Morgunblaðið - 07.11.1999, Blaðsíða 16
16 SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Ballið er
byijað
Portland og San Antonio sigurstranglegust
AÐDÁENDUR NBA-körfuboltans geta nú loks tekið gleði sína aft-
ur eftir stutt síðasta keppnistímabil þar sem allt virtist úr sam-
hengi. Leikmenn liðanna áttu erfitt með að átta sig á styttri
deildarkeppni sem sett var á eftir verkbann eigenda og ekki
bætti úr að Michael Jordan var horfinn og enginn einn leikmað-
ur til að taka við hlutverki hans sem ofurmenni deildarinnar.
Chicago Bulls var einnig horfið af sjónarsviðinu sem meistara-
efni og því stór eyða til að fylla
Reuters
Tveir leikmenn sem verða á ferðinni f vetur - Glenn Robinson hjá Milwaukee Bucks og Walter Willi-
ams í Houston Rockets.
Svo virðist þó sem hlutimir séu nú
að komast í eðlilegt horf að nýju.
Deildarkeppnin hefst á venjulegum
^■■1 tíma í ár og liðin hafa
Gunnar haft sitt reglulega æf-
Valgeirsson ingatímabil til að búa
skrifarfrá sig undir hana. Þegar
Bandaríkjunum utið er & Mn j dejld_
inni er ljóst að allt getur gerst. Mörg
liðanna gerðu verulegar breytingar á
liðshópnum og athyglisvert verður
að sjá hvemig þær breytingar koma
út, sérstaklega hjá Portland, sem nú
er orðið uppáhaldslið blaðamanna
hér á landi.
Forráðamenn deildarinnar hafa
nokkrar áhyggjur af lítilli stigaskor-
un og era nú að velta fyrir sér ýms-
um breytingum á leikreglum. A
þessu keppnistímabili munu dómar-
ar dæma stífar á bakverði sem hafa
hönd á andstæðingi með knöttinn.
Þessi breyting gæti opnað sóknar-
leikinn, en þess er verulega þörf ef
marka má leiki síðustu ára.
Styrkleikamunurinn á austur- og
vesturdeild hefur snúist við á undan-
fömum þremur áram. Svo slæmt er
ástandið fyrir lið austurdeildarinnar
að New York Knicks, sem raddi
hverju liðinu á fætur öðra úr vegi í
úrslitakeppninni, vann einungis 50%
af leikjunum í deildarkeppninni. Rn-
icks var síðan tekið í kennslustund af
San Antonio Spurs í lokaúrslitunum.
Flest lið reiða sig á einn til tvo
stjörnuleikmenn og þegar litið er á
bestu leikmennina í deildinni er ljóst
að flestir þeirra era nú í vesturdeild-
inni. Bæði deildarkeppnin og úrslita-
keppnin eru aðskildar í deildunum
tveimur og því eðlilegast að líta á
þær hvora í sínu lagi.
Morgunblaðið spáir nú í NBA-
keppnistímabilið fimmtánda árið í
röð og tími kominn til að breyta út af
venju. Við hefjum könnun okkar í ár
ekki í Atlantshafsriðli austurdeildar
eins og venjulega, heldur á Kyrra-
hafsströnd, en þar gæti baráttan
orðið einna hörðust meðal bestu lið-
anna í deildinni.
VESTURDEILD
Kyrrahafsriðill
Þrjú lið koma hér sterk til leiks.
Portland TrailBlazers kemur mikið
breytt til leiks og er talið meistara-
efni af flestum íþróttaskríbentum
hér í landi eftir að hafa fengið
Scottie Pippen frá Houston. Blazers
hefur hið minnsta átta sterka leik-
menn sem gengið gætu inn í flest
önnur byrjunarlið. Damon Stouda-
mire er eldfljótur leikstjórnandi,
Brian Grant er nú besti frákastarinn
í deildinni, og Pippen mun eflaust
líka vel við sóknarleik Mikes Dunlea-
vys þjálfara. Að auki munu þeir Ras-
heed Wallace, Arvydas Sabonis,
Detlef Schrempf, Steve Smith og
Jermaine O’Neal skila lykilhlutverk-
um. Erfitt er að sjá nokkurt annað
lið með annan eins mannskap, en að-
dáendum liðsins ætti ekki að koma á
óvart þótt það tæki nokkrar vikur
fyrir liðsheildina að ná saman.
Phoenix Suns gerði vel í að fá
Penny Hardaway frá Orlando. Har-
daway hefur átt erfitt undanfarin
þrjú ár með að sætta sig við hlut-
skipti sitt hjá Orlando, en getur nú
kæst yfir að fá að leika með lið-
stjórnandanum Jason Kidd. Hann
mun eiga í litlum erfiðleikum með að
koma knettinum til Hardaway í
góðri stöðu. Phoenix mun eflaust
ganga vel í deildarkeppninni, en
spurningarmerkið í úrslitakeppninni
verður eflaust hversu vel þeim Luc
Longley, Cliff Robinson og Tom
Gugliotta gengur í baráttunni undir
körfunni.
Helsta breytingin hjá Los Angeles
Lakers var ráðning Phils Jacksons
sem þjálfara í sumar. Hann á erfitt
verkefni framundan; að breyta hug-
arfari liðsins eftir síðasta keppnis-
tímabil, sem endaði ekki vel. Jackson
leggur ávallt áherslu á að byggja leik
liðs síns upp á sterkum varnarleik.
Hvorki Shaquille O’Neal né Kobe
Bryant era vanir að leggja mesta
áherslu á það, en Jaekson er heppinn
að mikið er um leikreynda leikmenn
sem vita til hvers er ætlast af þeim.
Bryant mun missa fyrstu vikurnar af
keppnistímabilinu og því mikilvægt
að aðrir taki við hlutverki hans í
sóknarleiknum á meðan. Ef Lakers
ætlar sér langt í vetur verður allt að
smella saman.
Bæði Seattle SuperSonics og
Sacramento Kings gætu átt von á að
blanda sér í toppbaráttuna í öðram
deildum, en það gæti orðið erfitt hér.
Seattle gerði breytingar á mann-
skapnum, en erfitt verður fyrir liðið
að komast í úrslitakeppnina nema
liðið batni fi-á síðasta keppnistíma-
bili. Sacramento lék af mikilli ákefð á
síðasta keppnistímabili, en óvíst er
hvort liðið verður heitt á réttum tíma
eins og þegar allt virtist smella sam-
an í lok deildarkeppninnar. þeir
Chris Webber, Corliss Williamson,
Jason Williams og Vlade Divac
mynda gott byrjunarlið og verða ef-
laust í baráttunni um sæti í úrslita-
keppninni. Golden State Warriors og
Los Angeles Clippers eru ekki til
stórræða líkleg í þessum sterkasta
riðli deildarinnar.
Miðvesturriðill
Auðvelt er að spá i sigurvegarann
í þessum riðli, en erfitt að spá í gengi
hinna liðanna eftir það. Meistarar
San Antonio Spurs ættu ekki að eiga
í erfiðleikum hér og vora jdirburða-
lið í síðustu úrslitakeppni. Tim Dunc-
an og David Robinson, turnarnir
tveir í miðjunni, verða áfram lykill-
inn að velgengni Spurs, en óvissan
um hvort Sean EUiott kemur aftur
til leiks eftir að hafa fengið nýtt nýra
í sumar gæti gefið andstæðingum
meistaranna byr. Elliott gætir ávallt
helsta sóknarleikmanns andstæðing-
anna og erfitt er að sjá hver getur
tekið við því hlutverki. „Það er eng-
inn sem getur tekið við hlutverki
Elliotts, en við verðum bara að finna
einhvern til að fylla í skarðið," sagði
þjálfarinn Gregg Popovich nýlega í
viðtali. Spurs er meistari og sigur-
stranglegasta liðið í deildinni þar til
að annað lið slær það út.
Framkvæmdastjóri Houston
Rockets hefur breytt liði sínu mikið
frá síðasta keppnistímabili. Scottie
Pippen var skipt til Portland íyrir
sex leikmenn og þeir eiga eftir að
koma Houston til góða. Að auki fékk
liðið hinn knáa Shandon Anderson
frá Utah og Rockets náði í góðan
bakvörð í háskólavalinu. Hann heitir
Steve Francis og mun spila mikið í
vetur. Fæstir sérfræðingar spá því
að Houston vinni titilinn, en liðið
gæti komið á óvart í úrslitakeppn-
inni. Að vísu þurfa þeir Hakeem Ola-
juwon og Charles Barkley að ganga
heilir til skógar til að svo verði. Á
meðan Karl Malone og John
Stockton leika með Utah Jazz verður
liðið að teljast líklegt til afreka, en
vandamál Utah er einmitt að báðir
þessir leikmenn eru ekki langt frá
því að leggja skóna á hilluna. Margir
sérfræðingar hafa gefið í skyn á und-
anfornum áram að lykilleikmenn
væru orðnir of gamlir, en Utah hefur
þó verið í baráttunni um titilinn á
sama tíma. Eg er hræddur um fyrir
aðdáendur Jazz að liðið gæti verið á
sömu leið og Boston fyrir um fimmt-
án árum þegar forráðamenn Celtics
héldu of lengi í eldri leikmenn liðsins.
Af öðram liðum í riðlinum er helst
að minnast Minnesota Timberwolv-
es, sem mun sennilega gera það gott
í vetur. Kevin Garnett er yfirburða-
leikmaður, en Úlfana vantar enn
góðan skotbakvörð til að taka þung-
ann af hlutverki hans í sókninni.
Denver Nuggetts gerði nokkrar
breytingar og verður að bíða og sjá
hvort þær hafa bætt liðið. Bæði
Dallas Mavericks og Vancouver
Grizzlies munu eiga erfitt í vetur.
AUSTURDEILD
Atlantshafsriðill
Flestir fréttaritarar hér í landi
veðja á Miami Heat í baráttunni um
sigurinn í Atlantshafsriðlinum.
Alonzo Mourning, miðherji liðsins,
er að sjálfsögðu sammála þessari
skoðun. „Þetta verður okkar ár. Við
höfum haft lítið breytt lið nú í fjögur
ár og höfum farið í gegnum margs-
konar mótlæti. Við verðum hættu-
legir í vetur,“ sagði hann. Vandamál
Miami er að í deildarkeppninni
gengur liðinu vel, en síðan hefur
New York tekið liðið í kai-phúsið í
úrslitakeppninni. Vandamál Pats Ri-
leys þjálfara verður að fylla skarð
Terrys Porters, en hann var mikil-
vægur á bekknum sem leikstjórn-
andi fyrir liðið á síðasta keppnis-
tímabili.
Aðdáendur New York Knicks
ættu ekki að búast við liðinu aftur í
lokaúrslitin. Patrick Ewing hefur
sjálfsagt ekki leik fyrr en um ára-
mótin og án hans vantar mikið í
miðjuna hjá Knicks. Latrell Sprewell
heldur áfram einkennilegri hegðun
sinni og aldrei að vita hvort hann
verður jafn góður í vetur og á síðasta
keppnistímabili. Ef hann verður
hinsvegar í jafnvægi er hér nógur
mannskapur til að skapa usla í úr-
slitakeppninni.
Hjá Philadelphia 76ers er það Al-
len Iverson sem verður sjálfsagt allt
í öllu hjá liðinu. „Það var nógu erfitt
að gæta hans með gömlu reglunum.
Nú veit ég ekki hvort nokkur getur
stöðvað hann,“ sagði Penny Har-
daway nýlega í viðtali um hvað stíf-
ari reglur um handasnertingu varn-
armanna hefðu að segja varðandi
vörn gegn Iverson. 76ers ætti að
komast í úrslitakeppnina, en byrjun-
in gæti orðið erfið vegna meiðsla
miðherjans Matts Geigers.
New Jersey Nets hefur nægan
mannskap með þá Kendall Gill,
Keith Van Horn, Kerry Kittles og
Stephon Marbury, en gengi Nets
mun velta á hversu vel stórstjörn-
unni Jayson Williams gengur að ná
sér af alvarlegum hnémeiðslum frá
síðasta keppnistímabili. Hann gæti
hafið leik eftir áramótin og ef Nets
gengur þokkalega fyrstu tvo mánuð-
ina gætu þeir komist í úrslitakeppn-
ina með Willams heilan.
Því miður er ekki hægt að boða
mikið gott fyi-ir marga aðdáendur
Boston Celtics á komandi vertíð,
þjálfarinn Rick Pitino heldur áfram
að breyta liðinu og vegna skorts á
leikreynslu verður erfitt fyrir Celtics
að komast í úrslitakeppnina, en þar
hefur Boston aðeins einu sinni verið
undanfarin sex ár.
Washington Wizards er ekki til
stórræða líklegt og Orlando Magic
losaði sig við fjóra af fimm leikmönn-
um sínum í byrjunarliðinu sem
komst í úrslitakeppnina í vor. Magic
stefnir greinilega á framtíðina.
Miðriðill
Þessi riðill var einn sterkasti riðill-
inn í deildinni um árabil, en nú er
fátt um lið í miðriðlinum sem líkleg
era til stórræða í vetur. Reyndar eru
þrjú lið líkleg til að komast í úrslita-
keppnina, en erfitt er að sjá þau fara
langt þar.
Charlotte Hornets mun reyna að
ná toppsætinu af Indiana. Hornets
gerði vel þegar Glen Rice var sendur
til Los Angeles Lakers fyrir þá
Eddie Jones og Elden Campbell.
Þeir bættu nauðsynlegri reynslu inn
í liðið og ef Anthony Mason nær sér
að fullu eftir að hafa misst allt síð-
asta keppnistímabil úr eru möguleik-
ar Hornets á sigri góðir.
Indiana Pacers flytur inn í nýja
höll í ár, en óvíst er hvort sú andlits-
lyfting nægir liðinu til að vinna
þennan riðil. Byrjunarliðið verður
enn sterkt fyrir Larry Bird, sem hef-
ur sagt að þetta sé síðasta keppnis-
tímabilið sem hann muni þjálfa. Þeir
Rik Smits, Jalen Rose, Reggie Mill-
er, Chris Mullin, Antonio Davis og
Mark Jackson hafa mikla reynslu, en
bekkur Hðsins er þunnur og það gæti
gert Pacers erfitt fyrir í úrslita-
keppninni.
Atlanta Hawks kemur mikið
breytt til leiks. „Eini tíminn til að
gera engar breytingar er þegar þú
vinnur meistaratitla og við höfum
ekki unnið neitt enn,“ sagði Lenny
Wilkens, þjálfari Atlanta, nýlega.
Hann er einn af bestu þjálfurunum í
deildinni og mun eílaust eiga fullt í
fangi með að ná góðri liðsheild út úr
nýju liði.
Chicago Bulls, Cleveland Cavali-
ers, Toronto Raptors, Milwaukee
Bucks og Detroit Pistons munu öll
reyna að komast í úrslitakeppnina.
Tvö síðastnefndu liðin eiga hér besta
möguleikann.
Ljóst er að bestu liðin í vesturdeild-
inni virðast bera höfuð og herðar yfir
liðin í austurdeildinni í vetur. Portland
og San Antonio era talin sigurstrang-
legust liðanna. Annars verður gaman
að sjá hvemig breytingamar hjá
mörgum liðanna koma út.
Þjálfaramenntun KSÍ
Þjálfari 1A
12.-14. nóvember
Þjálfaramenntun KSÍ hefur ni
verið endurskipulögð til sam
ræmis við kröfur ÍSÍ og UEFA.
Samkvæmt nýju kerfi er Þjálfari 1A fyrsta þrepið og
er ætlað þeim, sem ekki hafa tekið nein knatt-
spyrnuþjálfaranámskeið áður.
Meðal efnis er tækni, leikfræði, starfsemi líkamans,
skipulag æfingatíma og knattspynulögin.
Skráning er hafin á skrifstofu KSÍ, sem veitir
allar nánari upplýsinga í síma 510 2900