Morgunblaðið - 31.12.1998, Síða 2
I
2 FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ
Atak gegn
augn-
slysum
FORSETI íslands, heira Ólafur
Ragnar Grímsson, tók á móti
fulltrúum Blindrafélagsins, sam-
tökum blindra og sjónskertra, á
Bessastöðum í gær t.il að styðja
átak Blindrafélagsins í forvörn-
um gegn augnslysum.
Biindrafélagið leggur mikla
áherslu á forvarnir tU fækkunar
augnslysum og rannsóknir á
augnsjúkdómum. Um áramót er
mikil hætta á augnslysum vegna
ógætilegrar meðferðar á flug-
eldum. I ár eins og síðasta ár
gefur Blindrafélagið öllum börn-
um í 7. bekk í grunnskólum
landsins hlífðargleraugu til
notkunar á gamlárskvöld.
Skólakór Kársness kom einnig
til Bessastaða og söng nokkur
lög og fékk hlífðargleraugu hjá
forsetanum. Að endingu var
flugeldasýning í umsjón Hjálp-
arsveitar skáta í Reykjavík.
20 áramóta-
brennur
TUTTUGU áramótabrennur
verða á höfuðborgarsvæðinu í
kvöld og verður kveikt í þeim
flestum á milli klukkan 20 og
21.
Nokkrar breytingar eru frá
í fyrra og verður til að mynda
ein stór brenna á Suðurbakk-
anum í Hafnarfirði að þessu
sinni.
■ Áramótabrennur/C3
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Kristinn
FORSETI íslands, herra Ólafúr Ragnar Grímsson, afhendir meðlimum
skólakórs Kársness hlífðargleraugu á Bessastöðum í gær. Til hægri
stendur Halldór Guðbergsson, markaðsfulltrúi Blindrafélagsins.
Utvarpsráð fjall-
ar um Dómsdag
ÚTVARPSRÁÐ mun taka til um-
fjöllunar erindi Einars Benedikts-
sonar sendiherra um sjónvarps-
myndina „Dómsdagur" sem Ríkis-
sjónvarpið sýndi á annan dag jóla.
Einar ritaði útvarpsstjóra bréf í
gær vegna sýningar myndarinnar
þar sem hann krefst þess að „þeir
aðilar sem hafa orðið fyrir því að
mannorð og minning ættfólks þess
sé svo gróflega svert, séu beðnir af-
sökunar opinberlega“.
Markús Örn Antonsson, útvai-ps-
stjóri, vildi ekki tjá sig um þau við-
brögð sem myndin hefur fengið áðui-
Jóhanna Sigurðardóttir
en málið hefur fengið sameiginlega
umfjöllun hjá útvarpsráði og yfir-
stjórn Ríkissjónvarpsins. „Eg er
sannfærður um að það hefði orðið
umræða í útvarpsráði um þessa dag-
skrá út frá þeim blaðaskrifum sem
þegar hafa orðið og tilefni til þeiiTa.
Á grundvelli þess bréfs sem Einar
hefur sent frá sér verður sérstaklega
fjallað um málið,“ sagði útvarpsstjóri
en ekki liggur fyrir hvenær útvarps-
ráð mun næst koma saman.
Myndin „Dómsdagui'" fjallar um
hið svokallaða „Sólborgarmál" þar
sem Einar Benediktsson skáld, afi
og alnafni Einars sendiherra, kemur
m.a. við sögu. Myndin er að hluta til
byggð á sönnum atburðum og hefur
leikstjóri hennar, Egill Eðvarðsson,
lýst því yfir að um skáldverk sé að
ræða.
vill opnara prófkjör
JÓHANNA Sigurðardóttir alþingis-
maður hefur óskað eftir fundi með
fulltrúum A-flokkanna til að ræða
hvort hægt er að hafa prófkjör sam-
fylkingar í Reykjavík opnara. Þessi
afstaða kom eindregið fram á fundi
sem Jóhanna átti með stuðnings-
mönnum sínum í gær.
Skömmu fyrir fundinn í gær
barst Jóhönnu bréf frá stjórn kjör-
dæmisráðs Alþýðuflokksfélaganna í
Reykjavík þar sem henni var boðið
að taka þátt í prófkjörinu með Al-
þýðuflokknum. Frambjóðendur
flokksins í prófkjörinu myndu þá
bjóða sig fram í nafni Alþýðuflokks-
ins og óháðra.
„Því er ekki að leyna að menn
vilja hafa prófkjörið opnara heldur
en gert er ráð fyrir í samkomulagi
A-flokkanna, þ.e.a.s. að hægt verði
að velja frambjóðendur á milli
flokka. Við sem erum sameiningar-
sinnar, en erum ekki flokksbundin í
A-flokkunum, teljum mjög nauðsyn-
legt að hafa þetta opnara ef við eig-
um að geta tekið þátt í þessu á jafn-
ræðisgrundvelli," sagði Jóhanna
þegar hún var spurð út í fundinn
með stuðningsmönnum sínum.
Jóhanna fer á fund
formanna A-flokkanna
Jóhanna sagðist hafa óskað eftir
fundi með A-flokkunum þar sem
hún myndi koma þessari ósk um
opnara prófkjör á framfæri. Hún
sagðist vænta þess að niðurstaðan
lægi fyrir fljótlega eftir áramót.
Jóhanna sagði bréf Alþýðuflokks-
ins jákvætt og hún sagðist ekki úti-
loka að taka þessu boði. „En ef
prófkjörið verður ekki opnað meira
er alveg eins líklegt að ég taki
fjórða sætið án prófkjörs."
Ef Jóhanna tekur þátt í prófkjör-
inu með Alþýðuflokknum er búist
við að milli hennar og Össurar
Skarphéðinssonar verði nokkuð
mikil keppni um efsta sæti. Líklegt
megi telja að keppni þeirra myndi
fjölga kjósendum Alþýðuflokksins í
prófkjörinu og þar með ykjust líkur
á að flokknum tækist að fá fleiri at-
kvæði en Alþýðubandalagið. Sá
flokkur sem fær fleiri atkvæði í
prófkjörinu fær efsta sæti listans.
Heimildir blaðsins telja að tilboð
Alþýðuflokksins auki þrýsting á AI-
þýðubandalagið að opna prófkjörið.
Tillögu um opnara prófkjör var
hafnað á fundi kjördæmisráðs Al-
þýðubandalagsfélaganna.
■ Bréf Einars/10
Annáll og
svipmyndir
á mbl.is
TEKNAR hafa verið saman
helstu íféttir sem birtust á
Fréttavef Morgunblaðsins á
Netinu á árinu sem er að líða, og
er hægt að lesa þennan frétta-
annál á mbl.is. Þai- er einnig
hægt að skoða valdar frétta-
myndir sem ljósmyndarar
Morgunblaðsins hafa tekið á ár-
inu.
Hægt er að lesa fréttayfirlitið
og skoða myndirnar með því að
velja viðkomandi hnappa á for-
síðu Morgunblaðsins á Netinu.
Þá er að finna hægra megin á
síðunni undir yfirskriftinni Nýtt
á mbl.is.
41 hefur látist af slysförum á árinu sem er að líða
Míkil fjölgun bana-
slysa í umferðinni
41 EINSTAKLINGUR hefur látist
af slysförum á þessu ári. Þar af lét-
ust 27 manns í umferðarslysum, og
er það mikil fjölgun miðað við síð-
ustu tvö ár, þegar 11 og 17 manns
fórust í umferðarslysum.
í fréttatdkynningu frá Slysa-
varnafélagi Islands kemur fram að
41 einstaklingur hafi farist af slys-
förum á árinu í 39 slysum, þar af 31
karl og 10 konur. Fjöldi banaslysa á
árinu er undir meðaltali ef tekið er
meðaltal þeirra síðustu 10 árin.
Fæst voru banaslysin 1996 eða 32
og flest árið 1995 eða 86. Eitt
banaslys varð á sjó á árinu og er
það minnsti fjöldi banaslysa á sjó
frá því skráning hófst.
Langflestir fórust í ágústmánuði,
eða 10 manns, og næstflestir í maí
eða 5 manns. Langflestir fórust
einnig í umferðarslysum, eða 27
manns, þrír fórust í sjóslysum eða
drukknuðu, þrír í flugslysum og
átta í öðrum slysum. Langflest
banaslys í umferðinni urðu vegna
útafaksturs eða bílveltu, eða 16, en
sjö banaslys urðu vegna áreksturs.
Mikill fjöldi banaslysa
á þjóðvegum landsins
Að sögn Óla H. Þórðarsonar, for-
manns Umferðarráðs, er fjölgun
umferðarslysa á árinu mikið
áhyggjuefni. „Áhyggjur okkar
byggjast á því að þróunin hefur ver-
ið niður á við undanfarin ár í fjölda
látinna í umferðarslysum. Tölurnar
fyrir árið í ár eru því skelfilegar og
hræðilegt að sjá hvað þetta er stór
hópur þegar litið er á árið í heild.
Að baki hverju einasta slysi er mikil
hörmungarsaga og fjöldi fólks á um
sárt að binda vegna þeirra. Ég sam-
hryggist öllum aðstandendum og
vona að í minningu þeirra getum við
í sameiningu bætt ástandið veru-
lega á næsta ári með því að sýna
mikla aðgæslu í umferðinni. Þá er
þörf á að hver einasti farþegi og
ökumaður í bíl spenni á sig bílbelti,"
segir Óli.
Að sögn Óla hefur óvenju mikill
fjöldi umferðarslysa orðið í dreif-
býli í ár. 20 banaslys urðu utan
þéttbýlis en aðeins^ sex í þéttbýli,
auk þess sem einn íslendingur lést
í umferðarslysi erlendis. „Þessar
tölur segja okkur að við þurfum að
leggja ofurkapp á að koma í veg
fyrir slys á þjóðvegum landsins.
Þar mun Umferðarráð eiga sam-
starf við ríkislögreglustjóraemb-
ættið og lögreglu í landinu og mikl-
ar vonir eru við það bundnar að
löggæsla verði aukin á vegum
landsins, meðal annars með til-
komu sérstakrar umferðardeildar
hjá ríkislögreglustjóraembættinu,“
segir Óli.
Slysavarnafélag íslands lýsir
einnig yfir áhyggjum sínum vegna |
fjölda banaslysa í umferðinni, en I
þau voru 66% af öllum banaslysum 1
á árinu. Félagið skorar á landsmenn J
að nota alltaf bílbelti þegar ekið er,
þar sem mörg banaslysanna i ár
megi rekja til þess að bílbelti voru
ekki notuð.
y óímm
VlDSlflFn MVINNULÍF
íslenskur
hlutabréfa-
markaður
Vaxandi umsvif á árinu /D1
Heilsurækt fyrír alla
AUGLÝSING
Blaðinu
f dag fylgir
auglýsinga-
bæklingur frá
GYM 80 sem
dreift er á
höfuðborgar-
svæðinu og
nágrenni
• ••••••••••••••••••••• • • • • • • •
Örn fer ekki á HM/B1
Rögnvald hættur/B3