Morgunblaðið - 26.05.1999, Síða 12

Morgunblaðið - 26.05.1999, Síða 12
12 B MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 1999 TORFÆRA MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson Sigur Ásgeir Jamil Allansson fagnar sigri eftir að hafa klárað loka- þrautina í fyrsta torfærumóti ársins. eitthvað að viti var ég kominn útúr kosinni aksturslínu. Komst ekki þrautina. En ég slapp með þetta, vann sigur í flokknum. Nú er að skoða hvað ég geri í framhaldinu. Ég ætla að reyna að semja við styrktaraðila, þannig að ég geti klárað íslandsmótið í ár. Það kem- ur í ljós á næstu dögum,“ sagði Gísli. ÁSGEiR JAMiL ALLANSSON stal senunni í fyrsta torfærumóti ársins á laugardaginn, á Akureyri. Ók jeppa í flokki götujeppa og lagði reynda meistara á sérútbúnum ökutækjum í flokki jeppa með betri dekkjabúnað og annan búnað sem veita á þeim forskot. Ásgeir Jamil hlaut 1.880 stig, Gísli G. Jónsson 1.768 og Einar Gunnlaugsson 1.740 í heildarstigum. Ásgeir vann flokk götujeppa, en Gísli flokk sérútbúinna. Fimm mót eru í íslandsmótinu og gilda þau öll til lokastiga, en fjögur af fimm giltu í fyrra. kvað það hentugt að vatnskassinn var beint fyrir aftan ökumannssæt- ið. Þannig gat hann yljað sér í kuld- anum og vosbúðinni í keppninni á Akureyri. Hann varð þriðji í sérút- búna flokknum, þrátt fyrir að milli- kassi brotnaði. ■ HARALDUR PÉTURSSON keppti á nýsmíðuðu ökutæki, sem er nýstárleg smíði í torfærunni. Ólíkt öðrum ökutækjum. En tímaskortur á lokasprettinum þýddi að ekki var hægt að prófa tækið fyrir keppni. Ýmis vandamál komu upp. ■ HARALDUR missti af fyrstu þremur þrautunum vegna kveikju- vandamála: Flansar fyrir framöxla gáfu sig og við það missti hann framdrifið. Haraldur kvað endur- bætur gerðar og stefnir ótrauður á meistaratitilinn, þrátt fyrir slæma byrjun og engin stig í fyrstu keppni. ■ EINAR GUNNLAUGSSON frá Akureyri vonaðist eftir heimasigri, en varð ekki að ósk sinni. Einar tap- aði öxli í 5. braut, sem kostaði hann klifurmöguleika og dýrmæt stig. Þá voru gangtruflanir í vélinni eftir að heddpakkning gaf sig í nýrri keppn- isvél hans. ■ EINAR var í meiri vandræðum, innspýting virkaði ekki sem skyldi og blöndungar voru látnir vinna hefðbundið verk. Hann stefnir þó á titilslag, nú í öðru sæti að stigum. Hann hreinsaði að eigin sögn 200 kg af drullu úr jeppanum eftir keppni, slíkt var svaðið á keppnisstað. ■ GISLI G. Sigurðsson flaug hátt í einni þraut á Komatsu jeppa sínum, fylgdi Helga Schiöth að málum. Helgi sleppir vart keppni án þess að taka himnaflug og kollsteypur. Gísli skilaði sér í 4. sæti í sérútbúna flokknum, Helgi í það fímmta. ■ SVANUR LÁRUSSON og Ásgeir Örn Rúnarsson eru starfsmenn KLÍA, sem heldur utan um allt keppnishald í íslenskum akstursí- þróttum í sumar. HeOdarsvipur hef- ur verið skapaður um öll akstursí- þróttamót undir merkjum styrktar- aðila. Hátt í 40 mót eru á dagskrá. ■ ÁSGEIRIJAMIL ALLANSSYNl var vel fagnað í Sjallanum þegar hann tók á móti verðlaunum fyrir fyrsta sætið. Ásgeir er með brosmildari ökumönnum tor- færunnar og geislaði enn meir en ella á ballinu sem fylgdi verðlauna- afhendingunni, enda að vinna sinn fyfsta sigur. ■ RAFN A. GUÐJÓNSSON varð annar í flokki götujeppa og Gunnar Gunnarsson á Trúðnum þriðji, þrátt fyrir að tapa framhjóli undan í einni þraut. Margfaldur torfæru- meistari, Gunnar Pálmi Pétursson, varð fimmti og síðastur. Eg ætla að vinna,“ sagði Asgeir á hlaupum þegar aðeins tveimur þrautum af átta var lokið í vætu- samri keppni í gryfj- Gunnlaugur um fyrir utan Akur- Rögnvaldsson eyri. Hann lét ekki skrifar leðju og blautar brekkur aftra sér í akstrinum og stóð við stóru orðin. Ók af mikilli lipurð og þótt hann æki gripminni skófludekkjum, sem not- uð eru á götujeppum, þá bitu ausu- dekk sérútbúnu jeppanna stundum of mikið. Brot og veltur voru afleið- ing þess hjá mörgum kappanum. Á meðan ók Ásgeir af yfirvegun og fullur áhuga milli hliðanna sem af- mörkuðu þrautimar best allra. Vann íyrsta sigur götujeppa yfir heildina, sem unnist hefur frá því torfærujeppum var skipt upp í tvo aðskilda flokka. Keppt er um íslandsmeistaratitil í báðum flokkum, en samkvæmt bókinni ættu ökumenn í sérútbún- um flokki að leggja þá á götujepp- um. Ásgeir brýtur því blað í sögu torfærannar með árangri sínum. Auk þessa vann hann sinn fyrsta sigur. Þessi keppni markaði því tímamót í tvennum skilningi. Meist- arinn í sérútbúna flokknum, Gísli G. Jónsson náði að vinna sigur í sínum flokki, með því að verða annar að stigum yflr heildina. Sjónlítill í tveimur þrautum „Mér gekk ágætlega, þannig séð. Ók þó tóma vitleysu í tímaþraut, eftir að framdekkin höfðu ausið drallu yfír mig. Fékk sand í augun og sá lítið,“ sagði Gísli. „Þetta gerð- ist aftur í 5. þraut. Þá setti ég stefnuna á að sneiða barð, fékk enn sand í augun og loks þegar ég sá Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson HREYFINGAR í spánnýju ökutæki Haralds Péturssonar minntu á eðlu eða könguló. Þessi smfði iofar góðu, þó Haraldur lenti í basli í fyrstu keppni. Fyrsti sigurinn FYRSTI sigurinn í íþrótta- móti er alltaf sætastur hjá flestum íþróttamönnum. Ásgeir Jamii kvaðst þó al- veg á jörðinni, þrátt fyrir fyrsta gullið á Akureyri. „Ég þurrkaði af bikarahill- unni fyrir keppni, var stað- ráðinn f að vinna minn flokk. En ég átti ekki von á að verða efstur allra að stigum“, sagði Ásgeir Ja- mil Allansson í samtaii við Morgunblaðið. Ásgeir, sem er bflaparta- sali og starfar skammt frá Rauðavatni í Reykjavík, hefur keppt í torfæru í 4 ár. Þrátt fyrir velgengnina um helgina kveður hann öktuæki sitt til sölu. „Fyrir rétt verð er jeppinn falur. Ég er búinn að keppa nógu lengi, en á meðan ég á jeppann, þá verð ég með,“ sagði Ásgeir, „ég held að ég og aðstoðarmenn mínir höfúm unnið þessa keppni á góðri heimavinnu. Unn- um öll kvöld vikuna fyrir keppni óg jeppínn var í toppstandi. Það gerði gæfumuninn. Ég var lánsamur að ná 100 stiga forskoti í fyrstu þraut, en náði þó að halda því forskoti alla keppnina. Það var gott grip í þraut- unum og því meira að gera við stýrið. Ég Iét bara vaða í þrautimar og fann ekki fyrir spennu, þó ég næði forystu í byijun. Svo gekk bara allt upp í akstrinum og ég sat uppi með gullið,“ sagði Ásgeir. Hann hefur ekið sama jeppa í tvö ár. Ók fyrstu Skutlunni svokölluðu, en lagði henn sálarlausri í túninu heima, eftir að hafa tekið allt kramið, vél, gírkassa og drifbúnað úr henni. Núver- andi ökutæki er byggt upp úr fyrrum jeppa Kjartans Guðvarðarsonar. Yfir vetr- artímann er Ásgeir oft á fjöllum á jeppa, en taldi það þó ekki iykilatriði í tor- fæmnni. „Aðalmálið er að ég breyttí litlu, þekki hegðun jeppans frá síðasta keppn- istímabili og tók ekki í mál að gera einhveijar stórar breytingar. Breytti afstöðu afturstífa, en litlu öðm. Þekkti því hreyfmgamar frá fyrstu þraut,“ sagði Ás- geir. taém FOLK ■ SIGURÐUR ÞÓR JÓNSSON Tímamót í tvennum skilningi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.