Morgunblaðið - 07.11.1999, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1999 29
úthalds, krafts og liðleika var
könnuð og framkvæmdar voru
mjólkursýrumælingar, kraftmæl-
ingar, liðleikamælingar og fleira.
Við vorum svo heppnir að fá Krist-
ján Harðarson þrekþjálfara með
okkur, en unnið var úr niðurstöð-
unum og hann vann áætlun fyiir
leikmennina og hópinn. Síðan voru
tekin próf til að fylgjast með fram-
förum og sýndu menn ekki fram-
farir var skoðað hvað ylli því. Við
könnuðum meðal annars vinnu-
álag og hvíld og reyndum að koma
hlutum þannig fyrir að allir næðu
framförum. Hafa ber í huga að
fyrir tveimur árum þurftu margir
að fara í aðgerðir vegna meiðsla
og í kjölfarið settum við menn í
„gjörgæslu", sérstaka æfinga-
umönnun til að hámarka afreks-
getu og fyrirbyggja meiðsl, ef á
þurfti að halda. I þessu sambandi
má néfna að Guðmundur Bene-
diktsson, Þormóður Egilsson og
Bjarni Þorsteinsson fengu sér-
staka þjálfun allt undirbúnings-
tímabilið 1997 til 1998 og komu
ekkert inn í sameiginlegar æfing-
ar með hinum fýrr en um mánaða-
mótin mars apríl. Þessir leikmenn
hafa allir reynt fyrir sér erlendis
að undanförnu og Bjarni og Guð-
mundur reyndar gert samning við
Leikmenn undir
eftirliti Gauta og
félaga í tvö ár
meiddust mun
síður en þeir sem
léku erlendis á
undirbúningstím-
anum eða bættust
í hópinn eftir
tímabilið í fyrra.
menn á milli leikja, en við lögðum
enn ríkari áherslu en áður á þann
þátt á keppnistímabilinu. Fyrir
vikið voru menn íljótari að ná sér
eftir álagsæfingar og erfiða leiki.
Með öðrum orðum unnum við úr
fyrra tímabilinu til að koma sterk-
ari til leiks á því síðara."
Engin alvarleg meiðsl
Gauti segir að álagið hafi verið
of mikið í vor sem leið þegar leikir
í Reykjavíkurmótinu og deildabik-
arkeppninni voru á sama tímabili.
„Þá var stundum spilað á gervi-
grasi, stundum á möl og þessu
fylgdi mikið álag á líkamann. Því
þurfti að breyta áherslum, sem
skapaði visst vandamál, en þegar
maí var liðinn vorum við komnir á
ná árangri eru þetta óhjákvæmi-
legar æfingar. Hjá KR var ákveð-
inn hópur sem vann að þessari
uppbyggingu undir stjórn Atla,
ákveðið teymi, þar sem hver og
einn bar ábyrgð á ákveðnum þátt-
um. Atli vissi að þeir sem voru á
æfingu voru í lagi en þeir sem ekki
voru mættir væru í meðhöndlun og
þurfti ekki að hafa áhyggjur af
þeim.“
Réttar æfingar
lykilatriði
Það er löng leið frá fyrstu
skipulögðu æfingunni að meist-
aratitli. Sagt er að æfingin skapi
meistarann en það er ekki alls
kostar rétt - rétt æfing skapar
meistarann.
„Við erum stöðugt í uppbygg-
ingu, hvort sem um er að ræða
börn, unglinga, almenning, keppn-
ismenn eða afreksmenn," segir
Gauti. „Við byggjum framhaldið
alltaf á ástandinu eins og það er
hverju sinni og getum leitt getum
að því hvernig það getur orðið með
réttum æfingum. Þjálfun er ekki
eitthvað sem gerist á þremur mán-
uðum heldur er um að ræða ferli
sem gerist á mörgum árum. Hjá
Gróttu gáfum við út þjálfarahand-
bók til að fara eftir í þjálfun yngri
Gauti með ungum lærisveinum sínum á Seltjarnarnesi.
erlend lið til vors. Þetta er af-
rakstur markvissrar þjálfunar og
glæsilegs tímabils þar sem Guð-
mundur var kjörinn Leikmaður
ársins, varnarjaxlinn Þormóður
prúðasti maður Landssímadeild-
arinnar og Bjarni lék mikilvægt
hlutverk í liðinu auk þess sem þeir
voru allir valdir í lið ársins. Hins
vegar skiluðu æfingarnar í fyrra
sér þegar í bættu formi leik-
manna, mun minni meiðslatíðni og
mörgum kom annað sætið í deild-
inni á óvart eftir ekki allt of góða
byrjun. En liðið stóð sig vel í
seinni umferðinni og þá kom í ljós
að leikmennirnir voru í ágætis
standi og meiðsl ekki teljandi.
Þama var kominn grunnur til að
byggja á og við héldum okkar
striki á undirbúningstímanum fyr-
ir nýliðið tímabil. Það var ekki
bara eitthvert æfingaplan heldur
áætlun sem byggðist á mælingum,
stöðu hvers leikmanns. Aukinheld-
ur reyndum við að bæta það sem
ekki hafði tekist nógu vel árið á
undan, kappkostuðum að fylla í
eyðurnar. Fyrra árið lögðum við
mikla áherslu á góða upphitun,
endurhæfingu strax eftir leiki og
gættum þess að forðast samstuð á
æfingum daginn eftir leik. í þessu
sem öðru skiptir einbeitingin mjög
miklu máli en ljóst er að mönnum
er hættara við meiðslum séu þeir
að hugsa um eitthvað annað en æf-
inguna, eins og gjarnan gerist
skömmu eftir leik, þegar menn eru
enn þreyttir. Sveinbjörn Svein-
björnsson nuddari nuddaði leik-
íþróttamenn
verða að vera
ómeiddir til að ná
árangri en með
réttum þjálfunar-
aðferðum má lág-
marka meiðsla-
tíðnina verulega
og forvarnir eru
betri en endur-
hæfing.
beinu brautina. Þá hafði náðst að
styrkja alla veikleika, menn voru í
góðu líkamlegu ásigkomulagi og
varla þurfti að skipta mönnum út
vegna meiðsla."
I leikmannahópnum hjá KR
voru 22 leikmenn og segir Gauti að
engin alvarleg meiðsl hafí átt sér
stað á tímabilinu. Andri Sigþórs-
son hafi reyndar misst mikið úr en
meiðsl hans hafi verið af öðrum
toga. „Þegar tímabilinu lauk þurfti
enginn að fara í aðgerð og allir
voru stálslegnir eins og allt tíma-
bilið. Astæðan er fyrst og fremst
sú að unnið er eftir ákveðinni áætl-
un sem byggist á vísindalegum
grunni. Menn eru oft ósáttir við að
þurfa að gera þessar grunnæfing-
ar, þurfa að hita upp, hlaupa eftir
leiki, þurfa að lyfta, þurfa að
hlaupa úti og svo framvegis. En
ætli menn að sleppa við meiðsl og
flokkanna og ég fylgist með því að
rétt vinnubrögð séu viðhöfð. Það
er lykilatriði að gera sér grein fyr-
ir því að hver æfing hefur ákveð-
inn tilgang, hvort sem er hjá börn-
um eða keppnismönnum í efstu
deild. Það er ekki tilfallandi að
ákveðin æfing er gerð á ákveðnum
tíma heldur er allt kerfisbundið.
Við gerum ákveðna hluti tveimur
dögum fyrir leik í meistaraflokki,
fórum yfir önnur atriði þremur
dögum fyrir leik. Mikilvægt er að
leikmenn skilji þetta og vissulega
hafa þeir gert það hjá KR, enda
hafa þeir séð árangurinn. En KR
hefur búið við það að margir leik-
menn félagsins hafa leikið erlendis
á veturna og svo bætast alltaf ein-
hverjir við hópinn skömmu fyrir
keppnistímabil.
I þessu sambandi er vert að
geta þess að leikmenn, sem bætt-
ust í hópinn eftir tímabilið í fyrra,
komu í 14,3 sjúkrameðferðir að
meðaltali á tímabilinu sem fylgdi í
kjölfarið, en þeir sem léku erlend-
is síðastliðinn vetur urðu að mæta
í 10 sjúkrameðferðir að meðaltali
og þeir sem voru með okkur allan
tímann frá hausti 1997 þurftu 4,3
sjúkrameðferðir að meðaltali. Af
þessu má sjá að þeir sem hafa
ekki verið með okkur í tvö ár
meiddust miklu frekar en hinir.
Tölurnar tala sínu máli og þær
árétta mikilvægi réttra æfinga.
Ekki bara með einstaklinginn í
huga og árangur hans og liðsins
heldur sparnaðinn sem skapast í
heilbrigðiskerfinu.“
í vetur verba
um 60 verslanir
og veitingastaöir meö
opið á sunnudögum.
VERSLANIR
frá kl. 13.00 - 17.00
STJÖRNUTORG
frá kl. 11.00 - 21.00
VEITINGASTAÐIR OG KRINGLUBÍÓ
eru með opið fram eftir kvöldi.
Sími skriftstofu: 568 - 9200
Upplýsingasími: 588 - 7788
KvU\Cf\CsJ\
P H R 5EM#HJRRTRfl 5 L fE R