Morgunblaðið - 22.10.1998, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 22.10.1998, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1998 55 HALLDORA OLOF GUÐMUNDSDÓTTIR + Halldóra Ólöf Guðmundsdótt- ir fæddist á Mosvöllum í Önund- arfirði 29. apríl 1906. Hún lést á Hrafnistu í Reykja- vík 15. október síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Guð- niundur Bjarnason bóndi á Mosvöllum, f. 24.3. 1877 á Saur- um í Álftafirði, d. 26.3. 1964 í Reykja- vík, og kona hans Guðrún Jóna Guð- mundsdóttir, f. 8.1. 1873 á Vöðlum í Önundarfirði, d. 29.7. 1959 í Reykjavík. Systkini Hall- dóru: 1) Ragnheiður, f. 25.10. 1902, d. 7.4. 1991. 2) Ingileif Þuríður, f. 25.2. 1905, d. 31.10. 1906, 3) Ingileif Steinunn, f. 6.8. 1907. 4) Ólafur Eggert, f. 29.12. 1908, d. 15.2. 1993. 5) Guðný Margrét, f. 6.6. 1913. Auk þeirra ólust upp á Mosvöll- um Þórhildur Þórðardóttir og frændsystkini Halldóru þau Guðmundur Ásgeirsson, Guð- mundur Jónsson, Guðmundur Pálsson og Sigríður Pálsdóttir. Halldóra var tvo vetur á Al- þýðuskólanum á Núpi í tíð séra Sigtryggs eins og öll þau systk- inh Hún starfaði við fiskvinnslu á fsafirði og í Reykjavík, en Halldóra Ólöf Guðmundsdóttir föðursystir okkar var höfðingleg kona, ákveðin í skoðunum, fasið reist og örlætið mikið. Gulllituð ballerína til að festa í telpubarm og sápa með dýrlegri ilman en áður hafði fundist á æskuheimili okkar tengjast henni í bemskuminningum okkar. Dóra frænka var þá nýkomin frá hinum miklu Sovétríkjum og færði okkur bömunum þessar dýr- indisgjafir. Sjálfsagt hafði hún í huga að stelpan var að reyna sig í ballett og strákurinn oft sveittur við íþróttaiðkun, því hún fylgdist vel með bróðurbörnum sínum og iðju þeirra. Og manni var ekki sama um álit Dóm frænku. Þannig hafði sín áhrif setningin sem Dóra lét falla þegar henni barst til eýma að bróð- urdóttirin væri að syngja opinber- lega ballöður á enskri tungu: „Ég fékk gallspýting þegar ég heyrði að hún Stína væri að syngja á amer- ísku!“ Vissulega var kjallaraíbúðin á Flókagötunni, þar sem Dóra bjó ásamt Torfa og dóttursyni sínum Halldóri Tjörva, hvorki stór né íburðarmikil. En í minningunni eru heimsóknimar þangað á höfðingja- setur. Þannig vora viðtökurnar, fas húsfreyjunnar og veitingarnar sem fram voru reiddar. Barnaafmælin hans Tjörva voru í sérflokki, þar sem saman fór frjálsræði og fyrir- fram skipulagðar athafnir sem börnin kunnu vel að meta. Þegar við vorum komin af barns- aldri áttuðum við okkur á því að hún frænka okkar lét sig ekki einungis varða velferð og athafnir ættingja sinna eða heimilisgesta. Atorku sinni beitti hún líka í þágu verka- fólks, var m.a. formaður netagerð- armanna, og hélt ótrauð fram þeim skoðunum á þjóðfélagsmálum sem hún taldi best gæta hagsmuna al- þýðufólks og verja sjálfstæði ís- lenskrar þjóðar. Halldóra var vel lesin, fróð og skörp í hugsun. þrátt fyrir langa dvöl á elliheimili fylgdist hún vel með þjóðmálum og var fullgild í um- ræðum um stjómmál líðandi stund- ar. Það var einnig gjöfult að hlusta á hana segja frá löngu liðnum tíma, þar nutu áheyrendur bæði góðs minnis hennar og markvissrar framsetningar. Rúmlega níræð lýsti hún fyrir okkur hreppsnefndar- fundum í foreldrahúsum hennar á Mosvöllum í Önundarfirði. Þá sá hún svo til, unglingsstúlkan, að hún fengi ætíð að uppvarta karlana því hún vildi fylgjast með öllu sem þeir vann síðar við neta- gerð í Reykjavík og var formaður Nót- ar, félags netagerð- armanna. Árið 1937 gerðist hún ráðs- kona Torfa Her- niannssonar (f. 1884, d. 1975) hús- gagnasmiðs frá Fremstuhúsum í Dýrafirði og bjuggu þau á Flóka- götu 3 í Reykjavík. Dóttir Halldóru og Jónmundar Gísla- sonar (f. 1907, d. 1978) togaraskipstjóra er Guð- rún Jóna, f. 6.2. 1934. Maður Guðrúnar er Aðalsteinn Þór- ólfsson, f. 31.5. 1928, og búa þau nú á Húsavík en áður í Stórutungu í Bárðardal. Börn Guðrúnar eru Halldór Tjörvi Einarsson, f. 23.11. 1952, og Gunnjóna Sigrún Hringsdóttir, f. 28.2. 1954. Börn Guðrúnar og Aðalsteins eru Anna Guðrún, f. 13.7. 1956, Torfi, f. 9.8. 1957, Þórólfur f. 20.5. 1959, Jón- mundur, f. 1.6. 1960, Trausti, f. 25.5. 1961, Dóra, f. 6.3. 1963 og Sveinn, f. 13.12. 1968. Afkom- endur Halldóru Guðmundsdótt- ur eru 47 talsins. Útför Halldóru verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. höfðu um málefni sveitarinnar að segja og skemmtilegast var þegar bændur tókust hressilega á um önd- verðar skoðanir. Að leiðarlokum viljum við fyrir hönd okkar systkinanna þakka Dóra frænku fyrir höfðingsskapinn sem hún sýndi fjölskyldunni í Stór- holti alla tíð og fyrir eiginleikana sem gera okkur stolt af því að vera ættmenni hennar. Við kveðjum hana með vísu sem faðir okkar orti eitt sinn til systur sinnar: Ótal margt þökkum við, Dóra, í dag. þig dvaldi aldrei hik, það var sama hvað skeði. Að miða við orku eða efnahag var aldrei þér tamt, það var skapið sem réði. (Ólafur E. Guðmundsson) Far þú í friði, kæra frænka. Kristín Á. Ólafsdóttir, Þorvaldur Ólafsson. Hún Dóra frænka er dáin, rúm- lega níræð. I mínum huga var hún einstök kona, kvenskörangur. Tæpitungulaust og sköralegt mál- far hennar og handatiltektir - ef mikið lá við - mun mér seint úr minni líða, enda þoldi hún ekki hik og roluhátt. Ef henni blöskraði úrræðaleysi og vesaldómur til verka, einkum karlkynsins, kom gjarnan lýsingar- orðið „mélráfa". Ekki vildi ég fá þá einkunn hjá þessari móðursystur minni, eins gott að standa sig. Þetta viðhorf varð mér lærdómsríkt. Hún ólst upp við sveitastörf á Mosvöllum í Önundarfirði og þótti snemma liðtæk. Meira var hún fyr- ir verk og átök stráka en dútl smá- telpna, sagði mamma mér. Hún hafði fallega og eftirminni- lega söngrödd og söng mikið eins og þau systkini öll. Eftir barnaskól- ann nam hún tvo vetur við hinn ágæta skóla sr. Sigtryggs Guð- laugssonar að Núpi í Dýrafirði, eins og systkini hennar, sem þá var fremur fátítt. Þau systkinin vora öll virkir þátttakendur í ungmennafé- laginu Bifröst, fundir þess vora stundum haldnir í stofunni heima á Mosvöllum og ein af fyrstu endur- minningum mínum er einmitt söng- ur og vikivakadans þeirra ung- mennafélaganna þar. Hún flutti fljótlega að heiman í atvinnuleit en næst man ég einkum eftir heimsóknum hennar vor og haust og oftast dvöl í fáeinar vikur. Hún hafði lært netaviðgerðir í Reykjavík og um síldarvertíðina vann hún á Siglufirði, í mörg sum- ur. Sína einu dóttur, Guðrúnu Jónu, fæddi hún á Mosvöllum árið 1934 og um síldartímann var Gunna þar í umsjá afa og ömmu og móður minnar, sín uppvaxtarár. Dóru var töm verkstjórn við netavinnuna enda var hún fæddur stjórnandi. Þegar að verkalýðs- og félagsmálum kom naut skörungs- skapur hennar sín vel og hún var lengi formaður Nótar, félags neta- gerðarfólks. Hún sat mörg Al- þýðusambandsþing og mér var sagt að hún hefði verið þar at- kvæðamikil. Hin síðari ár sín var hún heilsu- lítil og dvaldi þá fyrst á heilsuhæli í Hveragerði en síðan lengi á dvalar- heimili aldraðra, Hrafnistu í Laug- arási. Eftirfarandi erindi, ort til Dóru, eftir Halldór Kristjánsson frænda hennar, lýsir vel þessari eftirminni- legu konu: Peir gömlu fara í fortíðina að rýna þar festa í hugann ýmsar myndir sig, þú vildir aldrei hálfVerk hafa að sýna en heil og falslaus ganga æfistig. Þú varst þú sjálf og sagðir meining þína og svona vil ég alltaf muna þig.“ (H.Kr.) Margar þakklátar minningar koma upp í hugann er ég hripa þessi kveðjuorð, hugulsemi og höfð- ingsskapur þinn kom vissulega fram í góðum gjöfum þínum til þessa elsta systkinabarns þíns í bernsku minni. Þökk sé þér frænka. í of fáum heimsóknum mínum til þín í Laugarásinn kom glöggt í ljós þín andlega reisn og óbrigðult minni, til hinstu stundar. Þó þú fæddir aðeins eitt barn sjálf eru afkomendur þínir nú orðn- ir fjöratíu og sjö, myndar- og dugn- aðai-fólk. Ég sendi þeim öllum sam- úðarkveðjur og vona að atorka ætt- móðurinnar verði þeim hvatning til dáða um ókomin ár. Valdimar Ólafsson. BRAGI INGÓLFSSON + Bragi Ingólfs- son fæddist á Húsavík 22. október 1947. Hann lést 11. september síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Húsa- víkurkirkju 18. september Mig langar að minn- ast Braga, tengdaföður míns, sem hefði orðið fimmtíu og eins árs í dag, 22. október. Ég vil þakka fýrir að hafa fengið að kynnast þér og fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur og þá sérstaklega Braga og Arnar. Það er varla að mað- ur trúi því ennþá að þú sért farinn frá okkur. En ég vona að þér líði vel þar sem þú ert núna og minning þín mun lifa. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Vertu sæll og guð geymi þig. Þinn tengdasonur Marinó Önundarson. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, HERA NEWTON, Garðatorgi 7, Garðabæ, andaðist á heimili sínu þriðjudaginn 20. októ- ber sl. Stanley Páll Pálsson, Sigríður Rut Stanleysdóttir, Hólmar Ólafsson, Áslaug Líf Stanleysdóttir, Sif Stanleysdóttir, Axel Örn Ársælsson og barnabörn. t Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN JÖRUNDARDÓTTIR, Gullsmára 9, Kópavogi, lést á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði þriðjudag- inn 20. október. Helga Sigurbjörg Árnadóttir, Helgi Freyr Kristinsson, Árni Freyr Helgason. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ARNBJÖRN ÓSKARSSON, Gnitanesi 10, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 23. október kl. 13.30. Hréfna Karlsdóttir. Sigríður Arnbjarnardóttir, Ingimundur Sveinsson, Anna Arnbjarnardóttir, Ólafur Erlingsson, Óskar A. Oskarson, Karen Oskarson, Guðmundur Á. Arnbjarnarson, Ástrún B. Ágústsdóttir og barnabörn. + Faðir minn, tengdafaðir, bróðir, mágur, afi og langafi, JÓN BACHMANN GUÐMUNDSSON bifvélavirki, Fellsmúla 12, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju á morgun, föstudaginn 23. október, kl. 15.00. Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Krabbameins- félagið. Magnús Jónsson, Edda Pálsdóttir, Guðrún Vilborg Guðmundsdóttir, Jónas Eysteinsson, Hallfríður Guðmundsdóttir, Gunnar Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Hjartans þakkir til allra þeirra, sem veittu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, JÚLÍUSAR HALLDÓRSSONAR, Ægisíðu 86, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar 11E á Landspltalanum. Þórunn Gröndal, Ingibjörg Júlíusdóttir, Jón Kr. Hansen, Halldór Kr. Júliusson, Lára V. Júlíusdóttir, Sigurður Júlfusson, Sigurður Konráðsson, Áslaug Konráðsdóttir, Anna Júlíusdóttir, Þórunn Júlíusdóttir, Pétur Benedikt Júliusson, Ellen Apalset og barnabörn. Ólína Guðmundsdóttir, Þorsteinn Haraldsson, Anna Eyjólfsdóttir, Kolbrún Eggertsdóttir, Karl Júlíusson, Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson,
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.