Morgunblaðið - 22.07.1999, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
1
FRÉTTIR ________________
Fyrsta vígsla
íslensks búdda-
munks hér á landi
Morgunblaðið/Jim Smart
ÁSBJÖRN Leví Grétarsson verður vígður
búddamunkur á sunnudaginn.
ÁSBJÖRN Leví Grét-
arsson, 23 ára húsa-
smiður úr Hafnar-
firði, verður vígður
búddainunkur fyrstur
Islendinga hér á landi
á sunnudag. Ásbjörn
segist hafa gengið í
Búddistafélag Islands
fyrir tveimur árum,
en áður hafi hann
mikið lesið sér til um
trúarbrögðin. Hann
stundar svokallaðan
Therevada búddisma,
sem er af elsta skóla
búddismans og leggur
áherslu á göfuglyndi.
Á sunnudaginn
verður hann vígður
Samanera-munkur og
verður þá meðlimur í
samfélagi búddamunka, sem
heitir Sangha. Hann verður
Samanera-munkur í þrjá mánuði,
þar til önnur vígsla fer fram og
verður hann þá fullgildur munk-
ur.
Hefur þýtt texta yfir á íslensku
Ásbjörn Leví hefur verið virk-
ur í starfi Búddistafélagsins síð-
an hann gerðist félagi og m.a.
þýtt texta um búddisma yfir á ís-
lensku.
„Búdda kenndi að skilvit eru
undirgefín lönguninni. Á flókinn
hátt, hulinn okkur sjálfum, móta
langanir okkar skilning okkar,
með því að þrengja honum í
ákveðið mót sem þær sjálfar vilja
troðíi sér í. Af þessum sökum
vinnur hugur okkar í því skyni
að velja og hafna. Hin sanna leið
til öryggis liggur í gegnum rétt-
an skilning, ekki í gegnum ósk-
hyggju hugsunar," sagði Ásbjörn
Leví Grétarsson, sem fyrstur Is-
lendinga þiggur vígslu sem
búddamunkur hérlcndis.
Morgunblaðið/Ragnar Th. Sigurðsson
ÍBV komið áfram í forkeppni
Meistarardeildarinnar C/1
Valsmenn unnu mikilvægan
sigur á Blikum C/2
Sigketill í Eystri-Hagafellsjökli
GREINILEGA má sjá merki hlaupsins í Haga-
vatni á dögunum í Eystri-Hagafellsjökli, þar sem
jökullinn hefur krosssprungið í kjölfar þess að
vatnið undir jöklinum hljóp fram og myndast hef-
ur stór sigketill. Ef grannt er skoðað má í
fjarska greina Hagavatn.
Mál skipstjóra og útgerðar norska loðnuskipsins Österbris
Kröfu um frávísun
hafnað í Héraðsdómi
KRÖFU Gunnars Sólnes verjanda
John Haralds Östervold skipstjóra
á norska loðnuskipinu Österbris og
Havbraut AS, útgerðar skipsins,
um að máli þeirra verði vísað frá
dómi var hafnað í Héraðsdómi
Norðurlands eystra síðdegis í gær.
Málið var tekið fyrir í Héraðs-
dómi Norðurlands eystra í fyrradag
og stóðu vitnaleiðslur einnig yfir í
gær. Við eftirlit varðskipsmanna á
Oðni á sunnudagsmorgun kom í ljós
við mælingar að möskvar í poka í
loðnunót skipsins voru of smáir.
Skipið var fært til hafnar á Akur-
eyri og sýslumaður gaf á mánudag
út ákæru á hendur skipstjóra þess
og útgerð.
Gunnar Sólnes verjandi ákærðu
krafðist þess við þinghald í gær að
málinu yrði vísað frá dómi þar sem
málatilbúnaður á hendur þeim væri
byggður á ófullkomnum mælingum
Landhelgisgæslunnar og að ákæru-
valdið vildi ekki stuðla að eðlilegri
rannsókn málsins. Jafnframt krafð-
ist verjandi þess að honum yrði til-
dæmd hæfileg málsvamarlaun.
Sýslumaðurinn á Akureyri hafn-
aði þessu og taldi að verjandinn
hefði ekki bent á neitt það sem frek-
ari rannsóknar væri þörf á sem full-
nægjandi rannsóknargöng lægju
ekki þegar fyrir um og því væri
lagaákvæðum um rannsóknar-
skyldu fullnægt.
Sönnunarfærslu
málsins ekki lokið
í úrskurði Ásgeirs Péturs Ás-
geirssonar héraðsdómara kemur
fram að þó að gagnaöflun í málinu
sé lokið af ákæruvaldsins hálfu hafi
verjandi ákærðu ekki gert hið
sama og þar af leiðandi sé sönnun-
arfærslu í málinu ekki lokið. Burt-
séð frá sjónarmiðum verjanda
málsins telur dómurinn að ekki
hafi verið nægilega gætt að
nokkrum ákvæðum laga um með-
ferð opinberra mála við rannsókn
málsins.
Þá er bent á að aðilum máls er
samkvæmt þessum lögum heimilað
að afla frekari sönnunargagna og
þá meginreglu að dómari skuli ekki
ákveða þing til aðalmeðferðar fyrr
en aðilar hafi lýst yfir að lokið sé
öflun skjala og annarra sýnilegra
sönnunargagna. Kröfu lögmanns
ákærðu um frávísun málsins er því
hafnað. Málskostnaður er felldur
niður.
Fluttur í gæslu-
varðhaldsfangelsi
ÞÓRHALLUR Ölver Gunn- á meðan rannsókn málsins fer
laugsson, sem Héraðsdómur hef-
ur úrskurðað í varðhald til 21.
desember vegna rannsóknar lög-
reglunnar á manndrápi á Leifs-
götunni, var fluttur úr Hegning-
arhúsinu við Skólavörðustíg í
gæsluvarðhaldsfangelsi á Litla-
Hrauni í gær.
Þar mun hann sitja í varðhaldi
fram, sem og ákæru- og dóms-
meðferð. Þórhallur var ekki yfir-
heyrður í gær en rannsókn máls-
ins miðar vel áfram.
Gæsluvarðhaldsúrskurður hér-
aðsdóms var kærður til Hæsta-
réttar í fyrradag og á Hæstirétt-
ur eftir að taka afstöðu til hins
kærða úrskurðar.
Heimsmarkaðsverð á áli á uppleið
Tonnið á um
1.450 dollara
ÁLVERÐ á heimsmarkaði fór yfir
1.400 dollara á tonn á heimsmarkaði
um síðustu mánaðamót í fyrsta
skipti á þessu ári. Það hefur síðan
haldið áfram að mjakast upp á við
og er nú um 1.450 dollarar tonnið.
Alverð er þó enn lágt í sögulegu
samhengi.
Hrannar Pétursson, blaðafulltrúi
íslenska álfélagsins í Straumsvík,
sagði að álverð væri nú talsvert
hærra en það hefði verið í vetur, en
það hefði farið alveg niður í 1.160
dollara tonnið í mars, sem hefði ver-
ið það lægsta sem álverð hefði farið
í í nokkur ár.
Hrannar sagði að spáð væri svip-
uðu verði næstu vikurnar eða 1.440
til 1.470 dollurum fyrir tonnið. Hins
vegar breyttust spárnar frá degi til
dags, en verðið hefði verið nokkuð
stöðugt síðustu vikurnar.
Sérblöð í dag
% steun
Viðskiptablað
Morgunblaðsins
Sérblad um viðskipti/atvinnulíf
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is