Morgunblaðið - 07.11.1999, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1999 31
Útlendingar hér
kvarta oft undan
því að erfitt sé að
sofna í vorbirt-
unni. Ég var sú
fyrsta sem inn-
leiddi hér myrkv-
unartjöld.
Kaflaskipti urðu í
starfseminni fyrir
sex árum þegar
við opnuðum litla
verslun í Chelsea
Harbour Design
Centre.
Ég er að byrja að
hanna nýja sófa
og stóla sem eru í
stíl mitt á milli sí-
gildra húsgagna
og nútímahús-
gagna, ég legg
ekki síst áherslu
á þægindi og
vandaða smíði.
Kensington-höll. David Bowie hef-
ur keypt vöru af okkur svo og Ma-
donna.
I vor náði ég samningi við frægt
fyrirtæki sem framleiðir snekkjur,
Sunseeker, ég hannaði fyrir þá
línu af silki fyrir snekkjurnar, og
hefur hönnunin líkað svo vel að nú
er silki frá okkur í öllum snekkjun-
um sem eru í nýsmíði og eigendur
eldri báta vilja skipta yfir í nýju
efnin.
Opnaði verslun
með húsgögn
Síðasta ár opnaði ég aðra og
stærri verslun með húsgögn í
sömu verslunarmiðstöð. Þetta er
þótt ég segi sjálf frá glæsileg búð,
bæði með húsgögn frá Fendi á
Ítalíu og svo mína eigin hönnun.
Eg er að byrja að hanna nýja sófa
og stóla sem eru í stíl mitt á milli
sígildra húsgagna og nútímahús-
gagna, ég legg ekki síst áherslu á
þægindi og vandaða smíði. Allt
þetta hefur gerst jafnframt því að
fyrirtæki okkar pabba, Vefur, hef-
ur dafnað vel. Við opnuðum versl-
un á Skólavörðustígnum fyrir
þremur árum. Hjá Vef er að finna
góðar gjafavörur og ágætt úrval af
áklæði. Fyrirtækið er ennfremur
áfram í samstarfi við hótel á sínu
sérsviði.“
Tekur börnin með
í verslunarferðir
Og hvað svo með einkalífið?
Skyldi Ragna hafa einhvern tíma
til að sinna fjölskyldu og heimili
meðfram öllu þessu viðskipta-
starfi?
„Já, við hjónin eigum fjögur
börn og vissulega þarf að sinna
þeim og það geri ég. Eg hef raunar
haft yndislegar stúlkur frá íslandi
sem au-pair síðustu árin, einkum
frá Akranesi. Þær hafa hjálpað
mér mikið við heimilisstörfin.
Börnin tek ég oft með mér í við-
skiptaferðir til Mið-Austurlandá og
Austurlanda fær. Þess má svo að
lokum geta að listir og menning
sneiða ekki alveg hjá okkar garði,
við Austin stundum listalífið í
London eins mikið og við getum og
ei-urn m.a. virkir félagar í þekktu
leikhúsi og í skemmtilegu nýju óp-
erufélagi sem veitir okkur mikla
ánægju. Mitt „motto“ er að nota
tímann vel og lifa lífinu meðan
hægt er.“
Fólk
Doktor í
efnafræði
• EINAR Karl Friðriksson vai'ði
nýverið doktorsritgerð við Cornell-
háskóla í Bandaríkjunum, og var
heiti ritgerðar-
innar „High-
Resolution Mass
Spectrometry of
Immunoglobulin
E and Plasma
Membrane
Phospholipids
Important for
Mast Cell Acti-
Einar Karl vation".
Friðriksson j ritgerðinni er
gi’eint frá rannsóknum á IgE-
mótefni og fleiri prótínum með Fo-
uriervörpunar-massagreini og sýnt
hvernig einstakir möguleikar slíks
tækis nýtast í lífefnarannsóknum.
Massagreinir Cornell-háskóla er
búinn 6 Tesla-ofursegli og „elect-
rospray“-jónagjafa. Þannig er hægt
að jóna prótínsameindir í heilu lagi,
yfir 60.000 atómmassaeiningar að
þyngd, og skrá massaróf með
ísótópískri upplausn. í ritgerðinni
er m.a. greint frá mælingum á mis-
munandi sykruábót prótína, stað-
festingu á raðgreiningu prótína og
villuleiðréttingum í amínósýruröð.
Notast var við fjölbreyttar MS/MS-
aðferðir, m.a. ECD (Electron Capt-
ure Dissociation) sem er ný aðferð
sem þróuð var í massagreinishópi
Cornell.
Einnig er gi-eint frá mælingum á
lípíðum í frumhimnum og sérstök-
um frumuhimnusvæðum (detergent
resistant membranes). Mælingarn-
ar styðja tilgátur um að slík svæði
gegni mikilvægu hlutverki í fyrstu
skrefum í IgE-miðluðum frumu-
boðskiptum, svo sem í ofnæmisvið-
brögðum. Einar hefur einnig birt
niðurstöður sínar í nokkrum grein-
um í alþjóðlegum vísindatímaritum
bæði á sviði efnagreininga og líf-
efnafræði.
Leiðbeinendur Einars Karls voru
Fred McLafferty, kunnur frum-
kvöðull á sviði massagreininga og
Barbara Baird, sérfræðingur í líf-
eðlisefnafræði, en þau eru bæði
prófessorar við efnafræðideild
Cornell-háskóla.
Einar Karl er sonur Friðriks
Páls Jónssonar og Ragnheiðar
Guðmundsdóttur sem búa á Akur-
eyii. Hann á eina dóttur, Sólrúnu
Höllu. Einar Karl býr í Reykjavík
og starfar hjá A&P Einkaleyfi ehf.
sem ráðgjafi um vernd hugverka-
réttinda, einkum á sviði efnafræði
og líftækni.
Frá Kolaportinu.
Breytingar í Kolaportinu
BÚIÐ er að gera miklar skipulags-
breytingar á Markaðstorgi Kola-
portins og skipta upp markaðs-
torginu í tvo hluta. Með þessum
breytingum er verið að gera hluta
söluaðila kleift að vera með opið á
föstudögum. Breytingin skilar
stærri sölubásum, breiðari götum
fyrir fólk og fleiri hornbásum fyrir
þá sem eru að selja koinpudót um
helgar.
Markaðstorg Kolaportsins hefur
nánast frá upphafi verið opið um
helgar nema á jólamarkaði sem op-
inn er alla daga í tvær vikur fyrir
jól. Nú verður breyting á þessu, því
stór hluti Kolaportsins verður op-
inn á föstudögum kl. 14-21.
NÁMSAÐSTOÐ
á lokasprettinum fyrir jólaprófin
— réttindakennarar — flestar greinar — öll skólastig —
Innritun í síma 557 9233 frá kl. 17 til 19 virka daga.
Nemendaþjónustan sf.
GDK ISDN
_ * ■■
STAFRÆN SAMSKIPTI
LG GDK símstöðvarnar eru stafrænar
ISDN síma og samskiptastöðvar sem
henta fyrir lítil, meðalstór og stór fyrirtæki.
Símstöðvarnar eru í stöðugri þróun og
reglulega bætast við nýjir eiginleikar sem
gera má virka með hugbúnaðaruppfærslu.
ÞRÁÐLAUST SÍMKERFI
Innbyggt þráðlaust slmkerfi, þar sem
þráðlausir símar virka nákvæmlega eins
og sérbyggð símtæki og hafa allan aðgang
að aðgerðum í símkerfinu. Hentar sérstaklega
vel þar sem menn eru mikið á ferðinni.
SÍMSVÖRUNARKERFI
DVU spjaldið í GDK símstöðinni
gerir starfsmönnum kleift að skilja eftir
töluð skilaboð á símtækjum. DVU getur
líka unriið sem hjálparsvörun fyrir skiptiborð
og sem almennur símsvari. DVU er ekki
utanáliggjandi aukabúnaður heldur innbyggt
í símstöðina.
TÖLVUTENGINGAR
Síminn á tölvuskjáinn. Notandinn
getur auðveldlega framkvæmt
allar aðgerðir í símkerfinu með
Windows forriti og CTI samskiptastaðli
LG
LG samsteypan var stofnuð 1947 og er næst stærsta fyrirtæki í Kóreu.
LG er 25 stærsta framleiöslufyrirtækið á heimsvísu. 7% af veltu
fyrirtækisins er varið I rannsóknar- og þróunarstörf. Starfsmenn LG
eru um 120.000 og þar af vinna 5.000 manns við þróunardeildir
fyrirtækisins. Meðal samstarfsaðila LG eru Honeywell, Hitachi, Siemens,
Mitsubishi og AT&T. Verksmiðjur eru I Bretlandi, Þýskalandi,
Bandarikjunum, Thaílandi og Indónesíu.
Istel h.f. er hefur selt og þjónustað símabúnað
frá árinu 1983. I dag rekur fyrirtækið öflugt
verkstæði og þjónustudeild þar sem kappkostað
er að sinna ört vaxandi viðskiptamannahópi
sem best. Um 1700 fyrirtæki og stofnanir nota
simstöðvarfrá Istel h.f.
Af hverju ekki að slást i hópinn?
ístel
Siðumúla 37 - 108 Reykjavík
S. 588-2800 - Fax 588-2801