Morgunblaðið - 26.05.1999, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1999 B 7
stigum
Logi um leik
Skagamanna
Von-
brigði
„VIÐBRÖGÐ mfn við úrslit-
um leiksins eru vonbrigði.
Við vissum að liðið yrði að
sína þolinmæði í leik sínum
en það fiékk aldrei að reyna
til fúlls hvað það gæti því
Gunnlaugi [Jónssyni] var vik-
ið af velli á 9. mínútu seinni
hálfleiks. Greinilegt var að
Víkingar voru hingað komnir
til þess að ná í eitt stig og það
tókst þeim,“ sagði Logi Olafs-
son, þjálfari Skagamanna, að
loknum leik sinna manna og
Víkinga.
„Við vissum að það yrði
okkar hlutskipti að sælqa og
lögðum upp með það að
markmiði að opna göt í vörn
þeirra og skora fleiri mörk
en eitt. Jafnframt lögðum
við áherslu á að fá ekki á
okkur inark. Það gekk ekki
eftir. Eg vil ekki segja að
brottreksturinn hafi gert út-
slagið fyrir okkur en okkur
gekk verr að sækja á þá ein-
um færri, ekki síst vegna
þess að þeir voru jafn marg-
ir í vörn og áður.“
Skagamönnum var spáð 3.
sæti í efstu deild í sumar, en
liðið hefur fengið eitt stig úr
fyrstu tveimur Ieikjum sín-
um. Logi sagðist ekki eiga
von á að gera neinar veru-
Iegar breytingar á liði sínu
fyrir næsta leik. „Við höfum
ekki efni á að gera stórfelld-
ar breytingar á liðinu. Hóp-
urinn er ekki stór og við er-
um með unga og efnilega
stráka sem eru að stíga sín
fyrstu skref og eiga skilið að
fá sín tækifæri.“
Víkingum tókst
ætlunarverkið
„Mér finnst stórkostlegt að ná
jafntefli hér á Akranesi við eitt
besta lið landsins. Víkingsliðið
er ungt og óreynt en því tókst
ætlunarverkið og vonandi gef-
ur þessi leikur fyrirheit um
framhaldið," sagði Luka Kost-
ic, þjálfari Víkinga er iið hans
hafði sótt eitt stig í greipar
Skagamanna í annarri umferð
íslandsmótsins í efstu deild.
Frá upphafi var ljóst að hlutverk
Skagamanna í leiknum var að
sækja en Víkinga að verjast. Strax á
upphafsmínútum leiks-
Gísli ins dró Víkingsliðið sig
Þorsteinsson aftar á völlinn og lét
skrifar Skagamönnum eftir
völdin á miðjunni, en
heimamönnum varð lítið ágengt upp
við mark gestanna. Víkingar beittu
að sama skapi skyndisóknum en
fengu fá tækifæri til þess að ógna
marki Skagamanna í fyrri hálfleik.
Mannmörg vöm Víkinga gaf fá
færi á sér en svaf illilega á verðinum
rétt fyrir leikhlé er Sigurður Ragn-
ar Eyjólfsson var á auðum sjó inni í
teig gestanna og skoraði laglegt
skallamark. Skagamenn gátu andað
léttar, biðlund þeirra hafði borið ár-
angur en Víkingum var vandi á
höndum því nú sáu þeir fram á að
breyta liðsuppstillingu sinni og
sækja af meiri krafti en áður.
Skagamenn urðu fyrir talsverðu
áfalli er Gunnlaugi Jónssyni var vik-
ið af velli fyrir að krækja í Jón
Grétar Ólafsson, sóknarmann Vík-
inga, sem var á leið í gegnum
Skagavörnina á upphafsmínútum
síðari hálfleiks. Brottreksturinn dró
að mestu leyti bitið úr sóknarleik
Skagamanna, sem gátu ekki lengur
haldið uppi sama sóknarþunga og
áður. Þeir áttu engu að síður gott
tækifæri til þess að bæta við marki
er Ragnar Hauksson átti skot í slá
Víkingsmarksins. Þeim var hins
vegar fyrirmunað að bæta við
marki, en þess í stað náðu Víkingar
að jafna leikinn eftir vamarmistök
Skagmanna.
Víkingar vom komnir upp á
Skaga til þess að leika stífan varn-
arleik og freista þess að ná í stig.
Áætlun þeirra tókst fullkomlega.
Þeim tókst að halda sóknarmönnum
Skagamanna í skefjum með skyn-
samlegum leik og beittu skyndi-
sóknum sem skiluðu árangri. Aætl-
un Skagamanna gekk hins vegar
ekki eftir og staða liðsins er allt
önnur en forráðamenn þess höfðu
vænst fyrir mót. Liðið hefur eitt
stig eftir tvo leiki og verður að
bretta upp ermarnar fyrir næsta
leik og sýna að liðið eigi heima á
meðal þeirra bestu í efstu deild.
Síðast 10:1
á Skaganum
SÍÐAST þegar ÍA og Vík-
ingur léku á Akranesi í
efstu deild, unnu Skaga-
menn stórt - 10:1 1993.
Tveir leikmenn sem voru í
hópnum gegn Víkingum í
þessum leik voru í liði
Skagamanna á sunnudag,
Alexander Högnason og St-
urlaugur Haraldsson. Þá var
Lúkas Kostic, sem nú þjálfar
Víkinga, einnig í liði Skaga-
manna. Einnig var Ólafur
Adólfsson í Skagaliðinu á
þessum tfma en hann er nú í
liðsstjórn ÍA-Iiðsins.
Hólmsteinn Jónasson er
eini Víkingurinn, sem Iék þá.
Morgunblaðið/Arnaldur
SIGURÐUR Ragnar Eyjólfsson fagnar marki sínu, ásamt Ragnari Haukssyni og Unnari Valgeirssyni,
sem faðmar Sigurð Ragnar.
„ÞETTA var rokleikur, sem
hefði getað farið á hvorn veg-
inn sem var en ég er feginn að
það vorum við sem unnum,"
sagði Grétar Ólafur Hjartarson,
sem skoraði eina markið þegar
Grindvíkingar lögðu Blika að
velli í Grindavík á mánudaginn
en mikið rok setti svip sinn á
leikinn. Grindvíkingar eru því
komnir með fjögur stig eftir tvo
leiki þrátt fyrir spá um að fall
bíði þeirra. „Staða okkar sýnir
að það er ekkert að marka
þessar spár, það er oft búið að
spá því að Grindvíkingar falli
en slík spá þjappar okkur enn
frekar saman," bætti Grétar við
en hann sýndi skemmtileg til-
þrif.
Þó að Kári hafi ekki verið á leik-
skýrslu hafði hann samt mest
áhrif á leikinn því strekkingsvmdur
næstum þvert á völlinn
Stefán gerði mönnum erfitt fyr-
Stefánsson ir með að sýna góða
skrifar knattspymu. Grétar
gerði þó vel þegar hann
náði að skora úr erfiðri stöðu á 12.
mínútu. Bæði lið lögðu þó mikla
áherslu á vömina en síður á miðjuspil-
ið svo að sóknarmenn höfðu oft úr litlu
að moða. Erfitt var að hemja boltann
en bæði lið gerðu þó heiðarlegar til-
raunir en ef boltinn fór nokkra metra
upp í loftið tók Kári við honum.
Það var ekki fyrr en í síðari hálf-
leik að liðin fóra að sýna sínar betri
hliðar. Þá náðu Blikar að koma betra
skikld á sinn sóknarleik og auka-
spyrna Salih Heimis Porsa á 60. mín-
útu fór í varnarvegg Grindvíkinga.
Heimamenn vom síður en svo búnir
að leggja árar í bát og fimm mínút-
Morgunblaðið/Jón Stefánsson
BLIKAR Sækja að marki Grindvíkinga - Albert Sævarsson handsamar knöttinn, enn einn varnar-
maður Grindvíkinga handsamar Marel Baldvlnsson, miðherja Blikanna.
um síðar komst Grindvíkingurinn
Scott Ramsey í gegnum vörn gest-
anna en Atli Knútsson varði vel og
aftur þegar Duro Mijuskovic skaut
af stuttu færi úr þvögu. Á síðustu tíu
mínútunum gerðu Blikar oft harða
hríð að marki heimamanna og Albert
Sævarsson markvörður þurfti tví-
vegis að grípa inn í.
Grindvík var betra liðið í þessum
leik, vörnin var föst fyrir og í sókn-
inni skapaði Grétar oft usla með
snerpu sinni en mestu skipti að leik-
menn vora yfirvegaðri og spiluðu af
meiri öryggi en mótherjar þeirra. Að
vísu er ekki hægt að dæma liðin út
frá þessum leik.
„Við vorum óheppnir að fá ekki að
minnsta kosti eitt stig en það var
erfitt að ná góðu spili í rokinu," sagði
Hákon Sverrisson, fyrirliði Blika,
eftir leikinn. „I síðari hálfleik hélst
okkur betur á boltanum en áttum
erfitt með að brjóta vöm þeirra á
bak aftur þrátt fyrir að fá samt
nokkur færi til að jafna." Blikar náðu
ekki að sýna jafn nett spil og í sigur-
leiknum við Val í fyrstu umferð enda
var mótstaðan meiri núna. Leik-
menn voru ekki alveg eins á tánum
og vönduðu ekki nægilega til sam-
spilsins þó að síðari hálfleikur hafi
verið mun betri hjá þeim.