Morgunblaðið - 26.05.1999, Page 6

Morgunblaðið - 26.05.1999, Page 6
6 B MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ Vakinn á hverium morgni „ÞAÐ er orðinn nokkuð þéttur og góður hópur sem æfír júdó af miklum krafti og hefur sett sér skýr markmið,“ segir Vernharð Þorleifsson, sem ásamt fleiri félögum sinum stefnir á keppni á næstu Ólympíuleikum. „Ég vona að við getum æft sem best og mest í sumar, bæði hér heima og eriendis, þá getum við gert góða hluti.“ Vernharð æfir af krafti und- ir stjórn Jóns Óðins Óðinssonar og segist vera í góðri æfingu enda gefi Jón hvergi eftir við æfingarnar og gefi engin tæki- færi til þess að menn slaki á. „Ég hef því tekið æfingar mjög alvarlega og Jón Óðinn hefur verið að opna augu okkar fyrir atriðum fyrir utan æfingarnar og reynt að temja okkur nýjan hugsunarhátt. Meðal annars má geta þess að á mótum sem þessu, hafa menn stundum haft frítt spil eftir að keppni lýkur og til dæmis getað sofið fram á hádegi. Hjá Jóni kemur það ekki til greina og nú erum við t.d. vaktir sjö á morgnana og sendir í gönguferðir eða aðra hreyfingu. Þessu hefur maður ekki átt að venjast, en verður að venjast ætli menn sér að vera í fremstu röð eins og ég og fleiri stefnum að. Þá verður að taka íþróttina alvarlega og haga sér eins og atvinnumað- SMÁÞJÓÐALEIKARNIR íslenskir júdókarlar unnu fjóra flokka af sex og fengu brons í einum Allt vannst á ipponi Morgunblaðið/Golli GULLVERÐLAUNAHAFARNIR í júdókeppninni á Smáþjóðaleikunum í gær. Frá vinstri: Höskuldur Einarsson, Bjami Skúlason, Þorvaldur Blöndal og Vernharð Þorleifsson. Fjórða brons Gígju Gígja Gunnarsdóttir vann bronsverð- laun í -70 kg floktó kvenna í júdó. Eru þetta fjórðu bronsverðlaunin sem hún vinnur á jaftimörgum leik- um, en hún keppti íyrst á Smáþjóða- leikum á Möltu 1993. Gígja vann nú eina glímu en tapaði tveimur. „Ég hafði stefnt á einhverja aðra málmtegund á þessum leikum," sagði Gígja og brosti sínu breiðasta við keppnislok í gær. Ég reikna ekki með að sækja fimmta bronsið að tveimur árum liðnum. Ef ég keppi aftur verður það til þess að vinna eitthvað annað en brons.“ Auk Gígju kepptu Berglind Ás- geirsdóttir og Margrét Bjamadóttir einnig í kvennaflokki. Berglind tap- aði viðureign um bronsverðlaun en Margrét laut í lægra haldi í þrígang og vann enga viðureign. Fóru ekki á EM vegna fjárskorts Enginn íslenskur júdómaður tók þátt í Evrópumeistaramótinu í Bratislava um síðustu helgi, þrátt fyrir að þangað hafi menn átt er- indi. Astæðan fyrir þessu var sú að ekki voru til fjármunir í sjóðum Júdósambands íslands til þess að standa straum af ferðinni. Vernharð Þorleifsson var einn þeirra sem höfðu hug á að keppa á EM, sagði það vissulega vera baga- legt að hafa ekki komist, en hefði orðið af þátttöku á mótinu hefði það engin áhrif haft á þátttöku hans á Smáþjóðaleikunum. Ég hefði viljað keppa á báðum mótunum. EM hefði verið góður prófsteinn á hvar ég stend og meðal keppinauta minna um sæti á Ólympíuleikunum á næsta ári. Ég verð bara að taka hraustlega á á HM sem fram fer í haust, en þangað stefnum við júdómenn hiklaust," sagði Vernharð. Stórtap í skvassi ÍSLAND steinlá bæði í karla- og kvennaflokki í íyrstu leikj- um sínum í skvasskeppni leik- ana, en bæði liðin mættu Li- echtenstein. Karlaliðið tapaði 4:0, en kvennaliðið 3:0. Náði ís- lenska liðið ekki einu sinni að vinna eitt sett í viðureignunum. Kvennaliðið tapaði 81:21 í stig- um talið og karlaliðið 108:18. Þetta er í fyrsta skipti sem keppt er í skvassi á Smáþjóða- leikunum og er óhætt að segja að íslenska liðið hafi ekki byrj- að vel. I dag mætir Island Möltu fyrripartinn og Lúxem- borg síðdegis. Sigur og tap í blaki ÍSLENSKA karlaliðið í blaki sigraði Liechtenstein 3:1 í fyrsta leik sínum á Smáþjóða- leikunum, en kvennaliðið beið hins vegar lægri hlut fyrir San Marínó, 3:1, í fyrstu viðureign sinni. I karlaleiknum byrjuðu heimamenn betur og höfðu sig- ur í fyrstu hrinu, 25:22. Is- lenska liðið sneri hins vegar við blaðinu og vann þrjár næstu, 25:17, 25:22, 25:13. Næsti leik- ur liðsins er í dag gegn Kýpur. Kvennalið íslands tapaði fyrstu hrinunni 25:23, vann aðra hrinu, 26:24, en tapaði tveimur síðustu með sömu tölu, 25:18. Konurnar mæta stöllum sínum frá Lúxemborg í dag. ÍSLENSKIR júdókarlar unnu fern gullverðlaun og ein bronsverð- laun í júdókeppni Smáþjóðaleikanna. Er það framför frá síðustu leikum, þegar þeir unnu ekkert gull og urðu að láta tvenn silfur- verðlaun og þrenn bronsverðlaun nægja. Öll voru gullverðlaunin unnin með fulinaðarsigri, ipponi, á innan við tveimur mínútum. ívar Benediktsson skrifar frá Liechtenstein Auk þess vann Gígja Gunnars- dóttir bronsverðlaun í -70 kg flokki, þannig að uppskera íslenska júdóliðsins er viðun- andi að mati Jóns Óð- ins Óðinssonar, þjálf- ara þeirra. „Stefnan var að vinna fimm flokka og það vantaði ekki nema herslumuninn upp á það. Eftir tvö ár vinnum við alla flokka, þú mátt herma það upp á mig,“ sagði Jón Óðinn að keppni lokinni. Vernharð Þorleifsson vann örugg- lega í -100 kg flokki, lagði alla and- stæðinga sína þrjá á ipponi og gaf sér ekki lengri tíma til þess í hvert sinn en hálfa mínútu. Vemharð var ektó á meðal keppenda á Smáþjóðaleikun- um fyrir tveimur árum, en hann vann gull á leikunum í Lúxemborg fyrir fjórum áram. Þorvaldur Blöndal af- greiddi andstæðinga sína á sama hátt í -90 kg flokki. Enginn hafði roð við Bjama Skúlasyni í -81 kg flokki og m.a. tók það hann aðeins 16 sekúnd- ur að vinna úrslitaviðureignina gegn Xavier Noez frá Andorra. Höskuldur Einarsson sýndi heldur ekkert hik er hann vann gullverðlaun í -60 kg flokki og sigurgh'man stóð aðeins yfir í 50 sekúndur. Sævar Sigursteinsson krækti sér í bronsverðlaun í -73 kg flokki, tapaði aðeins einni viðureign, þeirri fyrstu. Vildi Jón Óðinn þjálfari skrifa það tap á reikning óheppni þar sem Sæv- ar vann síðar sterkari keppendur. „Það er alltaf svolítið erfitt að byrja, en í þessum flokki hefði ég viljað fá gull,“ sagði Jón. Hilmar Trausti Harðarson var hins vegar fjarri verðlaunum í -66kg flokki. „Það kom ekkert annað til greina en sigur, það þýddi ekkert að vera með hálfkák," sagði Vernharð glað- beittur yfir sigrinum. „Hópurinn er í heildina sterkur og nokkrir okkar hafa orðið góða reynslu af keppni á erlendri grund, við kepptum tals- vert í Evrópu í fyrravetur og vöxum við hverja raun. Nú er stefnan sett á heimsmeistaramótið næsta haust, þar sem við getum tryggt okkur sæti á næstu Ólympíuleika.“ Vernharð sagði að þessi árangur segði ekkert til um hvar hann stæði að vígi í baráttunni um sæti á Ólympíuleikana, en ljóst væri hins vegar að hann væri í góðri æfingu. „Ég hefði viljað keppa á Evrópu- meistaramótinu sem fram fór um síðustu helgi, það hefði verið meiri prófsteinn á það hvar ég stend.“ Bjarni var snöggur BJARNI Skúlason vann andstæðing sinn í úrslitaglímunni í -81 kg flokki á ippon eftir aðeins 16 sekúndur, en það er fráleitt það besta sem Bjarni hefur gert á Smáþjóðaleikum. Á leikunum í Reykjavík 1997 vann hann einn andstæðinga sinna eftir aðeins sjö sekúndur. Þar var reyndar um að ræða fyrstu viðureign Bjarna á leikunum. Hann hafnaði í þriðja sæti í það skiptið. Stefnt að sigri í öllum greinum Fyrsti keppnisdagur af fjórum í sundkeppni Smáþjóðaleikanna fer fram í dag, en á undanförnum leikum hefur sund- keppnin verið aðal ís- lands. Alls hafa ís- lenskir sundmenn unnið 245 gullverð- laun á leikunum sjö og stefnt er að því að bæta talsvert í það safn að þessu sinni. „Við stefnum á að vinna allar greinarnar að þessu sinni og teljum það ekki óraunhæft mark- ivar Benediktsson skrífar frá Liectenstein mið,“ sagði Sigurlín Þorbergsdóttir, annar þjálfari landsliðsins. „Við er- um með sterkt lið, sem er til alls lík- legt. Andinn er góður og aðstaða hér er öll til fyrirmyndar auk þess sem það er bókstaflega stjanað við okk- ur,“ sagði Sigurlín ennfremur. Alls vann Island 18 gullverðlaun á síðustu leikum en 11 gullverðlaun fóru til annarra þjóða. Auk þess komu 16 silfurverðlaun og 10 bronsverðlaun í hlut íslensks sundfólks. Keppnis- greinar að þessu sinni eru 32. Öm Amarson, íþróttamaður árs- ins 1998, stefnir að því að vinna sjö gull, fjögur í einstaklingsgreinum og þrenn í boðsundum. „Ég held að fátt geti komið í veg fyrir að það gangi eftir,“ sagði Brian Marshall, annar þjálfari íslenska sundlandsliðsins. „Órn þarf ekki að setja nein met til þess að vinna sínar greinar, sem eru eitt og tvö hundruð metra baksund og eitt og tvö hundruð metra skrið- sund,“ sagði Brian ennfremur. Auk Amar má reikna með að Lára Hmnd Bjargardóttir, Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, Eydís Konráðsdóttir og Hjalti Guðmundsson komi hlaðin gullpeningum heim gangi vonir og óskir sundmanna eftir, en fleiri þarf tO og auk þeirra skipa landsliðið Óm- ar Snævar Friðriksson, Jakob Jó- hann Sveinsson, Númi Snær Gunn- arsson, Friðfínnur Kristinsson, Rík- arður Ríkarðsson, Tómas Sturlaugs- son, Elín Sigurðardóttir, Sunna Björg Helgadóttir, Louisa Isaksen og íris Edda Heimisdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.