Morgunblaðið - 07.11.1999, Blaðsíða 1
254. TBL. 87. ÁRG. SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
SnpTor an
lustralian
;ad of State
for an
Australian
Head of State
Australií
Australian
Head of StatefHeadof S\
If you wont the
poople to vote for
the President....
MIÍJANS'
REPUBLIC
Ástralar höfnuðu tillög--
unni um lýðveldisstofnun
Ákvæðið um þingkjörinn forseta talið hafa ráðið úrslitum
Sydney. Reuters, AP.
ÁSTRALSKIR kjósendur felldu í
gær í sögulegri atkvæðagreiðslu til-
lögu um að gera landið að lýðveldi og
afnema um leið stöðu Elísabetar
Bretadrottningar sem þjóðhöfðingja.
Er niðurstaðan rakin til þess, að í
kosningunni tóku höndum saman
konungssinnar og róttækir lýðveldis-
sinnai', sem fannst tillagan ganga of
skammt. Kim Beazley, leiðtogi
stjórnarandstöðunnar og Verka-
mannaflokksins, sem barðist fyrir
lýðveldisstofnun, sagði er hann við-
urkenndi ósigurinn, að baráttunni
yrði haldið áfram.
Fyrstu tölur bentu strax til, að til-
lagan yrði felld eins og skoðanakann-
anir höfðu raunar bent tii síðustu
daga. Til að verða samþykkt varð hún
að fá meirihluta atkvæða og að auki
meirihluta í fjórum af sex ríkjum
Astralíu. Er rúmlega 70% atkvæða
höfðu verið talin höfðu andstæðingar
tillögunnar fengið 54% atkvæða en
stuðningsmenn 46%. Þá var einnig
ljóst, að henni hafði verið hafnað í
fímm ríkjum að minnsta kosti. Um 12
milljónir manna voru á kjörskrá og
bar öllum skylda til að kjósa.
Howard kom í veg
fyrir þjóðkjör
Beaziey, leiðtogi Verkamanna-
flokksins, viðm-kenndi ósigurinn í
gær en sagði, að tillagan hefði verið
felld eingöngu vegna þess, að John
Howard forsætisráðherra og stuðn-
ingsmaður óbreyttrar skipanar hefði
neitað að leyfa Aströlum að kjósa
sinn eiginn forseta. Tillagan var um
það, að þingið kysi forsetann og það
notuðu konungssinnar sér vel í áróðr-
inum, til dæmis með því að skora á
fólk að segja „nei við forseta stjórn-
málamannanna“. Skoðanakannanir
sýndu hins vegar, að tillaga um þjóð-
kjörinn forseta hefði verið samþykkt.
Beazley sagði, að Verkamanna-
flokkui-inn myndi berjast fyrir nýrri
þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem
spurt yrði hvort Ástralar væru yfir-
leitt hlynntir lýðveldi. Ef henni yrði
svarað játandi, yrði kannað hvers
konar lýðveldi landsmenn vildu. Að
því búnu væri hægt að leggja hina
eiginlegu tillögu fram.
Malcolm Turnbull, sem stýrði
kosningabaráttu lýðveldissinna,
sagði í gær, að Howard forsætisráð-
herra hefði fengið tækifæri til að
vera minnst í sögunni sem eins
þeirra manna, sem mótað hefðu ástr-
alska þjóð, en þess í stað hefði hann
Microsoftdómuriim kallar á aukna samkeppni
Mikill fögnuður í Kísildal
Konungssinnar líma áróður sinn fyrir nei-inu fyrir ofan já-ið lýðveldissinnanna. Skoruðu þeir fyrrnefndu á fólk
að segja nei við meiri völdum til sljórnmálamannanna og virðist sem það hafi riðið baggamuninn í kosningunum.
sundrað henni. Hann væri maðurinn,
sem hefði tryggt útlenda drottningu
sem þjóðhöfðingja.
Landfræðilegar og
efnahagslegar línur
Eins og líklegt var varð mikill
fögnuður í herbúðum konungssinna
er Ijóst var hvert stefndi og sagði
leiðtogi þeirra, Kerry Jones, að úr-
slitin væru sigur fyrir lýðræðið í
landinu. „Ekkert lýðveldi, engar
áhyggjur" var kjörorð konungssinna
en skýrustu línurnar milli íylking-
anna voru landfræðilegar og efna-
hagslegar. Landsbyggðin og verka-
fólk margt studdi konungdæmið en
borgarsamfélagið var hlynntara lýð-
veldi. Sem dæmi um það má nefna,
að tillagan var samþykkt með 60%
atkvæða í kjördæmi Howards for-
sætisráðherra í Sydney.
Ben Pimlott, konunglegur ævi-
söguritari, sagði í London í gær, að
úrslitin væru bestu fréttirnar fyrir
breska konungdæmið í langan tíma.
„Eg er viss um, að það er einhver
brosandi í Buckinghamhöll," sagði
hann.
Loftárás á Grosní
Tugir
sagðir
fallnir
Grosní. Reuters.
RÚSSNESKAR sprengjuflug-
vélar gerðu árás á Grosní, höf-
uðborg Tsjetsjníu, í gær og er
haft eftir vitnum, að tugir
manna hafí fallið eða særst.
„Rússar hafa þá aðferð að
drepa óbreytta borgara með
því að láta sprengjunum rigna
yfír þá úr Iofti,“ sagði tsjet-
sjneski skæruliðaforinginn
Shamil Basajev í Grosní í gær.
Sagði hann, að fáir sinna
manna hefðu fallið í hernaði
Rússa, sem hefði haft þau áhrif
ein að efla stuðninginn við
skæruliða.
Haft er eftir vitnum, að
sprengjuárásin hafi staðið i 40
mínútur og var hún gerð á
nokkur hverfi í borginni og
einnig á miðborgina að sögn
rússnesku Interfax-fréttastof-
unnar. Talsmaður rússneska
varnarmálaráðuneytisins vildi
hvorki játa né neita, að árásin
hefði verið gerð.
Vaclav Havel, forseti Tékk-
lands, segir í næsta hefti af
þýska tímaritinu Der Spiegel,
að ástæðan fyrir hryðjuverka-
starfsemi í Kákasuslöndum sé
kúgun og yfirdrottnun Rússa á
svæðinu. Hún hafi kynt undir
öfgafullri bókstafstrú meðal
múslima á svæðinu.
Palo Alto. Reuters.
MIKILL fögnuður ríkir í Kísildal í
Kalifomíu, óðali tölvuiðnaðarins,
með þann dóm bandarísks alríkis-
dómara, að risafyrirtækið Microsoft
hafi haft einokunaraðstöðu og notað
hana til að kveða keppinautana í
kútinn. Ekki er þó talið líklegt, að
fyrirtækinu verði gert að brjóta
starfsemina upp þótt dómurinn
verði staðfestur á síðari stigum.
„Þetta er merkisdagur fyrir allan
tölvuiðnaðinn," sagði James Barks-
dale, fyrrverandi aðalframkvæmda-
stjóri Netscape, sem kom fyrst fram
með vafrann og er einn helsti keppi-
nautur Microsoft á netmarkaði.
Þótt bandaríska dómsmálaráðu-
neytið og ríkin 19, sem höfðuðu mál-
ið gegn Microsoft, fagni dóminum,
verður honum áfrýjað og langur tími
mun enn líða áður en endanleg nið-
urstaða fæst. Það skyggði þó ekkert
á fögnuðinn hjá starfsmönnum fyrir-
tækja á borð við Oracle og Sun
Microsystems og raunar öllum öðr-
um, sem hafa átt undir högg að
sækja gagnvart Microsoft.
Ekki ósigrandi
„Sú trú flestra, að Microsoft væri
eitthvert yfirþyrmandi og ósigrandi
afl, hefur nú minnkað verulcga,“
sagði Michael Morris, aðallögfræð-
ingur Sun Microsystems, og Bob
Young, aðalframkvæmdastjóri Red
Hat Inc., stærsta dreifanda Linux-
stýrikerfisins, sem keppir við
Windows-kerfið frá Microsoft,
sagði, að allir í þessum iðnaði hefðu
vitað, að „Microsoft hefur haft ein-
okunaraðstöðu hvað varðar stýri-
kerfi einkatölva og beitt henni að
vild. Á því hafa aðrir fengið að
kenna“.
Hvergi var þó spennan og gleðin
meiri en hjá núverandi og fyrrver-
andi starfsmönnum Netscape og
þeir slógu upp veislu í fyrrakvöld
þegar tíðindin bárust.
Aukin samkeppni
Sérfræðingar í tölvuiðnaðinum
segja, að Microsoft fái nú sam-
keppni, sem það hafi ekki þekkt
fyiT, einkum frá Linux-kerfinu og
tölvustýrðum tækjum, sem ekki
nota Windows. Þá er Intel-hugbún-
aðarrisinn að vinna að því að vera
ekki jafn háður Windows og verið
hefur.
Borgarstjórn vill að
byggð þróist fyrst norður
WJSSóFgaHv*OTT
Þróun byggðar til
norðurs oða suðurs?
Frá vísindum
til viðskipta