Morgunblaðið - 07.11.1999, Page 20
20 SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1999
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Hið ertandi
hljómfall
Unnur Astrid Wilhelmsen
fær góða dóma í Noregi
Hljómmikil og
glæsileg rödd
UNNUR Astrid Wilhelmsen sópransöngkona
hlýtur afbragðsgóða dóma fyrir frammistöðu
sína í óperunni Mannsröddinni - La voix
humaine - eftir Francis Pou-
lenc, sem hún flutti nýverið á
Bókmenntahátíð ársins í
Stafangri í Noregi.
Ópera Poulencs er gerð
eftir samnefndu einleiksverki
Jean Coeteau og var bæði
leikritið og óperan flutt á há-
tíðinni í Stafangri, leikritið í
norskri þýðingu en óperan á
frönsku. Par söng Unnur
hlutverk konu sem talar í
síma við manninn sem hún elskar en hefur yfir-
gefið hana. Röddin er hennar eina vopn og með
henni beitir konan öllum ráðum til að fá sinn
heittelskaða til sín aftur. Hlutverkið er hið eina
í sýningunni og var söngkonan þar af leiðandi á
sviðinu allan tímann.
Gagnrýnandi Rogaland Avis, May Linn
Gjerding, gefur Unni Astrid sex stjörnur af sex
mögulegum og segir meðal annars í dómnum:
„I gær var sorgin áþreifanleg og nálæg. Næst-
um óþægileg blanda af vonleysi, efasemdum og
örvæntingu. Sópransöngkonan Unnur Astrid
Wilhelmsen var frábær í óperusýningunni.
Túlkun hennar á „hinni harmþrungnu" var
mjög áhrifamikil - og frönsk. Hún lá syrgjandi
á eldrauðum dívan, íklædd svörtum brjósta-
haldara, leðurjakka og hjólreiðabuxum. Með
hljómmikilli og glæsilegri rödd snerti hún
flestalla strengi mannlegra tilfinninga og það á
móðurmáli Cocteau.“
I dómi Nils Henrik Asheim í Stavanger
Aftenblad segir: „Eins og allar góðar óperur fer
hún beina leið inn í taugakerfið. Franskur texti
var þannig ekki til fyrirstöðu.“ Þar segir enn-
fremur að söngkonan sýni „glæsilega frammi-
stöðu“ og hafi fullkomið vald á röddinni í hinu
krefjandi einleiksformi, auk þess sem leikur
hennar sé frábær“.
MYIVPLIST
galleri@hlemmur.is,
Þverholti 5
HLJÓÐ og LJÓS
DÚETTINN ALBA ALBA
Til 21. nóvember. Opið þriðjudaga til sunnu-
daga frá kl. 14-18. Aðgangur dkeypis.
GALLERI@HLEMMUR.IS er að
treysta sig í sessi sem framsækinn sýningar-
salur á besta stað í bænum. Þó svo að það sé
fremur salur með ákveðna stefnu en gallerí
sem sinnir afmörkuðum hópi listamanna - i8
í Ingólfsstræti 8 er enn sem komið er eina
faglega galleríð sem hefur verið rekið á ís-
landi - markar það sér málsmetandi svið en
lætur ekki vaða á súðum eins og þau listhús
þar sem salir eru leigðir út formálalaust.
Síðastliðinn laugardag var opnuð í gallerí-
inu sýning á hljóð- og ljósverki eftir þá Bald-
ur J. Baldursson og Kristin Pálmason, sem
þeir kalla Alba Alba, eftir verki á samnefnd-
um diski. Reyndar kalla þeir félagar sig Alba
Alba-dúettinn, og setja fram þá skýringu á
tiltæki sínu að þeir vilji hrekja kenningar
Angusar nokkurs Somhairles Macleoids frá
1927. Macleoid hélt því fram að hvítt væri
ekki hluti af þeirri heild sem oft hafði verið
haldið fram, en nú telur Alba Alba-dúettinn
sig hafa komist að hinu gagnstæða.
Þessi sönnun og afsönnun yrðingar, sem
er tóm steypa - hana skortir öll afmarkandi
viðmið - er ekki annað en skondin og léleg
afsökun til að setja upp verkið. En þótt af-
sökunin sé endaleysa stendur uppfærslan
fyrir sínu. Gestir ganga inn í myrkvaðan sal
og hlýða þar á rafmagnaðan són sem hækk-
ar uns hann er brotinn af hljómeykinu
„fdcís“ og „fdgís“. Allan tímann sem þetta
nær níu mínútna hljómverk endist blikka
ljós þannig að öll skynjun verður eins og
undir snúðsjá.
Til viðbótar við óraunveruleik hinnar
sjónrænu upplifunar þrengja fyrrnefndir
hljómar sér inn í stöðugt suðið líkt og
þokulúður, eða upphaf symfónísks stefs sem
ekki er til lykta leitt. Þótt hljómarnir séu
ávallt hinir sömu er hljómfall þeirra mis-
langt. Það verkar ertandi um leið og það
vekur falskar vonir um framhald, eða botn.
En ekkert gerist sem breytt gæti stígandi
sónsins. Þó verður mönnum smám saman
ljóst að innskotshljómarnir bjóða upp á
brigði sem sífellt fela í sér fögur fyrirheit.
Án þess að ætla sér slíkt í upphafi eru eyrun
farin að bíða komandi inngrips um leið og
augun venjast hverfulu umhverfinu. Það er
þessi dáleiðandi samsvörun birtingar,
hljóma og hljóðfalls sem smám saman fer að
virka vel á gestinn.
Ef til vill er þá best að hverfa af vettvangi
ef maður vill ekki verða vitni að því þegar
Titanic steytir á marandi borgarísnum, eða
einhverjum enn draugalegri hrakforum. Það
er nefnilega eitthvað dökkt, ógnvekjandi og
rómantískt við þetta verk; eitthvað sem heill-
að hefði Einar heitinn Ben. eða jafnvel
Ódysseif íþökukóng. Best trúi ég það sé óm-
urinn af söng sírenanna; þeirra bölvuðu
hræætna, sem hóta að bora sér inn í vitund
manna og æra þá. En þar sem það kostar
ekkert að sækja þessa sérkennilegu hljóm-
leika geta þeir sem búa yfir hugrekki hins
gríska fomkappa prófað herlegheitin á eigin
skynfærum.
Halldór Björn Runólfsson
Nýjar bækur
• LITLASYSTIR og Dvergamir sjö er
barnasaga eftir Einar Kárason.
I fréttatilkynningu segir: Einu sinni
voru tvær litlar kisur,
önnur þeirra var hvít og
hlaut nafnið Mjallhvít,
ósjálfrátt var svo farið
að kalla flekkóttu systur
hennar Dvergana sjö.
Litlu systur þótti það
hæfa bestu vinkonu
sinni vel. Þær tvær eru
óaðskiljanlegar og kisa
samþykkir fiest sem
stelpunni dettur í hug,
meira að segja lætm-
hún sér vel líka að aka um alklædd í
brúðuvagni og ganga upprétt á tveimur
fótum.
Útgefandi er Máli og menning. Sigur-
borg Stefánsdóttir myndskreytti söguna.
Bókin, sem er 32 bls., er prentuð í
Svíþjóð og kostar 1.780 krónur.
• MILLJÓN steinar og Hrollur í dalnum
er eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur.
I fréttatilkynningu segir: Hekla er sjö
ára og ber nafn eld-
fjallsins mikla. Meðan
foreldrar hennar eru á
ferðalagi í útlöndum
dvelur hún ásamt Kötlu
litlu systur sinni hjá
ömmu og afa að Norna-
bjargi í Skessudal.
Þjóðsögur og ævintýr
bókstaflega hringsnúast
í kollinum á Heklu og
Steini afa hennar og
stundum vita þau varla
hvað er draumur og hvað veruleiki.
Kristín Helga hefur áður sent frá sér
bækumar Elsku besta Binna mín og
Bíttu á jaxlinn Binna mín.
Útgefandi er Mál og menning. Jean
Posoceo myndskreytti bókina sem er 83
bls. Prentsmiðjan Oddi hf. sá um prent-
vinnslu. Verð: 1.990 krónur.
Unnur Astríd
Wilhelmsen
Einar
Kárason
Krístín Helga
Gunnarsdóttir
HÓTEL- OG MATVÆLASKÓLINN
Hvað viltu verða?
Nú er tækifærið
við erum að innrita í
GRUNNDEILD MATVÆLAGREINA
Grunndeild er tveggja anna undirbúningsnám fyrir
bakstur - framreiðslu - matartækna
matreiðslu og kjötiðn.
Innritun stendur yfir til 15. nóvember.
Upplýsingar eru veittar í síma 544 5510 milli kl. 9:00 og 15:00.
MENNTASKÓLINN í KÓPAVOGI
Ferðamálaskólinn - Hótel- og matvælaskóíinn - Leiðsöguskólinn
Digranesvegur • IS 200 Kópavogur • island
Sími / Tel: 544 5530, 544 5510 • Fax: 554 3961