðum við góðir vinir og skrif- uðumst á þegar báðir voru í út- löndum, hann í París en ég í öðr- um bæjum. Þessi bréfaskipti skiptu að minnsta kosti mig miklu máli því að í bréfum Jóns Óskars talaði hinn reyndari og staðfastari en í mínum ríkti óvissan og öng- þveitið ofar öllu. I öllum bókum Jóns Óskars er mannúðarstefna ofarlega á baugi og hann óttaðist ýmiss konar tortímingaröfl og af- mennsku. Það var ekki út í bláinn að loka- ljóðið í Skrifað í vindinn endar á ósk og hvatningu, voninni sem hann lagði svo mikið upp úr: „Að þið fengjuð að lifa í fidði/ að þið megið sofa að þið megið vaka/ að þið megið haldast í hendur/ að þið meg- ið unnast hvítir svartir gulir/ að þið fengj- uð að lifa í friði.“ Eins og svo margar aðrar óskir var þessi skrifuð í vindinn. En skáldskapur Jóns Óskars mun lifa. Litir: Dökkqrænt, jökulblátt, grábrúnt, blátt Stærðir: M-XL Verð kr. 9.900,- GonverTible bunui ^ Hlýjar og liprar Litir: Svart, beige ^ Stærðir: S-XL < . Verð kr. 5.900,- * ^ \ illiilliiilill® v ' ' ii ■aMMi :SBi iifflíiiii heill anorakur Litir: Blátt, svart, grátt, dökkorange Stærðir: S-XL Verð kr. 11.900,- uPIUIIÖ II renndur jakki Litir: Hvítt/blátt, Svart/grátt gult/fjólublátt Stæroir: S-XL Verð kr. 11.900,- Down iacket - Dunulpa Litir: Örange, Dökkblátt, karrígult URVAL AF: HÚFUM, VETTLINGUM, EYRNABÖNDUM, ÚTIVISTARFATNAÐI, ÚTIVISTARSKÓM OG ÖLLU, SEM ÞÚ ÞARFT TIL AÐ HALDA Á ÞÉR HITA I VETUR! Fitness Shoþ Skeifunni 1 9 - S. 568 1 71 T jjÉf'Ji ■ ' 1 K j m 1
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.