Morgunblaðið - 26.05.1999, Síða 1
I-
SMÁÞJÓÐALEIKARNIR í LIECHTENSTEIN
1999
MIÐVIKUDAGUR 26. MAI
BLAÐ
•TPT;
22. 05.1999
28 32 2
-
Vlnningar Fjölcfi vinninga Vinnings- j upphœð
s 1. 5af 5 2 2.817.060 i
i 2. 4 af 5+‘$Ii 0 402.430
! 3. 4 af 5 64 10.840
4. 3 af 5 2.667 600
Vinningar Fjöldi vinninga Upphæð á mann
4 síðustu 2 100.000
3 siðustu 18 10.000
2 síðustu 154 1.000
VINWINGSTÖLUR
MfOVíKUDAGINN
19.05.1999
AÐALTÖLUR
BÓNUSTÓLUR
32
35
Vinningar Fjöldi vínninga Vinnings- upphæð
1. 6 af 6 0 34.221.700
2. 5 af 6+bónus 0 1.681.940
3. 5 af 6 0 253.383
4. 4 af 6 180 2.230
3. 3 af 6+bónus 389 440
m
TVÖFALDUR
1. VINNINGURÁ
MIÐVIKUDAGINN
Lottómiðapnip með 1. vinningi sl.
laugapdag vopu keyptip í Happa-
húslnu í Kpinglunnl í Reykiavík og
h]á Skellungi við Skagabpaut á
Akranesl. Lottómlðinn sem gaf 1.
vinning í Jókep vap keyptup í
Hypnunni vfð Bnúaptorg í Bopg-
apnesi, en miðapnip með 2. vinn-
ingi hjá KEA Nettó við Þöngia-
bakka í Reykjavík og á Aðal-
stöðinni við Hafnapgötu í Kefla-
vík.
Upplýsingar i síma:
568-1511
Textavarp:
\ 281, 283 og 284
■ í-ms
' . $
'■> ;■ s
í þágu öryrkja, ungmenna og íþrótta
Sex gull
áfýrsta
degi
ÍSLENSKT íþróttafólk vann til
sex gullverðlauna á fyrsta
keppnisdegi Smáþjóðaleikanna
í Lichtenstein í gær. Júdómenn
nældu sór í fern gullverðlaun
og í frjálsíþróttum unnust
tvenn gullverðlaun, eitt silfur
og fern bronsverðlaun. Fyrir
vikið eru Islendingar efstir á
verðlaunalista leikanna eftir
fyrsta keppnisdaginn. Á mynd-
inni sjást kringlukastararnir
Magnús Aron Hallgrímsson
(t.v.) og Óðinn Björn Þorsteins-
son hita upp fyrir kastkeppn-
ina í gær, en Magnús sigraði í
þeirri keppni.
Itarlega er sagt frá Smáþjóða-
leikunum í máli og myndum á
B4, B5, B6 og B16.
Morgunblaðið/Golli
FRJALSIÞROTTIR
Guðrún efst á
stigalistanum
GUÐRÚN Arnardóttir, hlaupakona úr Ármanni, hafnaði í þriðja
sæti í 400 m grindahlaupi á stigamóti Alþjóðafrjálsíþróttasam-
bandsins (IAAF) í borginni St. Louis í Bandaríkjunum um helgina.
Guðrún hljóp á 55.31 sek., sem er besti árangur hennar á árinu.
Sigurvegari í hlaupinu varð Kim Batten, heimsmethafi í grein-
inni, á 54.52 sek. og önnur varð Sandra Glover á 55.11 sek.
Guðrún er nú efst á stigalista
IAAF, fékk 6 stig fyrir þriðja
sætið í St. Louis og er með 20 stig
eftir fjögur mót - öll sem búin eru.
Stigamót IAAF á árinu eru fjölmörg
og gilda þau átta bestu hjá íþrótta-
mönnunum. Guðrún komst í úrslit
stigamótanna í fyrra, hlaut þá 28
stig samtals og lítur út íyrir að bæta
þann árangur á þessu ári, gangi allt
að óskum.
„Ég er mjög ánægð og óhætt að
segja að mér gangi framar björt-
ustu vonum,“ sagði Guðrún í sam-
tali við Morgunblaðið í gær, en hún
er óðum að jafna sig eftir erfið
meiðsli. „Það er greinilega komið í
gott lag og skapið batnar mikið
þegar meiðslin eru úr sögunni. Ég
gleðst mikið yfir því að fá tækifæri
til að fara út að hlaupa - sálartetrið
verður svo aumt eftir langvarandi
meiðsli."
Guðrún þakkar góðan árangur nú
markvissum æfíngum, en bendir á
að hún hafi verið duglegust við að
keppa og staðan eigi eftir að breyt-
ast mikið á tímabilinu. Næsta stiga-
mót er í bænum Eugene í Georgíu
um næstu helgi og þar verður Guð-
rún á meðal keppenda. Eftir það
heldur hún til Evrópu og tekur þátt
í Evrópubikarmóti í Króatíu 6. júní
nk.
Guðrún viðurkennir að það taki á
að keppa á svo mörgum mótum á
skömmum tíma. „En tíminn minn
um helgina sýnir að þetta hefur ekki
áhrif á árangurinn. Ég þurfti að
ferðast í 30 tíma í flugi eftir mótið í
Quatar á dögunum og samt náði ég
besta tíma ársins. Því er ég bjart-
sýn,“ segir Guðrún.
BÆNASTUND í KNATTSPYRNUMUSTERINU / B2