Morgunblaðið - 26.05.1999, Side 2
2 B MIÐVIK UDAGUR 26. MAÍ 1999
KNATTSPYRNA
MORGtJNBLAÐIÐ
Nú fæst úr því skorið hvort Salihamidzic er berdreyminn, hvort frú Effenberg fær óskaafmælis
Bænastund í knatt
spymumusterinu
Rúmlega 100 þúsund manns fögnuðu leik-
mönnum Barcelona á götum úti eftir að
liðið varð Spánarmeistari í knattspyrnu
um helgina. Skapti Hallgrímsson fylgdist
í gær með undirbúningi annarrar stór-
veislu sem haldin verður í borginni í
kvöld; Manchester United og Bayern
Munchen etja þá kappi um sæmdarheitið
besta knattspyrnlið Evrópu í úrslitaleik
Meistaradeildarinnar.
Reuters
OTTMAR Hitzfeld, hinn snjalli þjálfari Bayern Miinchen, fer hér fyrir tveimur af lykilmðnnum
sínum á æfingu i Barcelona i gær - þeim Stefan Effenberg, sem ætlar sér Evrópumeistaratitil,
og Mario Basler.
Schmeichel fyrirliði
PETER Schmeichel, danski markvörðurínn frábæri, verður fyrir-
liði Manchester United í kvöld í stað Roy Keane, sem er í leik-
banni.
Schmeichei leikur í kvöld í síðasta skipti með United en Alex
Ferguson neitaði því í gær aðspurður hvort það væri í tilefni þess
sem Daninn stðri væri fyrirliði.
„Hver annar hefði átt að vera fyrirliði?“ spurði hann á mdti á
blaðamannafundinum. Sagði nánast sjálfvalið í embættið fyrst
Keane væri ekki með.
Knattspyrnuunnendur hafa ekki
undan miklu að kvarta í
Barcelonaborg í dag. Allt er í raun
eins og best verður á kosið, nema
að sumir sem Morgunblaðið ræddi
við eiga ekki miða á leikinn þótt
komnir séu langt að. Þetta eru
stuðningsmenn Manchester
United, sem vonast eftir því að
geta keypt miða á svörtum mark-
aði, en takist það ekki taka þeir því
karlmannlega. Þeir segja nefni-
lega, að sigri United í kvöld, geti
þeir sagt: Ég var þar! Og það sé
mikilvægt.
Heimamenn höfðu h'ka vitaskuld
ætlað sér að halda upp á 100 ára af-
mæli eins merkasta íþróttafélags
heims með þvi að fylgjast með FC
Barcelona í úrslitaleiknum á heima-
velli. Ekki verður hins vegar á allt
kosið en þeir kunna að meta góða
knattspymu og fjölmenna á völlinn;
ef kalla ætti Nou Camp völl - orðið
nær eiginlega ekki yfir þennan
stórkostlega stað; þetta knatt-
spymumusteri. Að sjálfsögðu er
löngu uppselt á leikinn en áhorf-
endur verða 90 þúsund. Þrátt fyrir
að komast ekki í þennan tiltekna
úrslitaleik er uppskera Barcelona,
þessa frábæra fyrirbæris, þó ekki
slök í vetur; félagið er nefnilega
Spánarmeistari í knattspymu,
körfuknattleik, handknattleik og ís-
hokkí. En hetjur Katalóníu komust
ekki alla leið á þeim vettvangi sem
úrsht ráðast á í kvöld á Nou Camp,
enda ekki í neinum smáriðh í
Meistaradeildinni - með Manchest-
er United og Bayern Miinchen! Og
Alex Ferguson, þjálfari ensku
meistaranna, hefði ekki viljað mæta
heimamönnum í úrslitaleiknum;
brosti sínu breiðasta á blaðamanna-
fundi í gær þegar hann upplýsti
hversu glaður hann væri yfir því að
þeir hefðu ekki komist áfram - því
liðið hefði eflst mjög eftir því sem á
leiktíðina leið.
Ekki fer á milli mála að gífurleg
stemmning er fyrir leiknum hér í
Barcelona enda mikið í húfi og tvö
stórkostleg knattspyrnulið á ferð-
inni. Nýkrýndir meistarar í
Englandi annars vegar og Þýska-
landi hins vegar. Þá varð United
bikarmeistari um helgina sem
kunnugt er og Bayern leikur til úr-
slita í þýsku bikarkeppninni í júní.
Bæði stefna því að þrennu sem ég
held að aðeins tveimur hðum hafi
tekist að fagna; að verða lands-
meistari, bikarmeistari og sigra í
Evrópukeppni meistaraliða. Glas-
gow Celtic 1967 og Ajax 1972. Li-
verpool var nálægt því 1977; varð
Englandsmeistari, sigraði Borussia
Mönchengladbach í úrslitaleik
Evrópukeppni meistaraliða en tap-
aði fjórum dögum fyrir þann leik
fyrir Manchester United á
Wembley í úrslitum ensku bikar-
keppninnar. Rauða stjarnan frá
Júgóslavíu varð einnig Evrópu-
meistari og júgóslavneskur meist-
ari 1991 en tapaði bikarúrslitaleik
heima fyrir. Stuðningsmenn
Manchester United voru áberandi
á Römblunum, göngugötunni
frægu, strax á mánudagskvöld;
syngjandi og trahandi. Skemmtu
sér konunglega og sá er auðvitað
tilgangur ferðarinnar. Minna bar á
Þjóðveijum en þeim hafði fjölgað í
gær. Talið er að um 30 þúsund
stuðningsmenn ensku meistaranna
séu komnir til borgarinar vegna
leiksins en reiknað er með að Þjóð-
veijarnir verði um 20 þúsund.
Liðin voru saman í riðli í Meist-
aradeildinni fyrr í vetur, eins og
áður kom fram, báðar viðureignir
þeirra þar enduðu með jafntefli og
í herbúðum beggja er búist við
mjög jöfnum leik í kvöld. „Leikim-
ir í riðlinum voru jafnir og liðin
þekkjast mjög vel; það kæmi mér
ekki á óvart þótt jafnt yrði eftir
venjulegan leiktíma og framleng-
ingu -120 mínútur, og úrslitin réð-
ust í vítaspyrnukeppni," sagði
landshðsmaðurinn Stefan Effen-
berg hjá Bayem á blaðamanna-
fundi þýska hðsins í gær. Þess ber
að geta að fari leikurinn í fram-
lengingu verður stuðst við gull-
marksregluna svokölluðu; skori
annað hvort liðið verður það sigur-
markið og leik hætt. Effenberg
bætti því við að eiginkona hans
hefði átt afmæh í gær og hún hefði
aðeins óskað eftir einni afmæhs-
gjöf: að Bayem yrði Evrópumeist-
ari! Og hann lofaði auðvitað að
uppfylla þá ósk hennar. Bosníu-
maðurinn Hasan Sahhamidzic,
framherji hjá Bayern, vakti athygli
þegar liðið sigraði Barcelona í
riðlakeppninni hér á Spáni; sagði
þá að sig hefði dreymt það fyrir
leikinn að hann kæmi inná sem
varamaður og gerði sigurmarkið.
Það gekk eftir. Hann var því vita-
skuld spurður að því í gær hvort
hann hefði dreymt fyrir um leikinn
í kvöld. Og hann kvað svo vera:
„Við sigmm 3:2.“
Þjálfarar liðanna em báðir sigur-
sælir. Ferguson nýbúinn að fagna
þriðju tvennunni með United -
enska meistaratithnum og bikartith
- og Otmar Hitzfeld, sem tók við
Bayem fyrir þetta keppnistímabil,
var áður við stjórnvölinn hjá Dort-
mund og stýrði hðinu til sigurs í
Meistaradeildinni fyrir tveimur ár-
um er það lagði Juventus að velh í
úrslitaleik. „Það yrði auðvitað gam-
an að sigra í keppninni með tveim-
ur hðum, en það er mun mikilvæg-
ara fyrir félagið og þýska knatt-
spymu í heild að við sigmm en mig
persónulega. Þýsk knattspyma á í
talsverðum vanda þessa stundina
og það er stórmál að Bayem
Múnchen sigri í leiknum. Það yrði
gríðarleg lyftistöng fyrir íþróttina í
Þýskalandi," sagði Hitzfeld á blaða-
mannafundi félagsins, strax eftir
komuna til Barcelona í gær. Hann
kvaðst nokkum veginn viss um
hvemig hann myndi stilla hðinu
upp, en ekki segja leikmönnum frá
því fyrr en fyrir hádegi í dag. „Eitt
er þó ömggt - hðið verður ekki eins
og gegn Bochum.“ Það var síðasti
leikur Bayem í deildinni um helg-
ina. Nokkuð er hðið frá því Bayem
tryggði sér þýska meistaratitihnn
og Hitzfeld hefur því getað gefið
sumum leikmanna sinna frí í sum-
um leikjanna síðan. Hann telur það
kost að hafa átt kost á því.
„Manchester United hefur tekið
þátt í mörgum strembnum leikjum
upp á síðkastið. Þeir hafa þurft að
berjast í hverjum einasta leik
þannig að ég tek tillit til þess í hðs-
uppstillingunni, að mínir menn
þurfa að geta leikið hratt og verið
fastir fyrir allar 90 mínútumar.
Annað atriði sem skiptir mjög
miklu máh er sjálfstraustið. Við
verðum að trúa því að við munum
vinna og leggja alla taugaveiklun til
hliðar,“ sagði þjálfarinn. Þegar
hann var spurður hvort hann væri
viss um að Bayern myndi sigra,
svaraði þjálfarinn stutt og laggott:
„Já.“ Alex Ferguson sagðist ekki
endilega viss um að það kæmi niður
á sínum mönnum hve mikið þeir
hefðu leikið undanfarið. „Þeir virð-
ast verða betri með hverjum leikn-
um. Þið sáuð þá til dæmis gegn
Newcastle á laugardaginn; strák-
amir voru frábærir," sagði Fergu-
son og bætti við að þeir hefðu
reyndar leikið mjög skynsamlega í
seinni háfleiknum. „Þeir þurftu
ekki að keyra sig út heldur létu
boltann vinna; hann gekk vel á milli
manna og þannig pössuðu strák-
amir sig á því að þreytast ekki um
of.“ Alex sagðist hafa valið byrjun-
arlið sitt strax á sunnudaginn, en
gaf það ekki upp venju fremur.
Fyrirliðinn Roy Keane er í leik-
banni og Paul Scholes einnig -hvort
tveggja miðjumenn - og því er úr
vöndu að ráða. Nicky Butt verður
væntanlega í hlutverki Keanes í
kvöld, en Butt var ekki í leik-
mannahópnum gegn Newcastle á
laugardaginn. Ferguson vildi ekki
taka neina áhættu á að hann meidd-
ist. Ekki er ólíklegt að Ronnie
Johnsen, Norðmaðurinn sem alla
jafna leikur í vöminni, verði með
Butt á miðjunni. Eða þá David
Beckham sem fór af hægri vængn-
um inn á miðjuna eftir að Keane
meiddist snemma bikarúrslitaleiks-
ins og varð að fara af velli. En þetta
kemur allt í ljós í kvöld; það er ljóst
að aðstæður allar og andstæðing-
amir tveir eru fyrsta flokks og
knattspymuáhugamenn mega eiga
von á frábærri uppsetningu þessa
leikrits sem kennt er við knött og
fætur. Framundan er leikur ársins
í evrópskri knattspyrnu og staður-
inn er vel við hæfi; hér hafa margir
af bestu knattspymumönnum
heimsins unnið fyrir sér síðustu ár-
in, liðin léku hér bæði í riðlakeppn-
inni og Nou Camp er glæsilegasti
knattspyrnuleikvangur heimsins.
Að minnsta kosti að mati Alex
Fergusons, knattspyrnustjóra
Manchester United. Hann upplýsti
það á blaðamannafundinum í gær.
Dwight Yorke, framherjinn
brosmildi frá Trinidad og Tobago -
sem hefur verið aldeilis frábær með
United í vetur - vai' þá einnig
spurður að því hvort hann væri
ekkert taugaveiklaður. Hann væri
alltaf brosandi. Og þessi viðkunn-
anlegi framherji svaraði að bragði:
Völlurinn mjókkaður
VÖLLURINN á Nou Camp verður 68 metra breiður þegar leikur-
inn fer fram í kvöld, sem er hefðbundin breidd, en þó rnjórra en
venjulega á þessum stað. Á heimaleikjum Barcelona eru alltaf 72
metrar milli hliðarlínanna. Fyrir áhugamenn um gras má geta
þess að það verður 18 millimetra hátt á velHnum í kvöld!