Morgunblaðið - 26.05.1999, Page 9

Morgunblaðið - 26.05.1999, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1999 B 9 KNATTSPYRNA Morgunblaðið/Þorkell ijá Sævari Guðjónssyni, varnarmanni Framara. „Rændi hann mark- tæki- færi“ HLYNUR Stefáns- son, fyrirliði Is- lands- og bikar- meistara Eyja- manna, fékk að líta rauða spjaldið tólf mínútum fyrir leikslok gegn Val. Hörður Már Magn- ússon, vinstri útherji Valsmanna, var á fullri ferð að marki er Hlynur dró hann niður og Gylfi Orrason, mjög góður dómari leiksins, mat það svo að Hörður hefði verið kominn einn inn fyrir og rak Hlyn því af velli. Bjarni Jóhanns- son, þjálfari Eyja- manna, sagðist ekki gera athuga- semdir við brott- vísunina. „Sumir vilja reyndar meina að Hörður Már hafi ekki verið kominn einn í gegn, en mér sýnd- ist Hlynur ræna hann augljósu marktækifæri. Þannig leit það við mér af hliðarlín- unni,“ sagði Bjarni. Valsmenn miklu betri en náðu aðeins jafntefli Meistaramir stálheppnir á Hlíðarenda EKKI var hægt að merkja mikinn meistarabrag á íslands- og bik- armeisturum Eyjamanna er þeir sóttu Valsmenn heim á mánu- dag. Úrslitin urðu markalaust jafntefli, en í sannleika sagt voru meistararnir stálheppnir að ná jafntefli, því heimamenn fengu nokkur upplögð marktækifæri en nýttu ekki. Engu skipti þótt þeir léku einum færri undir lokin. Liðin höfðust heldur betur ólíkt að í fyrstu umferðinni, Vals- menn lágu þá gegn Blikum í Kópa- voginum og Eyja- Bjöm ingi menn hreinlega sölt- Hrafnsson uðu Leiftursmenn, skrífar 5:0. Það hafa því ef- laust einhverjir átt von á flugeldasýningu meistaranna á Hlíðarenda, en annað kom á dag- inn og lending þeirra niður á jörð- ina hlýtur að hafa verið harkaleg í meira lagi. Leikurinn fór afar fjörlega af stað og þrjú dauðafæri féllu liðun- um í skaut áður en fimm mínútur voru liðnar. Heimamenn höfðu vindinn í bakið í fyrri hálfleiknum, en gestimir fengu þó fyrsta færið í leiknum. Mikil hætta skapaðist þá í markteig Valsmanna, en Hjörvari Hafliðasyni, markverði þeirra, tókst að handsama knöttinn. Litlu síðar fékk Jón Þ. Stefánsson sann- kallað dauðafæri hinumegin á vell- inum, en landsliðsmarkvörðurinn Birkir Kristinsson varði vel í marki Eyjamanna. Hann var aftur á rétt- um stað í tvígang skömmu síðar er Amór Guðjohnsen fékk knöttinn á markteig - varði þá tvisvar hreint frábærlega. Ef ekki hefðu komið til snilldartilrþrif Birkis á upphaf- smínútunum er ljóst að illa hefði farið, því hin rómaða vörn Eyja- manna var alls ekki sannfærandi og raunar eitthvað allt annað en það. Eftir þetta róaðist leikurinn nokkuð og liðin fengu sín hálffærin. Eftir markalausan fyrri hálfleik, nutu heimamenn þess að hafa vind- inn í bakið í þeim síðari og fengu fjölmargar sóknir. Þar vora þeir Jón Þ. Stefánsson og Amór Guðjohnsen fremstir í flokki, en Birkir sá ávallt við þeim með glæsi- legri markvörslu, utan að markslá- in varð meisturanum til bjargar er hörkuskot Harðar Más Mássonar lenti á þverslánni. Eyjamenn vora heldur hikandi, einkum á miðjunni þar sem barátt- Steingrímur með yfirfrakka að Hlíðarenda STEINGRÍMUR Jóhannesson, framherji Eyjamanna, fékk að kynnast því gegn Valsmönnum hvernig er að vera „heitasti" framherji landsins. Steingrímur gerði femu gegn Leiftursmönnum í fyrstu umferð, en var tekinn úr umferð gegn Valsmönnum og gat sig lítið hrært. Sindri Bjarnason var „yfirfrakki“ Steingríms í leiknum - fylgdi honum hvert fótmál og gerði það afar vel. Fyrir vikið fór mesti broddurinn úr sóknarleik meistaranna og er ekki að efa að margir þjálfarar liðanna í efstu deild muni hugleiða þennan möguleika fyrir viðureignir sinna liða gegn Eyjamönnum. Kristinn Bjömsson, þjálfari Vals, telur það mjög lfldegt. „Steingrímur er heitasti framherji landsins í dag og auðvitað verður að taka mann ny'ög alvarlega sem skorar fjögur mörk í fyrsta leik. Það er ekki annað hægt en að bera virðingu fyrir slíkum leikmanni og við voram ákveðnir að bregðast við því. Sindri tók hann úr umferð, gerði það afar vel og þá var hálfur sigur unninn. Eyjamenn áttu ekki svör við því,“ sagði Kristinn. i HNJÁNUM. Morgunblaðið/Arnaldur ■ Varnarmennirnir ívar Bjarklind (ÍBV - t.v.) og Guðmundur Brynjólfsson, Val, eigast við um knðttlnn í leik Vals og ÍBV á mánudagskvöld. KNATTSPYRNA an var engin. Aðeins Guðni Rúnar Helgason lék af eðlilegri getu, flest- ir aðrir vora beinlínis slakir og miklu munaði að Baldur Bragason naut sín alls ekki, gaf eftir í ná- vígjum og gleymdi alveg að gefa boltann þegar mikið lá við. Virtist þetta á stundum fara í taugamar á samherjum hans og verður eflaust tekið fyrir á æfingum fyrir næstu leiki. Eyjamenn urðu að leika einum færri, ríflega tíu síðustu mínúturn- ar, því fyrirliðinn Hlynur Stefáns- son fékk að líta rauða spjaldið fyrir að bijóta á Herði Má. Þetta kom ekki að sök, því svo virtist sem Valsmenn væra sáttir við eitt stig og jafntefli og gerðu ekki harða hríð að marki andstæðinganna und- ir lokin. Valsmenn léku mjög vel í þessum leik, ekki síst vamarmenn liðsins sem flestir áttu stórleik. Kristinn Bjömsson gerði ekki neina breyt- ingu á liði sínu eftir slaka frammi- stöðu gegn Blikum í fyrsta leik og leikmennirnir endurguldu traustið með álitlegum hætti. Sérstaklega vora þeir Daði Árnason og Sigurð- ur Sæberg Þorsteinsson sterkir, auk þess sem Sindri Bjamason stóð sína vakt sem „yfirfrakki“ Stein- gríms Jóhannessonar. Hér í eina tíð voru slíkir leikmenn kallaðir „manndekkarar". „Frammistaðan gegn Blikum var auðvitað fyrir neðan allar hellur og við áttum aldrei glætu í þeim leik. Við vissum því að aðgerða var þörf, enda Eyjamenn og KR-ingar and- stæðingar í tveimur næstu leikjum. Það tókst, leikaðferðin gekk upp og við fengum mun fleiri hættuleg færi en þeir. Það er því óhætt að segja að við séum heldur upplitsdjarfari nú, en eftir tapið í Kópavopginum,“ sagði Kristinn eftir leikinn. Bjami Jóhannsson, þjálfari ÍBV, sagðist hneykslaður á leik sinna manna. „Leikurinn olli mér miklum vonbrigðum og það vantaði allan neista í leik okkar. Vörnin var úti á þekju og ég skil ekki hvemig slíkir lykilmenn geta kiikkað með svo áberandi hætti. Aðeins snilldar- markvarsla Birkis hélt okkur í jafn- teflinu og fyrir það getum við þakk- að. Fyrir leikinn hefði ég alls ekki verið sáttur við jafntefli. Eftir hann er ég það svo sannarlega,“ sagði Bjami og bætti því við að þetta væri líklega einn versti leikur liðs- ins frá því hann tók við því.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.