Morgunblaðið - 31.12.1998, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
• rr— -irr i~n— .1 j
GLEÐILEGT nýtt klónað góðæri með þökk fyrir þau liðnu.
Morgunblaðið/Kristinn
Viðgerðum á Bessastaðakirkju lokið
LOKIÐ hefur verið við viðgerðir
á Bessastaðakirkju að utan, en
viðgerðirnar hafa staðið yfír frá
því í júní síðastliðnum og hefur
Istak séð um verkið. Að sögn
Tómasar Tómassonar, verkfræð-
ings hjá Istaki, var múrhúðunin
á kirkjunni endurnýjuð og er
steinhleðslan í veggjum kirkj-
unnar nú sýnileg.
Turn kirkjunnar var mjög fú-
inn og þurfti að skipta um tré í
honum að verulegu leyti. Turn-
inn var tekinn niður á meðan á
viðgerðinni stóð og var burðar-
virki hans eudurnýjað að veru-
legu leyti og síðan var hann kop-
arklæddur á nýjan leik. Þá var
skipt um milligólf í turninum,
það var orðið fúið og hætta staf-
aði af.
ós/icu^ oids/ifíftí-
otíuim/ rStíití/tí
t(//edtíe/jrx á/ss' (Hj/
/>tí//(tí' Otíf'S/tífettíl/
Salon Veh, Kringlunni 7. á Mnum árum,
Salon Veh, Álfheimar 74.
Flugeldar um áramót
Allir eiga að
hafa hanska og
hlífðargleraugu
Hlynur Jónasson
Ikvöld verður flugeld-
um skotið á loft um
land allt. En það er að
ýmsu að huga þegar skot-
eldar eru meðhöndlaðir
því sé ekki varlega farið
er voðinn vís. Hlynur Jón-
asson er deildarstjóri
slysavamardeildar Slysa-
varnafélags íslands.
„Sem betur fer hefur
dregið úr slysum vegna
flugelda undanfarin ár.
En betur má ef duga skal.
I fyrra var helst að brenn-
ur og flugeldar á nýárs-
dagsmorgun væru orsaka-
valdur meiðsla. Á nýárs-
dagsmorgun er enn glóð í
sumum brennum og börn
laðast að þeim. Þau fara
oft ein út að leika sér og
það er ekki óalgengt að
við brennur megi finna
heila flugelda sem þau
fara þá að fikta við að skjóta á
loft. Það er nauðsynlegt að for-
eldrar brýni íyrir börnum sínum
að þetta er mjög hættulegur
leikur. Þar að auki eiga flugeldar
alls ekki heima við brennur þar
sem margir eru komnir saman.
Fólk ætti ekki undir neinum
kringumstæðum að hafa skot-
elda með sér á brennur."
- Eru þetta. þá aðallega bruna-
slys og slys á augum sem um er
aðræða?
„Já og yfirleitt verða þau við
brennurnar. Á hinn bóginn vor-
um við líka um síðustu helgi
rækilega minnt á hversu hættu-
legur leikur það er að búa til
sprengjur heima. Þá fórst í Dan-
mörku 27 ára gamall maður sem
þrátt fyrir ítrekaðar viðvaranir
var búinn að fikta við heimatil-
búnar sprengjur í nokkur ár. Svo
öflug var sprengingin að mesta
mildi þótti að ekki fórust fleiri.“
-Hvernig á að skjóta upp
flugeldum þannig að fyllstu var-
kárni sé gætt?
„Það á fyrst og fremst að fara
eftir þeim leiðbeiningum sem
fylgja skoteldum og skjóta ekki
upp flugeldum í mannþröng. Þá
þarf að gæta þess að börn og
unglingar fikti ekki við skotelda
og að fullorðið fólk fylgist alltaf
með þegar verið er að skjóta
flugeldum á loft.“
- Hvernig er hægt að koma í
veg fyrir augnmeiðsli?
„Aðalatriðið er að vera alltaf
með hlífðargleraugu þegar skot-
eldar eru meðhöndlaðir og for-
eldrar ættu endilega að lirýna
fyrir unglingum sínum og börn-
um að nota þau. Fyrir
nokkrum árum var
hlegið að þessari
ábendingu en í dag
eru sem betur fer
flestir með hlífðar-
gleraugu og finnst það sjálfsagt.
Almenn notkun hlífðargleraugna
er án efa ein aðal ástæðan fyrir
því að dregið hefur úr augn-
meiðslum um áramót."
Hlynur segist vilja benda á að
fóik ætti að tileinka sér þann sið
að hafa alltaf hanska þegar það
meðhöndlar skotelda. „Á sama
hátt og hlífðargleraugu eru nauð-
synleg þá er það forgangsatriði
að nota hanska. Slysin gera ekki
boð á undan sér og glóð kann að
leka úr handblysum eða kveikur
að fuðra upp of fljótt ef verið er
að skjóta upp þyrlum."
-Skiptir ekki réttur fatnaður
líka miklu máli?
► Hlynur Jónasson fæddist í
Reykjavík árið 1964. Hann lauk
BS-námi í íþróttafræði við Há-
skólann í Salem í Massachusetts
í Bandan'kjunum árið 1990. Þá
hóf hann störf sem rekstarstjóri
hjá Mætti og sinnti því starfi til
ársins 1998.
Hlynur hóf störf sem deildar-
stjóri slysavarnadeildar Slysa-
varnafélags Islands síðastliðið
sumar.
„Það er ákaflega varasamt að
vera í eldfimum fatnaði eins og
úr nælonefnum þegar skjóta á
flugeldum á loft. Kuldagallar úr
slíkum efnum eru ekki góður
kostur. Það borgar sig að vera í
góðum skóm og í fatnaði sem er
ekki eldfimur eins og t.d. galla-
buxum og fötum úr öðrum vönd-
uðum efnum.“
- Hvernig undirstaða er æski-
leg fyrir flugelda?
„Undirstaðan skiptir miklu
máli. Skotkökur þurfa að vera á
þurrum og sléttum fleti og und-
irstaðan þarf að vera stöðug
þegar um flugelda er að ræða.
Það er einnig nauðsynlegt að
festa sólir eða þyrlur á öflugar
undirstöður svo þær færist ekki
úr stað.“
- Hvaða tegundir skotelda eru
varasamastir í umgengni?
„Það sem hefur aðallega valdið
slysum undanfarin ár eru heima-
tilbúnar sprengjur og síðan svo-
kallaðar kökur. Fólk þarf bara
að hafa hugfast að standa ekki of
nálægt þegar verið er að skjóta á
loft og hafa undirstöðuna trygga.
Handblys hafa sum
hver sprungið í hönd-
unum á fólki en ef það
er varkárt og hefur
vetthnga eða hanska
og beinir handblysun-
um ávallt frá sér á það að vera
tiltölulega öruggt.“
Hlynur segir að aldrei sé of oft
brýnt fyrh- fólki að áfengi og
skoteldar fara ekki saman undir
neinum kringumstæðum og hafi
fólk áfengi um hönd borgi sig að
láta flugeldana bíða betri tíma.
„Gamlárskvöld og nýjársnótt er
ein mesta ánægjustund ársins
hjá mörgum fjölskyldum og ekki
hvað síst hjá unglingum og börn-
um. Hún kann á hinn bóginn að
breytast í martröð ef ekki er far-
ið varlega. Leggjumst því á eitt
og fógnum nýju ári með því að
skjóta flugeldum á loft slysa-
laust.“
Heimatilbúnar
sprengjur eru
hættulegastar