Morgunblaðið - 26.05.1999, Page 4
4 B MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1999
MORGUNB LAÐIÐ
SMÁÞJÓÐALEIKAR
Þrumur
og eld-
ingar í
Liecht-
enstein
UM leið og keppni í frjálsí-
þróttum hófst á Smáþjóða-
leikunum í Liechtenstein f
gær fór að rigna og í kjöl-
farið komu þrumur og eld-
ingar. Keppnin hófst með
undanrásum f 100 m hlaupi
karla kl. 17.00 að staðar-
tíma og fram að því hafði
verið léttskýjað og hitastig-
ið um 22 gráður. Þrumu-
veðrið setti svip á frjálsí-
þrótt akeppnina og áhorf-
endur voru mun færri en
vænta mátti. Þeir sem
mættu voru flestir létt-
klæddir, í stuttbuxum og
bol. Þar sem engin stúka er
fyrir áhorfendur urðu þeir
hundblautir og fækkaði eft-
ir því sem leið á keppnina.
Morgunblaðið/Golli
ÍSLENSKA tennislandsliðið á Smáþjóðaleikunum. Efri röð frá vinstri: Davíð Halldórsson, Jón Axel Jónsson, Raj Bonifacius, Hrafnhildur
Hannesdóttir og Ólafur Sveinsson, liðsstjóri. Neðri röð frá vinstri: Rakel Pétursdóttir og íris Staub.
Arnar
Hrafn-
hildur
æfir í
Seattle
HRAFNHILDUR Hannes-
dóttir, sem keppir á fjórðu
Smáþjóðaleikunum, var
fyrst með þegar þeir fóru
fram á Möltu, hefur æft
tennis í Seattle í Bandaríkj-
unum sl. tvö ár. Hún er þar í
háskólanámi, í vistfræði, og
æfir með tennisliði skólans
sem hún segir að sé með 20.
besta skólalið Bandaríkj-
anna. Hún kom til Liechten-
stein beint frá Bandaríkjun-
um og fer þangað aftur eftir
þá. Hún á að mæta í próf í
næsta mánuði.
„Ég hef æft mjög vel í vet-
ur, sex sinnum í viku og þá
fjóra tíma í senn. Þjálfari
skólaliðsins er fyrrum at-
vinnumaður í tennis. Ég hef
bætt mig verulega og von-
andi fæ ég að sýna hvað í
mér býr hér á Smáþjóðaleik-
unum. Ég hef einu sinni
unnið til verðlauna á leikun-
um, en það var í Lúxemborg
fyrir fjórum árum þegar ég
og Stefania Stefánsdóttir
höfnuðum í þriðja sæti í tví-
liðaleik," sagði Hrafnhildur.
Um framhaldið 1 tennis-
íþróttinni sagði hún: „Ég
verð ekki í Bandaríkjunum á
næsta ári. Ég hef sótt um
skólavist í Kaupmannahöfn
næsta vetur. Námið er núm-
er eitt hjá mér, en vonandi
get ég líka stundað tennisí-
þróttina. Það væri synd að
hætta núna. En það verður
bara að koma í (jós,“ sagði
hún.
íslenska lands-
liðið á uppleið
„SIGUR okkar á Möltu sýnir og sannar að við erum í mikilli
framför," sagði Ólafur Sveinsson, liðsstjóri íslenska landsliðs-
ins í tennis, við Morgunblaðið. „Við vorum að taka þátt í 4.
deild Davis-Cup í fjórða sinn og alltaf verið í tveimur af
neðstu sætunum þar til nú. Við unnum alla leikina og sigurinn
í riðlinum var því mjög sannfærandi.“
Fjórar þjóðir voru í riðli með ís-
lendingum í keppninni á Möltu;
Kýpur, Súdan og Eþíópía ásamt
Möltu. íslenska liðið hefur aldrei
unnið Möltu áður, enda mikil hefð
fyrir tennis þar. I 3. deildinni eru
lið frá Austur-Evrópu og Afríku.
Ólafur sagði að fyrsta markmiðið
væri að halda sér í þeirri deild en
síðan væri stefnan auðvitað tekin á
2. deild.
íslenska landsliðið, sem tók þátt
í 4. deildarkeppninni á Möltu, var
skipað þeim Arnari Sigurðssyni,
Raj Bonifacius, Jóni Axel Jónssyni
og Davíð Halldórssyni. Þeir keppa
allir á Smáþjóðaleikunum í Li-
echtenstein nema Amar sem tekur
þátt í opna franska meistaramótinu
um næstu helgi.
„Við erum í sjöunda himni yfir
árangrinum og hann kom okkur
skemmtilega á óvart. Tennisíþrótt-
in er ekki nema rúmlega 10 ára
gömul á Islandi þannig að við erum
greinilega á réttri leið. Það eru
margir ungir og efnilegir að koma
upp í tennisíþróttinni heima,“ sagði
Ólafur Sveinsson.
Góð
byrjurt
hjá Raj
RAJ Bonifacius hóf fyrstur íslend-
inga keppni í tennis í gær og sigr-
aði í hörkuspennandi viðureign.
Hann mætti Dalbergue frá Mónakó
og vann í þremur settum, 3:6, 7:5
og 6:4.
Bonifacius sagðist ánægður með
leikinn, en hann hefði verið mjög
erfiður. Andstæðingm- hans er
þriðji á styrkleikalista leikanna og
því ætti Bonifacius að fá léttari and-
stæðing í næstu umferð.
Davíð Halldórsson átti einnig að
keppa í einliðaleiknum í gær, en
leiknum var frestað vegna vatnselgs
á tennisvellinum í kjölfar þruma og
eldinga. Stúlkurnar hefja keppni í
dag.
Morgunblaðið/Golli
RAJ Bonifacius fagnaði sigri í gær.
aopna
franska
í París
ARNAR Sigurðsson, tennismaður-
inn efnilegi, keppir í forkeppni
opna franska meistaramótsins í
tennis sem hefst á laugardag.
Hann er fyrsti íslendingurinn sem
tekur þátt í einu af stóru mótunum
í tennis.
Amar keppir í flokki 18 ára og
yngri. Upphaflega átti hann að
vera með á Smáþjóðaleikunum 1
Liechtenstein, en fyrir tveimur
vikum fékk hann þátttökurétt á
opnu móti sem fram fer í París.
Arnar er 17 ára og er númer 120
á heimslistanum. Hann hefur æft í
Þýskalandi í vetur og er á styrk
frá Ólympíusamhjálpinni, sem
styður efnilega íþróttamenn. Ef
honum gengur vel í París er ráð-
gert að hann keppi einnig á
Wimbledon-mótinu og yrði þá
einnig fyrstur íslendinga til þess.
Arnar var með íslenska landsliðinu
sem sigraði í 4. deild (Davis-Cup) á
Möltu um síðustu helgi og vann
þar alla leiki sína í einliðaleik.
Bonifacius
ísienskur
ríkisborgari
BANDARIKJAMAÐURINN
Raj Bonifacius fékk íslenskan
ríkisborgararétt á síðasta ári
og er því löglegur með ís-
lenska landsliðinu. Hann hef-
ur búið í sjö ár á íslandi og
er tennisþjálfari að atvinnu.
Hann keppir á Smáþjóðaleik-
unum fyrir ísland í fyrsta
sinn og var með Davis-Cup
liðinu á Möltu um síðustu
helgi og stóð sig vel.