Morgunblaðið - 22.10.1998, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1998 49^
I
i
1
I
j
1
I
AÐSENDAR GREINAR
„Þetta er ekkert flókið“
Lítil samanburðarsaga:
,Segjum svo að ég eigi jörð á
Norðurlandi en hafí ekki haft
möguleika á að nýta hana sökum
þess að mig skortir nauðsynleg
tæki til þess. Nú kemur til mín
maður sem vill fá að nýta jörðina
og telur sig eiga rétt á því vegna
þess að hann hefur yfir áður-
gi’eindum tækjum að ráða. Eg
segi manninum að hann geti feng-
ið að nýta jörðina en að því til-
skildu að hann greiði mér fyrir
nýtinguna. Hann bregst reiður við
og segir að hann hafí alls enga
möguleika á því vegna þess að
hann standi í svo miklum kostnaði
vegna viðhalds á tækjunum auk
annars kostnaðar. Auk þess njóti
ég góðs af þessu öllu saman því
hann borgi af þessu skatt og
skyldur og þetta sé atvinnuskap-
andi o.s.frv. Nú, ég vil engan veg-
inn sætta mig við þessi málalok
enda eigi ég jörðina og geti því
ekki betur séð en að ég eigi ský-
lausan rétt á einhvers konar
greiðslum vegna nýtingar hennar.
Maðurinn bregst hinn æfasti við
þessari yfírlýsingu minni og vill
meina að með þessu sé ég að vega
að íslenskum landbúnaði og ís-
lensku atvinnulífi í heild og að ég
og mínir líkar séu þeir sem séu að
brjóta niður íslenskan landbúnað
og atvinnulíf og ég veit ekki hvað
og hvað. Mér finnst nú maður
þessi kominn svolítið út fyrir efnið
þar sem ég var eingöngu að benda
á rétt minn sem eiganda jarðar-
innar á einhvers konar greiðslum
fyrir nýtingu annars aðila á henni.
En hann situr sem fastast við sinn
keip og neitar því með öllu að hon-
um beri að greiða mér eitthvað
fyrir nýtinguna en viðurkennir þó
að ég sé vissulega réttmætur eig-
andi jarðarinnar."
Þetta er það sem er uppi á ten-
ingnum í dag hvað snýr að deil-
unni um hvort setja eigi á ein-
hvers konar veiðileyfagjald eður
ei. I fyrstu grein fiskveiðistjórn-
unarlaganna segir: „Nytjastofnar
á íslandsmiðum eru sameign ís-
lensku þjóðarinnar. Markmið laga
þessai’a er að stuðla að verndun
og hagkvæmri nýtingu þeirra og
tryggja með því trausta atvinnu
og byggð í landinu. Uthlutun
veiðiheimilda samkvæmt lögum
þessum myndar ekki eignarrétt
eða óafturkallanlegt forræði ein-
stakra aðila yfir veiðiheimildum."
Lögum samkvæmt eru auðlindir
hafsins því sameign þjóðarinnar
og eignarréttui; hennar því alger-
lega skýlaus. í 67. gr. stjórnar-
skrárinnar stendur ennfremur:
„Eignarrétturinn er friðhelgur.
Engan má skylda til að láta af
hendi eign sína, nema almennings-
þörf krefji; þarf til þess lagafyrir-
mæli, og komi fullt verð fyrir.“ Nú
er það svo að þjóðin hefur verið
skylduð til þess að láta af hendi
sameign sína. Almenningsþörf
krefst þess ekki og ef almennings-
þörfin krefst einhvers í þessu máli
er það að sanngjarnt og rétt verði
að málum staðið. Hins vegar eru
því miður til staðar lagafyrinnæli
um framsal eignarinnar. Það
breytir þó því ekki að skýrar laga-
lega forsendur eru fyrir því að
þjóðinni skuli greitt að fullu fyrir
nýtingu sameignar sinnar. Stang-
ist önnur lagaákvæði á við það ber
þeim að víkja fyrir stjórnarskrár-
ákvæði þessu. Það er svo að skilja
á útgerðarmönnum að þeir annað-
hvort hafi ekki möguleika á að
greiða veiðileyfagjald í einhverri
mynd, vegna þess að þeir standi í
svo miklum kostnaði vegna út-
gerðarinnar, eða þá að slíkt sé
bara hreinlega út í hött að þeirra
mati, vegna þess að þjóðin njóti
svo góðs af þessu öllu saman þeg-
ar upp er staðið. Þeir hafa síðan
viljað snúa umræðunni í það að út-
gerðin sé vanmetin af íslensku
Ef einhver nýtir annars
eign, segir Hjörtur J.
Guðmundsson, er sjálf-
gefíð að fyrir nýtinguna
sé greitt.
þjóðinni, þ.e. þeir virðast vilja
meina að með kröfu þjóðarinnar
um greiðslur fyrir nýtingu sam-
eignar hennar sé þjóðin að gefa í
skyn að íslensk útgerð sé ekki eins
mikilvæg þjóðinni og hún er. Is-
lensk útgerð er vissulega undir-
staða íslensks atvinnulífs en það er
bara ekki það sem umræðan snýst
um. Umræðan snýst um það að
þjóðin á skýlausan og lagalegan
rétt á greiðslum vegna nýtingar á
sameign hennar. Hitt er síðan allt
annað mál. Ef einhver á einhverja
eign og annar aðili nýtir hana þá á
viðkomandi rétt á greiðslu fyrir
nýtinguna fari hann fram á slíkt.
Þetta er ekkert flókið. Meira að
segja útgerðarmennirnir vita
þetta. Málið er bara að þeim líkar
eðlilega við fiskveiðistjómunar-
kerfið eins og það er í dag enda er
það algerlega þeim í hag.
Þeir líta væntanlega á hvers
kyns veiðileyfagjald sem auka-
skattlagningu. Þeim finnst sjálf-
sagt nóg að borga bara sína skatta
og skyldur og þá sé samviskan
hrein. En eins og allir vitibomir
menn vita þá tíðkast það alls staðar
í heiminum að menn verða að
greiða fyrir hráefnið til framleiðslu
sinnar. „Það er ekkert ókeypis í
þessum heimi,“ sagði einhver. Ef
það væri nú svo að það tryggði
manni einhvern nýtingarrétt á auð-
lindum í eigu þjóðarinnar að borga
bara sína skatta og skyldur þá gæti
sérhver borgari þessa lands að
sama skapi safnað til þess fjár-
magni og skroppið síðan upp á há-
lendið og virkjað svo sem einn foss
sí svona og stórgrætt síðan á raf-
orkusölu!?? Þessir menn hafa þó
ekki hugsað sér að hella sér út á
þann markað? Það væri öragglega
hægt að fá löggjafann til að setja
lög sem heimiluðu slíkt fyrst hann
staðfesti blessuð fiskveiðistjómar-
lögin. Það væri gaman að vita fyrir
alvöra hvemig blessaðir útgerðar-
mennimir hugsa þetta. Kerfið er
náttúrlega algerlega þeim í hag og
þjónar þeiiTa hagsmunum út í ystu
æsar og væntanlega er það einmitt
það sem ræður ferðinni og hugs-
anahættinum hjá þeim. Röksemda-
færsla þessara manna hefur nú
ekki verið svo gáfuleg upp á
síðkastið; reyndar ekki frá upphafi.
Rökhugsun manna vill skiljanlega
fara svolítið úr skorðum þegar
hagsmunimir blinda þeim alger-
lega sýn. Síðasta stóra útspil þess-
ara aðila var að kaupa upp heilu
síðumar í Morgunblaðinu og draga
þar til allt um það hvað útgerðin
skipti þjóðina miklu máli o.s.frv.
o.s.frv. sem er alveg heilagur sann-
leikur en um það snýst málið bara
ekki. Þó svo sjávarátvegurinn sé
undirstaða atvinnulífs Islendinga
þýðir það ekki að þeir eigi rétt á
einhvei’jum sérstök kjöram, und-
anþágum og hvað þá gjöfum. Því
mætti síðan bæta við hér að lokum
að fyrrgreint útspO útgerðarmanna -
er mjög vinsæl aðferð ýmissa auð-
valdsmanna þegar þeir fyllast ör-
væntingu og finnst þeir vera að
missa tökin á einhverju. Síðasta
dæmi um þetta var í síðustu for-
setakosningunum þegar keyptar
vora ófáar síðurnar í Mogganum á
lokaspretti kosninganna vegna
þess að kaupendunum líkaði ekki
frambjóðandinn sem allt benti til
að væri að sigra í kosningunum. Þó
er sá munur á þessu að í því tilfelli
var um að ræða ófrægingu á hend-
ur frambjóðandanum en nú er ein- *.
göngu um lofsyrði að ræða og öll-
um óþægilegum staðreyndum
sleppt. Þetta fer auðvitað allt eftir
því hvort það er viðkomandi kaup-
endum í hag að nota lof eða níð. En
nóg um það.
Utgerðarmennirnir hafa auðvit-
að engan áhuga á því að breyta
kerfinu og munu því væntanlega
neyta allra ráða til að verja núver-
andi ástand. En það breytir því
ekki að kerfið eins og það er í dag
er með engu móti sanngjarnt. Það
ættu allir með heilbrigða skynsemi
að sjá. Ekki er þó ætlunin að fara
frekar út í þetta. Nóg er að útgerð-
armennirnir virðast eiga eitthvað
erfitt með að halda sig við efnið.
Sumum gæti þótt þetta allt ein-
um of mikO einfóldun, en í grannat-
riðum er þetta svo sannarlega
svona. Það sem togast á í þessari
deilu era einfaldlega hagsmunir
einstakra aðila annars vegar og
það sem er rétt og sanngjamt hins
vegar. Þetta er bara staðreynd og
þetta era flestir tilbúnir að sam-
þykkja, þ.e. svo framarlega að þeir
séu ekki bundnir í báða skó af eigin
hagsmunum.
Höfundur er laganemi.
'*■' allabouteyes"-'
En fyrsl er a5 undirbúo
verkið vel með nýjq
All About Eyes
óður en fjörið byrjar.
Þetta létta kremgel styrkir
húðina og dregur úr
dökkum baugum og linum.
Það mildor skugga kringum
augun svo það verður
bjartara yfir þeim, eflir
rakavernd húðarinnar og
byggir upp fyrir framtíðina.
lSml 2.815 kr.
Af hverju á fjörið bara að
vera á vörunum?
Hjá Clinique finnst okkur kominn tími til
að augun fai líka að komast í fjörið.
Sjáið bara nýju augnskuggastiftin, Smudgesides.
Þau eru eins og „varalitur" fyrir augun, líta eins út
og renna mjúklega á - og tolla á við bestu varaliti.
Þessir „varalitir" eru í fallegum, augnvænum litum,
allt frá himinbláu yfir í Ijósbleikt. Til að blanda og
setja saman. Til að leika sér með.
Smudgesides, 2,2 g 1.520 kr.
Ráðgjafi frá Clinique verður í versluninni Söru í dag og á morgun
(Sara
Bankastræli 8, sími 551 3140
gjNlQUt
■00% ilmefnalaust
Útsölustaðir:
Meíríháttar
barnafatnaður irá
/ms)
K I D 5 Wear
APfP.OVED E5y C HtLDREN
ROLLINGAR, KRINGLUNNI.
ÓLAVÍA & ÓLIVER, GLÆSIBÆ.
BARNAHEIMAR, SIÐUMÚLA 22.
SPÉKOPPAR, HVERAFOLD OG
LAUGAVEGI 35.
EMBLA, HAFNARFIRÐI.
OZONE, AKRANESI.
LEGGUR OG SKEL, ÍSAFIRÐI.
HANS OG GRÉTA, SAUÐÁRKRÓKI.
KÁTIR KRAKKAR, AKUREYRI.
VERSLUNIN KARÓLÍNA, HÚSAVÍK.
SENTRUM, EGILSSTÖÐUM.
LÓNIÐ, HÖFN.
MOZART, VESTMANNAEYJUM.
GRALLARAR, SELFOSSI.
PALOMA, GRINDAVÍK.
www.mbl.is