Morgunblaðið - 07.11.1999, Page 30

Morgunblaðið - 07.11.1999, Page 30
30 SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ Ragnhildur Pálsdóttir Erwin með sýnishom af framleiðslu fyrirtækis síns. Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson NOTA TIMANN VEL eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur Þegar Ragna Pálsdóttir fór til náms í fjölmiðlafræðum í Banda- ríkjunum eftir að hafa lokið stúd- entsprófi frá Menntaskólanum við Sund árið 1977, tvítug að aldri, þá vissi hún ekki að hún væri raun- verulega að fara til búsetu erlendis um langa framtíð. Hún lauk fjöl- miðlanáminu á röskum þremur ár- um og var varla komin aftur til ís- lands eftir það þegar hún fór að ókyrrast og vildi komast í frekari ferðalög. Hún hafði unnið sem flug- freyja á sumrin og var því vön að ferðast. Áður en langt um leið var hún komin sem flugfreyja hjá Gulfair til Mið-Austurlanda og þar með var teningunum kastað - hún hefur ekki komið til búsetu á ís- landi síðan. Urðu ástfangin í Austurlöndum Um sama leyti og Ragna hélt til Mið-Austurlanda fór ungur maður þangað til starfa frá Bandaríkjun- um. Hann hafði ekki lengi dvalið í Bahrain þegar hann sá unga ís- lenska stúlku og var þar eins og lesendur kannski grunar komin Ragnhildur Pálsdóttir í eigin per- sónu. Það er ekki að orðlengja það að þau Ragna Austin Erwin urðu ástfangin og ákváðu að ganga í hjónaband. „Við giftumst reyndar hér á íslandi í Fríkirkjunni árið 1985 en fórum svo aftur út til Ba- hrain þar sem við bjuggum til árs- ins 1987. Þá fluttum við til London og gekk ég þá með fyrsta barn okkar,“ segir Ragna er blaðamaður hitti hana að máli fyrir skömmu, en hún var hér á íslandi vegna sýn- ingar á framleiðslu fyrirtækis hennar Chase Erwin, sem hún setti upp í Galleríi Nema hvað á Skólavörðustígnum. „Sagan af til- urð fyrirtækis míns hófst þegar ég kynntist konu sem heitir Ladda og var eigandi silkiverksmiðju í Ta- flandi. Ég hafði kynnst viðskiptum og markaðssetningu í tengslum við starf mitt hjá auglýsingaskrifstofu sem ég starfaði hjá í Bahrain. Það VEDSKEPTIAIVINNULIF ÁSUNNUDEGI ►Ragnhildur Pálsdóttir Erwin, öðru nafni Ragna Erwin eða bara Ragna Páls, er íslenskum íþróttaunnendum að góðu kunn. Hún var þekkt frjálsíþróttakona á árum áður en hefur nú hasl- að sér völl á öðrum vígstöðvum. Hún rekur í London fyrirtæk- ið Chase Erwin, sem sérhæfír sig í framleiðslu á silkiefnum fyrir alls kyns innanhússnotkun. Áður en Ragna fluttist til Bretlands bjó hún í nokkur ár í Mið-Austurlöndum með eigin- manni sínum, Austin Erwin, sem á með henni fyrirtækið Chase Erwin en er bankamaður - aðstoðarforstjóri hjá Citi- bank í London. Þau hjón eiga fjögur börn. Frá sýningu á framleiðslu fyrirtækisins Chase Erwin, sem haldin var á Skólavörðustígnum fyrir skömmu. starf var mér á ýmsan hátt örlaga- ríkt. Bæði var mér fengin þar mikil ábyrgð, ég annaðist skipulagningu á auglýsingum og ýmsum öðrum viðskiptastörfum fyrir stór fyrir- tæki eins og t.d. Marlboro-sígarett- ur, Singapore Airlines og fleiri slík - og þetta starf leiddi óbeint til fyr- irtækjárekstursins. Sýnishornabókin sett saman Þegar ég hafði nokkru síðar hitt umræddan verksmiðjueiganda í Taflandi kviknaði sú hugmynd að ég gæti kannski markaðssett í Bretlandi þau fallegu efni sem hún framleiddi. Ég byrjaði að setja saman liti og nokkur mynstur í eina sýnishornabók og í London sýndi ég þetta innanhússhönnuð- um. Það voru góður viðtökur við þessari framleiðslu strax - allt fór þetta þó rólega í gang, ég var ekki með neina skrifstofu, seldi bara sjálf. Næst gerðist það að ég kom til íslands með mitt eina eintak af sýnishornabókinni og mitt eina barn, sem þá var nýfætt. Eftir að hafa sýnt barnið ættingjum og vin- um tók ég fram sýnishornabókina, gekk niður Laugaveginn og bank- aði þar upp á hjá nokkrum arki- tektum. Þeim leist mjög vel á silki- efnasýnishornin en vildu fá að sjá meira. Þarfir þeirra voru að sjálf- sögðu mismunandi, sumir voru að innrétta hótel, aðrir sjúkrahús og skóla. Ég sá í hendi mér að þarna væri „óplægður akur“, fór út með bamið og sýnishomabókina til London og fór að læra allt um efni fyrir hótelnotkun og stofnanir. Seldi strax efni á tvö hótel Þessi efni þurftu að vera t.d. eld- tefjandi og uppfylla viss skilyrði um þvott og hreingerningar og einnig datt mér í hug að hótel hér á landi þyrftu að hafa myrkvunar- tjöld. Utlendingar hér kvarta oft undan því að erfitt sé að sofna hér í vorbirtunni. Ég var sú fyrsta sem innleiddi hér myrkvunartjöld og það gerði ég strax einum og hálfum mánuði seinna þegar ég fór aftur til Islands með ný sýnishorn og réttar vömr fyrir þau verkefni sem ég hafði frétt af í fyrri ferðinni. Ég seldi strax saumuð gluggatjöld og rúmteppi á tvö hótel. Þetta allt saman leiddi svo til að ég stofnaði fyrirtækið Vef með föð- ur mínum, Páli Ól. Pálssyni, sem við höfum rekið saman síðan hér á íslandi. Og höfum við nú átt far- sælt samstarf í tólf ár við öll helstu hótel á landinu. Við höfum unnið með nær öllum stærstu hótelum landsins, svo sem Flugleiðahótelunum, Fosshótelun- um, Hótel Sögu, Grand hótel og Hótel Reykjavík, en þar unnum við svokallað „turnkey“-verkefni, seld- um og sáum um allar innréttingar á gestaherbergin og sali, sáum um húsgögn, ljós og efni. Það má því segja að við höfum öðlast sérstaka sérhæfingu hvað varðar vöru sem henta á hótelum og erum með mik- ið úrval á boðstólum. Fyrir hvert einasta verkefni höfum við unnið tilboð á móti öðrum tilboðsgjöfum, þannig að það er ekki eins og þetta hafi allt verið fyrirhafnarlaust. Og þess ber að geta að þetta unnum við við pabbi bara tvö ein - höfðum enga aðstoð. Unnum stundum dag og nótt Ég er mjög stolt af þessum verkefnum sem erlendis eru unnin af fjölda fólks. Það er ekki á allra færi að skipuleggja framleiðslu á húsgögnum, efnum fyrir glugga- tjöld, segja fyrir um bólstrun stóla, láta sauma og vattera rúm- teppi og svo framvegis, svo allt smelli saman - og skila svo öllu þessu af sér á réttum tíma. En þetta tókst okkur pabba. Stundum þurftum við að vísu að vinna nótt og dag og fram á síðasta dag, ís- lendingar eru líka stundum með „seinni skipunum" að panta eins og margir vita. Opnaði verslun í London Einnig höfum við í framhaldi af þessu unnið mikið að því með arki- tektum í sambandi við verkefni sem lýtur að opinberum bygging- um, svo sem skólum, sjúkrahúsum og fleiri stofnunum. Á sama tíma hélt ég áfram með sölu á silkinu í London og hægt og rólega jók ég við tegundirnar sem ég var með á boðstólum, en var bara með eina stúlku í vinnu. Kaflaskipti urðu i starfseminni fyrir sex árum þegar við opnuðum litla verslun í Chel- sea Harbour Design Centre, ég var með eina af fyrstu verslunum sem var opnuð þar. Nú eru allar þrjár hæðirnar setnar verslunum og um 60 til 70 fyrirtæki sem versla með innanhússvörur eru þar til húsa. í þessari byggingu eru sýningarsalir fyrir framleiðslu helstu fyrirtækja á sviði innan- hússhönnunar. Viðskiptavinir um alian heim Viðskipti mín með silkiefni juk- ust jafnt og þétt eftir að starfsemin flutti í umrædda verslun og jafn- frmt bætti ég við nýjum mynstrum og efnum. Síðustu þrjú ár hafa ver- ið mjög spennandi hvað starf mitt snertir. Ég hef haldið mig við sér- hæfingu í silkiefnaverslun, við er- um nú komin í hóp helstu fyrir- tækja á því sviði. Ég reyni að hafa einfold og stílhrein munstur og jafnframt að hafa silkið okkar ferskara og lífmeira en hjá keppi- nautunum, t.d. Jim Thompson. Við- skiptavinir okkar eru út um allan heim og sýnishornabækurnar eru orðnar nokkur hundruð í hverri tegund fyrir sig. Það er gaman að tlgjast með því hvert efnin fara. g var t.d. í Indlandi í vor, þar sem var verið að framleiða silki fyrir vel þekktan og ríkan viðskiptavin - Bin Laden. Þurfti silkið að vera komið í anddyri hans í Saudi Ara- bíu fyrir vissan tíma og tókst það. Við höfum haft fleiri fræga við- skiptavini, svo sem prinsessuna af Kent og hef ég heimsótt hana í

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.