Morgunblaðið - 07.11.1999, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 07.11.1999, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1999 11 staklega skoða Reykjavíkurflugvöll, hvemig við gætum nýtt Vatnsmýr- ina og hverjar aðrar hugsanlegar staðsetningar flugvallarins væra. Um þetta var auðvitað beðið án allr- ar bindingar; bara til að þeir tækju þetta atriði inn í myndina, en svo kemur eiginlega ekkert um málið í skýrslunni,“ sagði Inga Jóna og kveður það vonbrigði. Inga Jóna leggur líka áherslu á að Sjálfstæðismönnum í Reykjavík finnist ráðgjafamir taka lítið tillit til almenningssamgangna í tillögum sínum. „Ekki er mikið fjallað um þær í skýrslunni en eitt af lykilat- riðunum þegar menn eru að stilla sáman strengi í skipulagningu svæðis, er að almenningssamgöng- ur geti verið greiðar og afkasta- miklar. Við vorum með tillögu í börgarráði fyrir rúmri viku, sem liggur þar í frestun ennþá, að við myndum fara í viðræður við Al- menningsvagna BS sem hin sveitar- fiélögin reka um sameiginlegt leiða- kerfi og sameiginlegan rekstur. Og við viljum að í þessu svæðisskipu- lagi sé sömuleiðis tekið á þessum þætti skipulagsins, hvemig umferð- in verði skipulögð." Ingibjörg Sólrún segir mörg dæmi þess að forráðamenn borga erlendis horfí 50 ár fram í tímann, þó það sé ekki gert formlega í skipu- lagi. „Menn reyna að gera sér grein íyrir því hver líkleg þróun sé næstu 50 ár. Pað er eflaust mjög skynsam- legt að gera það því það getur breytt svolítið myndinni." Og þegar minnst var á flugvöllinn sagði borg- arstjóri að vissulega væru menn famir að íhuga hvað um hann yrði. „Flugvöllurinn verður væntanlega þama út þetta skipulagstímabil, til 2016, en ég held að engum blandist hugur um að það muni breytast þeg- ar horft er til lengri tíma.“ Geldinganes Þegar umsögn Reykjavíkurborg- ar um fyrri tillögur samvinnunefnd- arinnar var afgreidd í borgarráði í sumar var ágreiningur milli Reykjavíkurlistans og Sjálfstæðis- flokksins að tvennu leyti. Annars vegar varðandi nýtingu á Geldinga- nesi og Eiðsvík og hins vegar voru Sjálfstæðismenn ósáttir við hug- myndir um hvemig staðið yrði að þéttingu byggðar. „Málefni Geldinganess er mjög afdráttarlaust skipulagsmál og að mínu viti stærsta skipulagsmálið á höfuðborgarsvæðinu núna, vegna þess að ákvörðun um það hvemig Geldinganesið skuli nýtt ræður svo miklu um þróunina á svæðinu," seg- ir Inga Jóna. Lykilatriði varðandi Geldinganes- ið, segir oddviti Sjálfstæðisflokks- ins, er að í plaggi sem kom út í ágúst - Nokkrar tillögur að svæðis- skipulagi - kemur fram að erlendu ráðgjöfunum sýnist ekki vera þörf á höfn í Eiðsvík. Sérstök skýrsla var gefin út eftir athuganir erlends sér- fræðings, sem gerði úttekt á hafn- armálum. „Þessi sérfræðingur komst að þeirri niðurstöðu að nú- verandi hafnarsvæði fullnægi þörf- um næstu 50 ára. Þetta kom okkur auðvitað þægilega á óvart því við höfðum haldið því fram í kosninga- baráttunni að við ættum ekki að halda okkur við þessar gömlu hug- myndir um höfn í Eiðsvík því núver- andi hafnarmannvirki myndu duga í að minnsta kosti 20 til 25 ár. Þess vegna ættum við að færa hafnar- stæðið upp á Álfsnes í Kollafírði til þess að fóma ekki Geldinganesinu. Þegar slíkt land er tekið undir höfn er verið að fórna því; það verður ekki notað undir annað. Og fórnin er sú að við getum ekki þróað íbúða- byggð með ströndinni, sem við telj- um eftirsóknarverðara." Inga Jóna segir að Alfsnesið sýn- ist góður staður fyrir höfn. IfAuðvit- að ekki jafn góður og Eiðsvík, því þar em algjörar kjöraðstæður, en það em líka kjöraðstæður fyrir byggð, og okkur finnst kostur að þróa byggð áfram í kringum Leir- voginn. Staðarhverfið er að byggj- ast upp þama núna, alveg niður að sjó, og við viljum ná þessum hring og viðhalda eiðinu, þannig að streymi sjávar verði áfram í gegn. Þetta er því líka umhverfismál. Við viljum að byggðin þama geti mynd- að þau eftirsóknarverðu tengsl við umhverfið og náttúmna sem staður- inn býður upp á.“ Ingibjörg Sólrún segir R-listann harðan á því að „taka höfnina í Eiðsvík ekki út af skipulagi fyrr en við sjáum fyrir okkur að það sé óhætt. Við erum að tala um 20 ár, en þau em óskaplega fljót að líða. Þó skipulagið sé til 20 ára verða menn að horfa lengra inn í framtíð- ina og reyna að átta sig á því hvern- ig þróunin verði á að minnsta kosti næstu 50 ámm. Þá koma inn stór mál eins og höfnin í Eiðsvík, einnig flugvöllurinn og fleira. Og ég held að það sé mjög óvarlegt að taka höfnina út af skipulaginu eins og sakir standa vegna þess að menn verða líka að gera sér grein fyrir því hver þróunin verður á eldri hafnar- svæðum. Nú er líklegt að eitthvað af þeirri starfsemi sem er í gömlu höfninni flytji jafnvel inn í Sunda- höfn og þá er spumingin hvort eitt- hvað sem er þar flytjist eitthvert annað og þá hvert. Svo er það líka spurning hvort eitthvað sé af göml- um hafnarsvæðum sem við viljum endurheimta. Þá er ég ekki síst að horfa á svæðið við Ártúnshöfðann, sem liggur niður að Elliðavoginum; að þar vilji menn endurheimta svæði, til dæmis undir íbúðabyggð.“ Borgarstjóri leggur áherslu á að enn hafi ekki verið ákveðið hversu hátt hlutfall Geldinganess fari undir atvinnustarfsemi og hve mikið und- ir íbúðabyggð. „Ef menn telja að ekki sé þörf á svona miklu atvinnu- svæði í Geldinganesi og talað hefur verið um er auðvitað sjálfsagt að auka pláss undir íbúðabyggð þar. Og ef menn komast að því eftir ein- hver ár að einhverjir aðrir mögu- leikar séu til í hafnarmálum þá verður það mál bara endurskoðað. En ekki að svo stöddu," segir hún. Besta aðstaðan í Eiðsvík Hannes Valdimarsson, hafnar- stjóri í Reykjavík, segir lengi hafa legið Ijóst fyrir að Eiðsvík sé besta hafnaraðstaðan við innanverðan Faxaflóa. „Við vitum að Sundahöfnin endist okkur næstu áratugi í hina al- mennu vöruflutninga, gámaflutning og inn- og útflutning á vöram, en þegar skipulag er annars vegar þurf- um við að hugsa í 30-40 áram.“ Hann segir mjög takmarkað svæði standa til boða undir höfn, annað en Eiðsvík, „og við hjá höfninni teljum að mikið þurfi að koma til, til að fóma besta kosti fyrir lakari,“ sagði hafnarstjóri við Morgunblaðið. Hann segir nátt- úralega höfn ekki fyrir hendi annars staðar en í Eiðsvík og Ijóst sé að það verði miklu dýrara að búa til hafnar- stæði annars staðar en nota það sem náttúran býður upp á. „Við viljum því alls ekki fóma þessum kosti. Höfiiin er þjónustufyrirtæki sem atvinnulífið nýtur góðs af. Við geram ekki höfti hafnarinnar vegna, heldur með það í huga hvemig best er hægt að þjón- usta atvinnulífið.“ Inga Jóna vill horfa á höfuðborg- arsvæðið aUt þegar fmna þarf hvar hagkvæmast yrði að koma höfn fyr- ir. „Sveitarfélögin á svæðinu geta þess vegna myndað félag, þannig að málið snúist ekki um að þau fari að keppast um tekjumar. Við töluðum á sínum tíma um Straumsvík sem mögulega höfn íyrir iðnaðinn og vild- um að það yrði skoðað. Líka má nefna að við eram með höfn uppi á Grandartanga. Við verðum að horfa á allt þetta svæði með framtíðina í huga. Mín skoðun er sú að svona stóriðnaðarhöfn eigi ekki að vera ná- lægt byggð; í framtíðinni verður það viðhorf ekki samþykkt. Þess vegna eigum við núna strax að taka af skar- ið, af því að við eram að skoða íbúða- svæðaþróunina, og ákveða að taka Geldinganesið frá fyrir íbúðabyggð. Þar hefur þegar átt sér stað mikið grjótnám, og ég vil að því verði hætt áður en það verður um seinan; áður en svæðið verður skemmt of mikið. Auðvitað era einhver atvinnusvæði á svæðinu af því að Geldinganesið er svo stórt en í meginatriðum á land- notkunin að vera undir íbúðabyggð.“ Þétting byggðar Ágreiningur var um tvennt milli flokkanna í borgarstjóm þegar sam- in var umsögn um tillögu samvinnu- neíhdar í sumar. Áður er drepið á Geldinganesið en hitt atriðið sem Sjálfstæðismenn vora ósáttir við era hugmyndir um hvemig staðið verði að þéttingu byggðarinnar. Inga Jóna segir víðtækustu hugmyndina gera ráð fyrir að 12.000 íbúðum (25 þús- und manns) verði komið fyrir vestan Elliðaáa, en önnur tillaga geri ráð fyrir fyrir að samvarandi tölur verði 9.500 og 20 þúsund. „Þetta er gríðar- legt,“ segir hún og bendir á að Sjálf- stæðismenn hafi bókað í borgarráði að standa yrði að þéttingu byggðar innan skynsamlegra marka og þar sem hagkvæmt væri. „Við höfðum óskað eftir því að þeir kostir sem nefiidir vora í plagginu yrðu reiknað- ir út áður en umræðan heldur áfram, en satt best að segja finnst mér við ekki fá miklar undirtektir. Því er svarað til af sérfræðingum að frekar sé um deiliskipulagsvinnu að ræða og fyrir það þurfi að greiða sérstaklega. En við munum láta á það reyna." Þegar rætt var við Magnús lagði hann áherslu á, eins og að framan greinir, að hann teldi skynsamlegra að þétta byggðina á ákveðnum svæðum frekar en teygja hana langt í norðurátt. Ingibjörg Sólrún sagði um þetta atriði: „Það getur verið að dálítið langt sé seilst í tillögum um þéttingu byggðar í skýrslunni, en ýmsir möguleikar era þó til. Þá á ég ekki síst við að hægt verði að endur- heimta einhver svæði sem notuð eru til iðnaðar í dag. Eg nefni til dæmis Ártúnshöfðann, sem ég tel að sé geysilega fallegt byggingarland. Þar er í dag starfsemi sem á ekki, að mínu mati, lengur heima inni í miðri borg. Líka má nefna svæði í Grafar- vogshverfinu, þar sem Landssíminn er nú með Gufunesradíó; það svæði býður upp á heilmikla uppbyggingu. Þá má nefna svæðin í kringum Keld- ur þannig að víða era til svæði sem má nýta miklu betur en gert er í dag og því er alls ekki óraunsætt að gera ráð fyrir þéttingu byggðar. Og svo hljótum við auðvitað að horfa til flugvallarsvæðisins." Inga Jóna telur að sveitarfélögin ættu að ná saman í öllum megin- dráttum. „Það era allir sammála um að leggja áherslu á að miðborg Reykjavíkur verði þróuð áfram sem miðborg svæðisins. Við eigum hins vegar ekki að vera að fara út í ein- hver aukaatriði eins og hvort ein- hver einn kjami heiti B eða C [eins og gert er í skýrslunni]; það era kjamar í öllum sveitarfélögunum. Menn fara út í of miklar hártoganir með slíku og tillögurnar eiga ekki að bjóða upp á slíkt. Það er algjör óþarfi að koma umræðunni í svo- leiðis hnút,“ segir hún.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.