Morgunblaðið - 22.10.1998, Side 48
-y 48 FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Frumkvöðull að miðlægum kosn-
ingagagnagrunni gefur sig fram
JÍMI nýs landnáms
á íslandi er að hefjast.
Landið sjálft er
reyndar numið en nú
er einstaklega gott lag
fyrir frumkvöðla að
fóstra þjóðarhug og
líkama á völlum mið-
lægra gagnagrunna.
Sem stendur mun ís-
land vera eina lýðræð-
isríkið sem ætlar að
bjóða upp á rekstur
slíkra fyrirtækja, aðal-
lega vegna góðrar lið-
veislu forsætisráð-
herra, en líka vegna
jákvæðra viðhorfa al-
mennings til framfara
í vísindum og atvinnusköpun.
Myndarlegi og vel gefni maður-
inn sem kenndur er við vindinn
mun verða yfirfóstri hreysti og lík-
ama. Enn hefur enginn boðið sig
fram sem yfírfóstra þjóðarhugar.
Hugurinn er vandmeðfarnari en
skrokkurinn og því betra að nokkr-
ar fóstrur og fóstrar annist mis-
munandi svið hans. Eitt afmarkað
svið þjóðarhugar er margbrotin af-
staða hans í stjórnmálum. Undirrit-
aður lýsir sig sem frumkvöðul að
hugmynd um miðlægan gagna-
grunn á sviði kosninga og stjórn-
mála og væntir þess að fá einkaleyfi
á þeirri hugmynd en fyrirtækið
deKjós hf. mun sjá um sköpun og
rekstur grunnsins. í
grunninn verða skráð-
ar atkvæðagreiðslur
kjósenda i sveitar-
stjómar-, Alþingis- og
forsetakosningum auk
ýmissa upplýsinga um
félagsskoðanir, at-
vinnu- og tómstunda-
störf sem hægt væri að
samræma ef kjósandi
er því ekki mótfallinn.
Þeir sem ekki vilja
vera með í grunninum
verða að senda skrif-
lega neitun á löggiltum
skjalapappír til forsæt-
isráðuneytis sjö mán-
uðum fyrir kosningar,
annars fara þeir sjálfkrafa inn í
grunninn. Þetta verður marg-
dulkóðaður gagnagrunnur (þ.e.
nokkrir ólíkir dulmálslyklar notað-
ir). Til skýringar þessu skal nefnt
að í þessu tilfelli felst dulkóðun í því
að flækja sambandið milli opinberr-
ar kennitölu og kennitölu einstak-
lings í grunninum, en ákveðið sam-
band verður engu að síður fyrir
hendi. Hver einstaklingur, sem
ekki neitar að vera með, á sitt hólf í
grunninum með ofangreindum upp-
lýsingum. Ættartré þjóðarinnar er
að sjálfsögðu undirstöðuvefur
grunnsins. Líklega verður að
dulkóða ættarvefínn, því að annars
gæti tölvufólkið strax rakið upp
grunninn í matartímanum („nei sko
þarna er Engeyjarættin, trygg sín-
umflokki").
A kjörstað munu kjósendur
þrýsta á skjámynd af (brosandi)
forustumanni þess flokks eða for-
setaframbjóðanda sem það kýs og
mun atkvæðagreiðsla fara beinustu
Ef t.d. kemur í ljós að
kratagenið er alþjóð-
legt, segir Ingi Þ.
Bjarnason, þá gætu
erlendir aðilar prófað
hér aðferðir til styrk-
ingar eða útrýmingar
þess gens.
leið og rafrænt inn í grunninn ef
kjósandi var ekki búinn að andmæla
samkvæmt reglum. DeKjós hf. mun
leggja til allan tölvubúnað, skatt-
borgurum að kostnaðarlausu. Kerf-
ið verður tölvuvætt út í gegn, því
miður liggur mér við að segja, því
við það missir innsláttarfólk at-
vinnu, en þetta eru nú einu sinni
leynilegar kosningar. Allir þeir sem
eru með í grunninum verða skráðir í
veglegt happdrætti. Vinningar
verða af svipaðri stærð og hjá Vík-
- «
%•
*
Ver6 59.900,- stgr. J
Verð 69.900,- stgr. J
fLavamat W 1010
Lavamat 74600
Verð 89.900,- stgr. (
f Lavamat W 80
B R Æ Ð U R N I R
Lágmúlo 8 • Sími 533 2800
Örugg þjónusta í 75 ér
llllllll
Búðardal. Vestflröir: Geir
J
El Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi. Blómsturvelllr, Hellissandi. Guðni Hallgrímsson, Grundarfirði. Heimahornið Stykkishðlmi. Ásubúð,
leirseyrarbúðin, Patreksfirði. Rafverk, Bolungarvík. Straumur, ísafirði. Noröurland: Kf. Steingrfmsfjarðar, Hólmavík. Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfiröingabúð, Sauöárkróki. KEA
byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri. KEA, Dalvík. KEA ólafsfiröi. KEA, Siglufiröi. Kf. Þingeyinga, Húsavik. Urð Raufarhöfn. Austurland: Sveinn Guðmundsson, Egilsstöðum. Hjalti Sigurösson, Eskifirði. Kf. Vopnfirðinga, Vopnafirði. Verslunin
Vík, Neskaupstað. Kf. Fáskrúðsfirðinga, Fáskrúðsfirði. KASK, Höfn. KASK, Djúpavogi. Suöurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Rafmagnsverkstæði KR, Hvolsvelli. Jón Þorbergs. Kirkjubæjarklaustri. Klakkur, Vfk.
Brimnes, Vestmannaeyjum. Raykjawa: Stapafell, Keflavík. Rafborg, Grindavfk.__________________________________________
Amma og mamma
eru enn að
nota sínar
!
Ég treysti þeim
• Tekur 5 kg
• Vindingarhraði: 800/400 snúningar
• Ryöfrír belgur og tromla
• Sjálfvirkt magnskynjunarkerfi nýjasta tækni
• "Fuzzy-Logic" enginn 1/2 takki
• "ÖKO" kerfi (sparar sápu)
• Öll þvottakerfi
• Ullarvagga
• Þvottahæfni "B" Þeytivinduafköst "C"
•Tekur5kg
• Vindingarhraði: 1000/600 snúningar
• Ryðfrír belgur og tromla
• Sjálfvirkt magnskynjunarkerfi - nýjasta tækni. "Fuzzy-Logic"
enginn 1/2 takki
• "ÖKO" kerfi (sparar sápu)
• Öll þvottakerfi ásamt sérstöku blettakerfi
• Ullarvagga
• Þvottahæfni "B" Þeytivinduafköst “C"
• Rafeindastýrður forskriftarvalsrofi (vélin sem
hugsar)
• Sýnir í Ijósaborði gang forskriftar
• Hægt að seinka gangsetningu forskriftar allt að
19tímum
• Sýnir í Ijósaborði of mikla ságunotkun
• Sérstakur takki fyrir kælingu og aukaskolun
• Tekur 5 kg
• Vindingarhraði: 1400,1000,800,600 og 400
snúningar
• Ryðfrír belgur og tromla
• Sjálfvirkt magnskynjunarkerfi - nýjasta tækni
"Fuzzy-Logic" enginn 1/2 takki
• "ÖK0" kerfi (spararsápu)
• "UKS" kerfi, jafnar tau í tromlu fyrir vindingu
• Froðuskynjunarkerfi (bætir við aukaskolun)
• Öll þvottakerfi ásamt sérstöku blettakerfi
• Ullarvagga
• Þvottahæfni "A" Þeytivinduafköst "B"
ingalottó (fyrsti vinningur 50 millj-
ónir og margir smærri), en auðvitað
eru allir vinningshafar íslenskir
kjósendur í gi'unninum.
Undirritaður heyrði í æsku talað
um framsóknargen, að hollusta við
Framsóknarflokkinn gangi í ættir,
og þótti hugmyndin falleg. Strax
munu fara í gang umfangsmiklar
rannsóknir við að einangra stjórn-
málagen. Kannaðar verða stökk-
breytingar á genum og áhrif um-
hverfisþátta á þau. Nú er framsókn-
argenið miðjugen. Getur það þá
stokkið til allra átta eða er það
stöðugra en önnur gen? Skyldi
laumukommagenið útdautt og
kratagenið vera alþjóðlegt? Um-
hvei'físþátturinn óbragð? Þetta eru
mjög spennandi rannsóknarverk-
efni sem byggð verða á bestu fáan-
legum gögnum.
Innanlandsmarkaður fyrir svona
gagnagrunn er nánast óendanlegur.
Stjórnmálaöfl munu leita leiða til að
styrkja gen og stökkbreyta í sínum
átökum. Ekki er loku fyrir það skot-
ið að erlendir viðskiptaaðilar fái að-
gang ef almennir eiginleikar
mannssálarinnar í stjórnmálahugs-
un koma í ljós. Ef t.d. kemur í ljós
að kratagenið er alþjóðlegt þá gætu
erlendir aðilar prófað hér aðferðir
til styrkingar eða útrýmingar þess
gens.
Öllum stórum framkvæmdum
fylgir áhætta. Sérleyfishafi þjóðar-
gagnagrunns ber þunga ábyrgð, því
fari illa samsvarar það stórfelldu
stjórnarskrárbroti. Vegna þessarar
miklu ábyrgðar sérleyfishafa er
skylt að ræða um áhættu. Fyrst
nokkur orð um dulkóðun. Undirrit-
uðum er ekki kunnugt um neina
dulkóðun sem ekki væri unnt að
brjóta fyrr eða síðar með vísinda-
legum aðferðum, svo að ekki sé
minnst á gömlu leiðina að stela lykl-
inum. Dulkóðun er góð til þess
brúks að koma í veg fyrir að starfs-
menn sjái alveg óvart eitthvað sem
þeir eiga ekki að sjá. Hún hentar
vel þar sem ekki fyrirfinnst óheiðar-
leiki, eða þar sem áhættan er frekar
lítil sé til langs tíma litið miðað við
mögulegan ávinning.
En það er einkum þrennt sem
gæti spillt þessu öllu:
1) Að sú stefnubreyting yrði hjá
íslenskum stjórnvöldum, annað-
hvort leynt eða ljóst, að opna
grunninn til eigin nota. Landlækn-
ir minnti á í nýlegu erindi að það
væru ekki nema 15 ár síðan síð-
ustu fasistastjórnirnar hefðu verið
UTILiF
GLÆSIBÆ • S: 581 2922
www.utilif.is
él
pPitney Bowes
frímerkjavélar
Eðalmerki í póststimplun
og póstpökkun
Otto B. Arnar ehf.
Armúla 29, Reykjavík,
sími 588 4699, fax 588 4696
við völd í nokkrum Vestur-Evrópu-
ríkjum (þau eru reyndar 20-24 ár-
in síðan það var) og ekki verður
séð að lýðræðið sé ennþá mjög
þroskað alls staðar innan Evrópu,
t.d. hvorki í Rússlandi né Serbíu.
Það eru 26 ár síðan forseti Banda-
ríkjanna var með innbrotsþjófa á
sínum snærum. Voru þeir ekki
einmitt að reyna að skoða í frum-
stæða gagnagrunna þess tíma?
Það verður hver og einn að meta
það með sjálfum sér hversu líklegt
eða ólíklegt það sé að sagan endur-
taki sig.
2) Að starfsmenn gi'unnsins
fremdu lögbrot. Þeir gætu t.d. rekið
tvo grunna, annan út á við undir eft-
irliti Tölvunefndar, en hinn á svört-
um markaði. Stjórnendur deKjós
hf. setja heiðarleik og drengskap í
öndvegi og munu sjá um strangt
innra eftirlit með starfsmönnum
sínum. Við getum samt ekki tryggt
100% öryggi.
3) Að utanaðkomandi aðili stæli
grunninum í heilu lagi. Miðlægir
gagnagrunnar smáþjóðarinnar á Is-
landi í vörslu fyrirtækja deCode eða
deKjós hf. eru nú ekki stærri í
gagnamagni en svo að þeir komast
fyrir á segulbandsspólu sem koma
má fyrir í servíettu, svona eins og
þegar silfurskeiðar hurfu í fínum
boðum. Afritun grunnsins á slíkar
spólur mun fara daglega fram og
ekki hægt að útiloka að ein slík
hverfi, jafnvel úr lokuðu bankahólfi.
Spólan gæti verið verðmætari en
bankinn (t.d. Landsbankinn) sem
geymir hana.
Undirritaður telur að frumvörp
til laga um miðlægan kosninga-
gagnagrunn gæti orðið sannkallað
systurfrumvarp miðlægs gagna-
grunns á heilbrigðissviði og spurn-
ing hvort ekki ætti að skrifa eitt
almennt frumvarp um miðlæga eða
þjóðlega gagnagrunna dulkóðaðra
persónuupplýsinga. Það er enginn
grundvallarmunur á þessum
tveimur gagnagrunnum, báðir
innihalda viðkvæmar en dulkóðað-
ar persónuupplýsingar (t.d. geð-
sjúklingur, óstöðvandi kynfíkill,
laumukommi, dulkóðað sem:
owFb45Mklpu-
eXlSalldaFJ+allxUWVCillicnMk
ABOmpH4qzfmXnZOallx-
bpKHwuLvn2oSwxLyVTIbsy
L+ltdmZOjg5XTmJp-
bml2fm5uJhcA =XOyK). Hvorug-
ur grunnur er persónu aftengdur.
Ég get ekki séð nein rök fyrir því
að hafna öðru frumvarpinu en
leyfa hitt og vænti þess vegna
samtímis afgreiðslu beggja á Al-
þingi. Það er verst að fyrsta útgáf-
an af frumvarpinu sem búið var að
prenta fór ekki í gegn í vor, „allir í
grunninn og ekkert múður“.
í guðanna bænum flýtið ykkur
svo kerfið verði komið upp fyrir
næstu kosningar. Þótt það sé ágætt
að stinga upp á frumvörpum til
laga, þá er það hins vegai' ekki kurt-
eisi að gefa Alþingi svona stuttan
íyrirvara, en við megum því miður
bara engan tíma missa.
Höfundur erjarðeðlisfræðingur.