Morgunblaðið - 26.05.1999, Page 8
8 B MIÐVTKUDAGUR 26. MAÍ 1999
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
ur fýrir sín
þrumuskot
Hann er þekkt
ÞAÐ er ekki laust við að þessar Ijóðlínur úr Jóa útherja komi
upp í hugann þegar rætt er um mörk Ágústs Gylfasonar fyrir
Framara gegn Keflvíkingum á mánudagskvöld. Mörk Ágústs,
sem bæði komu úr sannkölluðum þrumuskotum, skildu liðin að í
leiknum og fyrir vikið eru Framarar komnir á nokkurn skrið í
deildinni, en Keflvíkingar sitja á botninum án stiga. - „Þegar
hann leikur knattspyrnu, þá er það ekkert pot.“
Það ér annars hálfgerð skömm
frá því að segja að glæsimörk
Agústs voru sem næst það eina sem
stendur upp úr í
Bjöm Ingi minningunni frá
Hrafnsson viðureign liðanna að
skrífar kvöldi annars í
hvítasunnu. Utan
kannski skiptimaður liðanna, kári
kuldaboli, sem fór mikinn með lið-
unum hvoru í sínum hálfleiknum og
setti ljótan svip á leikinn með krafti
sínum og bægslagangi. Er óskandi
að veðurguðirnir velji hann ekki í lið
sitt fyrir næstu umferð deildarinnar
annað kvöld.
Leikurinn fór rólega af stað og
Keflvíkingar, sem höfðu goluna í
bakið, voru heldur sterkari og sóttu
meira. Framherjamir Þórarinn
Kristjánsson og Kristján Brooks
voru ógnandi í fremstu vígh'nu og
komst Kristján nálægt því að ná
forystunni snemma leiks, en hörku-
skot hans fór rétt framhjá.
Heimamenn voru öllu rólegri í
sínum aðgerðum og virðist sem As-
geir Elíasson, þjálfari liðsins, sé
ekki enn méð fastmótaðar hug-
myndir um framlínu liðsins. Þannig
voru þeir Valdimar Sigurðsson og
Asmundur Arnarson fremstir í
þessum leik, en í fyrsta Ieiknum í
Grindavík höfðu Haukur Snær
Hauksson og Arngrímur Amarson
þau hlutverk með höndum. Valdi-
mar var nokkuð ógnandi, er ekki
sérlega fljótur en þeim mun fylgn-
ari sér og hann átti besta tækifæri
fyrri hálfleiks, sannkallað dauða-
færi á 35. mín., en Bjarki Guð-
mundsson í marki gestanna sá við
honum með frábærri markvörslu.
Hið sama varð starfsbróðir hans í
marki Framara að gera tíu mínút-
um síðar er Gunnar Oddsson náði
hörskuskoti að markinu. Olafur Pét-
ursson varði það vel í hom.
Framarar náðu undirtökum á
miðjunni í seinni hálfleik og nutu
þess að hafa Kára með sér í liði. Ás-
geir Halldórsson var ógnandi á
hægri kantinum og á miðjunni fór
mikið fyrir þeim Ivari Jónssyni og
Agústi Gylfasyni sem unnu flest ná-
vígi. Þeir félagar gerðu fjölmargar
heiðarlegar tilraunir til að koma
knettinum fram á miðherjana tvo,
en þeim varð lítið úr þeim viðskipt-
um og svo fór að Ásgrímur var tek-
inn af velli og Haukur Snær settur
inn á í hans stað. Hefði þjálfarinn að
ósekju mátt gera slíkt hið sama við
Anton Bjöm
Markússon, sem
lék allan leikinn á
vinstri kanti
Framara og náði
sér ekki á strik.
Þrátt fyrir þetta
var nokkurt jafn-
vægi í leiknum er
Ágúst Gylfason
kom Frömumm yf-
ir. Steinar Guð-
geirsson tók hom-
spyrnu og gaf inn í
teig, varnarmenn
Keflvíkinga sköh-
uðu samviskusam-
lega frá en Ágúst
beið ekki boðanna
utan vítateigs og
hamraði knöttinn í
markið með vinstri fæti.
Eftir markið vora Framarar mun
sterkari og engu skipti þótt Sigurð-
ur Björgvinsson, þjálfari Keflvík-
inga, brygði á það ráð að setja tvo
fríska menn í sóknina. Vöm þeirra
veiktist aðeins fyrir vikið og Ágúst
kórónaði svo frábæran leik sinn
með öðra gullmarki þremur mínút-
um fyrir leikslok - marki sem ef-
laust mun lengi í minnum haft.
Framarar hafa nú fjögur stig að
loknum tveimur leikjum. Það verð-
ur að teljast býsna gott, einkum
þegar haft er í huga að Grindvíking-
ar og Keflvíkingar hafa oft reynst
þeim hinn mesti Þrándur í Götu.
Spilið er óðum að taka á sig betri
mynd í liðinu, en þjálfarinn á enn
eftir að sh'pa af mestu vankantana.
Þeir eru mestir í framlínunni, sem
er í sjálfu sér athyglisvert þegar
nafn hðsins er haft í huga.
Að sama skapi hljóta Keflvíking-
ar að vera súrir með úrslit leiksins.
Þeir vora sterkari í fyrri hálfleik, en
höfðu ekki erindi sem erfíði upp við
mark Framara. I seinni hálfleik
þraut þá svo örendi og vora algjör-
lega slegnir út af laginu við tvö
glæsimörk Ágústs Gylfasonar. Ekki
er þó enn ástæða til að örvænta í
bítlabænum, það koma nefnilega
ekki allir dagar í einum böggli og
era nú tveir erfiðir útileikir að baki
og tekur nú heimaleikur við. Hann
er raunar ekki af auðveldari sort-
inni - gegn Skagamönnum annað
kvöld.
Sannkallað
draumamark
SEINNA mark Ágústs Gylfasonar gegn
Keflvfkingum var svo sannarlega drauma-
mark. Þremur minútum fyrir leikslok var
Ágúst staddur inni á eigin vallarhelmingi er
hann fékk boltann. Ágúst leit snöggt upp og
sá að Bjarki Guðmundsson, markvörður
Keflvíkinga, var kominn allt of langt frá
marki sínu og skaut því föstu og hnitmiðuðu
skoti yfír hálfan völlinn og í markið. Sann-
arlega skemmtilegt skot og áreiðanlega eitt
af mörkum sumarsins.
ÞÓRARINN Kristjánsson, framherji Keflvíkinga, reynir að komast framt
Nauðsyn-
legur sigur”
Eg er geysilega ánægður með
s
Rússar eru til-
búnir í slaginn
RÚSSAR segjast tilbúnir í slaginn
og hvergi bangnir fyrir landsleiki
landsliðs þeirra í knattspyrnu
gegn Frökkum og Islendingum í
byrjun næsta mánaðar. I báðum
tilvikum eiga Rússar harma að
hefna, því Frakkar sigruðu þá 3:2 í
Rússlandi í fyrra og íslenska hðið
sigraði 1:0 á Laugardalsvelh.
Landsliðsþjálfarinn valdi Dmi-
try Alenichev, leikstjómanda
ítalska hðsins Roma, í hópinn, en
litlar líkur er þó taldar á að hann
geti verið með vegna meiðsla.
Landsliðshópur Rússa er
þannig skipaður:
Markverðir: Stanislav Cherchesov
(Tirol Innsbrack), Sergei
Ovchinnikov (Benfica), Alexander
Filimonov (Spartak Moskva).
Varnarmenn: Dmitry Khlestov
(Spartak Moskva), Viktor Onopko
(Oviedo), Artur Pagayev (Alania
Vladikavkaz), Yevgeny Varlamov
(CSKA Moskva), Igor Chugainov
(Lokomotiv Moskva), Igor Yanov-
sky (Paris St Germain), Sergei
Semak (CSKA Moskva) og Alex-
ander Shirko (Spartak Moskvu).
Miðjumenn: Ilya Tsymbalar,
Yegor Titov, Ándrei Tikhnov,
Viktor Bulatov (aJlir Spartak
Moskva), Yuri Drozdov, Alexei
Smertin (báðir Lokomotiv
Moskva), Alexander Mostovoi,
Valery Karpin (báðir Celta Vigo),
Dmitry Khokhlov (PSV Eind-
hoven), Dmitry Alenichev (AS
Roma).
Sðknarmenn: Sergei Yuran (Spar-
tak Moskva), Vladimir
Beschastnykh (Racing Santand-
er), Alexander Panov (Zenit St
Pétursborg)
isigurinn - hann var nauðsyn-
legur,“ sagði Ásgeir Elíasson, þjálf-
ari Fram, eftir leikinn gegn Kefl-
víkingum. „Við voram betri að
mínu mati og glæsimörk Ágústs
glöddu augað,“ bætti þjálfarinn við.
Ásgeir sagði að Framarar hefðu
oft átt í mesta basli með Keflvík-
inga og því væri sigurinn mjög
kærkominn. „Það er kannski kom-
inn tími til að þeir reyni hvernig er
að byrja illa. Keflvfldngar hafa
nefnilega oft byrjað Islandsmótið
með miklum glæsibrag á undan-
fórnum áram og náð mörgum 1:0-
sigram.“
Aðspurður um hvort hann væri
sáttur við framlínu liðsins, sagði
Ásgeir að enn væri of snemmt að
dæma menn. „Eg gerði tvær breyt-
ingar frá fyrsta leiknum og þær
vora ekki vegna þess að menn
hefðu staðið sig illa, heldur vegna
þess að ég er með stóran hóp og
margir koma til greina,“ sagði
hann.
„Leikurinn var annars frekar
jafn og þess vegna hlýt ég að vera
mjög sáttur við öll stigin. Okkar
markmið era að vera í hópi efstu
liða og eins langt frá fallbaráttunni
og kostur er. Þessi sigur er því afar
dýrmætur," sagði Ásgeir.
Sigurður Björgvinsson, þjálfari
Keflvíkinga, var öllu ósáttari, enda
lið hans án stiga eftir tvo leiki. „Það
er enn ekki komið sumar hjá okkur
Keflvfldngum," sagði Sigurður.
„Við erum í mótbyr núna og þá er
mildlvægt að menn snúi bökum
saman og vinni sig út úr vandanum.
Við voram heldur sterkari að mínu
mati og hefðum vel getað skorað á
undan þeim. En það datt ekki okk-
ar megin og við verðum bara að
gera betur næst.“
Keflvíkingar gerðu breytingu á
skipulagi sínu frá tapleiknum gegn
Víkingum, breyttu úr 3-5-1 í 4-4-2
og bættu Kristjáni Brooks í sóknar-
línuna. „Valbjarnarvöllur er svo
pínulítið frímerki að ekki er mögu-
legt að ná upp spili að einhverju
marki. Þess vegna töldum við að
þetta leikkerfi myndi duga okkur
betur. Það þarf alls ekki að vera til
frambúðar, það era flestir vellir
betri en þessi,“ sagði Sigurður.
Hann vildi lítið gera úr markinu,
sem Bjarki Guðmundsson mark-
vörður fékk á sig, skoti aftan frá
miðju vallarins. „Það skipti engu
máli. Við tókum ákveðna áhættu,
bættum í sóknarleik okkar og
freistuðum þess að jafna metin.
Eftir á skiptir ekki máli hvort við
töpuðum með einu eða tveimur
mörkum. Við reyndum allt til að
skora. Það gekk ekki,“ sagði Sig-
urður.
Hollenskur sóknar-
leikmaður til Fram
HOLLENSKI sóknarleikmaðurinn Marcel Oerlemans kom til lands-
ins f gær - til reynslu hjá Framliðinu. Hann mun æfa með liðinu í
eina viku og eftir það verður tekin ákvörðun um hvort. samið verð-
ur við hann. Oerlemans er þrítugur og kemur frá hollenska 1.
deildar liðinu Harlem, þar sem hann skoraði 8 mörk f 22 leikjum á
síðustu leiktfð. Áður hefur hann spilað í austurrísku úrvalsdeild-
inni með liðunum Reid og Austria Vín.